Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Varaformaður stjórnar Landspítala - háskólasjdkrahúss
Ekkí um hagsmuna-
árekstur að ræða
Miklar
umferð-
artafir í
snjókomu
UMFERÐ á höfuðborgarsvæðinu
þyngdist mjög þegar tók að snjóa
eftir hádegi í gær. A tímabili urðu
miklar umferðartafir. Verst var
ástandið milli klukkan 16 og 18 en
þá stöðvaðist á timabili umferð til
og frá Grafarvogi. Þá var umferð
um Breiðholt og Seljahverfi afar
hæg og sömu sögu er að segja af
miðbænum.
Á fjórða tug árekstra höfðu verið
bókaðir hjá lögreglunni í Reykjavík
í gærkvöld. Hætt er við að þeir hafi
verið nokkuð fleiri þar sem margir
ökumenn ganga frá tjónaskýrslum
sjálfir. Að sögn lögreglunnar var
ekki um alvarleg uinferðarslys að
ræða heldur fremur pústra og
nudd. Þó varð harður árekstur á
milli tveggja bifreiða á Víkurvegi
skammt frá Húsasmiðjunni í hádeg-
inu í gær. Okumaður annars bílsins
var fluttur á slysadeild og kvartaði
hann undan meiðslum í baki. Ekki
er þó talið að um alvarleg meiðsli
hafi verið að ræða. Bílarnir eru
mikið skemmdir.
Nokkrar umferðartafir urðu í
Kópavogi og vill lögreglan beina
þeim tilmælum til fólks sem þarf af
einhverjum ástæðum að yfirgefa
bfla sína að hafa samband við lög-
reglu. Yfirgefnir bflar geta tafið
mjög fyrir umferð og gert stjórn-
endum snjóruðningstækja erfitt
fyrir. I umdæmum lögreglunnar í
Hafnarfirði og í Keflavík gekk um-
ferðin yfirleitt áfallalaust. Þó fór
bifreið út af Reykjanesbraut við
Kúagerði um miðjan dag í gær.
Engin slys urðu á fólki.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að færð hafi tekið að
spillast á vestanverðu landinu
seinni partinn. Hópferðabflar á leið
til höfuðborgarinnar töfðust yfir-
leitt um hálfa klukkustund vegna
veðursins.
THOMAS Möller, varaformaður
stjórnarnefndar Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, kveðst ekki alls
kostar sammála forstjóra spítalans
að um hagsmunaárekstur hafi verið
að ræða hjá Steini Jónssyni lækni,
sem valinn hafði verið sviðsstjóri
kennslu og fræða en Magnús Pét-
ursson forstjóri ákvað að afturkalla
valið.
Forstjóri Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss tilkynnti Steini Jónssyni
fyrir síðustu helgi að hann hefði
ákveðið að afturkalla val hans sem
sviðsstjóra, sem hafði verið kynnt í
lok nóvember. Væri það vegna
gagnrýni hans á spítalann og hags-
munaárekstrar, þar sem hann ynni
að undirbúningi stofnunar einka-
sjúkrahúss, sem hann hefði aftur-
kallað valið, en sviðsstjórar eru
valdir tímabundið til þess trúnaðar-
starfs.
Guðný Sverrisdóttir, formaður
stjórnarnefndai’innar, kvaðst í gær
ekki vilja tjá sig um málefni Steins
Jónssonar. Sagði hún forstjórann
hafa svarað fyrir hönd stjórnarinnar
með greinargerð og var hún birt í
Morgunblaðinu í gær.
Thomas Möller segir að val sviðs-
stjóra sé mál forstjóra spítalans en
ekki stjórnarnefndar og forstjórinn
hafi gert stjórninni grein fyiir því á
fundi í fyrradag. Hann segir einnig
að eðlilegra hefði verið hjá Steini
Jónssyni að leita eftir leyfi meðan
hann vann að málefnum lækna-
stöðvanna og segir að hann hefði
stutt slíka ósk.
Einkarekstur og ríkis-
rekstur geta farið saman
Thomas telur að einkarekstur og
ríkisrekstur í heilbrigðisþjónustunni
geti vel farið saman og að það geti
vart skaðað Landspítalann þó að í
undirbúningi sé að sameina lækna-
stöðvar. Rekstur einkastöðva geti
verið ríkisrekstri aðhald og bætt
hann. Thomas kveðst aðspurður
ekki alls kostar sammála forstjór-
anum um að um hagsmunaárekstur
sé að ræða en segir eðlilegra að
Steinn hefði gert yfirmanni sínum
grein fyrir málinu og leitað eftir
leyfi á meðan.
Ný þjónusta
fyrir lesendur
Morgunblaðsins
Hægt að
fá blaðið
prentað
út víða
um heim
MORGUNBLAÐIÐ hefur lyrst
íslenskra dagblaða hafið sam-
starf við fyrirtækið Newspap-
erDirekt sem býður útprentanir
á helstu dagblöðum heims á
völdum stöðum víðs vegar um
heiminn. Blaðið er sent á tölvu-
tæku formi á Netinu til News-
paperDirekt sem sér um að
prenta það út og koma því til les-
enda um allan heim. Morgun-
blaðið er þar með komið í hóp
virtustu dagblaða heims eins og
Financial Times, New York
Post og E1 Pais sem bjóða les-
endum sínum þessa þjónustu.
