Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ
70 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
Opið Frá 10-13
LAUGARDAGUR
y.y\ju.~
www.stillíng .is
SKEIFUNN111 • SÍMI520 8000 • BlLDSHÖFÐA 16 ■ SÍMI 5771300 • DALSHRAUN113 ■ SlMI 555 1019
®1 Stilling
Í00 • DALSHRAUN113 • SÍMI 555 1019"*
ISkrðabox
Verð áður
26.900.-
UMRÆÐAN
BUGL 30 ára
BARNA- og ung-
lingageðdeild Landspít-
ala - háskólajúkrahúss
(BUGL) hóf starfsemi í
ágúst 1970 að frum-
kvæði Halldórs Hansen
yfírlæknis, Tómasar
Helgasonar prófessors
og Kristbjamar
Tryggvasonar yfir-
læknis með dyggum
stuðningi kvenfélagsins
Hringsins. Fyrsta ára-
tuginn var deildin sjálf-
stæð eining innan spít-
alans, starfsemin
blómstraði og uppbygg-
ingin hröð en með sviða-
skiptingu spítalans varð
hún skor innan geðsviðs sem hún er
enn. Deildin er sérfræðimiðstöð
landsins við mat og meðferð geðrask-
ana hjá bömum og unglingum og hef-
ur ekki síður mikilvægi að gegna við
handleiðslu og ráðgjöf til fagmanna,
ýmissa deilda og stofnana, kennslu og
þjálfun nema og starfsfólks auk rann-
sókna en síðastnefndi þátturinn hefur
vaxið verulega á síðustu árum. Reglu-
legt, stundum náið, samstarf er við
ótal stofnanir og félög og þjónustu-
samningar hafa verið
gerðir við heilsugæslu-
stöðvar, Bamavemdar-
stofu og Vog. Af þessu
má sjá hversu marg-
þætta starfsemi BUGL
innir af hendi, ekki að-
eins fyrir þau hundruð
börn, unglinga og fjöl-
skyldur þeirra sem fá
þjónustu BUGL árlega,
heldur líka okkar sam-
starfsaðila sem eiga það
sammerkt að vinna að
heill hinnar uppvaxandi
kynslóðar á hverjum
tíma.
Hlutverk BUGL í
heilbrigðiskerfinu og í
raun í íslensku samfélagi er því bæði
víðtækt og mikilvægt en töluvert
skortir á að staða deildarinnar og til-
kostnaður endurspegli þá staðreynd.
Fyrst ber að geta að rekstrarútgjöld
BUGL á tímabilinul995-99 jukust
um tæp 30% auk þess sem deildin tók
yfir rekstur Kleifarvegsheimilisins
1998 frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Á
sama tíma hefur umfang þjónustunn-
ar aukist töluvert umfram kostnaðar-
aukningu. Þannig fjölgaði nýjum mál-
Afmæli
Brýn þörf er á að end-
urmeta hlutverk og
stöðu BUGL í íslensku
heilbrígðiskerfí, segir
Ólafur Ó. Guðmunds-
son, og nú 30 árum eftir
að deildin tók til starfa
er sú þörf orðin
knýjandi.
um sem fengu þjónustu í göngudeild
um nærri helming frá 1996 til 1999
þegar þau voru 440 og biðlisti dróst
heldur saman. Fjöldi innlagna og
legudagaíjöldi tvöfaldaðist á sama
tímabili og meðallegutími styttist.
Það er því Ijóst að þjónusta hefur auk-
ist verulega umfram auknar fjárveit-
ingar sem bendir til að þjónustan sé
skilvirkari. Erfiðara er að meta gæði
hennar en ætla má að þau séu a.m.k.
Ólafur Ó.
Guðmundsson
Brautin rudd fyrir
einkaskóla
KJARADEILA
framhaldsskólakenn-
ara vekur áleitnar
spurningar um þróun
menntakerfisins. Á síð-
ustu árum hefur
menntastefna stjórn-
valda leitt til þess að í
ýmsum fögum fást
ekki kennarar með til-
skilda menntun, ungt
menntað fólk fæst ekki
til kennslustarfa, skól-
amir eru ekki sam-
keppnishæftr um
vinnuafl. Þessi þróun í
skólamálun hefur í för
með sér enn rneiri
hnignun á öðrum svið-
um. Það er í slíku andrúmslofti sem
jarðvegurinn verður frjór fyrir hug-
myndir um einkaskóla. Er svörður-
inn til þess pældur?
