Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 61
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
Á
i
S
HANDKNATTLEIKUR
FH-UMFA 32:30
Kaplakriki, 1. deild karla í handknattleik,
Nissan-deildin, föstudagur 15. des. 2000.
Gangur leiksins: 1:0, 2:1, 7:1, 8:5, 10:7,
11:10,13:12,15:12,15:13,18:15,21:16,26:18,
31:18,32:20.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 10/4, Hálfdán
Þórðarson 5, Valur Amarson 5, Victor Berg
Guðmundsson 4, Guðmundur Pedersen 3/1,
Sverrir Öm Þórðarson 2, Láms Long 1,
Sigursteinn Amdal 1, Hjörtur Hinriksson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 21
(þar af 5 til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk UMFA: Bjarki Sigurðsson 6/5, Gint-
aras Savukynas 4, Hjörtur Amarsson 3,
Magnús Már Þórðarson 3, Hilmar Stefáns-
son 3, Haukur Sigui-vinsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynsson 8 (þar af 4
tíl mótherja), Olafur Gíslason 1/1.
Utan vailar: 12 mínútur, Gintas Galkauskas
rautt fyrir brot 10 mínútum íyrir leikslok.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur
Öm Haraldsson, toppdómgæsla.
Ahorfendur: 300.
ÍR-Fram 23:31
Austurberg:
Gangur ieiksins: 0:1,1:5,4:7,7:9,7:14,9:14,
13:20,16:20,18:23,21:29,23:31.
Mörk ÍR: Ingimundur Ingimundarson 4,
Einar Hólmgeirsson 3, Erlendur Stefáns-
son 3/3, Finnur Jóhannsson 2, Róbert
Rafnsson 2, Ólafur Siguijónsson 2, Kári
Guðmundsson 2, Ragnar Helgason 2,
Bjarni Fritzson 1, Brynjar Steinarsson 1,
Sturla Ásgeirsson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 1 (fór til
mótheija), Hallgrímur Jónasson 13/3 (þar
af3tilmótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Fram: Róbert Gunnarsson 12/2,
Hjálmar Vilhjálmsson 4, Vilhelm Berg-
sveinsson 4, Björgvin Þór Björgvinsson 3,
GunnarBergViktorsson3/l, NjörðurÁma-
son 2, Þorri B. Gunnarsson 2, Guðjón
Drengsson 1.
Varin skot: Sebastian Aiexandersson 18/1
(þar af 4 tii móthei ja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Einar Hjaltason og Ingvar Reyn-
isson. Slakari en leikmenn og var það afrek
út af fyrir sig.
Ahorfendur: Um 130.
■ Leik Breiðabliks og ÍBV var frestað þar
sem ekki var flogið frá Vestamannaeyjum í
gær. Leikurinn fer fram í dag kl. 14.00 í
Smáranum.
Haukar-Víkingur 18:13
Ásveilir, Bikarkeppni kvenna í handknatt-
leik - SS-bikarinn, 8 liða úrslit, fóstudagur
15. desember 2000.
Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 6:4, 6:6, 7:7, 8:7,
8:8,10:10,12:10,12:11,14:11,16.13,18:13.
Mörk Hauka: Harpa Melsteð 5/2, Brynja
Steinsen 4/3, Thelma Bj. Ámadóttir 3, Auð-
ur Hei-mannsdóttir 2, Sandra Anulyte 2,
Inga Fríða Tryggvadóttír 1, Hanna G. Stef-
ánsdóttirl.
Varin skot: Jenný Ásmundsdóttir 17 (þar af
fóm átta aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Víkings: Kristín Guðmundsdóttir 4/1,
Gerður Beta Jóhannsdóttir 3, Eva Hall-
dórsdóttir 2, Margrét Egilsdóttír 2, Guð-
björg Guðmannsdóttir 1, Guðrún Hólm-
geirsdóttir 1.
