Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 49
48 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 49 i I STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. NIÐURSTAÐA SAMKEPPNISRÁÐS s hætt er að fullyrða, að niður- staða samkeppnisráðs um fyr- irhugaðan samruna Lands- banka íslands og Búnaðarbanka íslands kom bæði stjórnmálamönnum og bankamönnum á óvart. Þótt enginn hafi getað fullyrt neitt um það hvernig samkeppnisráð mundi taka á málinu gerðu flestir ráð fyrir, að stofnunin mundi samþykkja samrunann með einhverjum fyrirvörum um, að bank- arnir losuðu sig við einhverjar eignir, svo sem að minnka sameiginlega hlut- deild í greiðslumiðlunarfyrirtækjum. I samræmi við þessar væntingar var undirbúningur að sameiningu rík- isbankanna tveggja kominn býsna langt áleiðis og ekkert því til fyrir- stöðu, að sameiningin gæti komið til framkvæmda fljótlega á nýju ári. Þess vegna má segja, að niðurstaða samkeppnisráðs hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Álitsorðin eru ótvíræð og afdráttarlaus. Þau eru svohljóðandi: „Á grundvelli fyrirliggjandi upplýs- inga og eins og málið hefur verið lagt fyrir samkeppnisráð hefur ráðið kom- izt að þeirri niðurstöðu að fyrirhug- aður samruni Landpbanka íslands hf. og Búnaðarbanka Islands hf. leiði til of mikillar samþjöppunar og mark- aðsráðandi stöðu á tilteknum mörk- uðum á eftirfarandi sviðum; markaði fyrir innlán, markaði fyrir útlán, greiðslumiðlunarmörkuðum og mark- aði fyrir verðbréfa- og gjaldeyrisvið- skipti. Það er niðurstaða samkeppn- isráðs, að samruninn hafí skaðleg áhrif á samkeppni og brjóti í bága við 18. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993, sbr. lög nr. 107/2000.“ Áður en samkeppnisráð gaf út þetta álit var orðið ljóst, að stuðningur við sameiningu ríkisbankanna tveggja var takmarkaðri en gert var ráð fyrir í upphafi. Alveg sérstaklega var ljóst, að andstaða við sameiningu var mjög sterk innan Búnaðarbankans. Innan Landsbankans var meira fylgi við hugmyndina. En jafnframt var byrjað að gæta efasemda, ekki sízt hjá for- ráðamönnum lítilla og meðalstórra fyrirtækja um að svo mikil samþjöpp- un á fjármálamarkaðnum væri stórum hluta atvinnulífsins til hagsbóta. Þá virtust stjórnmálamenn í ýmsum flokkum ekki sérstaklega áhugasamir um sameiningu. Eftir sameiningu íslandsbanka og FBA fyrr á árinu virtist mönnum sem sameining ríkisbankanna tveggja væri nauðsynleg til þess að samein- aður banki gæti keppt á jafnræðis- grundvelli við þá nýju bankasam- steypu. Þó urðu þær raddir smátt og smátt sterkar, að skynsamlegt væri að ríkið seldi hlutabréf sín í bönkun- um tveimur og léti markaðinn um að taka sínar ákvarðanir um endurskipu- lagningu bankakerfisins. Samkeppnisráð hefur nú tekið af skarið og ljóst að ekki verður af sam- einingu þessara tveggja banka. Sam- eining þeirra í einkaeigu yrði ekkert síður skaðleg fyrir markaðinn en nú þegar bankarnir eru í ríkiseigu. For- sendur samkeppnisráðs eru einfald- lega þær, að markaðshlutdeild hins sameinaða banka yrði of mikil á þeim sviðum fjármálaþjónustu, sem sér- staklega er fjallað um. Jafnframt er ljóst að með þessari niðurstöðu hefur samkeppnisráð í einu vetfangi styrkt eigin stöðu. Mönnum er nú ljóst, að þar er á ferð- inni stofnun, sem er tilbúin að taka ákveðna afstöðu á grundvelli þeirra laga, sem hún starfar eftir. Það er rétt, sem Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra sagði á Alþingi í gær, að með niðurstöðu sinni hefur sam- keppnisráð undirstrikað eigið sjálf- stæði. Enginn getur nú gengið að því vísu, að samkeppnisráð gefi grænt ljós á hvað sem er. Það er ekki hægt annað en fallast á, að samkeppnisráð