Skiljanlegar kröfur
Staðan í verkfalli framhaldsskóla-
kennara kallar á hugleiðingar um
hvert ráðamenn þjóðarinnar ætla
eiginlega að fara með menntamál
hennar. Nógu slæmt er ástandið hjá
þeim ungmennum sem nú lifa í
óvissu um afdrif líðandi skólaárs og
munu sjálfsagt sum hver flosna upp
frá námi. Enn stærra áhyggjuefni er
þó sú þróun sem blasir við allri þjóð-
inni ef ekki verður komið verulega
til móts við kröfur kennara.
Það leynir sér ekki að margir
framhaldsskólakennarar hugsa af
alvöru um að hverfa frá kennslu.
Þeim finnst nú mælir-
inn fullur af þeim
skilningsskorti og virð-
ingarleysi sem ráð-
herrar og sumir þing-
menn stjómarliðsins
hafa sýnt störfum
framhaldsskólakenn-
ara í orði og verM. Það
er líka óskiljanlegt að
yfirvöld ætlist til þess
að kennarar sætti sig
við mun lægri laun en
aðrir ríMsstarfsmenn
með sömu menntun og
sambærilega ábyrgð.
Þetta er vafalaust
meginorsök þess að æ
erfiðara hefur reynst
að fá vel menntaða kennara til
starfa.
Kennarastarfið er krefjandi og
svo sannarlega ábyrgðarmiMð og
því skiijanlegt að ungt háskóla-
menntað fólk kjósi frekar betur
launuð störf hjá hinu opinbera eða á
öðrum vinnumarkaði. Sem áhorf-
anda að deilunni sýnist mér aðal-
krafa kennara snúast um að þessu
launamisrétti verði aflétt og að þeir
njóti svipaðra kjara og aðrir ríMs-
starfsmenn með sambærilega
menntun. Finnst þjóðinni það vera
ósanngjöm krafa?
Einkavæðingardraumar?
Það er erfitt að skilja fjandsam-
lega andstöðu ríMsstjórnarinnar
gegn kröfum framhaldsskólakenn-
ara. Ráðherramir hljóta eins og aðr-
Kennarar
Sem foreldri framhalds-
skólanema krefst ég
þess, segir Kristín Á.
Ólafsdóttir, að rík-
isstjórnin gegni skyldu
sinni gagnvart núver-
andi nemendum og
semji við kennara án
frekari tafa.
ir að skynja að þolinmæði og sjálfs-
virðingu þessarar stéttar hefur
verið misboðið. Þeir hafa frétt af
erfiðleikum við að fá kennara til
starfa. Þeir vita um aldursdreif-
inguna í kennarahópnum og hvað
svokölluð nýliðun er lítil. Þeim hlýt-
ur einnig að vera kunnugt um að
margir framhaldsskólakennarar
kenna mun meira en þeir kæra sig
um til þess að ekM þurfi að fella nið-
ur kennslu í greinum, eða til þess að
hafa sæmileg laun. Ráðherramir
hljóta einnig að átta sig á því að með
því móti fái nemendur tæpast það
besta út úr kennurum sínum í skóla-
starfinu.
Erfitt er að kyngja því að þeim
sem stýra málefnum þjóðarinnar
skuli vera um megn að álykta að
stoðir framhaldsskólanna munu
bresta ef þróun undanfarinna ára
verður ekM snúið við. Ef svo fer sem
horfir að framhaldsskólamir drabb-
ist niður af kennaraskorti og öðra
aðstöðuleysi mun það að sjálfsögðu
draga dilk á eftir sér um alla mennt-
un sem tekur við af framhaldsskóla-
námi. í kjölfarið fylgja síðan afleið-
ingar fyrir atvinnu- og efnahagslíf
þjóðarinnar svo alvarlegar, að óttinn
við að launahækkanir til kennara nú
setji efnahagslífið úr skorðum verð-
ur hjóm eitt í samanburði við þau
ósköp sem við blasa í því tilviM.
Gœðavara
Gjafaviira - mafar- orj kafíistell. He
Allir verðflokkar. ^ m.
^u//)XV\.; VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir höniuióir
m.a. Gianni Versace.
Kristín Á.
Ólafsdóttir
SINDRI
Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is