Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.11.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2000 11 Umræður halda áfram í Danmörku um samskipti við Þjoðverja á stríðsárunum Danska ríkið seldi Þjóðverj- um vopn Rannsóknir danskra blaðamanna og sagn- fræðinga sýna að vopnaverksmiðjur danska ríkisins framleiddu hergögn handa Þjóð- verjum á styrjaldarárunum með vitund og vilja ríkisstjórnarinnar. Upplýsingarnar hafa hleypt af stað að nýju umræðu um sekt eða sakleysi forráðamanna danskra fyrir- tækja sem unnu fyrir hernámsliðið, segir Helgi Þorsteinsson í Kaupmannahöfn. ÞJÓÐVERJAR hemámu Danmörku 9. apríl árið 1940. Danskar hersveitir við iandamæri ríkjanna og varðlið við Amah'uborg veittu mótspymu en rík- isstjómin skipaði fljótlega fyrir um að henni skyldi hætt. Mynduð var þjóð- stjóm fjögurra flokka sem tók upp samstarf við þýska hernámsliðið og hvatti landsmenn til hins sama. Fyrir- komulagið hentaði Þjóðverjum vel, þeir fengu mikið magn af landbúnað- arvömm og öðmm vamingi frá Dan- mörku og þúsundir danskra verka- manna fóm til starfa hjá þýskum fyrirtækjum. Danir nutu einnig góðs af samstarfinu og bjuggu við bestu lífskjör á öllu hemámssvæði Þjóð- verja. I kosningum sem fram fóm í mars 1943 fengu þeir flokkar sem studdu samstarfsstefnuna 94% at- kvæða. Sumarið 1943, eftir að ljóst var orð- ið að Þjóðverjar væm að tapa stríð- inu, jókst andstaða Dana við her- námsliðið. I lok ágúst neitaði ríkis- stjórnin að verða kröfum Þjóðverja um hertar aðgerðir gegn andófi og sagði af sér. Ráðuneytin störfuðu þó áfram og héldu áfram samstarfi við óvininn. Síðari hluta hemámstímabOsins byrjaði danska andspymuhreyfingin að myrða Dani sem þóttu vera Þjóð- verjum of vinsamlegir. Meðal þeirra sem féllu í valinn fyrir kúlum and- spymumanna var einn Islendingur, Guðmundur Kamban rithöfundur, og hafði hann þó lítið eða ekkert sér til saka unnið. Uppgjörið við samstarfs- fólk hemámshðsins hélt áfram eftir stríð. Sett vom lög, afturvirk til 9. apríl 1940, til að geta refsað þeim sem unnið hefðu fyrir Þjóðverja, og dauða- refsing var endurinnleidd. Samtals vom 78 manns dæmdir til dauða og 46 vora teknir af hfi. Uppgjörið við „Þjóð- verja\ani“, bæði morð andspymumanna og rétt- arhöldin eftir stríð hefur Fyrirtæki í eigu A. P. Moller átti mikil viðskipti við Þjóðverja verið mjög umdeilt. Bent hefur verið á að sumir þeir sem settust í dómara- sæti hefðu varla verið til þess hæfir. Tii dæmis var 21 af 23 meðlimum sér- stakrar þingnefndar sem fór yfir sam- starf stjórnmálamanna við her- námsliðið, sjálfur sagður hafa starfað með Þjóðverjum. Fyrir um einu ári síðan birti dag- blaðið Berlingske Tidende stóra grein um vopnasölu fyrirtækisins Dansk Industri Syndikat, DIS, til Þjóðveija í stríðsáranum sem vakti mikla athygh og umræðu. Þar kom fram að DIS hefði lagt sig fram um að þóknast Þjóðverjum og bandamönnum þeirra og bæði gengið lengra heldur en danska ríkisstjómin leyfði og heldur en kaupendumir gerðu beinlínis kröfu um og reynt eftir megni að auka og bæta framleiðsluna meðan mörg önnur iðnfyrirtæki sem seldu Þjóð- verjum reyndu að draga úr henni. Blaðið byggði frásögn sína á skjöl- um leyniþjónustu danska hersins, sem starfaði gegn Þjóðveijum á stríðsámnum og kom hernaðarapp- lýsingum til Breta, og á rannsókn og uppgjöri yfirvalda við fyrirtækið eftfr stríð sem ekki var gert opinbert á sín- um tíma. Auðugur íslandsvinur Blaðið beindi sérstaklega athygh sinni að þætti skipakóngsins A.P. Moller, auðugasta manni Danmerkur á þeim tíma. Fyrirtækjasamsteypa hans er enn sú stærsta í landinu og sonur hans, Mærsk