Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 76
16 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Jólavaka við
kertaljós í
Hafnarfjarð-
arkirkju
HIN árlega jólavaka við kertaljós
verður haldin í Hafnarfjarðarkirkju
17. desember n.k. 3. sd. í aðventu og
hefst hún kl. 20.30. Barna- og ung-
lingakór Hafnarfjarðarkirkju undir
stjórn Helgu Loftsdóttur færir upp
sögu H. C. Andersen, Litla stúlkan
með eldspýturnar, í söngleikjagerð.
Kór Hafnarfjarðarkirkju undir
-stjórn Natalíu Chow ílytur valin
tónverk til flutnings á aðventu og
jólum. Ræðumaður verður hinn víð-
förli fréttamaður og kynningar-
fulltrúi Rauða kross Islands, Þórir
Guðmundsson. Við lok vökunnar
verður kveikt af altarisljósum á
kertum sem allir þátttakendur fá í
hendur er gefur til kynna að ljómi
komandi hátíðar sé til þeirra kom-
inn. Eftir vökuna er boðið til sam-
kvæmis í Hásölum Strandbergs.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Fjölskyldudagur í
Bústaðakirkju
^ «
Ljósum prýtt grenitré.
ÞRIÐJA sunnudag í aðventu,
17.desember n.k., verður fjölskyldu-
dagur í Bústaðakirkju. Þá gefst
okkur tími til að staldra við í svart-
asta skammdeginu, tendra ljós og
halda hátíð saman. Þennan dag
bjóðum við upp á samverur sem öll
fjölskyldan getur tekið þátt í.
Barnamessa kl. 11:00. Við hefjum
daginn með leiksýningu sem ætluð
er ungum sem öldnum. í stað hefð-
bundinnar barnamessu mun STOPP
leikhópurinn sýna leíkritið Ósýnilegi
vinurinn sem notið hefur mikilla vin-
sælda. Allir, ungir sem aldnir, eru
hjartanlega velkomnir. Jólasöngvar
fjölskyldunnar kl. 14:00. í mörg ár
hefur guðsþjónusta á 3. sunnudegi í
aðventu sérstaklega verið sniðin að
þörfum fjölskyldunnar og þá sér-
3taklega börnunum. I stað hefð-
bundins messusöngs eru sungnir
jólasöngvar og í stað prédikunar
verður sýndur heigileikur.
„ Jólastund
í Arbæjarkirkju
Á MORGUN, sunnudag, frá kl. 13-
15 verður jólastund sunnudagaskól-
ans og Fylkis í Árbæjarkirkju.
Stundin hefst í kirkjunni þar sem
barnakór kirkjunnar syngur nokkur
jólalög. Jólaguðspjallið verður út-
skýrt í máli og myndum og jóla-
söngvar sungnir. I safnaðarheim-
ilinu bíðui- ljósum prýtt jólatré eftir
börnum og fullorðnum að dansa í
kringum það. Kátir rauðklæddir
íveinar hafa boðað komu sína með
^óðgæti í poka. Allir eru velkomnir
1 þessa stund, ungir sem aldnir.
Börnin og jólin í
Dómkirkjunni
ÞÁ ER töluvert liðið á aðventu og
jólin nálgast óðfluga. Við í kirkju-
skólanum erum búin .að vera í sann-
kölluðu jólaskapi og það verður ekk-
ert lát á því á næstunni. Sunnu-
• daginn 17. desember kl. 14:00
verður aðventuhátíð barnanna í
Dómkirkjunni. Þar verður ýmislegt
jólalegt í boði. Skólahljómsveit vest-
urbæjar spilar jólalög, en í þeirri
sveit eru nokkrir félagar í TTT (10—
12 ára) starfi Dómkirkjunnar. Ólöf
Sverrisdóttir leikari og félagi í
Furðuleikhúsinu ætlar að flytja
okkur leikritið Leitin að Jesús.
Þetta er stutt leikrit, 15 mínútur að
lengd, og það er sannarlega áhuga-
vert. Presturinn Jakob ætiar að tala
við börnin um jólahátíðina. Auk
þess þykir mér heldur líklegt að
r'auðir sveinar láti á sér kræla.
Hafið það einnig hugfast að
þriðjudaginn 26. desember (annan í
jólum) verður jólahátíð barnanna í
Dómkirkjunni kl. 14:00. Herdís Eg-
ilsdóttir kemur og segir okkur jóla-
sögu, presturinn Hjalti talar við
fuglinn Konna og síðast en ekki síst
fer fram skírn, sem gerir stundina
ennþá hátíðlegri.
Við ættum að gefa okkur tíma í
allri jólaösinni til þess að koma sam-
an með bömunum okkar og hlýða á
gefandi boðskap jólahátíðarinnar.
Gleðileg jól og gæfuríkt komandi
ár!