Varin skot: Helga Torfadóttir 25 (þar af
fóm ellefu aftur til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Stefán Amaldsson og Gunnar
Viðarsson vora góðir.
Áhorfendur: Um 140.
EM kvenna í Rúmem'u
Leikur um 5. sætið:
Frakkland - Noregur.............23:19
Leikur um 7. sætið:
Júgóslavía - Makedónía..........39:38
Leikur um 9. sætið:
Danmörk - Þýskaland.............21:22
Leikur um 11. sætið:
Austurríki - H-Rússland.........22:27
ÞÝSKALAND
Wetziar - Hildesheim............26:23
■ Sigurður Bjarnason skoraði 1 mark fyrir
Wetziar
KNATTSPYRNA
England
2. deiid:
Cambridge - Peterborough...........0:0
Þýskaland
Urvalsdeild:
Unterach - Frankfúrt...............2:0
Dietmar Hirsch 19., Andre Breitenreiter
86.-6.000
l.deild:
Osnabmck - Bielefeld...............1:0
Ulm - Duisburg.....................1:3
■ Helgi Kolviðsson var í byrjunarliði Ulm
og iék ailan leikinn.
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
ÍA-Snæfell.......................57:70
NBA-deiIdin:
Toronto - New York...............70:68
San Antonio - Denver............96:102
Golden State - Houston...........95:98
Öm vann silfur í aukagrein
ÖRN Arnarson vann til siifur-
verðlauna í 50 m baksundi á Evr-
ópumeistaramótinu á 25 m braut i
Valencia í gær. Örn kom í mark á
24,81 sekúndu, 21 hundraðshluta
úr sekúndu á eftir Ante Maskovic,
Króatíu, sem kom fyrstur í mark.
Þriðji varð Litháinn Darius Grial-
ionis á 24,82 og Thomas Rupprath
hlaut fjórða sætið á á 24,83. Munaði
því einungis tveimur hundraðs-
hlutum á Emi og Rupprath, sem
hafði náð besta tímanum í undan-
rásum og undanúrslitum. Ruppr-
ath hafði reyndar hálftíma fyrir úr-
slit í 50 m baksundi sigrað í 100 m
flugsundi. „Þetta var mjög fíht,“
sagði Öm af hógværð er Morg-
unblaðið náði tali af honum síðdeg-
is í gær. „Tíminn var svipaður og
ég hafði fyrirfram reiknað með og
kom ekki á óvart. Það kom mér
meira á óvart að hann skyldi nægja
til silfurverðlauna. Fyrir sundið
taldi ég að það þyrfti að synda á
24,5 til þess að krækja f verðlaun,"
sagði Öm.
„Þessi góði hraði veitir mér svo
sannarlega byr í seglin fyrir eitt
hundrað metra sundið. Þolið er
fyrir hendi, sömuleiðis hraðinn og
tæknin. Nú þarf ég bara að blanda
þessu rétt saman á eitt hundrað
metrunum," sagði Öm um fram-
haldið í dag og á morgun.
Aðspurður hvort hann væri ekk-
ert þreyttur eftir átök tveggja síð-
ustu daga kvað Örn svo ekki vera.
„Það er svo gaman að ég verð ekk-
ert þreyttur. Auk þess vom þessi
sund í dag svo stutt, maður er rétt
kominn ofan í laugina þegar sund-
inu er lokið.“
Eins og fram kom í viðtali við
Öm í Morgunblaðinu eftir sigurinn
í 200 m baksundinu í fyrradag var
50 m baksundið aðeins aukagrein
hjá Emi, rétt til upphitunar fyrir
keppnina í 100 m baksundinu en
undanrás og undanúrslit þeirrar
greinar fara fram í dag og úrslit
verða kunn um miðjan dag á
sunnudag.
Öm synti alls þrisvar sinnum í
gær. í undanrásum synti hann á
25,11 og bætti eigið Islandsmet um
24/100 úr sekúndu og tryggði sér
sæti f undanúrslitum. I þeim synti
hann á 24,79 og hafði þar með bætt
Islandsmetið um 56/100 úr sek-
úndu.
