Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 10
 10 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Þingsályktunartillaga fjögurra sjálfstæðismanna samþykkt á Alþingi Settar verði reglur um flutning hættulegra efna í jarðgöngum ALÞINGI hefur samþykkt þings- ályktunartillögu Guðjóns Guð- mundssonar, þingmanns Sjálfstæð- isflokksins, og þriggja annarra sjálfstæðismanna þess efnis að rík- isstjómin setji reglur um flutning á hættulegum efnum um jarðgöng. í reglunum verði m.a. kveðið á um hvort slíkir flutningar skuli leyfðir og þá með hvaða skilyrðum, þ.e. varðandi flutningstæki, ökuhraða, eftirlit og hvort loka skuli göngum ALÞINGI fyrir annarri umferð meðan flutn- ingur fer fram. Upphafleg tillaga Guðjóns var reyndar einskorðuð við flutning eld- fimra efna en samgöngunefnd legg- ur til að tekið verði á þessum málum í víðara samhengi og að tillagan nái því til flutnings á hættulegum efn- um samkvæmt skilgreiningu reglu- gerðar nr. 192/1998 um flutning á hættulegum farmi. Þar segir að hættulegur farmur sé m.a. sprengi- fim efni, lofttegundir, eldfim efni, eiturefni, smitefni og geislavirk efni. í nefndaráliti samgöngunefndar segir m.a. að hér sé um brýnt mál að ræða. Reynslan erlendis hafi sýnt að flutningur hættulegra efna um jarð- göng geti valdið hörmulegum slys- um. Telur nefndin að þær reglur sem nú gilda um þessi mál séu ekki fullnægjandi og því sé nauðsynlegt að setja enn skýrari og ítarlegri reglur. Hlé gert á þingstörf- um í dag STEFNT er að því að hlé verði gert á þingstörfum í dag og þingmenn fari í jölaleyfi. Þingfundur hefst kl. 10 í dag og er búist við að hann standi fram eftir degi. Á dagskrá eru atkvæðagreiðslur um einstök málcfni og miðað við að afgreidd verði nokkur þingmál sem álykt- anir eða lög frá Alþingi. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis kemur þingið saman að nýju 22. janúar næstkomandi. Á myndinni stinga saman nefjum þingmennirnir Lúðvík Bergvinsson og Steingrímur J. Sigfússon. Þingmenn stjórnarflokkanna Vilja her- minjasafn á Suðurnesjum FJÓRIR þingmenn stjórnarflokkanna hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórninni verði falið að eiga samstarf við sveit- arfélögin á Suðurnesjum um undirbúning að stofnun og starfrækslu her- minjasafns á Suðurnesjum. í greinargerð tillögunnar er vísað til aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á Suðumesjum um miðjan október sl. en þar var að sögn þingmannanna rætt um að á Suðurnesjum væru bæði fleiri og meiri minjar um dvöl herliðs hér á landi en í öðrum landshlutum. Er í greinargerð- inni síðan vísað til greinargerðar Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Reykja- nesbæjar, sem samin var í kjölfar fundarins, en þar segir m.a.: „Hægt væri að koma upp sérstöku herminjasafni í Rockville þar sem allar byggingar eru nú þegar til staðar. Þetta safn yrði ekki eingöngu safn herminja heldur yrði það um leið stjórnmálasögusafn því fá mál hafa vakið heitari umræður á stjómmálasviðinu á þessari öld en hersetan.“ Taka flutningsmenn þingsálykt- unartillögunnar undir þessa hug- mynd og segja m.a. að hvergi á land- inu sé eðlilegra að upp rísi minjasafn af þessu tagi því hvergi annars stað- ar á landinu hefði jafnlengi verið er- lendur her. Áhrif af herstöð og vam- arstarfsemi væm því meiri þar en annars staðar. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Árni R. Ámason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi, en meðflutningsmenn era Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknar- flokksins á Reykjanesi, Árni John- sen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi og Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi. Morgunblaðið/Sverrir ÞINGMENN stjómarandstöðu- flokkanna hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um frestun á innflutningi fósturvísa úr kúm. Er meginefni tillögunnar að Al- þingi álykti að skora á landbún- aðarráðherra að afturkalla nú þegar heimild til afmarkaðrar til- raunar með innflutningi á fóst- urvísum úr NRF-kúastofninum þrátt fyrir heimildir í lögum. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Þuríður Backman, þingmaður Tillaga þingmanna stjórnarandstöðuflokkanna Innflutning’i fóstur- vísa verði frestað Vinstrihreyfingarinnar - græns mannsson, þingmaður Frjálslynda framboðs, en meðflutningsmenn flokksins. era Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður vinstri grænna, Sigríður Jóhannesdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, og Sverrir Her- í greinargerð framvarpsins seg- Gæti opnað leiðir fyrir alvar- lega smitsjúkdöma ir m.a. að með innflutningi á fóst- urvisum geti opnast leiðir fyrir al- varlega smitsjúkdóma í íslenskum dýrastofnum sem haft gætu ófyr- irsjáanlegar afleiðingar. Þá segir að tilraun af því tagi sem hér er til umfjöllunar geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir markaðssetningu íslenskra landbúnaðarafurða