Morgunblaðið - 16.12.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 13
FRÉTTIR
Geislunarbúnaður settur upp við vatnsbdl við Varmahlíð
Yatnsveitan stenst ekki
kröfur um brunavarnir
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Stefanía Birgisdóttir, til hægri, afgreiðir Árelíu Oddbjörnsddttur.
Samdráttur hjá þjón-
us tufyrirtækj um
ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKIN finna
fljótt fyrir afleiðingum gjaldþrots
Nasco. Rafvirkinn er farinn að
finna fyrir þeim en verslunarmað-
urinn segir að tíðindin séu að ger-
ast og samdrátturinn komi ekki
strax fram.
Albert Guðmundsson sem rekur
Rafverk hf. segir að 60-70% af
vinnu fyrirtækisins hafi verið fyrir
Nasco. „Gjaldþrotið kemur undir
eins fram í minni vinnu og hefur
raunar verið að gera það und-
anfarnar vikur því fyrirtækið hef-
ur skorið niður aðkeypta þjón-
ustu,“ segir Albert. Það hafi leitt til
þess að fækkað hafi verið um einn
mann hjá Rafverki, að minnsta
kosti í bili.
Albert segist hafa sloppið til-
tölulega vel við gjaldþrotið sjálft,
ekki átt stórar fjárhæðir inni hjá
Nasco. „En það er ekkert nýtt hjá
okkur að lenda í gjaldþrotum, ég
fékk á mig gjaldþrot fimm fyr-
irtækja fyrsta árið sem ég rak fyr-
irtækið," segir hann.
Albert segir að margt breytist í
Bolungarvík ef rækjuvinnslan fer
ekki í gang, ekki sé nóg með að
margir missi vinnuna því vinnan
minnki einnig hjá starfsfólki þjón-
ustufyrirtækjanna. „Ég trúi ekki
öðru en starfsemin hefjist aftur.
Verksmiðjan er mjög góð og það
var góð útkoma á henni. Ég er viss
um að fyrirtækið fór ekki á haus-
inn vegna afkomunnar hér og það
hljóta að vera til menn sem vilja
reka hana,“ segir Albert.
Héldu að sér höndum
Verslun Bjarna Eiríkssonar hef-
ur verið rekin í nánu sambýli við
frystihúsið í áratugi, fyrirtækin
eru sitt hvorum megin götunnar.
Albert Guðmundsson rafvirki.
Stefanía Birgisdóttir kaupmaður
segir að tímarnir séu breyttir frá
því að fólkið úr frystihúsinu safn-
aðist saman í versluninni í kaffitím-
um og eftir vinnu. Að undanförnu
hafi verið unnið í rækjunni á vökt-
um allan sólarhringinn og hún hitti
því starfsfólkið ekki eins reglulega.
„Þessir erfiðieikar snerta því
okkur ekkert meira en aðrar versl-
anir og þjónustufyrirtæki. Þetta er
bara að skella á núna og kemur
meira fram si'ðar," segir Stefanía.
Hún segir að þegar EG-
fyrirtækin urðu gjaldþrota 1993
hafi verslunin fundið fljótlega fyrir
því. Segist hún hafa veitt því eft-
irtekt að fólk hafi haldið meira að
sér höndum við innkaup, keypt inn
með markvissari hætti en áður,
eins og það væri hrætt við framtíð-
ina.
„Fólkið sem missir vinnuna verð-
ur fyrir mesta áfallinu. Ég vona
bara að það komi einhver til að
taka við þessu, við verðum að vera
bjartsýn," segir Stefanía.
HITA- og vatnsveita Skagafjarðar
aðstoðaði á miðvikudag vatnsveitu-
félagið í Varmahlíð við uppsetningu
á geislunarbúnaði við annað vatns-
ból félagsins, en í því mældist ný-
lega óhóflegt magn saurkólígerla og
óskaði heilbrigðisfulltrúi eftir því að
vatnsbólinu yrði lokað. Svo virðist
sem vatn úr mengaða vatnsbólinu
hafi síðan verði sett inn á dreifi-
kerfið á mánudaginn, og hefur Heil-
brigðiseftirlit Norðurlands vestra
óskað eftir rannsókn lögreglunnar á
Sauðárkróki á því hvenær og hvort
forráðamenn vatnsveitufélagsins
hafi lokað vatnsbólinu.
Vatnsveitufélagið í Varmahlíð er
ekki í eigu sveitarfélagsins, og
Hita- og vatnsveita Skagafjarðai’
sér íbúum sveitarfélagsins almennt
fyrir drykkjarvatni, nema íbúum
Varmahlíðar. Þegar Seiluhreppur
sameinaðist Skagafirði við síðustu
sveitarstjórnarkosningar hélt
vatnsveitufélagið áfram að veita
íbúum Varmahlíðar drykkjarvatn,
og hafa íbúar greitt ákveðið vatns-
gjald á hvert hús sem er mun lægra
en sá vatnsskattur sem greiða
þyrfti ef vatnið kæmi frá Hita- og
vatnsveitu Skagafjarðar.
Páll Pálsson, veitustjóri Hita- og
vatnsveitu Skagafjarðar, segir að
veitan hafi á miðvikudag aðstoðað
við uppsetningu á geislunarbúnaði
við mengaða vatnsbólið, en geisl-
unarbúnaðurinn sendir frá sér út-
ATVINNULEYSISDAGAR í nóv-
ember síðastliðnum jafngilda því að
1.474 manns hafi að meðaltali verið
á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Þar af eru 576 karlar og 898 konur.
