Morgunblaðið - 29.11.2000, Page 43

Morgunblaðið - 29.11.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000 ‘43 UMRÆÐAN Forvarnir og meðferð - þurf- um á hvorutveggja að halda Vímuefni Ofuráhersla á meðferð, -----------------------ygZ segir Snjólaug G. Stefánsdóttir, virðist ekki hafa skilað okkur Þróun uímuefnaneyslu 15-16 ára unglinga (í 10. bekk) 1984 - 2000 % Hafa bragðað áfengi 5 ° 1984 ' 1986 ' 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 ÞÓRARINN Tyrf- ingsson, forstöðulækn- ir sjúkrastofnana SÁÁ hefur ítrekað dregið í efa að einhver árangur hafi náðst í forvarna- starfi á sviði vímu- vama. Nú síðast í grein í Morgunblaðinu laugardaginn 25. nóv- ember sl. Það er óhjá- kvæmilegt annað en að leggja orð í belg um ýmis þau atriði sem hann tekur þar til um- fjöllunnar. Það er um- hugsunarefni, hvers vegna læknirinn kýs að halda uppi umræðu á þessum nótum og gera lítið úr þeim árangri sem náðst hefur í forvamar- starfi á sviði vímuefna. Það hlýtur að vera honum sem öðrum fagnaðar- efni ef við greinum árangur sem vonandi leiðii- til minni neyslu til lengri tíma litið og þar með færri innlagna á stofnanir til framtíðar. Staðreyndir mála, sem fyiir liggja, sýna kjárlega að forvamir skila ára- ngri. Ég vísa í þessu sambandi til kannana á vegum Rannsókna og greiningar sem gerðar hafa verið meðal grannskólanema og sem sýna að vorið 1999 og vorið 2000 dró úr reykingum, ölvunardiykkju og hass- notkun nemenda í 10. bekk eins og meðfylgjandi línurit sýnir. Spurn- ingalistar vora lagðir fyrir nær alla nemendur í 8., 9. og 10. bekk á land- inu og það hefur verið gert með sambærilegum hætti í mörg ár. En það dylst þó engum að ástand vímu- efnamála í landinu er afar alvarlegt eins og þetta línurit og línurit Þórar- ins í áðurnefndri grein sýna. í grein Þórarins má skilja að skipulagt forvarnastarf á vegum stjórnvalda hafi hafist 1997 og er nokkuð til í því. í kjölfar þess að rík- isstjómin samþykkti stefnu í vímu- vömum í des. 1996 og vímuvama- nefnd Reykj avíkurborgar var stofnuð, var áætluninni ísland án eiturlyfja og fleira hrint í fram- kvæmd. Ríkið, Reykjavíkurborg, ECAD (European Cities Against Drugs) og síðar Samband íslenskra sveitarfélaga gerðu með sér samn- ing í febrúar 1997 um áætlunina ís- land án eiturlyfja. Markmið áætlun- arinnar var fyrst og fremst að virkja sem flesta til þátttöku í vímuvörnum og í baráttunni gegn fíkniefnum. Nýtt áfengis- og vímuvamaráð tók síðan til starfa síðla hausts 1998. „Miheppnaðar forvarnir?“ Megináhersla íslands án eitur- lyfja hefur beinst að því að draga úr vímuefnaneyslu unglinga á grann- skólaaldri. Rannsóknir hafa sýnt að því yngra sem fólk er við upphaf áfengisneyslu því meiri líkur eru á annarri fíkniefnaneyslu og öðram al- varlegum vandamálum. Samkvæmt áðurnefndum könnunum meðal grannskólanema fór neysla vímu- efna meðal nemenda í 10. bekk stöð- ugt vaxandi á tíunda áratugnum og náði hámarki 1998. Þeir nemendur HITABLÁSARAR Reykjavlk: Ármúla 11 - stmi 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - simi 461-1070 sem þá vora í 10. bekk era fæddir 1983. f til- vitnaðri Morgunblaðs- grein Þórarins for- stöðulæknis heldur hann því fram að for- varnaátak sem hófst árið 1997 hafi bragðist og vísar hann til þess að árgangurinn 1982 sé farinn að skila sér í meðferð til SÁÁ í stór- um stíl. Það þarf ekki að koma Þórami á óvart að unglingar fæddir 1982 skili sér í meðferð, ef meðíylgj- andi línurit er skoðað. Það verður einnig að teljast nokkuð bratt að ætla að for- vamastarf sem hófst vorið 1997 og beinist að foreldram og unglingum á grannskólaaldri hafi umtalsverð áhrif á unglinga sem era að Ijúka 10. bekk það sama vor. Áætlunin ísland án eiturlyfja ásamt fjölmörgum samstarfsaðilum hefur hvatt foreldra til aðgerða gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu barna sinna. Sveitarfélög, skólar, stofnanir, foreldrasamtök og önnur félagasamtök hafa verið hvött til að- gerða og að setja sér áætlanir í vímuvömum, skipulögð hefur verið aukin fræðsla til almennings og þeirra sem starfa að málefnum barna og unglinga og svo mætti lengi teUa. Skipulagðir vora m.a. fræðslufundir um allt land undir heitinu Við getum betur, þar sem sveitarfélög vora hvött til aðgerða. Nú er svo komið að flest sveitar- félög, skólar, félagsmiðstöðvar og fleiri stofnanir og félagasamtök hafa sett sér skýr markmið í forvama- starfi. Má því segja að vímu- vamastarf sé orðið snar þáttur í öllu barna- og unglingastarf sveitarfé- laga um allt land. I starfi áætlunar- innar hefur verið lögð rík áhersla á aðgerðir