NewspaperDirekt var stofn-
að 1999 og hefur verið að setja
upp útprentunarbúnað á mörg-
um hótelum um heiminn og fyr-
irhugar þar að auki að bjóða
þjónustuna í tengslum við
helstu ferðamáta s.s flug, lestir
og siglingar. Einnig er boðið
upp á sendingar á útprentunum
til heimila og vinnustaða.
Fyrst um sinn bauðst þjón-
ustan á íjögurra og fimm
stjörnu hótelum og bjóða hótel í
yfir þrjátíu löndum nú gestum
sínum útprentuð dagblöð á yfir
15 tungumálum. Einnig býðui’
fyrirtækið persónusniðna þjón-
ustu til einstaklinga og fyrir-
tækja með þvi að senda útprent-
anir á dagblöðum heim til
viðskiptavina eða á vinnustað.
Þessari þjónustu var ýtt af stað í
Moskvu, Vancouver, Toronto,
Washington DC og Bristol í
samvinnu við sjálfstæða dreif-
ingaraðila á hverjum stað.
Miljenko Horvat, forstjóri
NewspaperDirekt, segir að fjöl-
margir möguleikar séu fyrir
hendi til að útfæra þessa þjón-
ustu enn frekar.
Herjólfur
lengi til Eyja
SIGLING Herjólfs til Vestmanna-
eyja í gær tók um 5l/> klukkustund
en tekur að öllu jöfnu tæplega þrjár
stundir. „Það var leiðinda sjólag en
við fórum bara rólega og reyndum að
láta fara vel um okkur,“ segir Lárus
Gunnólfsson, skipstjóri Herjólfs.
„Þetta var nú ekkert verra en við
höfum lent í oft áður.“ Seinni ferð
Herjólfs frá Eyjum var af þessum
sökum felld niður.
í ferð Herjólfs til Þorlákshafnar
fyrr um daginn kom hnútur á skipið
þegai' það sigldi inn í Þorlákshöfn.
Kona, sem var farþegi með skipinu,
kastaðist þá til og hlaut skurð á enni
en meiðsli hennar voru ekki alvarleg-
Harður árekstur varð milli tveggja bifreiða á Víkurvegi í gærmorgun.
Morgunblaðið/Ingvar
Fjögur tonn af innfluttu
kalkúnakjöti innkölluð
BANDARÍSKA matvælafyrirtækið Cargill inn-
kallaði á fimmtudaginn 7.600 tonn af tilbúnum ali-
fuglai'éttum vegna gruns um listeríusýkingu. Um 5
tonn af kalkúnakjöti frá fyrirtækinu hafa verið flutt
til íslands síðan í septembers. Búið er að selja um
700 klló af vörunni hér á landi en kalkúnakjötið var
hér eingöngu til sölu á skyndibitastöðum Subway.
Al'gangurinn, 4,3 tonn hefur verið innkallaður af
innflytjanda.
Hvorki Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur né emb-
ætti yfirdýralæknis, sem hefur umsjón með inn-
flutningi á matvælum, hafa haft spumir af sýkingu
af völdum matvælanna hér á iandi.
Grímur Ólafsson, matvælafræðingur hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur, segir listeríubakter-
íuna iyrst og fremst hættulega þeim sem eru með
skert ónæmiskerfi sem og ungum börnum og eldra
fólki. Þá hafi konur orðið fyrir fósturláti í kjölfar
listeríusýkingar. Grímur segir listeríusýkingu þó
vera hættuminni en aðrar matareitranú' t.d. af völd-
um kampylo eða salmonellu.
Grunur leikur á að 25 manns
hafi sýkst í Bandaríkjunum
í fréttatilkynningu frá embætti yfirdýralæknis
segir að einungis skyndibitastaðir Subway á íslandi
hafi notað soðið kalkúnakjöt frá Cargill. Kjötið hef-
ur nú allt verið innkallað af innflytjanda og verður
að öllum líkindum eytt. Þá kemur fram að sendingu
af kalkúnaafurðum frá Cargill, sem átti að flytja
hingað til lands í september sl„ vai' snúið við þar
sem ekki fylgdu tilskilin heilbrigðisvottorð. Síðan
hafa komið hingað þrjár sendingar, samtals 5 tonn,
þar sem öllum tilskildum gögnum hefur verið fram-
vísað.
Gísli Halldórsson, dýralæknii' inn- og útflutnings-
eftirlits hjá embætti yfirdýi'alæknis, segir innköll-
unina í Bandaríkjunum einungis vera varúðarráðstöf-
un en grunur leikur á að um 25 manns hafi veikst í
Bandaríkjunum af völdum matvæla frá Cargill. Eng-
inn hafi þó látist. Vörur fyrirtækisins voiu aðallega
seldai' á innanlandsmarkaði en einnig til Venesúela
ogíslands.
í yfirlýsingu frá Subway um þetta mál segir að inn-
köllun kalkúnaafurðanna sé varúðarráðstöfun. Engin
tilfelli listeríusýkingar af völdum Subway-kafbáta séu
þekkt hérlendis né erlendis. Tekið er fram að í dag sé
boðið upp á íslenskar kalkúnaafurðir á Subway.
Haukar fara ekki til Sandefjord
til að verjast/C2
Örn Arnarson vann silfur í
aukagrein á EM í Valencia/61
Sérblöð í dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
H—4 iici'-ri B-C ■ mo!m;i5bU»sins
LJjaDOii
ÁLAUGARDÖGUM