Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 96

Morgunblaðið - 16.12.2000, Blaðsíða 96
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMIX9U00, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBLTS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Samkeppnisráð telur samruna Landsbanka og Búnaðarbanka brot á samkeppnislögum Skaðar samkeppni og yrði til tj óns fy rir neytendur samruna þar sem aðgangshindranir eru að bankamörkuðum,“ segir í áliti ráðsins. Samkeppnisráð bendir m.a. á að við samrun- ann myndi samþjöppun á innlánsmarkaði aukast verulega, og markaðshlutdeild samein- aðs banka verða á bilinu 43-57%, sem sé mun hærri markaðshlutdeild en næsta keppinautar, Íslandsbanka-FBA, sem yrði með 17-27% hlut- deild á einstökum innlánsmörkuðum. Einnig yrði um verulega háa markaðshlutdeild að ræða á sviði rekstrarlána til íyrirtækja, eða 50,3% og sameinaður banki myndi öðlast yfirburðastöðu á öllum undirmörkuðum greiðslumiðlunar. ■ Leidir til/14 ■ Stefnt að/48 SAMKEPPNISRÁÐ hefur komist að þeirri nið- urstöðu að íyrirhugaður samruni Landsbank- ans og Búnaðarbankans brjóti í bága við 18. grein samkeppnislaga. Telur ráðið að samein- ingin myndi leiða til markaðsráðandi stöðu sam- einaðs banka, skaða samkeppni og verða til tjóns fyrir neytendur. Þetta kemur fram í for- úrskurði sem samkeppnisráð sendi viðskipta- ráðherra í gær. Ríkisstjómin kom saman þegar niðurstaða samkeppnisráðs lá fyrir í gær og síðdegis gaf (/t^Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra Al- þingi skýrslu um álit ráðsins. Kom fram í máli hennar að ríkisstjómin hefði samþykkt að áfram yrði leitað leiða til að lækka kostnað í bankakerf- inu og sagðist ráðherra leggja fram frumvarp á vorþingi um heimild til að selja hlutabréf rík- isins í bönkunum. Davíð Oddsson forsætisráð- herra sagði við þingumræðumar í gær að ekki væri hægt að lýsa niðurstöðu samkeppnisráðs sem ósigri fyrir viðskiptaráðherra eða rOds- stjómina. Farið hafi verið nákvæmlega eftir leikreglum og þess gætt að samkeppnislög og samkeppnisskilyrði yrðu skoðuð með því að óska eftir forúrskurði samkeppnisráðs. Hann sagði einnig niðurstöðu ráðsins leiða til þess að ekki verði hægt að veita Íslandsbanka-FBA nægilega samkeppni. Æskilegt að fá erlenda eignaraðild Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði æski- legt, að þessari niðurstöðu fenginni, að fá er- lenda eignaraðild inn á bankamarkaðinn hér. Stjómarandstæðingar sögðu úrskurðinn sigur fyrir neytendur og lýðræði í landnu. í niður- stöðu samkeppnisráðs segir að sameining bank- anna myndi raska samkeppni á markaði fyrir innlán og útlán, á greiðslumiðlunarmörkuðum og á markaði fyrir verðbréfa- og gjaldeyrisvið- skipti. IVAð mati samkeppnisráðs verða núver- andi keppinautar ekki færir um að veita hinum sameinaða banka nægjanlegt samkeppnislegt aðhald. Þvert á móti telur samkeppnisráð mjög líklegt að með fækkun keppinauta og aukinni samþjöppun muni fyrirhugaður sammni leiða til skaðlegrar fákeppni á umræddum mörkuðum. Ósennilegt er að nýir keppinautar geti dregið úr þessum skaðlegu afleiðingum hins fyrirhugaða Fokker-vél snúið til Egilsstaða Isinsr hlóðst w o á stjórnklefa FOKKER-VÉL Flugfélags íslands, sem var á leið frá Reykjavík til ísa- fjarðar síðdegis í gær, varð að halda til Egilsstaða eftir að ísing hlóðst á vélina yfir Breiðafirði. Reykjavíkur- flugvöllur lokaðist um tíma vegna Hafnar yfír- töku Odda á Gutenberg SAMKEPPNISRÁÐ hefur ógilt yfirtöku