Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Samkeppnisráð telur samruna Landsbanka og Búnaóarbanka brjóta í bága við ákvæði samkeppnislaga Morgunblaðið/Ámi Sæberg Samkeppnisráð kom saman til fundar í gær og gekk frá endanlegu áliti sínu til viðskiptaráðherra um áhrif sameiningar Landsbankans og Biinaðarbankans. Leiðir til samþjöpp- unar og markaðs- ráðandi stöðu SAMKEPPNISRÁÐ hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirhugaður samruni Lands- bankans og Búnaðarbankans myndi leiða til of mikillar sam- þjöppunar og markaðsráðandi stöðu og raski samkeppni á mörkuðum fyrir innlán og útlán, á greiðslumiðlunarmörkuðum og markaði fyrir verðbréfa- og gjaldeyrisviðskipti. Samkeppn- isráð birti 120 blaðsíðna álits- gerð sína í gær. Iítarlegri álitsgerð um hvort fyr- irhugaður samruni Landsbanka íslands hf. og Búnaðarbanka ís- lands hf. bijóti gegn ákvæðum 1. málsgreinar 18. greinar samkeppnis- laga tekur samkeppnisráð fram að efnisleg umfjöllun ráðsins byggist á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á samkeppnislögum, sem tóku gildi 6. desember. Með þeim breyt- ingum hafí einn megin tilgangur löggjafans verið að auka möguleika samkeppnisyfirvalda til að taka á samruna fyrirtælq'a sem raski sam- keppni. Samkeppnisráð rekur í ítarlegu máli erlend fordæmi þar sem reynt hefur á samkeppnisreglur vegna sam- runa í bankastarfsemi. Einnig er stórum hluta álitsgerðarinnar varið undir skilgreiningar á markaði fyrir fjármálaþjónustu hér á landi. Fram kemur að samkeppnisráð aflaði upp- lýsinga frá ijármálastofnunum og fékk greinargerð frá Landsbankan- um og Búnaðarbankanum um fyrir- hugaðan samruna. Samkeppnisráð er í mörgum atriðum ósammála bönkun- um um hvemig skilgreina beri ein- stök svið fjármálaþjónustu og dregur einnig mjög í efa þá miklu þýðingu sem álitsbeiðendur (Landsbanki og Búnaðarbanki) telja að tilkoma net- banka hafi haft. „Erlendar rannsókn- ir benda ótvírætt til þess að tilkoma netbanka hafi a.m.k. enn sem komið er lítið dregið úr mikilvægi bankaúti- búa sem dreifileiðar," segir í álitinu. Þá telur ráðið að miðað við núver- andi ástand fái það vart staðist að Netið og netbankar muni auðvelda nýjum aðilum að komast inn á ís- lenska bankamarkaðinn. Er í því sambandi vitnað til nýlegrar umfjöll- unar í breskum fjölmiðlum og Morg- unblaðinu, sem bendi til að flestir við- skiptavinir telji að netbankar geti ekki komið að öllu leyti í stað hefð- bundinna bankaútibúa, m.a. vegna efasemda um öiyggi bankaviðskipta á netinu. Bankaútibú séu því enn nauð- synleg á innlánsmarkaði og kostnað- ur við að koma upp slíku dreifikei’fi hindi-i aðgang að hinum smáa ís- lenska markaði. Auk þessa er bent á að íslenski fjár- málamarkaðurinn sé fremur einangr- aður og að á innlánssviði mæti ís- lenskir bankar lítilli beinni sam- keppni erlendis frá. 39,9% heildarmarkaðshlutdeild sameinaðs banka Bent er á í álitsgerðinni að á grund- velli upplýsinga Fjármálaeftirlitsins um rekstrarreikninga banka og ann- arra fyrirtækja, sem veita fjármála- þjónustu, að opinberum fjárfestingar- lánasjóðum undanskildum, á árinu 1999, komi í ljós að við samruna Landsbanka og Búnaðarbanka myndi heildarmarkaðshlutdeild hins sam- einaða banka og íyrirtækja undir yf- irráðum hans nema um 39,9%. ís- landsbanki-FBA, hefði skv. þessum mælikvarða um 27% markaðshlut- deild. 