Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 60
ÖO SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi
www.haskolabio.is
sími 530 1919
Niels Olsen Sidse Babett Knudsen ParikaSteen
EDDIE MURPHY er KLUMPARNIR
wv _
OSKABÖRN ÞJOÐARINAR
Frumsýnd
24. nóvember
FILMUNDUR
AOaÚiJútverlf
^SÍgúf Ö u rSi^tirjóÚSso n
ew&'jí^.Lcikstjori
’ AgíjstSS bdtti tmdsson
ÆWiai-lli
« , — _ M ^ NÝn OG BETRA'»i „
Frumsýning
RENÉE CHRIS MORGAN GREG
ZELLWEGER ROCK FREEMAN KINNEAR
EDDIE MURPHY er KLUMPARNIR
vv..
Hún er að elta draum.
Hún er geðveik og þarf hjálp strax!
Frábær gamanmynd með Renée Zellweger
úr Jerry Maguire, Morgan Freeman og Chris Rock
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.20. b. i. 16. vit nr. 161
BRUCE WILLIS
?g 6 isl.tali. viinr.144. I Sýndkl. 2. Sýndkl.2.Isl.tal. 4Syndkl 8 og l Sýndkl. 10. I Sýnd kl. 8.«.u2 I
i. ensku tal. vii 1.154 | vitmi47 | Vitnr.113 | 1u.15. vitm. ise | b.ih vitm.133. | vitnr.149
Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is
rCíwmVítdif.u
- Óráðgert
snilldarverk
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Arnar Eggert Thoroddsen segir Egil Sæbjörnsson sýna
„hugrekki til að gera eitthvað skapandi með dægur-
tónlistarforminu" á plötu hans, Tonk ofthe Lawn.
Egill Sæbjömsson hefur löngum
verið talin einn efnilegasti mynd-
listarmaður sinnar kynslóðar (f.
1973). Egill hefur verið
nokkuð fyrir að
blanda
hljómlist
við verk
dægurtónlist
þá, og mætti
segja að oln-
bogarými
þessa áhuga
hafi stækkað til
muna á síðasta
ári er hann gaf út
geisladisk, rétt
eins og hver annar
tónlistarmaður.
Platan heitir The
International Rock
RoII Summer of Ei
Sæbjörnsson, lágfitlsleg útgáfa,
skreytt „ljótu“ heimagerðu umslagi
og heildaráferðin öll hin grasrótar-
legasta. Munurinn á þessari útgáfu
Egils og öðrum plötum sams konar
er að öll þessi einkenni hennar virt-
ust vera þama í einhverjum öðrum
tilgangi. Egill virtist vita nákvæm-
lega hvað hann væri að gera. Mynd-
listarmaðurinn að „flippa“, gera grín
að rokkmenningunni. Gísli Amason,
sá er gagnrýndi plötuna á síðum
þessa blaðs, kvartar undan því að
helsti löstur þeirrar plötu sé sá að
þrátt fyrir að hún hafi verið viljandi
,4Ila gerð“ þá hafi glitt í tónlistar-
hæfileika hér og þar og getur sér
þess til að ef Egill myndi reyna að
gera „tónlist" næst en ekki eins kon-
ar gjöming eins og þessi plata var
líkast til hugsuð yrði það örugglega
merkilegri smíð.
Það er kannski ekki skrýtið að
tónlistarmenn og áhuga- og fræði-
menn um þann geira líti þessa nýj-
ustu afurð Egils homauga. Er mað-
urinn bara að fíflast? Er hann að
gera grín að listforminu sem við öll
elskum og skiptir okkur hjartans
máli?
En þessar vangaveltur gilda einu.
Hversu kald-
hæðnisleg sem
þessi „tunga
upp við tönn“
plata Egils á
að vera neyðist
hann til að horfast í augu
við þá staðreynd að hér er að finna
hreint frábærar lagasmíðar. Og það
er ekkert grín. Forspá Gísla Arna-
sonar hefur ræst.
Hæðnistónn plötunnar birtist ann-
ars á margvíslegan hátt. Egill skop-
ast að úr sér gengnum þungarokks-
hundum með ímynd sinni og svo
fylgja með í bæklingi skondnar hug-
leiðingar við hvert lag, þar sem hann
tiltekur nöfn eins og Thin Lizzy, Neil
Young og Michael Jackson í vanga-
veltum sínum um tilurð laganna.
Platan vísar þó gjaman í ýmsa að-
ila poppsögunnar sem ekki eru
nefndir í þessum hugleiðingum ein-
hverra hluta vegna, t.a.m. David
Bowie, Prince, og White Album Bítl-
anna. Hip-hoptónlistin er og greini-
legur innblástur. Eins og sjá má er
lítið mál að blása þessa skífu af sem
helbert endurvinnslugrín og einka-
flipp.
