Morgunblaðið - 29.11.2000, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 19
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Þórarinn Guðmundsson að störfum á lagemum hjá Ako-Plasto.
Kaup Plastprents á meirihluta í Ako-Plastos
Menn reyna
að vera
bjartsýnir
„MENN eru heldur smeykir, en
vitanlega reyna allir að vera
bjartsýnir,“ sagði Þórarinn Guð-
mundsson,starfsmaður á lager Ako-
Plastos á Akureyri í gær, en til-
kynnt var um kaup Plastprents hf á
85,4% hlutafjár í fyrirtækinu í
fyiTadag. Forsvarsmenn Plast-
prents voru á Akureyri í gær, en
formleg eigendaskipti fara fram á
föstudag, 1. desember næstkom-
andi. Fram að þeim tíma verður
farið yfir stöðuna og hún skoðuð of-
an í kjölinn. A bilinu 50 til 60 manns
starfa hjá Ako-Plastos.
Þórarinn sagði að starfsfólki
hefði verið tilkynnt um kaupin í
fyrradag og búist væri við að fund-
ur yrði haldinn á föstudag. „Við
vonum að málin skýrist þá, en eins
og staðan er núna höfum við enga
hugmynd um hvað er að gerast eða
hver framtíðin verður,“ sagði hann.
Hann sagði að starfsfólk hefði
vitað að þungt væri fyrir fæti hjá
fyrirtækinu, en fréttin um kaup
Plastprents hefði komið flestum á
óvart. „Það er auðvitað dálítil
spenna í loftinu, á meðan þessi
óvissa varir, en mér heyrist á fólki
að það voni það besta. Núna veit
enginn hvort fyrirtækið hefur
áhuga fyrir að halda áfram starf-
semi hér fyrir norðan eða hvort allt
verður flutt suður. Við erum hér
með nýtt og rúmgott hús og nýleg-
ar vélar, þannig að við reynum að
vera bjartsýn,“ sagði Þórarinn.
LÍFEYRISSJÓÐUR K.E.A.
SJÓÐFÉLAGAFUNDUR
Lífevrissjóður K.E.A.
boðar til sjóðfélagafundar
Fundartími og staður:
Miðvikudagur 6. des. kl. 20.00 í starfsmannasal S.K.E. í
Sunnuhlíð 12, Akureyri.
Fundarefni:
Kynning á samrunasamningi Lífeyrissjóðs K.E.A. og
Lífeyrissjóðs Norðurlands sem taka á gildi 1. jan. 2001.
Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs Norðurlands, mætir á fundinn og
svarar fyrirspurnum um þann sjóð.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og kynna sér
þetta brýna hagsmunamál.
Stjóm Lífeyrissjóðs KEA..
Aðe'ms
m
fermetrínn!
•C?'A' ' ' - , jK'f' ó'i
um eiginleika
_______- sveinliggur
á góifinu þínu
m ■ m m
fyrirjol...
Glær plastvöm
Vlðarmynstraöur pappír
HDFplata úr viðartrefjum
Stöndugt undirlag
Umboðsmenn um land allt
Teppaland
Fákafeni 9 • 108 Reykjavík • Símar 588 1717 og 581 3577
Fax 581 3152 • golfefni@golfefni.is