Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Afhending nýrrar
Norrænu dregst um ár
Kaupmannahöfn. Morgimblaöiö.
AFHENDINGU nýrrar ferju sem
leysa átti færeysku ferjuna Nor-
rænu af , hefur verið frestað um ár
vegna fjárhagsörðugleika skipa-
félagsins Smyril Line sem á og rek-
ur Norrænu. Nýja ferjan verður
smíðuð í Þýskalandi og átti að af-
hendast vorið 2002 en þar sem
Færeyingum hefur ekki tekist að
greiða útborgun í skipinu, frestast
afhendingin fram í apríl 2003, að
því er Flensburger Schifíbau-
Gesellschaft hefur tilkynnt.
Norræna siglir á milli Islands,
Færeyja, Noregs, Danmerkur og
Hjaltlandseyja og er talinn tími til
kominn að endurnýja skipið sem
var smíðað árið 1973. Þýska skipa-
félagið gerði Færeyingum tilboð
sem þeir gengu að en Smyril Line
hefur hins vegar ekki tekist að
greiða útborgun í skipinu, að sögn
Ola Hammer, framkvæmdastjóra
útgerðarinnar.
Þýska skipasmíðastöðin hafði
gefið Færeyingum frest til sl.
þriðjudags en ekki tókst að afla
fjárins. Hammer segir næstu skref
undir Þjóðverjum komin en samn-
ingurinn gefur þeim pant í Nor-
rænu og geta þeir krafist þess að fá
hann út. Hammer telur hins vegar
að í versta falli verði samningnum
rift þar sem smíði nýju ferjunnar er
ekki hafin. Smyril Line reynir hins
vegar enn að verða sér úti um út-
borgun í hana
Nýja ferjan verður glæsi'skip,
takist Færeyingum ætlunarverkið.
Verður hún með sundlaug, sóldekki,
gufubaði, verslunum og káetum
með sjónvarpi. Verðið er um 88
milljónir evra, um 6,6 milljarðar ísl
kr. sem Hammer fullyrðir að sé
gott verð fyrir svo vel búna ferju.
Snjófljóð
féll í Skútu-
dal við
Siglufjörð
ALLSTÓRT snjóflóð féll í Skútu-
dal við Siglufjörð fyrir um viku
síðan. Flóðið sem féll í minni dals-
ins átti upptök sín í suðvestan-
verðum Hestskarðshnjúk.
„Miðað við stærstu snjóflóð hér
er þetta í stærri kantinum," segir
Örlygur Kristfinnsson, snjóeftir-
litsmaður Veðurstofunnar á Siglu-
firði. Hann segir að menn hafa
orðið varir við flóðið á laugardag-
inn fyrir viku þegar birti upp eftir
nokkuð langvinna norðanátt. Mik-
ill snjór hafði fallið í fjöll við aust-
anverðan Siglufjörð. Flóðið féll á
svo til auða jörð og hreif með sér
jarðveg og gróður. Engin eignar-
spjöll urðu í flóðinu og fólki var
ekki hætta búin.
Ein af þeim meginleiðum sem
Vegagerðin hefur til athugunar
vegna jarðganga milli Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar gerir ráð fyrir því
að göngin opnist í Skútudal.
Sigurbjörg’ Þorvarðardóttir 100 ára
Morgunblaðið/Þorkell
Nemendur í
friðargöngu
FÉLAG framhaldsskólanema, Iðn-
nemasamband íslands og Bandalag
íslenskra sérskólanema efndu í gær
til friðargöngu frá Hailgrimskirkju
að Ingólfstorgi í Reykjavík. Var hún
hugsuð sem hvatning til samnings-
aðila í kennaradeilunni um að ná
sáttum fyrir jól. f Iokin var haldinn
útifundur á Ingólfstorgi. Þar voru
flutt ávörp og nokkur skemmtiatriði.
Ikveikjufaraldur gengur yfir
SVO virðist sem íkveikjufaraldur hafi gengið yfir
hérlendis á undanförnum vikum. Slökkviliðið á
höfuborgarsvæðinu var kallað út klukkan hálf-
fimm í fyrrinótt vegna elds í porti milli veitinga-
húsanna Kaffis Reykjavíkur og Gauks á Stöng.
Þar hafði verið kveikt í rusli og komst eldur í klæð-
ingu á viðbyggingu við Kaffi Reykjavík. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn. Að sögn varðstjóra
slökkviliðsins mátti engu muna að eldurinn næði
að breiðast út og valda stórtjóni. Á þessu svæði er
mikill eldmatur, enda einhver mesti timburhús-
akjami miðbæjanns.
Stórbruninn í ísfélagi Vestmannaeyja fyrir viku
er eitt af nýxri tilvikunum en lögreglan telur að
eldsvoðann megi rekja til íkveikju.
Seint í nóvember upplýsti lögreglan í Mos-
fellsbæ níu íkveikjur í bænum. íkveikjurnar áttu
sér stað á nokkurra vikna tímabili. Eldur var m.a.
lagður að strætisvagnaskýlum, kveikt var í þak-
skeggi Varmárskóla og í rusli við Bæjarleikhúsið í
Mosfellsbæ. Ungur piltur, búsettur í Mosfellsbæ,
gekkst við íkveikjunum.
I nóvember handtók lögreglan í Keflavík tvo
pilta sem viðriðnir voru margvísleg afbrot, þar á
meðal a.m.k. þrjár íkveikjur.
Um miðjan nóvember var slökkvilið kvatt að
Bústaðakirkju þar sem kveiktur hafði verið eldur
sem logaði við dyr kirkjunnar. Slökkvilið var síðan
kvatt að Víkinni, félagssvæði Knattspyrnufélags-
ins Víkings, þar sem eldur var laus í tveimur skúr-
um í eigu tennisdeildar félagsins. Fullvíst þykir að
um íkveikju hafi verið að ræða.