færir sterk rök fyr- ir afstöðu sinni. í skýrslunni segir, að sameinaður banki mundi öðlast 53,2% markaðs- hlutdeild á innlánsmarkaðnum. Á hverju starfssviði bankanna á fætur öðru kemst samkeppnisráð að svip- aðri niðurstöðu. Skýrslan er augljós- lega vel unnin. í henni eru miklar upp- lýsingar um fjármálamarkaðinn hér á Islandi og um samrunaferli í fjármála- fyrirtækjum í ýmsum löndum. Það er erfitt að hrekja niðurstöður sam- keppnisráðs með efnislegum rökum. Eftir stendur svo spurningin um það, hvernig hægt sé að koma á auk- inni hagræðingu í íslenzka bankakerf- inu. Það hefur verið sýnt fram á það með tölulegum upplýsingum, að bankakerfið hér er mun dýrara en í ýmsum nágrannalöndum okkar. Þjón- ustan kostar viðskiptavinina einfald- lega meira. Markmiðið með samein- ingunni var að draga úr þessum kostnaði. Hvaða aðrar leiðir eru færar til þess? Er annars konar samruni í fjár- málakerfinu æskilegur? í skýrslu samkeppnisráðs er sérstaklega tekið fram, að grundvallarmunur sé á því, hvort samruni eigi sér stað á milli banka, sem starfa í mismunandi lönd- um eða á ólíkum markaðssviðum eða á milli banka, sem starfa í sama landi og á sömu vöru- eða þjónustumörkuðum. Síðan segir: „Hið sama á við ef banki, sem sérhæft hefur sig á smásölu- markaði í þjónustu við einstaklinga o.fl. sameinast fjárfestingarbanka, sem hefur ólíka starfsemi, enda þótt þeir starfi á sama landfræðilega markaði.“ Ekki er ósennilegt að þetta sjón- armið ýti undir hugmyndir um sam- einingu annars hvors ríkisbankanna og fyrirtækis eins og Kaupþings, sem mundi að sumu leyti verða mjög svip- uð sameining og milli íslandsbanka og FBA. Þá er alls ekki óhugsandi í ljósi ofangreindrar tilvitnunar, að annar hvor ríkisbankanna leiti sameiningar við erlendan aðila og reyni þannig að ná þeiin markmiðum að draga úr kostnaði í rekstri og þar með úr kostnaði viðskiptavinanna. Erlendur banki hefur nú þegar eignast hlut í Landsbankanum og áður hefur sænskur banki lýst vissum áhuga á að koma að Landsbankanum sem eign- araðili. Vafalaust koma báðir þessir mögu- leikar til skoðunar hjá ríkisbönkunum tveimur. Jafnframt má búast við að ríkisstjórnin og þingflokkar hennar taki til umræðu, hvort ganga eigi til þess verks að selja hlutabréf ríkisins í bönkunum tveimur. Urskurður samkeppnisráðs um sameininffu Búnaðarbanka og Landsbanka ræddur utandagskrár á Alþingi Stefnt að heimild til sölu bankanna á vorþingi Þingmenn ræddu í gær niðurstöðu sam- keppnisráðs og þá ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að afla heimildar til sölu hluta- bréfa ríkisins í bönkunum tveimur á vorþingi. Viðskiptaráðherra sagðist hafa talið samruna Landsbanka og Búnaðar- banka bestu leiðina til að stuðla að hag- ræðingu á íslenskum fjármálamarkaði, en stjórnarandstaðan fagnaði niðurstöðunni. Morgunblaðið/Ásdís Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra. Halldór J. Kristján^son, bankastjóri Landsbanka Islands hf. Niðurstaðan áhyggjuefni fyrir íslenskt atvinnulíf Niðurstaða samkeppnisráðs kemur bankastjóra Landsbankans á óvart, en hann telur hana vera í andstöðu við þró- unina erlendis. Bankaráð Búnaðar- bankans segist virða niðurstöðuna. VALGERÐUR Sverris- dóttir, viðskipta- og iðn- aðarráðherra, hóf um- ræðuna með því að gefa Alþingi skýrslu um úrskurð sam- keppnisráðs, sem heimilaði ekki samrunann og teldi hann ganga gegn samkeppnislögum; leiða til of mikillar samþjöppunar og sam- keppnisráðandi stöðu sameinaðs banka á sviði innlána, útlána, greiðslumiðlunar, verðbréfavið- skipta og gjaldeyrisviðskipta. Samruninn hefði því skaðleg áhrif á samkeppni og bryti í bága við 18. grein samkeppnislaga. „Ég fagna