53,2% hlutdeild í innlánum „Þegar litið er á innlánsmarkaðinn í heild leiðir fyrirhugaður samruni til þess að Landsbankinn og Búnaðar- bankinn öðlast 53,2% markaðshlut- deild, en markaðshlutdeild Islands- banka-FBA yrði 21,8%. Samþjöppun á markaðinum er nú þegar talsverð, en yrði mjög mikil eftir samruna segir í álitinu. Telur ráðið þvi ljóst að þessi markaðshlutdeild og aukning á samþjöppun gefi ein og sér mjög sterka vísbendingu um að fyrirhug- aður samruni leiði til markaðsráðandi stöðu og raski samkeppni á heildar- innlánsmarkaðinum. Þegar litið er á stöðu innlána á hlaupareikningum í árslok 1999 er niðurstaða ráðsins sú að fyrirhugaður samruni myndi leiða tíl þess að Landsbankinn og Búnaðarbankinn myndu öðlast 43,1% markaðshlut- deild á sviði hlaupareikninga, en markaðshlutdeild Íslandsbanka-FBA yrði 27,1%. Yfirburðir sameinaðs banka á sviði hlaupareikninga yrðu þó ekki jafn afgerandi og þegar litið er á innlánamarkaðinn í heild. „Hins veg- ar telur samkeppnisráð að þessi markaðshlutdeild og aukning á sam- þjöppun gefi sterka vísbendingu um að fyrirhugaður samruni leiði til markaðsráðandi stöðu og raski sam- keppni á heildarinnlánsmarkaðnum," segiríálitinu. Þá kemst samkeppnisráð að þeirri niðurstöðu að bankamir tveir myndu öðlast 57,1% markaðshlutdeild á markaði fýrir önnur óbundin innlán, en markaðshlutdeild íslandsbanka- FBA yrði 16,9%. Þessi markaðshlut- deild og aukning á samþjöppun gefi ein og sér mjög sterka vísbendingu um að fyrirhugaður samruni leiði til markaðsráðandi stöðu og raski sam- keppni á þessu markaði. Samkeppnisráð kemst einnig að þeirri niðurstöðu að hinn sameinaði banki myndi öðlast markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir bundin innlán. Af því myndi hijótast mikil samþjöpp- un á markaðinum. Lítur ekki á sparisjóði sem einn öflugan keppinaut í nánari umfjöllun um núverandi samkeppni á innlánsmarkaðinum kemur fram að samkeppnisráð hafnar því áliti í greinargerð Landsbanka og Búnaðarbanka að h'ta verði á spari- sjóði sem einn öflugan keppinaut á innlánsmarkaðinum. Telur ráðið að í skilningi samkeppnislaga beri að h'ta á hvem og einn sparisjóð sem sjálf- stætt fyrirtæki á markaðinum og möguleikar þeirra á að veita samein- uðum banka aðhald séu mjög tak- markaðir................. „Markaðshlutdeild íslandsbanka- FBA á innlánamörkuðum er á bilinu 17-27%. Fyrir innlán alls er hlutdeild- in 21,8%. Þótt staða íslandsbanka sé þannig mun sterkari en sparisjóð- anna yrði hinn sameinaði banki samt að þessu leytí í yfirburðastöðu, þar sem hlutdeild hans á innlánsmörkuð- um alls yrði 53,2%, eða meira en helmingi hærri en hlutdeild íslands- banka,“ segir í álitsgerðinni. Samkeppnisráð bendir þó á að efnahagslega staða íslandsbanka- FBA sé styrkari en hlutdeild hans í innlánum gefi til kynna, sé litíð til efnahagsreiknings bankans. Innlán vegi einnig hlutfallslega minna hjá ís- landsbanka-FBA en Landsbanka og Búnaðarbanka. Íslandsbanki-FBA hafi því e.t.v. rneiri styrk en mark- aðshlutdeildin segi til um til að veita samkeppnislegt aðhald en ráðið telur þó að það dugi ekki tíl í þessu sam- bandi, auk þess sem óvíst sé að ís- landsbanki-FB A muni keppa að veru- legu marki við hinn sameinaða banka. Meginniðurstaða ráðsins hvað inn- lánsmarkaði snertir er því sú að sam- einaður banki muni ná markaðsráð- andi stöðu hvort sem htið sé á markaðinn fyrir innlán í heild eða ein- staka undirmarkaði hans. Slíkt hafi skaðleg áhrif á samkeppni og sé full- nægjandi forsenda fyrir íhlutun skv. 18. grein samkeppnislaga. Telur ráðið lfldegt að hinn fyrirhugaði samruni bankanna muni gefa þeim fyrirtækj- um sem eftir eru á markaðinum tæki- færi til að hegða sér saman eins og eitt markaðsráðandi fyrirtæki og þau muni öðlast nokkurs konar sameig- inlega einokunarstöðu. 