Morgunblaðið - 29.11.2000, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svíður
í sviðasultu
SAUÐFJÁRSLÁTRUN er nú að
mestu lokið hjá Sölufélagi Austur-
Húnvetninga á Blönduúsi. Þar
verður lúgað meira en 53 þúsund-
um fjár, að sögn Sigurðar Júhann-
essonar framkvœmdastjúra. Stúr-
gripum er slátrað allt árið, eftir því
sem markaðurinn tekur við.
Sigurður Þorkelsson var að svíða
hausa þegar blaðamenn komu við á
Blönduúsi. Megnið af hausunum fer
í sviðasultu sem er búin til hjá Sölu-
félaginu og seld um allt land. Þess
má geta að Björn Kristjánsson hjá
Sölufélaginu fékk gullverðlaun í
fagkeppni kjötiðnaðarmeistara ár-
ið 1998 fyrir sviðasultuna gúðu.
Harður
árekstur á
Akureyri
ALLHARÐUR árekstur varð í
Þingvallastræti á Akureyri í gær-
kvöldi. Engin meiðsl urðu á fólki en
draga varð annan bílinn af vettvangi.
Launhált var á götum Akureyrar.
Lögreglumenn stöðvuðu marga
bíla vegna þess að einungis logaði á
öðru framljósinu. Ökumönnum er
gefinn sólarhringsfrestur til að láta
laga ljósabúnað en mega ella búast
við sekt.
Morgunblaðið/RAX
StörfAl-
þingis á
áætlun
STÖRF Alþingis eru á áætlun,
að sögn eins varaforseta þings-
ins, Isólfs Gylfa Pálmasonar,
sem segir það óvenjulegt á
þessum árstíma þegar fjárlög
eru meðal annars til umræðu.
Önnur umræða um fjárlaga-
frumvarpið 2001 á að fara fram
á morgun, fimmtudag, og þriðja
umræða 8. desember næstkom-
andi, ef allt gengur eftir.
Samkvæmt starfsáætlun Al-
þingis fer það í jólaleyfi föstu-
daginn 15. desember og á að
koma aftur til starfa mánudag-
inn 22. janúar 2001. Þinglok
fyi-ir jól eru þó háð afgreiðslu
stón-a mála á borð við tekju-
stofna sveitarfélaganna, sam-
einingu ríkisbankanna og
einkavæðingu Landssímans.
ísólfur Gylfi sagði að eins og
staðan væri nú væru allar líkur
á að þingmenn og starfsmenn
Alþingis færu í jólaleyfi hinn
fimmtánda næsta mánaðar.
„Það er í raun einstakt hversu
vel okkur hefur gengið að vinna
að fjárlögunum og gott að geta
haldið áætlun þingsins, sem
stundum hefur nú brugðist,“
sagði ísólfur Gylfi.
ÍE kaupir fyrirtæki í lyfjarannsóknum og
stofnar annað um krabbameinsrannsóknir
Algengustu teg-
undir krabbameins
rannsakaðar
Veltan á gjaldeyrismarkaði hefur stóraukist frá þvi 1 fyrra
700 milljarða
kr. velta á árinu
ÍSLENSK erfðagreining hefur
stofnað nýtt fyrirtæki um rann-
sóknir á krabbameini, en nýja fyrir-
tækið hefur hlotið nafnið Islenskar
krabbameinsrannsóknir ehf. og
mun rannsaka allar algengustu
gerðir krabbameina. Þá hefur IE
einnig keypt íslenskar lyfjarann-
sóknir ehf. (Eneode), af Þór Sig-
þórssyni og fjölskyldu hans, en fyr-
irtækið er rúmlega ársgamalt og
hefur stundað þjónusturannsóknir
fyrir lyfjaiðnaðinn.
Páll Magnússon, framkvæmda-
stjóri upplýsinga- og samskipta-
sviðs ÍE, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að um 15 manns störfuðu
nú að krabbameinsrannsóknum hjá
|E og þeir myndu færa sig yfir til
íslenskra krabbameinsrannsókna
ehf. Hann sagði að búist væri við því
að fyrirtækið myndi fljótlega vaxa
og að innan skamms myndu um 40
til 50 manns starfa hjá því. Laufey
Ámundadóttir, sem stýrt hefur
krabbameinsrannsóknum ÍE, verð-
ur framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
ÍE stundar nú þegar rannsóknir
á krabbameini í lungum, húð, nýr-
um, eistum, skjaldkirtli og blöðru-
hálskirtli. Páll sagði að nýja dóttur-
fyrirtækið myndi byggja á þessu
starfi og rannsaka allar algengustu
gerðir krabbameins. Þá væri í und-
irbúningi átaksverkefni sem miðaði
að heildstæðan rannsókn á öllu
krabbameini á Islandi.