Prentsmiðjunnar Odda hf. á Steindórsprenti-Gutenberg ehf. Samkeppnisráð telur að yfirtakan leiði til markaðsráðandi stöðu hins nýja fyrirtækis, hún dragi verulega úr samkeppni og sé andstæð mark- miðum samkeppnislaga. Búnaðarbanki íslands seldi Odda 92,88% hlut í Steindórsprenti-Gut- enberg í október síðastliðnum og segir í úrskurðarorðum samkeppn- isráðs að Oddi hafi í skilningi sam- keppnislaga því yfirtekið fyrirtæk- ið. I niðurstöðunum segir að með hliðsjón af þeirri samþjöppun sem af samrunanum leiði, sem og eðli og riuppbyggingu þeirra markaða, sem hér skipti máli, fái samkeppnisráð ekki séð að unnt sé að setja sam- runanum skilyrði sem nægi til þess að eyða samkeppnislegum áhrifum. snjókomu. Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Islands, sagði Veðurstofuna hafa aflétt viðvör- un vegna ísingar eftir hádegi sem gef- in hafði verið út fyrr um daginn ogjrví hefði verið ákveðið að fljúga til Isa- fjarðar. Um borð voru tveir flugmenn og flugþjónn en aðeins átti að taka farþega frá ísafirði. Vélin var hins vegar með frakt þangað. Yfir Breiða- firði hafði safnast mfldl ísing á vélina og gangur hreyflanna truflast en þeir komist í lag aftur. Afísingarbúnaður er fyrst og fremst á vængjum og við hreyfla en talsverður ís safnaðist einnig á glugga flugstjómarklefans. Flugstjórinn ákvað þá að snúa við en þá var orðið ólendandi í Reykjavík. Tók hann þá stefnuna á EgÚsstaða- flugvöll þar sem flugmennimir lentu. Tæplega 400 milljóna kröfur á rækjuverksmiðju Nasco Skiptastjóra falið að selja verksmiðjuna VEÐKROFUHAFAR í eignir Nasco hf. í Bolungarvík ákváðu á fundi sínum í gær að fela skipta- MITSUBtSH! demantar í umferd HEKLA - ífortftíu á nýrrí iúd! stjóra þrotabúsins að auglýsa verk- smiðjuna í Bolungarvík til sölu. Rúmlega 380 milljóna króna veð- kröfur hvíla á verksmiðju Nasco fyr- ir utan 70 milljóna króna aukaveð Sparisjóðs Bolungarvíkm- vegna af- urðabirgða. Byggðastofnun á mest í hættu, samtals rúmar 260 milijónir, á þriðja og sjötta veðrétti. Aðrir veðkröfu- hafar eru Íslandsbanki-FBA sem á fyrsta veðrétt fyrir 50 milljóna kr. láni, Sparisjóður Bolungarvíkur með 40 milijóna kr. veð á fimmta veðrétti, Sjóvá-Almennar tryggingar með 25 milljónir á fjórða veðrétti og lífeyr- issjóður með um 5 milljónir kr. á öðr- um veðrétti. Fyrir utan þetta em svo óveðtryggðar kröfur en ekki liggur fyrir hversu miklar þær eru fyrr en að loknum kröfulýsingarfresti, eða eftir tvo til þrjá mánuði. Byggða- stofnun hefur þegar gert ráð fyrir að tapa þeim 145 milljónum kr. sem stofnunin lánaði fyrirtækinu út á sjötta veðrétt. Veðkröfuhafarnir ákváðu í gær að fela Tryggva Guðmundssyni skipta- stjóra að auglýsa verksmiðjuna til sölu í heilu lagi. Guðmundur Malm- quist, forstjóri Byggðastofnunar, segir að verksmiðjan sé talin mjög góð og vilji veðkröfuhafamir reyna að koma henni sem fyrst í rekstur. Ljóst er að það getur tekið tíma, meðal annars vegna þess hvað rækjuvinnsla er erfið á þessum árs- tíma, en skiptastjórinn hefur svig- rúm fram á næsta ár til að freista þess að selja verksmiðjuna. Agnar Ebenesersson lýsti áhuga á að kaupa verksmiðjuna fyrir gjald- þrotið, segist vera tilbúinn að skoða málið aftur. ■ Óvissuðstand/12 Morgunblaðið/RAX Vetur í borg TALSVERÐA snjókomu gerði í Reykjavík siðdegis í gær. Var þung föstudagsumferðin enn hægari í hálkunni og slæmu skyggninu en eftir kvöldmat dró úr úrkomunni. VcmhSLtiKlR dagar til jóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.