41,8% hlutdeild á markaði skammtímalána einstaklinga Samkeppnisráð telur að ekki sé hægt að líta svo á að öll lán til ein- staklinga séu á sama samkeppnislega markaðinum. Kemst ráðið að þeirri niðurstöðu að fyrirhugaður samruni myndi leiða til þess að Landsbanki og Búnaðarbanki öðluðust 41,8% mark- aðshlutdeild fyrir skammtímalán tfl einstaklinga, en markaðshlutdeild ís- landsbanka-FBA yrði 26,6%. Sam- þjöppun á þessum markaði sé nú þeg- ar talsverð, en yrði mikil eftir samruna. Því séu sterkar vísbending- ar um að fyrirhugaður samruni myndi leiða til markaðsráðandi stöðu og raska samkeppni á þessum markaði. Samkeppnisráð kemst einnig að þeirri niðurstöðu að samruni bank- anna myndi leiða til þess að samein- aður barfld öðlaðist 50,3% markaðs- hlutdeild í rekstrarlánum til fyrir- tækja, samþjöppunin á markaðinum yrði mjög mikil og því séu sterkar vís- bendingar um að fyrirhugaður sam- runi myndi leiða til markaðsráðandi stöðu og raska samkeppni. Ráðið fjallar sérstaklega um eigna- leigu og telur að samruni bankanna hefði engin áhrif á markaðshlutdeild á markaðinum. Smeinaður baifld myndi þó öðlast yfirrráð yfir Lýsingu hf. með 80% eignarhlut en fyrir eiga bankamir tveir 40% hlut hvor. Sam- einaður banki myndi þá stjóma eignaleigufyrirtæki með 47,6% mark- aðshlutdeild. Samruni Landsbanka og Búnaðar- banka myndi leiða tíl nokkurrar sam- þjöppunar á markaði fyrir fjárfest- ingarlán tfl atvinnuveganna, að mati samkeppnisráðs. Markaðshlutdeild sameinaðs banka og Lýsingar yrði 31,3% en hlutdefld íslandsbanka- FBA og Glitnis hf. yrði 30,6%. Sam- þjöppunaráhrifin yrðu minni en á öðr- um mörkuðum fyrir lánaþjónustu við fyrirtæki og sameinaður banki myndi ekki ná markaðsráðandi stöðu á þess- um markaði, að mati ráðsins. Líkur era þó taldar á að sameinaður baifld og Íslandsbanki-FBA yrðu í sameig- inlegri markaðsráðandi stöðu á þess- um markaði, ef af samrananum yrði. Einokunarstaða gagnvart litlum og meðalstórum fyrirtækjum í álitsgerðinni er sérstaklega reynt að greina á milli lána til minni og stærri fyrirtækja. Tekið er fram að tölulegar upplýsingar skorti þó til að það sé unnt og Landsbanki og Bún- aðarbanki hafi ekki séð sér fært að skflgreina hvemig þeir flokka fyrir- tæki með þessum hættí eða að upp- lýsa um lánveitingar til þeirra. Lagði samkeppnisráð því þess í stað mat á mismunandi stærð lána til fyrirtækja og kom í ljós að tiltölulega lítil lán hafa mikið vægi í útlánum íslenskra banka. Samkeppnisráð bendir á að lít- il og meðalstór fyrirtæki séu almennt mjög háð viðskiptabanka í sínu nán- asta umhverfi. Megin niðurstaða samkeppnisráðs hvað þennan hluta útlánamarkaðar- ins varðar er að sameinaður banki myndi ná markaðsráðandi stöðu og að aðilar á þessum mörkuðum muni mynda nokkurs konar sameiginlega einokunarstöðu í andstöðu við 18. grein samkeppnislaga. Ráðið bendir einnig á að veralegar aðgangshindranir séu að útlánsmörk- uðum. Mikill meirihlutí íslenskra fyr- irtækja séu smá og ekki í aðstöðu til að taka lán hjá erlendum bönkum. Skv. upplýsingum Seðlabankans hafi einungis 30 fyrirtæki, önnur en op- inber fyrirtæki og lánastofnanir, ný- lega