F.h. Dómkirkjunnar,
Bolli Pétur Bollason.
Grensáskirkja -
opin kirkja
SÍÐUSTU vikuna fyrir jól, þ.e.a.s.
17.-23. des., verður Grensáskirkja
opin allan daginn frá kl. 10-21.
Ekki er um að ræða skipulagða
dagskrá heldur gefst hér tækifæri
til að eiga næðisstund í húsi Drott-
ins og íhuga í kyrrðinni boðskap að-
ventu og jóla.
Kapella kirkjunnar verður líka
opin til bænar í einrúmi.
Stundum hefur heyrst að kirkjur
á Islandi séu almennt ekki nógu oft
opnar til að fólk geti komið þangað
án þess að taka þátt í skipulögðu
helgihaldi.
Til að mæta óskum um meiri opn-
un kirkna, finnst forráðamönnum
Grensáskirkju tilvalið að hafa hana
opna þessa síðustu daga aðventunn-
ar. Grensáskirkja er nálægt gatna-
mótum Miklubrautar og Háaleitis-
brautar, miðsvæðis á höfuðborgar-
svæðinu. Hvort sem ferðinni er
heitið niður í bæ, í Kringluna, Skeif-
una eða önnur verslunarhverfi, er
líklegt að leiðin liggi framhjá Grens-
áskirkju.
Hvernig væri að koma þar við,
t.d. á leið í verslunarleiðangur eða
áður en farið er heim að undirbúa
jólahaldið?
Með jólakveðju,
Sr. Olafur Jéhannsson.
Aðventusöngvar
í Háteigskirkju
AÐVENTUSÖNGVAR við kerta-
ljós verða í Háteigskirkju sunnu-
daginn 17. desember kl. 20:00. Bisk-
up íslands, herra Karl Sigur-
björnsson, verður ræðumaður
kvöldsins. Kór Háteigskirkju,
Hulda Guðrún Geirsdóttir, sópr-
an, Peter Tompkins, óbóleikari og
Douglas A. Brotchie, organisti og
kórstjóri, flytja tónlist eftir Alb-
inoni, Bach, Distler, Verdonck og
Vivaldi.
Að þessu sinni verða aðventu-
söngvarnir helgaðir þrjátíu og fimm
ára vígsluafmæli kirkjunnar. Á und-
anförnum árum hefur mörgum þótt
ljúft að koma í kirkjuna á aðventu-
söngvana, hátíðleiki og fegurð hafa
einkennt þessar stundir, sem eru
eins og kærkomið hlé í miklu ann-
ríki aðventunnar og endurskin þess
ljóss, sem kemur.
Það eru allir hjartanlega vel-
komnir og aðgangur ókeypis.
Ensk jólamessa í
Hallgrímskirkju
HÁTT í fjörutíu ár hefur sú fallega
hefð haldist að hafa sameiginlega
guðsþjónustu á jólaföstu fyrir
enskumælandi fólk, fjölskyldur þess
og vini. I ár verður hún haldin í
Hallgrímskirkju sunnudaginn 17.
desember kl. 14.
Hefðbundið form á jólaguðsþjón-
ustu sem kallast á ensku Nine Les-
sons and Carols var fyrst notað í
King’s College Chapel í Cambridge
á Englandi árið 1918 og hefur hald-
ist nánast óbreytt síðan. Guðsþjón-
ustur með þessu formi eru nú
haldnar á sunnudegi í aðventu í
mörgum kirkjudeildum um allan
hinn enskumælandi heim, fólk úr
söfnuðinum les níu ritningargreinar
um fæðingu krists og jólasálmar
sungnir á milli.
Mótettukór Hallgrímskirkju leið-
ir safnaðarsöng undir stjórn organ-
istans Harðar Áskelssonar, Bern-
harður Wilkinson leikur einleik á
flautu og séra Sigurður Pálsson,
prestur í Hallgrímskirkju, stjórnar
athöfninni.
í ár býður breska sendiráðið
kirkjugestum að þiggja kaffi í kirkj-
unni að lokinni guðsþjónustu.
Hr. Sigurbjörn
predikar og Gerðu-
bergskórinn syngur
ÞRIÐJA sunnudag í aðventu, 17.
desember, verður guðsþjónusta í
Fella- og Hólakirkju kl. 14:00, þar
sem eldra fólk er sérstaklega boðið
velkomið. Sóknarprestar safnað-
anna, sr. Hreinn Hjartarson og
Guðmundur Karl Ágústsson, þjóna
ásamt djákna sóknanna Lilju G.
Hallgrímsdóttur. Hr. Sigurbjörn
Einarsson, biskup predikar. Gerðu-
bergskórinn, undir stjórn Kára
Friðrikssonar syngur. Lenka Mát-
éová, organisti kirkjunnar leikur á
orgelið og einsöng syngur Lovísa
Sigfúsdóttir. Eftir guðsþjónustuna
er kirkjugestum boðið að þiggja
kaffiveitingar í safnaðarheimilinu.