Þessar tölur jafngilda 1,1% af áætl-
uðum mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar
eða 0,7% hjá körlum og 1,5% hjá
konum. Það eru að meðaltali 172
fleiri atvinnulausir en í síðasta mán-
uði en um 582 færri en í nóvember í
fyrra. Vinnumálastofnun býst við að
atvinnuleysið í desember geti orðið
á bilinu 1,2% til 1,6%.
Síðasta vii’ka dag nóvembermán-
aðar voru 1.898 manns á atvinnu-
leysisskrá á landinu öllu en það eru
um 334 fleiri en í lok októbermán-
aðar. Síðastliðna 12 mánuði voru
um 1.909 manns að meðaltali at-
„Þetta er komið
langt yfír þau
mörk sem talist
getur eðlilegt“
fjólublátt ljós sem á að drepa alla
gerla. „Og við teljum að þetta sé
komið í lag núna. Þarna hefur aldr-
ei verið of mikið vatn, og það er
klárt að það þarf að endurnýja
þetta allt saman og bæta, sérstak-
lega vatnsöflunina.
Það hefur verið í umræðunni að
við tækjum þetta yfir, en þeir hafa
ekki verið sérstalega ginnkeyptir
fyrir því, þangað til núna, þannig að
ég veit ekki hvað gerist um áramót-
in.“
Sigurjón Þórðarson, heilbrigðis-
fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Norð-
urlands vestra, tók í fyrrakvöld
nýtt sýni í vatnsbólinu og aftur í
gær, og reiknaði með niðurstöðum
úr því um helgina. Hann sagðist
ráðleggja fólki að sjóða allt
drykkjarvatn, þrátt fyrir að búið
væri að setja upp þennan geisl-
unarbúnað, þar til að niðurstöður
bentu til annars.
Framkvæmdir við nýbygg-
ingar gætu stöðvast
Vatnsveitan í Varmahlíð hefur
um árabil átt í erfiðleikum með að
standa undir kröfum varðandi
vinnulausir eða um 1,4% en árið
1999 voru þeir um 2.602 eða um
1,9%.
Mest atvinnuleysi á
Norðurlandi vestra
Atvinnulausum hefur fjölgað í
heild að meðaltali um 13,3% frá
októbermánuði en fækkað um
28,2% miðað við nóvember í fyrra.
Undanfarin 10 ár hefur atvinnuleysi
aukist um 10,8% að meðaltali frá
október til nóvember. Arstíðasveifl-
an milli október og nóvember hefur
reyndar verið undir meðaltali síðan
1995.
Vinnumálastofnun segir að meiri
árstíðasveifla nú stafi að miklu leyti
af áhrifum af fjölgun á vinnumark-
aði vegna yfirstandandi verkfalls í
framhaldsskólum og að einhverju
brunavamir, og segir Óskar Stefán
Óskai’sson, slökkviliðsstjóri Skaga-
fjai’ðar, að staða mála varðandi
slökkvistarf í Varmahlíð sé afskap-
lega döpur, vegna þess að vatns-
veitan standi ekki undir því að út-
vega nægilegt vatn við slökkvistörf.
Brunavarnir eru á ábyrgð sveit-
arfélagsins, sem ekki á vatnsveitu-
félagið, og segir Óskar að komi
þetta ekki til með að lagast muni
þetta stöðva allar byggingafram-
kvæmdir.
„Sveitarfélagið ætti að kippa
þessu í liðinn, en sveitarfélagið á
ekki vatnsleiðslurnar eða vatnskerf-
ið, heldur er þetta í eigu vatnsveitu-
félagsins á staðnum. Ég sný mér
bara að sveitarfélaginu, og síðan
endar þetta með því að það verður
sagt stopp og ekki verður um nein-
ar framkvæmdir við nýbyggingar
að ræða í Varmahlíð, vegna þess að
þetta er komið langt yfir þau mörk
sem talist getur eðlilegt."
Nýlega voru stofnuð íbúasamtök
Varmahlíðar, en í þorpinu búa um
130 manns. Helgi Gunnarsson, for-
maður íbúasamtakanna, segir að
íbúamir hafi óskað eftir fundi með
forsvarsmönnum vatnsveitufélags-
ins, en hann hafi ekki verið haldinn
ennþá. „Við vitum ekkert og getum
ekkert sagt fyrr en við höfum rætt
við forsvarsmenn vatnsveitufélags-
ins, sem ætti að verða einhvem
næstu daga.“
leyti af gæftaleysi og staðbundnum
erfiðleikum.
Atvinnuástandið versnar alls
staðar eitthvað á landinu nema á
höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysið
eykst hlutfallslega mest á Norður-
landi vestra, Austurlandi og á Vest-
urlandi. Atvinnuleysi er nú hlut-
fallslega mest á Norðurlandi vestra
en minnst á Suðurnesjum. Atvinnu-
leysið er almennt minna en í nóv-
ember í fyrra á öllum atvinnusvæð-
um nema á Vesturlandi þar sem
það er talsvert meira og á Austur-
landi þar sem það er lítið eitt meira.
Atvinnuleysi kvenna eykst um
8,4% og atvinnuleysi karla eykst
um 21,8% milli mánaða. Þannig
fjölgar atvinnuiausum konum að
meðaltali um 69 á landinu öllu og
körlum fjölgar um 103.
1,1% atvinnuleysi í nóvember
FISKBUÐIN HAFBERG
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686
í das
stórskötumarkaður
Þorláksmessuskata
Hjá okkur færöu ekta vestfirska skötu, þykka, þunna,
sterka, milda, saltaöa og ósaltaða.
Hnoðmör, Verið vandlát, það erum við.
hamsar,
hangjfiot Opið fra kl. 9.00—16.00 i dag laugardag
- ' V