McKinney- Moller, er mjög áberandi í dönsku þjóðlífi. Hann var til dæmis einn heið- ursgesta við jarðarfór Ingiríðar drottningar í vikunni og hefur mjög verið í umræðunni síðustu mánuði vegna þess að hann ætlar að gefa Kaupmannahafnarbúum nýtt ópem- hús fyrir nokkra milijarða króna. AP. Mpller var mikill Islandsvinur og stofnaði meðal annars árið 1936 styrkt- arsjóð sem enn veitir íslenskum náms- mönnum í framhaldsnámi í Kaup- mannahöfn árlega um þijár miHjónir króna í styrki. Sonur hans hefúr haldið áfram á sömu braut og ákvað nýlega að gefa 200 miHjónir króna til uppbygg- ingar gamals vöruhúss sem á að verða miðstöð fyrir íslendinga, Færey- inga og Grænlendinga í Kaupmannahöfii. A.P. Moller var stærsti eigandi DIS, átti nærri þriðjung hlutabréfa. í ævisögu Moll- ers, sem samstarfsmaður hans skrif- aði, er lítið gert úr þessum þætti í fyr- irtækjarekstri hans og sagt að hann hafi vegna þrýstings frá dönsku ríkis- stjórninni neyðst til að halda verk- smiðjunni gangandi og selja Þjóðverj- um vopn. Þai’ er einnig bent á það, sem er óumdeilt, að hann hafi látið skip sín sigla til hafna í hlutlausum löndum daginn fyrir hemámið til að Þýskir hermenn ganga á land í Kaupmannahöfn hinn 9. apríl 1940. «*r i í! 1 þau féllu ekki í hendur Þjóðveijum, og að hann hafi stutt andspymu- hreyfinguna fjárhagslega. Berlingske Tidende sagði í grein- inni að taka yrði þátt AP. Mollers til endurskoðunar í ljósi þess að hann hafi kosið að eiga áfram hlut í DIS, og að hann hafi verið andsnúninn því að skemmdarverk yrðu unnin á verk- smiðjunni. í greininni kom þó ekki skýrt fram hversu mikil áhrif AP. Moller hafði á starfsemi DIS á stríðs- ámnum. Margir gagnrýndu skrif Berlingske og sökuðu blaðið um að sverta nafn Mollers að ósekju einung- is vegna þess að hann hafi verið þekktur og vegna þess að fyrirtæki hans starfar enn og er áberandi í Danmörku. Mærsk McKinney-Meller vildi ekkert láta hafa eftir sér þegar Berl- ingske Tidende hafði samband við hann vegna málsins. Nokkmm mán- uðum síðar, í mars á þessu ári, lét hann hins vegar verkin tala og AP. Moller-samsteypan seldi 14% hlut sinn í Berlingske Officin sem er stærsta ijölmiðlafyrirtæki Danmerk- ur og gefur út Berlingske Tidende. DIS skálkaskjól danskra ráðamanna í framhaldi af greinaskrifunum um DIS reyndi Berlingske Tidende að koma því til leiðar að gerð yrði ítarleg rannsókn á viðskiptum danskra fyrir- tækja við tjóðverja á stríðsárunum. Þrátt fyrir að ýmsir stjómmálamenn hafi sýnt málinu áhuga strandaði það á því að ekki fékkst fjármagn. Þrír blaðamenn Berlingske tóku þá málið í eigin hendur og héldu áfram rann- sókninni á vopnasölunni í stríðinu. Nú fyrir jólin kemur út bók eftir þá sem nefnist „Krigens Kobmænd", eða „Kaupmenn stríðsins“. Berlingske Tidende birti um síð- ustu helgi frétt sem byggir á niður- stöðum rannsóknar blaðamannanna. Þar kemur fram að vopnaverksmiðj- ur danska ríkisins hafi leynilega framleitt hergögn handa Þjóðverjum en notað DIS til milligöngu um sölu á þeim til þess að ekki kæmi fram að ríkið og herinn ættu hlut að máli. Sal- an fór fram með vitneskju og vilja dönsku ríkisstjómarinnar. í fyrri grein sinni gagnrýndi blaðið að DIS skyldi sleppa auðveldlega frá uppgjörinu eftir strið. Fyrirtækið greiddi sekt, að núvirði um 900 millj- ónir króna, en enginn yfirmanna fyr- irtækisins var ákærður. Þó kom fram að embættismenn sem rannsökuðu málið eftir stríð hafi litið svo á að þeir hafi gerst sekir um föðurlandssvik. Christmas Maller, sem var ráðherra íhaldsmanna í þjóðstjórninni í byijun hernámsins en flúði til Englands árið 1942 og varð utanríkisráðherra