því að niðurstaða er fengin í þessu máli,“ sagði viðskipta- ráðherra. Hún sagðist hafa talið samruna Landsbanka og Búnaðar- banka bestu leiðina til að stuðla að hagræðingu á fjármálamarkaði. Vegna efasemda um samkeppnis- þátt málsins hefði hún hins vegar lagt til við ríkisstjóm að fenginn yrði forúrskurður samkeppnisráðs í stað þess að ganga til sameiningar og fá afstöðu samkeppnisráðs eftir á. „Það var rétt leið,“ sagði ráðherra. „Stjómarflokkamir hafa verið samstiga í þessu máli. AUir stjóm- arandstöðuflokkamir hafa sagt að sammna Landsbanka og Búnaðar- banka eigi að taka til alvarlegrar at- hugunar. Formaður vinstri grænna hefur meira að segja haldið því íram að samruninn sé borðleggjandi," sagði Valgerður og rakti að talsmað- ur Samfylkingarinnar hefði sagt í vor, í tilefni sameiningar íslands- banka og FBA að engin glóra væri í því að ríkið ætti tvo banka og ein- boðið væri að ríkisstjómin samein- aði ríkisbankana tvo. Formaður Samfylkingarinnar hefði í haust hvatt sig til að leita for- úrskurðar samkeppnisráðs. „Ég hafði gert mér vonir um að niðurstaða samkeppnisráðs yrði önnur. Ekki síst vegna þess að sam- keppnisyfirvöld í fámennum ríkjum hafa leyft mikla samþjöppun á bankamarkaði vegna alþjóðlegrar samkeppni,“ sagði ráðherra. „Ég hef ekki haft tóm til að fara it- arlega yfir úrskurð samkeppnisráðs en það mun ég gera á næstu dögum. Ég vil hins vegar taka það skýrt fram að ég mun ekki draga niður- stöðu ráðsins í efa.“ Þá sagði hún að ríkisstjórnin hefði haldið fund, skömmu fyrir fund Al- þingis, þegar niðurstaða samkeppn- isráðs lá fyrir og hefði þar samþykkt eftirfarandi yfirlýsingu: „Ríkis- stjómin mun áfram leita leiða til að lækka kostnað í bankakerfinu til að tryggja lægri vexti fyrir heimili og fyrirtæki. Ráðherra mun leggja fram frumvarp á vorþingi þar sem óskað verður heimildar til að selja hlutabréf ríkisins í bönkunum." Sigur neytenda og lýðræðis Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði niðurstöð- una mikinn ósigur fyrir rikisstjóm- ina og viðskiptaráðherra en sigur fyrir neytendur, samkeppnisráð og þess vegna lýðræðið í landinu. Össur sagði að viðskiptaráðherra og forsætisráðherra hefðu sent skýr skilaboð til samkeppnisráðs um það hver niðurstaðan ætti að vera. „Þess vegna er það sigur fyrir lýðræðið að samkeppnisráð lét ekki kúgast. Það lét ekki beygja sig.“ Össur sagði að það hefði sýnt sig að samkeppnislöggjöfin væri ein- hver mikilvægasti vörður réttra og heiðarlegra leikreglna á markaði en það hefði hins vegar gerst að þau verðmæti, sem skattborgaramir ættu í bönkunum tveimur, hefðu hríðfallið í verði á þeim tíma sem málið var til meðferðar. „Þannig að ég dreg hæstvirtan forsætisráð- herra og viðskiptaráðherra til ábyrgðar fyrir að hafa rýrt eigur ís- lenskra skattborgara svo milljörð- um skiptir,“ sagði Össur og beindi til viðskiptaráðherra spumingu um það hvað „þetta feigðarflan" hefði kostað skattgreiðendur. Hann sagði að Samfylkingin hefði sagt fyrir um þá niðurstöðu að rík- isstjórnin væri að ganga á svig við samkeppnislög og beint því til við- skiptaráðherra að leita forúrskurð- ar. Samfylkingin hefði bent á þau þijú meginatriði niðurstöðu sam- keppnisráðs að sammni bankanna tveggja mundi skaða samkeppni, leiða til markaðsráðandi stöðu og verða til tjóns fyrir neytendur. Loks sagði Össur að það væri hneykslanlegt að sá flokkur sem gengið hefði til kosninga undir slag- orðinu Fólk í fyrirrúmi hefði ekki sýnt neina tilburði til þess að hafa samráð við starfsfólk bankanna tveggja, öðra vísi en með tölvupósti bankastjóra Landsbankans til starfsmanna sinna um að fyrstu 6-8 mánuði fyrsta starfsárs sameinaðs banka væri stefnt að spamaði sem jafngilti uppsögn 2-300 starfs- manna. Timamótaúrskurður Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagðist fagna fordæmis- gefandi niðurstöðu samkeppnisráðs. „Ég sé ástæðu til að óska samkeppn- isráði, íslenskum neytendum og okkur öllum til hamingju með þessa niðurstöðu. Það er enginn vafi á því að hér er um tímamótaúrskurð að ræða,“ sagði hann. „Sjálf ríldsstjóm Islands setti á samkeppnisráð bæði tímapressu og þrýsting hvað varðar tiltekna efnislega niðurstöðu. Sam- keppnisráð stóðst þetta próf.