gegn unglingadrykkju og á virkt samstarf við þá sem starfa í vímuvarnastarfi. Hefur forvarna- deild SÁÁ á stundum komið að því samstarfi, en forvamadeild SAÁ hefur fengið dágóðan skerf af því fjármagni sem til skiptanna er á sviði vímuefnaforvarna á vegum hins opinbera. Það hefur orðið vakn- ing í þessum efnum og það er fagn- aðarefni. En betur má ef duga skal og geti ég tekið undir með Þórarni að afar brýnt er að efla slíkt starf, t.d. á heilsugæslustöðvum, eins og hann bendir á í grein sinni. „Meðferð ekki dregið úr fjölda“ í mörg ár var nær öllu fjármagni til vímuvarna varið til meðferðar- starfs og er svo í aðalatriðum ennþá, ef frá er talin toll- og löggæsla. Virð- ist þessi ofuráhersla á meðferð ekki hafa skilað okkur tilætluðum árangri miðað við þær tölur sem Þórarinn birtir sjálfur í áðurnefndri grein. Hér á landi er margra ára reynsla - 30 ára eða meiri af því að leysa vímuefnavandann með því að senda fólk í innlagnarmeðferð á stofnanir. Margir þurfa á endur- tilætluðum árangri. teknum meðferðum að halda til að viðhalda árangri. Líklegt má telja að fólk leiti fyrr aðstoðar og meðferðar en áður og er það vel. Ég tel afar æskilegt að vímuefnaneytendur hafi greiðan aðgang að fjölbreyttri og árangursríkri meðferð og tel að ekbV eigi að draga úr henni. Eg tel kröft- ugra forvarnastarf, fjölbreytta með- ferð, öflugt stuðningsnet og eftir- meðferð fyrir ungt fólk lykil að bættum árangri í vímuvörnum. En það þarf líka að spyrja hvort sú meðferð sem hér hefur verið í boði lengst af, henti ungu fólki í fíkni- efnavanda. Skipulagt forvarnastarf á sviði vímuefnamála er um margt enn á byrjunarreit, en á síðustu 3 til 4 ár- um hefur það náð að verða allum- fangsmikið og samþætt mestöllu skipulögðu barna- og unglingastarfi hér á landi. Þetta starf þarf að efla og styrkja enn frekar. Gott og gjöf- ult samstarf og upplýsingamiðlun^ þeiira sem starfa að meðferðar- og forvamastarfi skiptir miklu til að betri árangur náist. Annað getur ekki án hins verið. Þess vegna er núningur eða samkeppni þessara að- ila um fjármagn og stuðning ekki til bóta fyrir þennan mikilvæga mála- flokk. Ég hygg að Þórarinn Tyrf- ingsson hljóti að vera mér sammála um það þegar hann íhugar málið. Höfundur er verkefnisstjóri áætlun- arinnar fsland án eiturlyfja. 'XfC VERÐMÆTI UMÖNNUNAR FYRIR ISLENSKT SAMFÉLAG Öldrunarþjónusta - samábyrgð þjóðarinnar Ráðstefna verður haldin á Hótel Loftleiðum, sal 1 -3, fimmtudaginn 30. nóvember 2000 kl. 13:00-16:30 Ráðstefnustjóri: Soffía Egilsdóttir, forstöðumaður félags- og vistunarsviðs Hrafnistu. Stjórnandi í pallborðsumræðum: Helgi Már Arthursson, upplýsingafulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Vinabandið frá Félagsstarfi Gerðubergi leikur og syngur lög af nýútgefnum geisladisk sínum „Heim í stofu", meðan á skráningu stendur og í kaffihléi. Kl. 12:30 Skráning. Kl. 13:00 Ávarp Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamáiaráðherra. Viðurkenningar veittar fyrir störf í þágu aldraðra. Kl. 13:15 Staða öldrunarþjónustu. Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar. Kl. 13:30 Aldurssamsetning þjóðarinnar og byggðaþróun. Sigurður Guðmundsson, Þjóðhagsstofnun. Kl. 13:45 Heilsufar aldraðra, framtíðarspá. Aðalsteinn Guðmundsson, lækningaforstjóri Hrafnistu. Kl. 14:00 Öldrunarþjónustan frá sjónarhóli þess sem þiggur og veitir. Halldór Gunnarsson, aðstandandi. Benedikt Davíðsson, Landssamband eldri borgara. Ingibjörg B. Sveinsdóttir, starfsmaður heimaþjónustu. Guðbjörg S. Guðmundsdóttir, sjúkraliði á öldrunarstofnun. Kl. 14:40 Kaffi. Kl. 15:00 ímynd öldrunar og þess að starfa með öldruðum, sóknarfæri. Anna Birna Jensdóttir, sviðstjóri öldrunarsviðs Landspítala, háskólasjúkrahúss og formaður nefndar HTR um breytta ímynd öldrunar og starfa í þágu aldraðra. Kl. 15:20 Pallborðsumræður - þátttakendur: Guðbjörg S. Guðmundsdóttir, Sjúkraliðafélagi íslands, Hafsteinn Þorvaldsson, f.h. eldri borgara, Jónína Bjartmarz, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, Jón Kristjánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar og Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Eflingu-stéttarfélag. Kl. 16:00-16:30 Ráðstefnulok. Ráðstefnugjald kr. 1.500. innifalið kaffi og meðlæti. Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneyti EFLING FELAG ÍSLENSKRA ÖLDRUNARLÆKNA FÉLAG STJÓRNENDA í ÖLDRUNARÞJÓNUSTU # DEILD HJÚKRUN- ARFORSTJÓRA LANDLÆKNIS- EMBÆTTIÐ SJUKRALIÐA- FÉLAC ISLANDS LANDSSAMBAND ELDRI BORGARA ÖLDRUNARRÁÐ ÍSLANDS É 4 Snjólaug G. Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.