í fyrstu ríkisstjóm eftirstríðsáranna, lýsti sömu skoðun á lokuðum ríkis- stjómai-fundi. Blaðamenn Berlingske geta sér þess til og benda á vísbendingar því til stuðnings, að DIS hafi sloppið við harðari refsingai- vegna þess að stjómvöld hafi viljað koma í veg fyrir að upp kæmist um vopnasölu vopna- verksmiðja ríkisins til Þjóðveija. Þeir draga þó ekki þá ályktun að sök DIS og forráðamanna þess hafi verið minni heldur en ella vegna þess að ríkið hafi einnig tekið þátt í vopnasöl- unni. Ásakanirnar á hendur A.P Mnlier óréttmætar? Strax í kjölfarið á grein Berlingske birtist í blaðinu Politiken svargrein eftir sagnfræðinginn Birgitte Maire Kristensen sem vinnur að lokaritgerð við Kaupmannahafnarháskóla. Krist- ensen segir að þáttur vopnaverk- smiðja ríkisins í vopnasölunni til Þýskalands, og ýmsar heimildir sem hún vísar til, sýni að DIS hafi unnið í samstarfi við og með leyfi dönsku rík- isstjómarinnar. Einnig bendir hún á gögn sem sýna það að ríkið hafi tekið þátt í vopnaframleiðslunni fyrir Þjóðveija af eigin vilja, án þrýstings frá ann- aðhvort DIS eða Þjóðveij- um. Kristensen segir að í þessu Ijósi sé það ekki undarlegt að forráðamenn DIS hafi sloppið við alvarlegar ákær- ur í lok stríðsins og að ásakanir Berl- ingske Tidende á hendur DIS og AP. Maller um að hafa farið á bak við ríkis- stjómina séu ekki réttmætar. Hins vegar sé auðvitað hægt að setja spum- ingamerki við það að selja morðvopn til hemámsliðs eigin lands. Umræðan um sekt og sakleysi í samstarfi Dana við Þjóðverja á stríðs- árunum mun líklega halda áfram lengi enn. Hún beinist í raun alltaf að sömu spumingunni sem enn hefur ekki fundist einhlítt svar við: Er hægt að ásaka og refsa þeim sem fengu samþykld dönsku ríkisstjómarinnar fyrir samstarfinu? Fyrir tveimur ár- um kom út bók eftir þrjá unga sagn- fræðinga um Dani sem gerðust sjálf- boðaliðar í Waffen-SS-sveitunum á stríðsámnum og tóku þátt í bardög- um í Sovétríkjunum og víðar. Menn- imir vom við heimkomuna til Dan- merkur dæmdir fyrir að hafa skráð sig í her óvinaríkisins. Bókarhöfund- amir benda á það að skráningin hafi á sínum tíma farið fram með samþykki dönsku ríkisstjómarinnar og að hún hafi lagt blessun sína yfir stofnun sér- stakrar danskrai’ herdeildar, „Frikorps Danmark“, innan Waffen-SS. Aftui’virk lög um ólögmæti sam- starfs við hernámsliðið, sem sam- þykkt vom í danska þinginu með miklum meirihluta 1. júní 1945, vom á sínum tíma rökstudd með því að allir hefðu átt að gera sér grein fyrir því að eftir hemámið 9. apríl 1940 hefðu rík- isstjómin og þingið ekki haft frjálsar hendur um lagasetningu og bann við samstarfi við Þjóðverja. Andstæðing- ar laganna sögðu það ganga gegn öll- um lagavenjum að setja afturvirk lög og að það væri fráleitt að refsa íyrir það sem rílásstjómin sjálf hefði á sín- j um tíma leyft. Líklega fæst ekkert endanlegt svar við spumingunni um sekt og sakleysi | einstaklinga og fyrirtækja sem störf- uðu fyrir Þjóðveija, fyrr en því hefur verið svarað hvort að danskir stjóm- málamenn hafi bmgðist rótt við með því að halda áfram störfum sínum eftir hernámið sem óneitan- lega gerði Þjóðveijum auðveldara fyrir í baráttu þeh-ra gegn Banda- mönnum. Það að sýnt hefur verið fram á að danska rfldð hafi aðstoðað við framleiðslu á vélbyssum, fallbyss- um og byssukúlum sem beitt var gegn þeim sem reyndu að frelsa Danmörku undan valdi Þjóðverja, hlýtur að styrkja málstað þeirra sem halda því fram að of langt hafi verið gengið í að þóknast hemámsliðinu. Samþykktu að stofnuð yrói dönsk deild í Waffen-SS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.