“ Hins vegar hefði rQdsstjómin far- ið ógætilega í málinu, skapað óvissu, gert bönkunum erfitt fyrir og skap- að öryggisleysi hjá starfsfólki. „Hjá öllu þessu hefði mátt komast með öðravísi og vandaðri vinnubrögð- um.“ Hann sagði að viðskiptaráðherra hefði nefnt afstöðu sína og fleiri til málsins í gegnum tíðina og sagði rétt að hann sjálfur hefði verið þeirrar skoðunar fyrir 4-5 áram að einn þeirra kosta sem menn ættu að skoða væri sameining ríkisbank- anna sem þá vora 100% í eigu rík- isins. „Við þær aðstæður sem þá vora uppi á fjármálamarkaði áður en sú uppstokkun og samþjöppun hófst sem þar hefur orðið,“ sagði Stein- grímur og kvaðst hafa m.a. flutt ásamt Margréti Frímannsdóttur og fleiram þingsályktunartillögu um að kanna sameiningu ríkisviðskipta- bankanna. Þá hefðu sömu flokkar og nú sitja í ríkisstjóm mótmælt og talið engar forsendur til að sameina ríkisvið- skiptabankana, m.a. vegna sam- keppnislaga, samþjöppunar og fá- keppniseinkenna markaðarins. „En síðan hafa þeir væntanlega skipt all- hressOega um skoðun og ætluðu sér að þvinga þennan samrana nú fram.“ Steingrímur sagði að nú þyrfti að bjarga því sem bjargað yrði eftir klúður ríkisstjómarinnar og hverfa frá fljótræðisstefnu í einkavæðing- aráformum í bankaheiminum. Menn ættu að fara svonefnda norska leið, þ.e. að ríkið gefi þá yfírlýsingu að það ætli að halda drjúgum eignar- hluta í bönkunum enn um sinn til þess að koma ró á hlutina og afstýra verðfalli þessara eigna umfram það sem orðið er. Jafnframt eigi að lýsa því yfir nú að ekki komi tU uppsagna á starfsfólki næstu 2-3 ár heldur verði leitað samstarfs við starfsfólk og samtök þess um að leysa mál með öðram hætti. Það væri mikUsvert til að eyða óvissu. Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að nið- urstaða samkeppnisráðs hefði kom- ið á óvart miðað við fyrri afstöðu ráðsins, t.a.m. til samþjöppunar á matvörumarkaði á höfuðborgar- svæðinu. Tvö höfuðatriði hefðu setið á hak- anum við meðferð viðskiptaráðherra á málinu; annars vegar það að semja við starfsfólkið og hins vegar það að hafa hagsmuni viðskiptavinanna í huga. Steininn hefði tekið úr þegar ráð- herra hefði hafið atlögu að Búnaðar- banka íslands og haft í hótunum um að setja menn þar af. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að ríkisstjómin hefði átt nokkra kosti. I fyrsta lagi þann að sameina bankana með lögum Þá hefði Samkeppnisstofnun hvergi komið að málinu. Annar kostur hefði verið sá að vísa i þau ákvæði sam- keppnislaga sem gerðu ráð fyrir að Samkeppnisstofnun kæmi ekki að málum þegar sameinuð væra tvö fyrirtæki sem að meirihluta væra í sömu eignaraðild. „í þriðja lagi hefði ríkisstjómin getað gert það sem flestir gera, að sameina fyrst og láta samkeppnisráð standa frammi fyrir gerðum hlut,“ sagði Davíð. En ekk- ert af þessu hefði ríkisstjómin gert þvert á móti hefði hún notað sér- staka heimild um forúrskurð sem sjaldan er notuð til að leita viðhorfa samkeppnisyfirvalda til málsins. Bað um svar og fékk svar „Þannig að það er ekki hægt að tala um neinn sigur eða ósigur í þessum efnum. Hefði ríkisstjómin farið fram með einhverju