Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Arnie Wexler, forsvarsmaður bandarískrar meðferðarstofnunar fyrir spilafíkla er siúk eins og hver Arnie Wexler er spilafíkill en hefur veriö óvirkur í meira en þrjátíu ár. Hann hefur helg- aö líf sitt baráttunni gégn spilafíkn og rekur nú meðferðarstofnun fyrir spilafíkla ásamt eiginkonu sinni. Birna Anna Björnsdóttir átti samtal viö Wexler þegar hann var stadd- ur hér á landi nýverið á vegum Áhugahóps gegn spilafíkn. RNIE og Sheila Wexler-stofnunin er meðferðar- stofnun fyrir spila- fílda í Bandaríkj- unum og er rekin af hjónunum sem hún er kennd við. Haldnir eru íyrirlestrar á vegum stofnunarinnar víða um heim og kom Amie Wexler hingað til lands nýverið og hélt íyrirlestur á vegum Ahuga- hóps gegn spilafíkn. Sjálfur er Wexl- er forfallinn spilafíkill en hefur verið óvirkur í rúmlega þrjátíu ár og helgað líf sitt baráttunni gegn spilafíkn. „Spilaiíkn fer ekki í manngreinar- álit og þegar fjallað er um spilafíkn er mikilvægt að gera sér grein íyrir því að þetta er sjúkdómur eins og hver önnur fíkn. Fólki hættir gjaman til að telja spilafíkla til smákrimma á með- an áfengis- og eiturlyfjafíklar em taldh- til sjúklinga," segir Wexler. „Spilafíkn er mjög falinn vandi og er það að hluta til vegna þess að fólk skammast sín mjög fyrir þessa áráttu. Eins er auðvelt að leyna spila- fíkn því líkamleg einkenni em engin, fólk er með fullri rænu og það lyktar ekki.“ Vinningsstigið, tapstigið og örvæntingarstigið Hann segir spilafíkn geta haft mjög alvarlegar afleiðingar og að spiiafíkl- ar gangi jafnan gegnum þrjú stig. Vinningsstigið, sem einkennist af auknu fjárstreymi í spilamennsku og draumum um að hreppa stóra vinn- inginn, tapstigið, sem einkennist af því að viðkomandi er mjög upptekinn af spilamennskunni, tekur lán til að fjármagna hana, beitir lygum og hef- ur neikvæð áhrif á fjölskyldu sína, og loks örvæntingarstigið, þar sem mjög miklum tíma er varið í spilamennsku og peninga gjaman aflað með ólög- mætum hætti ásamt því sem hugar- ástand viðkomandi einkennist af sam- viskubiti, firringu, vonleysi og jafnvel sjálfsvígshugleiðingum. Wexler segir að spilafíkn sé ekki skilgreind út frá því hversu mikið við- komandi stundar fjárhættuspil, held- ur út frá hugarástandi hans. „Segja má að spilafödll sé sá sem er hættur að stjóma fjárhættuspilinu en er farinn að stjómast af því. í huga spilafíkils verður fjárhættuspil mikil- vægara en allt annað, þar með talið vinnan, eiginkonan eða eiginmaður- inn og bömin. Ég veit af eigin reynslu að það eina sem kemst að er hugsunin um hvemig hægt sé að komast yfir peninga til að geta haldið áfram spila,“ segir Wexler. Hann bætir því við að ómögulegt sé fyrir spilafíkil að stunda fjárhættuspil til lengdar án þess að lenda í vand- ræðum og að langflestir þeirra sem komist á örvæntingarstig spilafíknar fremji einhvers konar ólöglegan verknað til að standa straum af kostn- aði við fíkn sína. Spilakassar, lottó og happdrætti eru Qártiættuspil Hann segir engan vafa leika á því að skilgreina megi spilakassa á borð við þá sem algengir em hér á landi sem fjárhættuspil og að lottó og happ- drætti flokkist líka sem fjárhættuspil. „Þó að spilakassar sem þessir kunni að virðast sakleysislegir er staðreyndin sú að fólk hefur tapað há- um fjárhæðum og jafnvel aleigunni með því að spila í þeim.