Daniel Karlsson frá Svíþjóð á
Norðurlandametið f 50 m baksundi,
24,53. Það setti hann árið 1998.
FH-ingar léku
Aftureldingu grátt
FH-INGAR komu í gærkvöld í
veg fyrir að orðatiltækið allt er
þá þrennt er rættist því þeir
burstuðu Aftureldingu, 32:20, í
Kaplakrika. Mosfellingar höfðu
hins vegar sigrað Hafnfirðinga
tvívegis í vetur. í hinum leiknum
í deildinni sigraði Fram lið ÍR
með heldur minni mun, 31:23.
Líkt og í leiknum gegn Fram um
síðustu helgi byrjuðu FH-ingar
leikinn með látum. Eftir 12 mínútna
leik var staðan orðin
Guðmundur 7:1 °S höfðu Þá
Hilmarsson heimamenn skorað
skrifar sex af þessum mörk-
um úr hraðaupp-
hlaupum. Mosfellingar vöknuðu til
lífs þegar stundarfjórðungur var lið-
inn af leiknum og náðu að minnka
muninn í eitt mark. En FH-ingar
voru ekki á því að láta sama leikinn
endurtaka sig og gegn Fram þegar
þeir glutruðu niður sex marka for-
skoti. Þeir fóru inn í leikhlé með
þriggja marka forystu og því forskoti
héldu þeir framan af síðari hálfleik.
Kaflaskipti urðu svo í leiknum um
hálfleikinn miðjan. Vörn FH-inga
small í gang svo um munaði, Berg-
sveinn lokaði markinu á löngum köfl-
um og Hafnfirðingarnir kaffærðu
Mosfellinga á síðasta korteri leiksins.
Vamarleikur FH-inga var mjög
góður sem sést best á því að skytt-
umar Bjarki Sigurðsson og Gintas
skomðu samtals aðeins eitt mark ut-
an af velli. Bergsveinn var sínum
gömu félögum erfiður í markinu,
Héðinn Gilsson var atkvæðamikill í
sókninni og skoraði mörg glæsimörk
og þeir Hálfdán Þórðarson og Valur
Amarson léku vel í sterku og bar-
áttuglöðu FH-liði.
Mosfellingar fengu harkalega
magalendingu eftir fjóra sigurleiki í
röð og langt er síðan Afturelding hef-
ur tapað leik méð svona miklum mun.
Vörn liðsins var eins og gatasigti all-
an tímann og sóknarleikurinn ráð-
leysislegur og ómarkviss. Mikil
deyfð var hjá leikmönnum Aftureld-
ingar og ekki var að sjá á mönnum að
þeir hefðu áhuga á að bæta við
fimmta sigrinum í röð. Magnús Már
Þórðarson stóð uppúr í annars slöku
liði.
Engin stemmning
í Austurbergi
Framarar unnu ÍR-inga auðveld-
lega, 31:23, í afskaplega slökum
leik í Austurbergi í gærkvöld. Leik-
menn beggja liða
SkúliUnnar vf«a , ömgglega
Sveinsson gleyma honum sem
skrifar allra fyrst því liðin
léku illa ef undan era
skildir nokkrir leikmenn.
Framarar náðu strax undirtökun-
um og í leikhléi var helmings munur,
7:14. Enginn stemmning var hjá lið-
Morgunblaðið/Þorkell
Gintas Galkauskas og félögum hans í vöm Aftureldingar gekk illa að ráða við stórskyttu FH,
Héðinn Giisson, en Hafnarfjarðarliðið vann stórsigur á Aftureldingu í gærkvöld.
unum og áhorfendur vora einnig
mjög daufir þannig að fyrir hlé var
klísturhljóðið þegar leikmenn sendu
boltann á milli sín mesti hávaðinn
sem mældist í húsinu.