tekið langtímalán hjá erlendum bönkum án ábyrgðar íslenskra banka. í álitsgerð samkeppnisráðs segir að sameinaður banki myndi öðlast yf- irráð bæði yfir Reiknistofu bankanna og Fjölgreiðslumiðlun, en þessi tvö fyrirtæki standa að rekstri grann- kerfa greiðslumiðlunar hér á landi. Sameinaður banki yrði með 57,2% eignarhluta í Reiknistofunni og 54,8% í Fjölgreiðslumiðlun. Einnig er fjallað um hlutdeild bankanna í greiðslukortafyrirtækjum í álitinu. „Ljóst er að verði af fyrir- huguðum samrana verður Greiðslu- miðlun að dótturfyrirtæki nýs banka með 59% eignarhluta. Jafnframt mun sameinaður banki öðlast veruleg ítök í eina keppinaut Greiðslumiðlunar, Kreditkorti, með 40% eignarhluta. A mörkuðum greiðslukoitaútgáfu, s.s. gagnvart greiðsluviðtakendum og korthöfum, mun sameinaður banki því öðlast markaðsyfirráð og í reynd mögulega einokunarstöðu," segir í álitsgerðinni. Einnig kemur þar fram að mark- aðshlutdeild sameinaðs banka yrði um 50% á debetkortamarkaðinum. Þá er bent á að á markaði fyrir kred- itkort sé Greiðslumiðlun dótturfyrir- tæki sameinaðs banka með yfirburða- stöðu hvort sem litið er á fjölda korta eðaveltu. 50% hlutdeild á tékkamarkaði Markaðshlutdeild sameinaðs banka á tékkamarkaði er tæplega 50%, hvort sem litið er á fjölda tékka eða veltu, en hlutdeild íslandsbanka- FBA er 24,2% hvað fjölda tékka varð- ar og 19,2% af veltu tékka, skv. álits- gerðinnL Er niðurstaða ráðsins hvað þetta varðar sú að mikil hætta yrði á að fyrirhugaður samruni myndi raska samkeppni á tékkamai-kaði. Samkeppnisráð telur að samruni bankanna myndi leiða til þess að markaðhlutdeild hans í verðbréfavið- skiptum yrði í heild um 31% miðað við viðskipti á Verðbréfaþingi og um 40% miðað við viðskipti utan þingsins. Ráðið kemst hins vegar að þeini nið- urstöðu að ekki sé einsýnt að hinn fyr- irhugaði samruni myndi leiða til markaðsráðandi stöðu sameinaðs banka á þessu sviði. Hins vegar verði að teljast hætta á því að fækkun aðila á markaðinum leiddi til þess að hann yrði grynnri og draga muni úr sam- keppnislegri virkni hans. Vandamál á millibankamarkaði fyrir gjaldeyri Samkeppnisráð vitnar í umfjöllun sinni um gjaldeyrisviðskiptamarkað- inn til greinargerðar Seðlabankans, sem ráðinu barst 27. nóvember. Dregur ráðið þá ályktun af greinar- gerð bankans að hann telji að fyrir- hugaður samrani Landsbankans og Búnaðarbankans myndi hafa í fór með sér vandamál á mfllibankamark- aði fyrir gjaldeyri. Virkni markaðar- ins myndi m.a. skerðast vegna fækk- unar viðskiptavaka. í greinargerð Seðlabankans segir m.a.: „Miðað við óbreyttar reglur má ætla að viðskiptí og samkeppni á millibankamarkaði með gjaldeyri minnki við samruna LI og BI. Samanlögð hlutdeild þeirra m.v. sl. 5 mánuði var um 45% af heild- arviðskiptum en sennilegt er þó að sameinaður banld tapi markaðshlut- deild umfram það sem skýra má með innbyrðis viðskiptum." Samkeppnisráð segir að það sé ekki í samræmi við 18. grein sam- keppnislaga að heimila samruna sem raski samkeppni, þótt hann kunni að hafa í för með sér hagræðingu. Þá heldur ráðið því fram að bankarnir hafi ekki sýnt með óyggjandi hætti hver hagræðing verði við samranann og áætlun þeirra beri keim af því að vera mjög lausleg. Þeir hafi ekki sýnt fram á að ekki megi hagræða, t.d. í útibúarekstri, án þess að gripið sé til samkeppnishamlandi aðgerða eins og sameiningar bankanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.