og gert að engu það brautryðjendastarf sem þegar hefur verið unnið á þeim vettvangi. Alþingi Utan dagskrár Hamingjusamir þingmenn fara í jólafrí EFTIRÖRNU SCHRAM BLAÐAMANN NÚ GETA allir alþingismenn farið hamingjusamir í jólafrí! Umræðan síðla dags á Alþingi í gær benti að minnsta kosti til þess. Þar var rætt um úrskurð samkeppnisráðs um sameiningu Landsbanka ís- lands og Búnaðarbanka íslands. Niðurstaðan varð eins og kunnugt er á þá leið að sameiningin bryti í bága við samkeppnislög. Eftir að viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, hafði kynnt úrskurð- inn fyrir þingheimi hófust umræð- ur sem ekki var hægt að skilja á annan veg en svo að allir væru á sinn hátt sáttir ef ekki bara mjög ánægðir með niðurstöðuna. Stjórn- arliðar jafnt sem stjórnarandstæð- ingar. Stjómarliðar vora til að mynda ánægðir með að viðskipta- ráðherra skyldi hafa farið þá leið að láta samkeppnisráð úrskurða um sameininguna áður en til henn- ar kæmi og stjórnarandstæðingar flestir fögnuðu niðurstöðunni og sögðu hana m.a. vera sigur fyrir samkeppnisráð, sigur fyrir neyt- endur og síðast en ekki síst sigur fyrir lýðræðið. Að vísu rejmdu stjórnarandstæð- ingar og stjórnarliðar að bera brigður á hamingju hvorir ann- arra. En allt kom fyrir ekki. AJlir virtust jafnhamingjusamir þrátt fyrir það. Til dæmis mátti heyra stjómarandstæðinga fullyrða um geðillsku forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar, vegna úrskurðarins enda væri hann áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina. Og heyra mátti stjórnarliða gera grín að meintum æsingi og reiði stjórnarandstöð- unnar þrátt fyrir ánægju með að hafa „séð niðurstöðuna fyrir“, eins og einn stjórnarandstæðingurinn komst að orði. „Það er ekki vani að sigurvegarar séu svona æstir og reiðir þegar þeir fagna stórkost- legum sigri,“ sagði Davíð Oddsson m.a. háðslega eftir ræðu Össurar Skarphéðinssonar, formanns Sam- fylkingarinnar. En hvað sem efnislegum vanga- veltum um málið líður má kannski segja að niðurstaða umræðunnar kristallist í lokaorðum Valgerðar Sverrisdóttur í gær. Þar sagði hún: „Ég held að háttvirtur þing- maður (Ossur Skarphéðinsson) megi vera mjög hamingjusamur og við öll. Ég er hamingjusöm vegna þess að ég fór þessa leið [þ.e. að leita til samkeppnisráðs] en ég var sannfærð um að hún væri rétt. Nú liggur niðurstaðan fyrir sem er svona og hún er samkvæmt lög- um.“ Þeir sem fylgst hafa með störf- um Alþingis í vikunni vita eflaust að úrskurður samkeppnisráðs og fyrirhugað frumvarp um samein- ingu ríkisbankanna gat haft tölu- verð áhrif á það hvenær unnt væri að gera hlé á störfum Alþingis fyr- ir jól. Óvissan um niðurstöðuna setti reyndar nokkurn svip á þing- störfin í vikunni en í upphafi henn- ar kölluðu stjórnarandstæðingar eftir upplýsingum um stöðu máls- ins. Höfðu þeir m.a. af því nokkrar áhyggjur að þvinga ætti frumvarp um sameininguna í gegnum þingið síðustu dagana fyrir jól. Nú liggur niðurstaðan hins veg- ar fyrir og stefnir í að þingmenn komist í jólaleyfi í dag, laugardag. Ekkert bendir því til annars en að þingmenn fari hamingjusamir í jólaleyfið að þessu sinni. I vetur hefur mörgum orðið tíð- rætt um meint pólitískt tilhugalíf Vinstrihreyfmgarinnar - græns framboðs og Sjálfstæðisflokksins. Þessu hefur verið slegið fram sem staðreynd í pistlum og útvarps- þáttum og því til staðfestingar m.a. bent á að Samfylkingin sé duglegri að berja á Sjálfstæðis- flokknum en vinstri grænir. Nú hef ég setið og fylgst sérstaklega með umræðum á Alþingi í þrjár vikur á þessum vetri. Að þeim tíma loknum get ég ekki annað en undrast frásagnir af pólísku ást- arsambandi flokkanna tveggja. Hallast ég helst að því að þarna sé komin á ferð svokölluð flökkusögn eða nútímaþjóðsaga. Kannski mætti kalla hana pólitíska flökku- sögn til aðgreiningar frá öðram flökkusögnum. Slíkar sögur era gjarnan lífseigar þótt þær eigi sér enga stoð í raunveruleikanum enda nægir lífi þeirra að þær séu áhuga- verðar og skemmtilegar. Af umræðum þingsins síðustu vikurnar get ég ekki séð betur en þingmenn vinstri grænna hafi ver- ið jafnduglegir að berja á Sjálf- stæðisflokknum og þingmenn Sam- fylkingarinnar. Jón Bjamason, þingmaður VG, var til að mynda ötull í gagnrýni sinni á ríkisstjórn- arflokkana við fjárlagumræðuna og Steingrími J. Sigfússyni, formanni VG, þótti ástæða til að átelja for- sætisráðherra, Davíð Oddsson, sér- staklega og efnahagsstefnu hans við lokaatkvæðagreiðslu um frum- varpið til fjárlaga. Ekki er ætlunin að draga fram fleiri dæmi hér heldur aðeins benda á þessar stað- reyndir og ennfremur þá skýringu þjóðfræðinga að flökkusagnir end- urspegla gjarnan ótta nútíma- mannsins. Bældan ótta við eitthvað sem gæti hugsanlega gerst. Það er kannski sá ótti sem vert er að gefa gaum þegar flökkusögnin um vinstri græna og Sjálfstæðisflokk- inn er annars vegar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.