Síðari hálfleikur var skömminni
skái-ri en langt frá því að vera góður.
Sebastian, markvörður Fram, var
í stuði í fyrri hálfleik og í þeim síðari
átti Róbert Gunnarsson fínan leik og
hann var sá eini sem virtist leika af
fullum krafti, gerði meðal annars
fimm mörk í röð í upphafi síðari hálf-
leiks. Þá átti Guðlaugur Amarsson
góðn leik í vörninni.
Hjá ÍR var það aðeins Hallgrímur
Jónasson markvörður sem lék af
eðlilegri getu, hann kom inn á um
miðjan fyrri hálfleikinn og varði vel.
Ekki er hægt annað en nefna þátt
dómaranna að þessu sinni. Þetta var
vonandi ekki þeirra dagur, þeir kom-
ust aldrei í takt við leikinn en eiga þó
heiður skilið fyrir að fá menn, áhorf-
endur jafnt sem leikmenn, til að
skella uppúr hvað eftir annað. Ekki
bara vegna þess sem þeir dæmdu
heldur ef til vill ekki síður vegna
þeirra atriða sem þeir dæmdu ekki.
Ef þeirra hefði ekki notið við er hætt
við að margir hefðu dottað enda leik-
urinn hræðilega slakur. Vonandi var
þetta bara slakur dagur hjá þeim.
Keppnisandinn víðsfjarri
LÍKLEGA vissu hvorki Haukastúlkur né stötiur þeirra úr Víkingi að
þær væru að leika bikarleik þegar liðin mættust á Ásvöllum í gær-
kvöldi því frammistaða þeirra var vægast sagt mjög slök, leikmenn
voru vissulega á staðnum en keppnisandinn var víðsfjarri. Engu að
síður höfðu Haukar sigur, 18:13, og geta þakkað sínum sæla að gest-
ir þeirra rifu sig ekki upp úr sömu lægðinni og stöðvuðu sigurgöngu
þeirra. Það eina sem gladdi augað var ágæt markvarsla Jennýjar Ás-
mundsdóttur í Haukamarkinu og Helgu Torfadóttur hjá Víkingum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Algert úrræðaleysi einkenndi
sóknarleik efsta liðs efstu
deildar kvenna, Haukanna, en samt
tókst þeim að skora
þrjú mörk á fyrstu
tóíf mínútunum án
þess að Víkingar
kæmust á blað. Að-
eins meira líf var í sókn Víkings-
stúlkna en þó komust leikmenn
hvorki lönd né strönd því það var
ekki nóg að spila utan seihngar
hramma Haukavarnarinnar. Á 24.
mínútu tókst þó Víkingum að jafna í
fyrsta sinn, 6:6, og á tíundu mínútu
síðari hálfleiks var aftur jafnt, 10:10.
Þá fór aðeins að lifna yfir Hafnfirð-
ingum. Það dugði til að ná þriggja
marka forystu og í leik eins og þess-
um var það mikið. Leikurinn fór aft-
ur niðurá lága planið þegar hvorugu
liðinu tókst að skora í tíu mínútur og
áhorfendur horfðu agndofa á en með
örlítið betri leik tókst Haukum að ná
fimm marka sigri.
„Við unnum að vísu en þetta var
hörmulegt og hélt um tíma að þetta
væri alveg búið hjá okkur,“ sagði
Jenný markvörður. „Ég fékk á mig
nokkur aulamörk og varð stressuð
en náði mér á strik en það var samt
engin hætta á að myndum slaka á
því við svo sannarlega viljum vinna.“
Helga, markvörður Víkinga, var
ekki eins ánægð. „Við byrjuðum vel
en svo klikkaði sóknin því enginn
leikur vinnst á þrettán mörkum. Það
hefði verið góð jólagjöf að slá efsta
liðið deildarinnar út úr bikarkeppn-
inni,“ sagði Helga.