Alvarlegasta íkveikjan var þó í fjölbýlishúsi við
Flúðasel þar sem bensíni var hellt á teppi á gang-
inum og eldur borinn að. Eldurinn náði ekki í 25
lítra bensínbrúsa sem komið hafði verið fyrir á
ganginum. Engum varð meint af. Tveir menn voru
handteknir í tengslum við íkveikjuna og var annar
þeirra úrskurðaður í gæsluvarðhald.
„Olíukynding-
in ein mesta
byltingina
Neskaupstað - Sigurbjörg Þorvarðardóttir hélt
upp á 100 ára afmæli sitt í Neskaupstað síðastliðinn
fímmtudag ásamt vinum og vandamönnum. Sigur-
björg var hress og kát á afmælisdaginn en hún er
við ágæta heilsu þó að heyrnin sé farin að daprast.
Sigurbjörg er fædd á Þiljuvöllum í Berufirði
þann 14. desember árið 1900.
Eiginmaður hennar var Kristinn fvarsson sjó-
maður. Hann lést árið 1973. Sigurbjörg og Kristinn
hófu sinn búskap á Þiljuvöllum í Berufirði en lengst
af bjuggu þau í Neskaupstað. Með Kristni eignaðist
Sigurbjörg átta börn sem hún segir að hafi nú ekki
þótt neitt sérlega mikið á þessum tíma. Fjögur
barna hennar eru á lífi í dag, þau Hermann, Kristín,
Þór og Jón Kristinsbörn.
Afkomendur Sigurbjargar eru i dag vel á annað
hundrað og kom stór hluti þeirra á ættarmót f Nes-
kaupstað í sumar til að halda upp á aldarafmælið.
Frá því Sigurbjörg hóf búskap hefur hún lengst
af starfað sem húsmóðir en einnig starfaði hún í
Morgunblaðið/Kristín Ágústdóttir
Sigurbjörg hélt upp á aldarafmælið sl. fímmtudag.
Kaupfélagsíshúsinu í Neskaupstað og við ræstingar
í mörg ár.
Aðspurð sagði Sigurbjörg þá stund þegar hún
fékk olíukyndingu í húsið sitt vera eina þá eftir-
minnilegustu á ævi sinni: „Það var allt svo fallegt
þegar búið kveikja upp“.
Með þessum áfanga Sigurbjargar eru nú tveir
íbúar Neskaupstaðar 100 ára og hiýtur það að telj-
ast nokkuð hátt hlutfall í rúmlega 1.400 manna bæj-
arfélagi. En í sumar sem leið varð Sigurður Jónsson
hundrað ára.
Gyrðir Elíasson hlaut Laxness-
verðlaunin árið 2000 fýrir Gula
húsið sem er safn fjölbreyttra
og einkar vel skrifaðra smá-
sagna.
„... sjálfur held ég að það sé far-
sælast að henda öllum grelnlng-
artilburðum og bókmenntafræð-
um til hliðar og gefa sig sögunum
á vald, verða ðlvaður af mögnuðu
myndmálinu og yppa svo öxlum I
þynnkunnl og segja bara við sjátf-
an sig. „þetta var helvíti gott
tripp“.“
Þórarinn B. Þðrarinsson, strík.is
Dömsmálaráðuneytið staðfestir úr-
skurð Útlendingaeftirlitsins
Aslan Gilaev fær
ekki dvalarleyfi
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
staðfesti í gær úrskurð Utlend-
ingaeftirlitsins um að Aslan Gila-
ev, sem kveðst vera tsjetsjneskur
flóttamaður, verði neitað um dval-
arleyfi hér á landi. Færð eru þau
rök fyrir úrskurðinum að ómögu-
legt sé að veita manni dvalarleyfi
þegar ekki tekst að færa sönnur á
hver hann í raun er. í úrskurð-
inum er þó tekið fram að þetta
þýði ekki að Aslan verði vísað úr
landi að svo stöddu. Ef nýjar upp-
lýsingar um hann koma fram getur
ráðuneytið tekið mál hans upp að
eigin frumkvæði.
Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoð-
armaður dómsmálaráðherra, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
Aslan Gilaev hefði ekki verið sam-
vinnuþýður við starfsmenn ráðu-
neytisins. Slíkt væri óvenjulegt þar
sem Aslan hefði sjálfur kært úr-
skurð Útlendingaeftirlitsins til
dómsmálaráðuneytisins og því
væntanlega í hans þágu að ráðu-
neytið fengi sem bestar upplýs-
ingar um hann.
Aslan hefði hins vegar ekki kom-
ið í viðtal hjá ráðuneytinu sem
hann hefði verið boðaður í.
Reykjanesbraut
Matsáætlun á
leið til Skipu-
lagsstofnunar
VEGAGERÐIN mun eftir helgi af-
henda Skipulagsstofnun matsáætlun
vegna framkvæmda við tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar. Að sögn
Jónasar Snæbjömssonar, umdæmis-
stjóra Vegagerðarinnar á Reykja-
nesi, á eftir að gera nokkrar leiðrétt-
ingar á lokadrögum áætlunarinnar.
Vegarkaflinn sem um ræðir er frá
mörkum Hafnarfjarðar og Vatns-
leysustrandarhrepps og suður að
Fitjum í Njarðvík.
Vonast er eftir að Vegagerðin geti
lagt fram skýrslu um mat á umhverf-
isáhrifum í febrúar nk. Verkfræði-
stofan Hönnun hf. hefur síðan í júlí á
þessu ári unnið fýrir Vegagerðina að
frumdrögum hönnunar og mati á
umhverfisáhrifum fyrirhugaðra
framkvæmda við Reykjanesbraut.