offorsi, eða miklum ákafa, þá hefði hún að sjálf- sögðu lagt hér fram lög um að sam- eina bankana en ekki látið gilda um sig það sem er ætlast til að sé látið gilda um aðra, sem var nákvæmlega það sem ríkisstjómin gerði. Þess vegna gat ríkisstjómin hvorki unnið eða tapað í þessu máli. Hún gat bara fengið svar. Hún bað um svar og fékk svar,“ sagði Davíð. Hann sagði að hins vegar hefði þurft að undirbúa málið eins og svarið yrði jákvætt. Ef svarið yrði neikvætt hefði ekki þurft að undir- búa neitt en ef svarið yrði jákvætt þyrftu menn að vera tilbúnir. Davið sagði ómögulegt fyrir Öss- ur Skarphéðinsson að tala: eins og Samfylkingin hefði séð þetta allt saman fyrir. Síðast í mars hefði birst viðtal við þáverandi talsmann Sam- fylkingarinnar, Margréti Frímanns- dóttur, sem hefði sagt að ríkisstjórn- in þyrfti að skoða vel möguleika á að sameina Landsbanka og Búnaðar- banka í einn öflugan banka enda væri engin glóra í því að ríkið ætti meirihluta í og ræki tvo banka á ís- lenskum fjármagnsmarkaði. í fram- haldinu sé eðlilegt að skoða hvort selja eigi hlutabréf rikisins í bönk- unum. Talsmaðurinn hefði ekki minnst á að rétt væri að kanna hver væri skoðun Samkeppnisstofnunar. Davíð sagði ekki með nokkram hætti hægt að gagnrýna hvemig við- skiptaráðherra hefði haldið á þessu máli. Hún hefði sérstaklega gætt þess, m.a. sem æðsti yfirmaður sam- keppnismála, að leggja lykkju á leið sína til þess að gæta þess að sam- keppnislög og samkeppnisskilyrði yrðu skoðuð fyrst og fenginn forúr- skurður. „Það var farið nákvæmlega eftir leikreglum og reyndar ná- kvæmar heldur en flestir aðrir hafa gert,“ sagði forsætisráðherra Urskurðurinn kemur á óvíuI: Halldór Asgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsóknar- flokksins, sagðist telja að úrskurður samkeppnisráðs sýndi afskaplega vel „að við eram að feta okkur inn í nýtt samfélag þar sem samkeppni er i-íkjandi og við þurfum á sterkum eftirlitsstofnunum að halda til að fylgjast vel með því að samkeppn- isreglur séu virtar. Hér hefur verið kveðinn upp úrskurður sem sýnir það að ríkisstjómin viðhafði vönduð vinnubrögð í þessu máli. Hún ákvað að leita eftir því hvemig ætti að skilja samkeppnislög í þessu sam- bandi. Urskurðurinn kemur vissu- lega á óvart en við eigum að fara eft- ir honum. Það má kalla hann, mín vegna, sigur fyrir neytendur og sig- ur fyrir lýðræðið. Það er gott til þess að vita að við skulum lifa í þannig samfélagi þar sem slík sjónarmið verða ofan á og ætti að verða til þess að formaður Samfylkingarinnar, háttvirtur þingmaður Össur Skarp- héðinsson, kæmist að þeirri niður- stöðu að hér væri vel stjómað og hér væri góð ríkisstjóm. Ég tel að það hafi verið staðið afskaplega vel að þessu máli.“ Halldór sagði ljóst af úrskurðin- um að menn væra í vanda í stöðu eins og þessari, gagnvart því hvort hugsa eigi fyrst og fremst um eigur ríldssjóðs og fá sem mest fyrir þær eða hvort fyrst og fremst eigi að hugsa um samkeppnisskilyrði í sam- félaginu. Ríkisstjómin hefði ákveðið að huga fyrst og fremst að sam- keppnisskilyrðum og hljóti að fagna því að niðurstaða liggur fyrir. „Hvert framhaldið verður er ekki gott að segja til um. Við verðum að sjálfsögðu að fá ráðrúm til að lesa þennan úrskurð, túlka hann og fara vel yfir hann. Ég tel að hér sé um tímamótaúrskurð að ræða og því eigum við að taka okkur góðan tíma í það næstu daga og vikur að ákveða næstu skref,“ sagði Halldór. Fákeppni eigi sér ekki stað Sighvatur Björgvinsson, þing- maður Samfylkingarinnar á Vest- fjörðum, sagði að í úrskurðinum segði að íslenskur fjármálamarkað- ur bæri nú þegar mörg einkenni fá- keppni. „Meginatriði málsins er, að hvað sem gert er, þá þá sé það tryggt að fákeppni eigi sér ekki stað og að aðgerðir ríkissfjómarinnar beri vott um það að hún vilji koma í veg fyrir fákeppni og stuðla að auk- inni samkeppni." Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstri grænna í Reykjavík, sagði að nú hefði það fengist staðfest að vinnubrögð ríkisstjómarinnar í mál- inu hefðu ekki verið fagleg og stæð- ust ekki lög. „Þess vegna er þetta sigur faglegra vinnubragða og ég held að okkur beri öllum að taka of- an fyrir Samkeppnisstofnun.“ Geir H. Haarde íjármálaráðherra sagði undanlegt að menn teldu úr- skurðinn áfellisdóm yfir ríkisstjóm- inni sem hefði ákveðið undir forystu viðskiptaráðhema að leita til eftir- litsstofnunar í ríkiskerfinu og fengið þann úrskurð sem væri til umræðu. „Það liggur alveg fyrir að hann gat farið á þennan veg og það era komin í þessu máli skýr svör. Auðvitað eru þau önnur en menn hefðu kannski viljað en menn ákváðu fyrirfram að beygja sig undir þennan úrskurð hver svo sem hann yrði.“ Erlendir aðilar? Ráðherra sagði að stefna rfkis- stjómarinnar væri óbreytt sú að selja hlut ríkisins í þessum tveimur fyrirtækjum og vonandi fengi fram- varp þess efnis jákvæða afgreiðslu á vorþingi. „Hvort nýir aðilar koma inn á þennan markað, erlendir að- ilar, til dæmis, verður tíminn að leiða í ljós en það væri auðvitað mjög já- kvæð þróun í framhaldi af því sem nú er orðin niðurstaðan hér í dag.“ Hjálmar Ámason, þingmaður Framsóknarflokks í Reykjaneskjör- dæmi, sagði málflutning stjómar- andstöðunnar með ólíkindum. Við- skiptaráðherra hefði nýlega stuðlað að setningu laga til að styrkja Sam- keppnisstofnun og samkeppnisráð. „Nú liggur úrskurður þess ráðs fyrir og sami viðskiptaráðherra hefur lýst því yfir að hún muni una þeim úr- skurði eins og lýst var yfir,“ sagði Hjálmar. „Þetta era einmitt fagleg vinnubrögð." Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar í Reykja- vík, sagði úrskurðinn sanna hve mikla þýðingu Samkeppnisstofnun hafi. Góðjólagjöf „Nú sjáum við loks öfluga við- spymu við þessari samþjöppun, fá- keppni og einokun í atvinnulífmu, sem er andsnúin neytendum og þjóðarhag," sagði Jóhanna. „Þessi úrskurður er góð jólagjöf til þjóð- arinnar og sigur fyrir lýðræðið í landinu. Eg óska þjóðinni til ham- ingju með þennan úrskurð." Jón Bjamason, þingmaður vinstri grænna í Norðurlandskjördæmi vestra, sagði að umræðan um sam- einingu hefði leitt til spennu á pen- ingamarkaði og kapphlaups milli banka í útlánum til að ná sem stærstri markaðshlutdeild, sem hafi verið olía á eld þenslu og viðskipta- halla. Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra, sagði úrskurð Samkeppnisstofnunar, ekki áfall fyrir rildsstjómina heldur fyrir við- skiptalífið og ótrúlega óvandaður miðað við þann tíma sem ráðið hefði fengið til verksins. T.d. teldi ráðið að líta bæri á inn- lán sérstakan markað óháðan öðram spamaðaráformum, eins og t.d. verðbréfum. „Þetta lýsir ótrúlegri vanþekkingu á markaðnum," sagði Vilhjálmur. Þá fallist ráðið ekki á að hlaupareikningar og tékkareikning- ar séu eitt form greiðslumiðlunar frekar en innlána. „Það er eins og þessir menn þekki ekki debetkort," sagði hann. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar úr Suðurlandskjör- dæmi, sagði að svo virtist sem Al- þingi með löggjöf sinni í vor hefði komið í veg fyrir að áform ríkis- stjórnar um enga samkeppni á bankamarkaði gengju eftir. Jón Kristjánsson, þingmaður Framsóknarflokks á Austurlandi, sagði að talað væri um sigur lýðræð- is og neytenda og sagði Jón þann sigur þá hafa unnist vegna þess að viðskiptaráðherra og ríkisstjómin hefðu unnið faglega að málinu á grandvelli nýrra samkeppnislaga. Steingrímur J. Sigfusson sagði í seinni ræðu sinni að athyglisvert hefði verið að heyra forsætisráð- herra koma upp um það að ríkis- stjóminni hefði dottið í hug að sam- eina bankana með sérlögum til þess að komast fram hjá samkeppnislög- um. „Það vora afar athyglisverðar upplýsingar. Væri hægt að fá meira af þessum hugmyndum að frétta?