“ Segir hann að auðveldur aðgangur að spilakössunum geti sannarlega ýtt undir að spilafíkn komist á alvarlegt stig hjá þeim sem veikir em fyrir. Einnig segist hann hafa veitt því at- hygli að hér á landi virtist lítið eftirlit vera með því hvort börn og unglingar spili í kössum í verslunum og sjopp- um. „Þetta er mjög varasamt því rann- sóknir sýna að spilafíkn hefur vaxið mjög meðal ungs fólks og því yngri sem menn byija að stunda fjár- hættuspil því meiri líkur em á því að þeir verði háðir því.“ Wexler segist einnig telja slæmt að hafa fjárhættuspil fyrir bömum. „Maður sér stundum böm fylgjast stóreyg með hvað foreldrar þeirra era spenntir þegar þeir spila í spila- kössum eða skafa af skafmiða. Þetta hefur auðvitað áhrif á bömin og þau hugsa með sér að þetta sé nokkuð sem þau vilji gera þegar þau em orðin stór.“ Konum hefur flölgað mjög meðal spilafflda Wexler segir að vegna þess hve fal- inn þessi vandi er sé erfítt að áætla fjölda spilafíkla. Talið sé að um 2,5 til 7,5% Bandaríkjamanna séu haldnir spilafíkn og segist hann telja óhætt að áætla að hlutfallið sé svipað á öðmm Morgunblaöiö/Jón Svavarsson Amie Wexler heldur fyrirlestur á vegum Áhugahóps gegn spilafíkn. Vesturlöndum. Hann segir hlutfall kvenna meðal spilafíkla hafa aukist gífurlega undanfarin ár, fyrir tíu ár- um hafí verið talið að þær væra um 1 til 2% allra spilafíkla en að nú séu þær taldar vera um 25 til 45% þeirra. Wexler segir að hlutfall ungs fólks og eldri borgara fari einnig vaxandi og að um 13% þeirra sem leiti sér hjálpar vegna spilafíknar séu yngri en 21 árs og að önnur 13% séu eldri borgarar. Einnig segir hann að spila- fíkn og önnur fíkn fari gjaman saman og að þeim, sem haldnir séu eitur- lyfja- og/eða áfengisfíkn, sé til dæmis mörgum sinnum hættara við að verða spilafíklar en öðmm. Fíkn í spennu og tilfinniiiguna sem maður fær við að spila Wexler segir mikilvægt að athuga að spilafíkn snúist ekki eingöngu um að eignast peninga, það sýni sig meðal annars í því að fjöldi millj- ónamæringa em spilafíklar. „Þetta snýst ekki um að þurfa á peningunum að halda, heldui’ um að eignast peninga á nákvæmlega þenn- an hátt. Þetta verður fíkn í spennu og tilfinninguna sem maður fær við að spila. Það er ekki eins að eignast pen- ingana með því að vinna fyrir þeim eða stela þeim.“ Hann segir að þegar spilafíknin er komin á stig örvæntingar gerist menn, sem jafnan em stálheiðarlegir, þjófóttir. Sjálfur segist hann hafa stolið daglega á meðan hann var virk- ur spilafíkill, „en eftir að ég hætti hef ég aldrei stolið neinu. Spilafíklar stinga undan fé og álíta það ekki þjófnað heldur lán sem verði greitt aftur um leið og þeir fái stóra vinning- inn. Þannig er fólk yfirleitt að spila með annarra manna peninga þegar spilafíknin er komin á hátt stig. Og þannig er þetta líka alltaf feluleikur SJÁBLS.14 Samkvæmt skilgreiningu bandaríska geðlæknafé- lagsins er talið að ein- staklingur sé haldinn sjúklegri spilafíkn hafi hann fimm eftirtalinna einkenna. 1. Hugsar stöðugt um peningaleiki. 2. Hefur þörf fyrir að leggja sífellt meiri pen- inga undir. 3. Hefur gert margar árangursiausar tiiraunir til að ná tökum á fíkninni. 4. Er órólegur og ergileg- ur þegar verið er að reyna að draga úr spila- mennsku. 5. Spilar fjárhættuspil til að gleyma öðrum vanda- málum. 6. Reynir að vinna aftur það sem tapaðist í gær. 7. Segir fjölskyldu sinni og öðrum ósatt tíl að breiða yfir fíkn sína. 8. Stundar ólöglega iðju tli að afla sér fjár til að spila með. 9. Hefur glatað mikilvæg- um tengslum við vini, glatað vinnu sínni eða orðið af tækifærum vegna spilamennskunnar. 10. Treystir á aðra til að afla fjár til að leysa úr fjárhagsvanda vegna spilamennskunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.