En ekki er allt sem sýnist.
Tónlistin sjálf er einhvers konar
skrýtipopp; og eru nálganir Egils við
dægurtónlistina ekki ósvipaðar að-
ferðum Beck, Egill nær að búa til
eitthvað nýtt og ferskt úr hafsjó til-
vísana í sögu og inntak popptónlist-
arinnar þannig að upp úr stendur
frumleg poppplata, geislandi af ör-
yggi og ekki hvað sist hugrekki til að
gera eitthvað skapandi með dægur-
tónlistarforminu. Lögin era öll,
hvert á sinn hátt, snilldarlegur leikur
að þessum möguleikum. Fjölbreytt,
frjó og svöl lög sem búa yfír ótrúlega
flottum augnablikum. Ég nefni til
dæmis er bassinn tekur grópaðan
sveig undir enda lagsins „I Love You
So“, töluðu/sungnu línumar í „If You
Don’t Know Anything", djúpu rödd-
ina í „I Want To Love You As You
Are“ og hina glæsilegu línu: „You’re
just a masoehistic fool.“ í laginu
„Who’s You Gonna Get When You
Get Set.“ Platan býr yfir fjölda
glæstra augnablika eins og þessa.
Bygging laganna er oft á tíðum
skemmtilega ófyrirsjáanleg og ný-
stárleg hljóð og hljómar leynast víða
á plötunni og gefa henni aukið vægi.
Rödd Egils er líka eftii'tektarverð,
flott popp/rokkrödd sem spannar
breitt svið og hann beitir henni á
áhrifa- og hugmyndaríkan hátt.
Upptökustýring er og til fyrir-
myndar, hljómur góður og einhvern-
vegin í fullkomnu samræmi við eðli
plötunnar.
Hvað næst segi ég bara? Kemur
Egill loks með „alvöru“ plötu á
næsta ári og tekur allar aðrar út-
gáfur í nefið?
Tonk of the Lawn er óvæntur en
afar gleðilegur hvalreki á fjömr ís-
lenskrar tónlistar, plata sem vex
með hverri hlustun. Ein af albestu
plötum ársins, hvort sem Agli
Sæbjömssyni og fylgismönnum
hans líkar það eður ei.
Arnar Eggert Thoroddsen
TONLIST
Geisladiskur
TONK OF THE LAWN
Tonk of the Lawn, geisladiskur Eg-
ill S vs. Muddy Fog sem er hliðar-
sjálf myndlistarmannsins, og nú
túnlistarmannsins, Egils Sæbjöms-
sonar. Egill flytur en honum til að-
stoðar er Valgeir Sigurðsson (for-
- * ritun og ýmsar Kljóðritanir). Lög
og textar eru eftir Egil Sæbjöms-
son. Upptökustjórn var í höndum
Valgeirs Sigurðssonar fyrir utan
lagið „If You’ve Got A Nobody’s
Notion“ en þar stýrði Egill upp-
tökum sjálfur. 42,49 mín. Smekk-
Ieysa sm/ehf gefur út.
ÞAÐ hlýtur að segja eitthvað um
íslenska tónlistarútgáfu þetta árið að
ein af betri plötum ársins, þessi plata
hér, Tonk of the Lawn, er gerð af
ungum manni sem er fyrst og fremst
myndlistarmaður. Það virkar svo líkt
og saltkorn á sárin að hún er öðmm
þræði ætluð sem hálfgert spaug.
NIKE BÚÐIN
Laugavegi 6
Reuters
Caine var stoltur þegar
hann sýndi blaðamönnum
orðuna sem drottning af-
henti honum á fímmtudag.
Ég heiti
Sir
Michael
Caine
LEIKARINN mæti Michael
Caine lét einhverju sinni þau
þungu orð falla í garð ættjarð-
ar sinnar Englands að sér
hefði löngum fundist hann
vera utangátta og ekki hlotið
þá virðingu samlanda sinna
sem hann taldi sig eiga skilda.
Hér eftir getur hann hins
vegar hætt að Lfða kvalir yfír
slíkum vangaveltum. Elísabet
Englandsdrottning hefur tek-
ið af öll tvímæli um hvort
þjóðin kann að meta það sem
hann hefur lagt af mörkum í
þágu kvikmyndanna með því
að aðla hann og sæma hann
nafnbótinni Sir Michael Caine.
Þetta var innsiglað við sér-
staka athöfn í Buckingham-
höll á fimmtudaginn var. Hinn
tvöfaldi Óskarsverðlaunahafi
hafði þegar hlotið CBE-
orðuna en nafnbótina nú hlýt-
ur hann fyrir að hafa unnið til
hinna virtu Óskarsverðlauna í
annað sinn, en verðlaunin
voru veitt í mars sfðastliðnum.