“ spurði Steingrímur og sagði málið kjaftshögg, eða a.m.k. kröftugan lögðrung fyrir rfldsstjómina. Össur Skarphéðinsson sagði að ýmsir þingmenn Samfylkingarinnar hefðu einhvern tímann haft aðra skoðun á þessu máli en þegar málið kom á dagskrá hefði flokkurinn kall- að til sérfræðinga, farið í gegnum málið og það hefði verið sameiginleg niðurstaða að Samfylkingin væri á móti þessu með þeim rökum sem rakin vora í fyrri ræðu hans. Útilokar sameiningn fyrir og eftir sölu Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að umræður um sameiningu bankanna hefðu í meginatriðum snúist um hvort ætti að sameina bankana fyrst og selja svo og láta ríkið þannig njóta góðs af hagræð- ingunni eða hvort hefði átt að selja fyrst og láta markaðinn sameina bankana. „Þessi úrskurður, sem hér liggur fyrir, hann útilokar hvort tveggja," sagði Davíð. „Þannig að ef einhver aðili ætti að fagna sérstak- lega í dag þá er það hinn stóri banki, Íslandsbanki-FBA, því það er búið að úrskurða það að honum muni ekki veitt nægilega samkeppni," sagði Davíð. „Það er jólapakkinn sem felst í þessum úrskurði.“ „Ég er hamingjusöm vegna þessa að ég fór þessa leið sem ég var sann- færð um að væri rétt,“ sagði Val- gerður Sverrisdóttir í seinni ræðu sinni. „Nú liggur niðurstaðan fyrir. Hún er svona og hún er samkvæmt lögum.“ Ráðherra spurði til hvers ákvæði um forúrskurð hefði verið sett í samkeppnislög ef ekki hefði verið hugmyndin að nota það. Nú lægi niðurstaðan fyrir og henni yrði hlítt. NIÐURSTAÐA samkeppn- isráðs kemur okkur vissulega á óvart og veld- ur vonbrigðum“ sagði Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, í samtali við Morgunblaðið. „Niðurstaðan er alls ekki í samræmi við þróun fjármála- markaða í nágrannalöndunum og við getum ekki lýst okkur sammála henni.“ Halldór tók einnig fram að það væri veralegt áhyggjuefni fyrir innlendan fjármálamarkað og raunar íslenskt atvinnulíf í heild að sam- keppnisráð teldi ástæðu til að leggj- ast gegn hliðstæðri hagræðingu með- al fjármálafyrirtækja og orðið hefur í nágrannalöndum Islendinga. Slíkt skaðaði samkeppnishæfni íslenska fjáiTnálamarkaðarins og ynni beinlín- is gegn þeim hagsmunum sem sam- keppnisráð teldi sig vera að veija í áliti sínu. „Þetta álit brýtur í bága við mjög skýrt og nýlegt fordæmi frá Dan- mörku varðandi samruna Den Danske Bank og Realkredit, sem er áþekkt mál og samrani Landsbanka og Búnaðarbanka. Þar heimilaði danska samkeppnisstofnunin sam- ranann með svipuðum rökum og for- svarsmenn Landsbanka hafa teflt fram, þrátt fyrir að sameinaði bank- inn hefði frá 40-59% markaðshlut- deild á einstökum undirmörkuðum sagði Halldór. Áfram unnið að uppbygging- arstarfi innan bankans „íslenskt fyrirtæki og allt atvinnu- líf hér á landi á nú í sífellt harðnandi samkeppni á alþjóðlega vísu. Við í Landsbankanum munum halda áfram þróttmiklu uppbyggingar- starfi á öllum sviðum innan bankans. Landsbankinn hefur verið í mikilli sókn bæði á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum. Margþætt tæki- færi era til áframhaldandi sóknar inn á ný svið fjármálaþjónustu hér á landi til samstarfs við aðra aðila á fjármála- markaði og tengdum mörkuðum. Þá er mikil uppbygging á vegum Lands- bankans í alþjóðlegri þjónustu, m.a. innan Heritable Investment Bank í London sem Landsbankinn keypti