Páll sagði að Þór Sigþórsson
hefði verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Islenskra lyfjarannsókna og
að starfsmenn þess, sem væru um
20 talsins, myndu allir halda vinnu
sinni. Hann sagði að það hefði verið
samkomulag kaupanda og seljanda
að gefa ekki upp kaupverð fyrirtæk-
isins.
íslenskar lyfjarannsóknir ehf.
sérhæfa sig í lyfjaprófunum og í
lyfjaerfðafræðilegum rannsóknum.
I fréttatilkynningu frá ÍE segir að
vegna samninga við fjölmarga inn-
lenda og erlenda samstarfsaðila sé
líklegt að tekjur fyiirtækisins muni
aukast hröðum skrefum á næstunni.
Páll sagði að ætlunin væri að halda
báðum þessum fyrirtækjum, þ.e. ís-
lenskum krabbameinsrannsóknum
og Islenskum lyfjarannsóknum, að-
skildum frá sjálfu móðurfyrirtæk-
inu.
VELTAN á gjaldeyrismarkaði hef-
ur stóraukist það sem af er þessu
ári og margfaldast ef litið er til síð-
ustu fjögurra ára. Þannig er veltan
það sem af er árinu nú þegar orðin
230 milljörðum króna meiri en velt-
an var allt árið í fyrra eða sem nem-
ur rétt tæpum 700 milljörðum
króna fram til 27. nóvember, en var
tæpir 468 milljarðar króna allt árið í
fyrra, samkvæmt upplýsingum
Seðlabanka Islands.
Veltan var litlu minni árið 1998
eða tæpir 402 milljarðar kr., en hef-
ur hins vegar fjór- til fimmfaldast
frá árinu 1997 þegar heildarveltan á
gjaldeyrismarkaðnum var rúmir
162 milljarðar kr.
Már Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabanka íslands, sagði að
þegar gjaldeyrismarkaðir þroskuð-
ust ykist veltan og yrði alltaf tölu-
vert mikið margfeldi af undirliggj-
andi viðskiptum með vörur og
þjónustu vegna fjármagnsstrauma
þar sem menn höguðu seglum eftir
því hvernig vindar blésu hverju
sinni á markaðnum. Ef litið væri til
annarra landa væri veltan á gjald-
eyrismarkaði í hlutfalli við viðskipti
Velta á millibanka-
markaði með 6
gjaldeyri
1997-2000
í milljörðum kr.
468,0
1997 1998 1999 2000
með vöru og þjónustu iðulega meiri
en ofangreindar tölur bæru með
sér.
Már sagði að það sem yki þessa
veltu núna væri sá þrýstingur sem
krónan hefði verið undir undanfarið
og sú staðreynd að Seðlabankinn
hefði verið virkur á markaðnum
með mjög stórar upphæðir til þess
að verja krónuna. Áður hefði Seðla-
bankinn verið mjög lítið inni á þess-
um markaði.
Ungur markaður
Már benti ennfremur á að gjald-
eyrismarkaðurinn hér á landi væri
ungur. Hann hefði ekki orðið til fyrr
en á árinu 1993 og í rauninni hefði
hann ekki orðið virkur fyrr en
skammtímahreyfingar fjármagns
hefðu orðið frjálsar í upphafi árs
1995. Þá hefði einnig áhrif í þessum
efnum að gerðar hefðu verið skipu-
lagsbreytingar á markaðnum í júlí-
mánuði 1997.
Fram til þess tíma hefði markað-
urinn verið skipulagður með þeim
hætti að menn hefðu komið saman
til fundar í Seðlabankanum þar sem
gengisskráningin hefði farið fram,
en eftir þann tíma hefði markaður-
inn verið endurskipulagður sem
samfelldur markaður. Það hefði
aukið mjög virknina og viðskiptin á
markaðnum og það sýndu veltutöl-
urnar fynr árið 1998 í samanburði
við árið 1997.
Sérblöð í dag
www.mbi.is
► i VERINU í dag er greint frá sölu Stofnfisks á hrogn-
um og þjónustu til Skotlands, fjallað um rækju-
verksmiðjuna í Bolungarvík og sagt frá hjátrú i tengsl-
um við sjómennsku og sjósókn, auk frétta af
ÉlIfö£UHÍiíí2iUft
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Örn jafnar metin við
Guðmund D/1
Birmingham sækir um
íslenskt ríkisfang D/4
► Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir