Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 77 •
Harðar og Birgis Bragasona. Einn-
ig ætla tónlistarmennirnir Bjarni
Arason og Grétar Örvarsson að
koma okkur í hátíðarskap með söng.
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir leið-
ir stundina og sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson og sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir flytja samtalspredikun
og fyrirbæn. Jafnframt verður
reynslusögu deilt með viðstöddum.
I lok stundarinnar verðui' tendrað á
kertum til að minna okkur á að jólin
eru hátíð ljóss og friðar, en ekki
streitu og óreglu.
Æðruleysismessur eru einstakar
og helgar stundir þar sem fólk kem-
ur og leitar af heiðarleika eftir sam-
félagi við Guð og meðbræður sína.
Það sem einkennir messurnar er
létt sveifla í helgri alvöru. Æðru-
leysismessur eru 21. aldar messur
og það eru allir velkomnir.
Jólasveifla
í Keflavíkurkirkju
EINS og mörg undanfarin ár verð-
ur jólasveifla í Keflavíkurkirkju.
Næstkomandi sunnudag kl 20.30
verður ein slík haldin.
Þar koma fram söngvararnir:
Einar Júlíusson kemur frá USA,
Rúnar Júlíusson, Birta Rós Sigur-
jónsdóttir, Ólöf Einarsdóttir og
Einar Öm Einarsson.
Hljóðfæraleikur er í höndum Þór-
is Baldurssonar, Júlíusar Guð-
mundssonar, Guðmundar Ingólfs-
sonar, Þórólfs Inga Þórssonar og
Einars Arnar Einarssonar.
Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju
syngja. Hugvekju flytur sr. Ólafur
Oddur Jónsson sóknarprestur.
í lokin verður sungið við kerta-
ljós.
Aðventukvöld
fyrir Bakka- og
Bægisársóknir
AÐVENTUKVÖLD verður í Bæg-
isárkirkju sunnudaginn 17. desemb-
er kl. 20:30. Helgileikur fermingar-
barna og kirkjukórs í samstarfi við
Leikfélag Hörgdæla undir stjórn
Aðalsteins Bergdal.
Kórsöngur kirkjukórs Möðru-
vallaklaustursprestakalls. Lúsíu-
söngur nemenda Þelamerkurskóla
undir stjórn Guðmundar Engil-
bertssonar og mikill almennur
söngur.
Ræðumaður verðm' Halldór
Gunnarsson frá Búðarnesi.
Mætum öll og njótum sannrar
jólastemmningar í húsi Guðs.
Sóknarprestur og sóknarnefnd.
Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta
í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 17. desember
verður barna- og fjölskylduguðs-
bjónusta kl. 11:00. Barna- og ung-
lingakór Hallgrímskirkju syngur og
flytur helgileik undir stjórn Bjarn-
eyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur
og Magneu Sverrisdóttur. Prestur
verður sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
og organisti Hörður Áskelsson.
Kyrrðarstund við
kertaljós
í Seljakirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 17. des-
ember kl 20:00 verður hugljúf og
uPPbyggjandi kyrrðarstund á að-
ventu í Seljakirkju.
Gróa Hreinsdóttir organisti kirkj-
unnar og Margrét Bóasdóttir sópr-
ansöngkona flytja aðventutónlist frá
ýmsum tímum, s.s. Hátíð fer að
höndum ein, Með gleðiraust og helg-
um hljóm, Einu sinni í ættborg Dav-
íðs og Máríuvers dr. Páls ísólfsson-
ar. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir les
ritningagreinar úr Biblíunni.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventuhátíð í
Digraneskirkju
Á ÞRIÐJA og síðasta aðventu-
kvöldinu í Digraneskirkju lýkur
söfnunarátaki Digranessafnaðar
fyrir líknarmálum á jólaföstu.
Síðasta sunnudag var safnað fyrir
mæðrastyrksnefnd Kópavogs en nú
beinum við athygli okkar að Hjálp-
arstarfi kirkjunnar.
Tekið á móti söfnunarbaukunum
„brauð handa hungruðum heimi“ og
seld friðarkerti Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Kaffisala til styrktar hjálp-
arstarfinu.
Kór Snælandsskóla sér um tónlist
kvöldsins undir stjóm Heiðrúnar
Hákonardóttur. Stjórnun og undir-
búningur kvöldsins er í höndum
kórs Digraneskirkju og starfsfólks
hjálparstarfsins. Hugvekju flytur
Kristín Bögeskov, djákni frá Hjálp-
arstarfi kirkjunnar.
Aðventuhátíðin hefst kl. 20:30.
Neskirkja. Félagsstarf eldri
borgara í dag kl. 14 í safnaðar-
heimilinu. Samfylgd okkar við kirkj-
una. Minningarbrot. Umsjón sr.
Halldór Reynisson. Kaffiveitingar.
Munið kirkjubílinn. Allir velkomn-
ir.
Grafarvogskirkja. AA-hópur kl. 11.
Fríkirkjan Vegurinn: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Brauðsbrotning.
Samkoma kl. 20. Brauðsbrotning.
Högni Valsson prédikar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
KEFAS: Samkoma í dag laugardag
kl. 14. Ræðumaður Helga R. Ár-
mannsdóttir. Þriðjud: Almenn
bænastund kl. 20. Kaffihúsakvöld
kl. 21. Allir hjartanlega velkomnir.
Miðvikud: Samverustund unga
fólksins kl. 20.30. Fim: Menn með
markmið kl. 20. Föstud: Bænastund
unga fólksins kl. 19.30. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 11.30. Æfing fellur niður hjá
Litlum lærisveinum þessa viku.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl. 11.
TTT-starf (10-12 ára) kl. 13. Um-
sjón: Hreiðar Örn Stefánsson.
Verðkr.
Colonial borðstofusettin
eru smíðuð úr gegnheilu
birki.
Borð + 6 stólar
verðkr. 100.000,-stgr.
Opið í dag, laugardag
ld. 11-18,
á morgun, sunnudag
ld. 13-16.
Chateau d’Ax
Raðgreiðslur
til allt að 36 mán.
ðndvegi, Sídumúla 20, sími S68 8799, Hafnarstræti 22 Akureyri, simí 461 1115.
Helena
RUBINSTEIN
CHRISMAS BEAUTY
POWER A CREAM
50 ml - jólaverð kr. 5.400
Verðmæti kr. 7.550
FALLEGAR JÓLAGJAFIR
SEM GLEÐJA ALLAR
KONUR
Jólaöskjur í miklu úrvali
sem innihalda
andlitskrem - líkamsvöru -
förðunarvöru
Glæsileg rauð taska með:
Mini Vertiginous maskari
svartur + All Mascaras 50
ml. + Mini Kohl svartur + I
Ritual Rouge nr. 9 + Face
Sculptor farði nr. 23, 10
ml.+ Face Sculptor krem
15 mí.
JÓLAVERÐ kr. 2.800
Verðmæti kr. 6.300
ART OF SPA
Fullkomin vellíðan, slökun
og orka með tveimur
líkamslínum.
Nú fáanlegar í fallegum
jólaöskjum.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Andorra Hafnarfirði,
Ársól Efstalandi,
Bylgjan Kópavogi,
Fína Mosfellsbæ,
Snyrtivöruversl Glæsibæ,
Gullbrá Nóatúni,
Hygea Kringlunni,
Hygea Laugavegi,
Libia Mjódd,
Mist Spönginni,
Sara Bankastræti,
Sigurboginn Laugavegi,
Bjarg Akranesi,
Hilma Húsavík,
Hjá Maríu Amaro Akureyri,
Hjá Maríu Glerárt AkureyriJ
Miðbær Vestmannaeyjum.í
4r