Allir eru hjartanlega velkomnir að
njóta með okkur aðventunnar í húsi
Drottins og í rólegu samfélagi í
safnaðarheimilinu.
Fella- og Hólakirkja.
Jólasöngvar
fjölskyldunnar
í Grafarvogskirkju
Á MORGUN sunnudaginn 17. des-
ember verður hátíð í Grafarvogs-
kirkju, „Jólasöngvai- fjölskyldunn-
ar“. Flutt verður jólatónlist og
lesnir verða ritningai’lestrar á milli
tónlistaratriða.
Kirkjukórinn, Barna- og ung-
lingakórinn, Krakkakórinn, stjórn-
endur: Hörður Bragason og Oddný
J. Þorsteinsdóttir Dúett: Guðlaug
Ásgeirsdóttir og Kristín María
Hreinsdóttir.
Blokkflaututríó: Dóra Björk Að-
alsteinsdóttir, Fríða Guðný Birgis-
dóttir og Sigríður Magnúsdóttir.
Nemendur úr Tónlistarskólanum:
Kristín Rós Kristjánsdóttir, Jó-
hanna Ingadóttir og Viktoría Tar-
evskaia Allir syngja saman jóla-
sálma og komast í jólaskap.
Aðventusamkoma í
Ytri-Nj arðvíkur-
kirkju
AÐVENTUSAMKOMA verður
haldin í Ytri-Njarðvíkurkirkju
sunnudaginn 17. desember kl. 20.30.
Guðbjörg Böðvarsdóttir flytur hug-
leiðingu. Rúnar Þór Guðmundsson
syngur einsöng. Bjöllukór Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar kemur
fram undir stjórn Hjördísar Einars-
dóttur og ungir nemendur frá sama
skóla leika á hin ýmsu hljóðfæri.
Eldey kór Félags eldri borgara á
Suðurnesjum syngur undir stjórn
Alexöndru Pitak. Einsöngvari er
Guðmundur Ólafsson og undirleik
annast Ragnheiður Skúladóttir.
Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir
stjórn Steinars Guðmundssonar
organista. Jafnframt verður bæna-
gjörð og ritningarlestur.
Eins og sjá má á þessari dagskrá
mun fólk á öllum aldri koma fram
og því ættu sem flestir að geta séð
eitthvað við sitt hæfi. Hvetjum við
því fólk til að mæta til kirkju og
taka þátt í undirbúningi jólanna.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Aðventusöngvar í
Hjallakirkju
ÞRIÐJI sunnudagur í aðventu, 17.
desember, í Hjallakirkju í Kópavogi
hefst á lofgjörðarguðsþjónustu kl.
11. Þar flytur kór Snælandsskóla
aðventu- og jólalög og leiðir einnig
safnaðarsönginn undir stjórn Heið-
rúnar Hákonardóttur. í barnaguðs-
þjónustum kl. 11 í Lindaskóla og kl.
13 í kirkjunni verður gengið í kring-
um jólatréð og börnin fá smágiaðn-
ing.
Þá verða aðventusöngvar í kirkj-
unni um kvöldið kl. 20.30. Aðventu-
söngvar þessir eru að hluta til eftir
enskri fyrirmynd. Lesnir verða
valdir kaflar úr spádómsritum
Gamla testamentisins þar sem spáð
er fyrir um komu frelsarans og
einnig úr ritum Nýja testamentis-
ins. A undan og eftir lestrunum, svo
og inn á milli, verða sungnir að-
ventu- og jólasöngvar. Prestar
kirkjunnar annast upplestur og
Kammerkór Hjallakirkju syngur og
ieiðir almennan söng. Vertu vel-
komin/n í Hjallakirkju!
Jólasöngvar
í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði
JÓLASÖNGVAR fjölskyldunnar
verða í kirkjunni kl.ll. Börn úr
TTT-starfi kirkjunnar sýna helgi-
leik ásamt barna- og unglingakór
kirkjunnar. Barna og unglingakór-
inn syngur síðan nokkur jólalög og
leiðir almennan söng undir stjórn
Þóru Vigdísar Guðmundsdóttur
organista. Að lokinni þessarí að-
ventustund í kirkjunni verður svo
boðið upp á heitt súkkulaði og smá-
kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.
Æðruleysismessa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar tileinkuð fólki í leit að bata
eftir tólfsporakerfinu verður í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík sunnudags-
kvöldið 17. desember kl. 20:30. Þar
eru allir velkomnir til tilbeiðslu og
æðruleysis.
Lofgjörðina leiðir söngkonan lífs-
glaða, Anna Sigríður Helgadóttir
við undirleik bræðranna fjölhæfu,
Safnaðarstarf og listir
hallgrimskirkja.is