sl. sumar. Öll þessi uppbygging heldur áfram af fullum krafti,“ sagði Halldór að lokum. Landsbankinn sendi frá sér eftir- farandi fréttatilkynningu í gær: Getur veikt íslensk Qármála- fyrirtæki í samkeppni „Landsbanka íslands hf. hefur borist niðurstaða samkeppnisráðs sem er á þá leið að það mælir gegn samrana Landsbanka og Búnaðar- banka. Bankaráð og bankastjóri Lands- bankans hafa í dag fjallað um þessa niðurstöðu samkeppnisráðs. Er það skoðun bankans að niðurstaða sam- keppnisráðs sé í andstöðu við þá þró- un sem orðið hefur í átt til hagræðis, vaxtar og kostnaðarlækkana á fjár- málamörkuðum víða um heim. Er sú skoðun studd áliti sérfræðinga bank- ans. Að mati bankaráðs og bankastjóra er það verulegt áhyggjuefni ef fjár- málafyrirtæki hérlendis geta ekki náð fram hliðstæðri hagræðingu og orðið hefur í nágrannalöndum okkar. Slíkt skaðar samkeppnishæfni ís- lenska fjármálamarkaðarins og getur veikt íslensk fjármálafyrirtæki í al- þjóðlegri samkeppni. íslenskir bankar búa nú þegar við harðnandi samkeppni erlendis frá sem verður að taka tillit til þegar lagt er mat á hvað skuli talin markaðsráð- andi staða. I þessu sambandi má minna á að vaxtamunur, sem er helsti tekjustofri íslenskra banka, hefur far- ið minnkandi hlutfallslega undanfar- in ár. Á sama tíma hafa bankar leitað leiða til að lækka kostnaðarhlutfall og auka arðsemi m. a. til að styrkja láns- hæfismat og tryggja þannig sem best lánskjör erlendis viðskiptavinum til hagsbóta. Einnig hefur tækniþróun reynst bönkum afar kostnaðarsöm. Að mati bankaráðs og bankasljóra er stækkun eininga innan íslenska fjár- málakerfisins nauðsynleg af þessum ástæðum. Landsbankinn hefur verið í mikilli ' sókn á innlendum og erlendum Ijár- málamarkaði og mun þrátt fyrir þessa niðurstöðu leita allra leiða til að bæta hag viðskiptavina sinna og hlut- hafa, m.a. með samvinnu við önnur fjármálafyrirtæki. Bankaráð og bankastjóri hafa einnig í dag þakkað starfsfólki Landsbankans fyrir þá þolinmæði sem það hefur sýnt síð- ustu vikur meðan beðið hefur verið niðurstöðu samkeppnisráðs." Búnaðarbankinn virðir niðurstöðuna Bankaráð Búnaðarbanka íslands hélt fund í gær og ræddi þar úrskurð samkeppnisráðs. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem vísað er til efnis úrskurðar samkeppnisráðs. „Búnaðarbanki íslands hf. virðir niðurstöðu samkeppnisráðs og mun áfram vinna að eflingu bankans á öll- um sviðum og leita leiða til lækkunar á kostnaði við þjónustu bankans. Bankaráð og bankastjórar hafa einnig í dag þakkað starfsfólki bank- ans fyrir þá þolinmæði sem það hefur sýnt síðustu vikur meðan beðið hefur verið niðurstöðu samkeppnisráðs," segir í ályktuninni. Ekki náðist í Pálma Jónsson, for- mann bankaráðs Búnaðarbankans. Viðbrögð starfsmanna „Urskurðurinn fór mjög vel í starfsmenn Búnaðarbankans," sagði . Þorsteinn Þorbergsson, formaður starfsmannafélags bankans, í samtali við Morgunblaðið vegna úrskurðar Samkeppnisráðs um að sameining Búnaðarbanka og Landsbanka bryti í bága við samkeppnislög. Þosteinn sagði starfsmenn líta svo á að nú sé þessi sameining úr sögunni og að við taki að gera Búnaðarbankann að öfl- ugri banka. Þorsteinn sagði að á mánudaginn yrði haldinn fundur í stjórn starfs- mannafélagsins og að þar verði stað- an skoðuð nánar. Erla Þorsteinsdóttir, varaformað- r ur starfsmannafélags Landsbankans, sagði í gær að starfsmenn bankans væra ekki búnir að átta sig á úr- skurðinum eða hvaða áhrif hann myndi hafa á þá, en að þeir hafi ekki verið neikvæðir í garð sameiningar. Hún sagði að úrskurðurinn yrði ræddur í stjóm starfsmannafélagsins strax eftir helgi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.