Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 20
20 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Sundlauginni á
Stokkseyri lokað
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Karlakórinn Lóuþrælar hélt söngskemmtun í Félagsheimili Hvammstanga.
Karlakórar hittast
Stokkseyri - Bæjarráð Arborgar
ákvað á fundi sínum að loka sund-
lauginni á Stokkseyri í desember,
janúar og febrúar í spamaðarskyni
en með þessu telur bæjarráð sig geta
sparað eina milljón króna.
Mikil óánægja er með þessa
ákvörðun bæjaryfirvalda og hafa íbú-
ar á Stokkseyri og Eyrarbakka mót-
mælt þessum ráðahag m.a. með und-
irskriftalistum, sem 298 manns
skráðu sig á.
Fram kemur í máli heimamanna að
þetta séu hrein svik við það sem lofað
var þegar Selfoss, Sandvíkurhrepp-
ur, Eyrarbakki og Stokkseyri voru
sameinuð á sínum tíma en þá var því
lofað að þjónustan við íbúana yrði
ekld skert og sundlauginni ekki lokað.
í þeim gögnum, sem lögð voru
fram á fundinum, sem innihéldu m.a.
svör við þeim spurningum sem Torfí
Áskelsson, bæjarfulltrúi Samfylking-
arinnar, hafði lagt fram á síðasta
fundi, má m.a. sjá að eftir að vatns-
rennibraut var sett upp við sundlaug-
ina á Stokkseyri hefði aðsóknin aukist
verulega. Heimamenn hafa m.a. bent
á að aðsóknin væri ekki minni á
Stokkseyri en á Selfossi ef fjölda
gesta á klst. er deilt með stöðugildum
en þau eru 1,3 á Stokkseyri en tæp 8 á
Selfossi. Þetta þýðir að á hveija opna
klst. á þessum árstíma á Stokkseyri
eru gestimir 1,3 en 1,6 á Selfossi og
finnst mönnum þetta ekki nægilegur
munur til að réttlæta lokun laugar-
innar.
Heimamenn hafa bent á það að
hitinn á heita vatninu gæti lækkað við
það að lauginni yrði lokað vegna þess
hversu stór notandi hún er. Er leitað
var svara við þessu hjá Ásbimi
Blöndal, veitustjóra Selfossveitna,
sagði hann að þeir hefðu reiknað það
út að það hefði ekki svo mikil áhrif á
þessum árstíma þar sem almenn
notkun væri mikil en vatnshiti myndi
sennilega lækka um 0,5 til 1,0 gráðu.
Ef lokunin væri hins vegar að sumri
til þá myndi lækkunin vera 6-8 gráður
á Stokkseyri og um 3-4 á Eyrar-
bakka.
Heimamenn benda á að þó að 0,5-
1,0 gráðu lækkun sé ekki mikið tölu-
lega séð þá geti hún verið það þar sem
vatnið sé ekki mjög heitt fyrir eða um
58-64 gráður.
Hvammstanga - Karlakórinn Lóu-
þrælar héldu söngskemmtun í
Félagsheimili Hvammstanga fyrir
skömmu. Kölluðu þeir tónleikana
„Síðustu söngæfingu fyrir jól“.
Fengu þeir til sín góða gesti, Karla-
kór Hreppamanna, sem komu sunn-
an úr Árnessýslu. Sungu kóramir
hvor fyrir annan og flokin sameig-
inlega nokkur lög. Einnig söng
sönghópurinn Sandlóur, en söng-
konur em flestar makar karlanna í
Lóuþrælum. Þá var slegið á létta
strengi bæði á sviði og eins í
kaffiboði að tónleikum loknum.
Stjórnandi Lóuþræla er Ólöf
Pálsdóttir og undirleikari á tónleik-
unum var Jónfna Ema Amardóttir.
Sljómandi Karlakórs Hreppa-
manna er Edit Molnár og undirleik-
ari Miklós Dalmay.
Aðlögun gengur vel í
grunnskólanum í Búðardal
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Kirkjan á Ingjaldshóli.
Úl sr komin bó kta
Glæsilegt rit sem tengir saman
náttúru og menn Eyjafjarðar í
órofa mynd
{UnnsóknMtofttun Hivkólans i Akóf«Y«
Slökun!
SkólavörBustfg, Kringlunni. Smáratorgi
Sungið á
fimm þjóð-
tungum
Hellissandi - Á Hellissandi og í Rifi
eru margir útlendingar búsettir.
Þetta fólk hefur komið hingað á und-
anfömum árum í atvinnuleit. Sumir
hafa verið hér í mörg ár, búnir að
eignast íbúðir og eru með fjölskyldu.
I ár var ákveðið að halda fjölþjóð-
lega aðventuhátíð í kirkjunni á Ingj-
aldshóli. Kirkjukórinn æfði jóla-
söngvana með útlendum textum og á
aðventukvöldinu var sungið á ensku,
pólsku, afríkönsku, sænsku og ís-
lensku. Stjómandi kirkjukórsins er
Kay Wiggs Lúðvíksson en hún er
ættuð frá Bandríkjunum.
Erlenda fólkið tók þátt í aðventu-
hátíðinni með því að segja frá jóla-
haldi í sínum löndum og sumir sungu
jólasöngva á sinni tungu. Sr. Lilja
Kr. Þorsteinsdóttir flutti hugvekju
um aðventuna og komandi jólahátíð
og að lokum sungu allir Heims um
ból hver á sínu tungumáli.
Búðardal - Grunnskólinn í Búðar-
dal tók nú í haust við hluta nem-
enda úr Laugaskóla þar sem
skólahaldi þar var hætt. Það var
mat stjórnenda sveitarfélagsins að
fólksfækkun í byggðarlaginu kall-
aði á hagræðingu á ýmsum svið-
um, þar á meðal í rekstri grunn-
skólans. Mörg sveitarfélög hafa
neyðst til að sameina skóla og
leggja niður starfsemi í fámenn-
ustu einingunum. Ákvörðun um að
reka skyldi einn grunnskóla í
Dalabyggð hefur verið á döfinni í
nokkur ár en vitað er að slíkar
ákvarðanir era erfiðar og yfirleitt
alltaf mikill tilfinningahiti í kring-
um slík málefni.
Síðastliðið sumar var tekin
ákvörðun um að Grunnskólinn í
Búðardal skyldi vera sá skóli er
rekinn yrði í framtíðinni. I Gmnn-
skólanum í Búðardal hefur verið
farsælt skólastarf og stöðugleiki í
starfsliði. í skólanum starfar vel
menntað kennaralið og hefur skól-
inn verið mjög vel mannaður mið-
að við þá erfiðleika sem víða eru
að fá réttindafólk til starfa. Þrúður
Kristjánsdóttir hefur verið skóla-
stjóri sl. 20 ár og hefur skóla-
starfið undir hennar stjórn verið
bæði farsælt og árangursríkt.
Allt til jólanna
í Hólagarði ♦+♦
Antik er jjdrfesting
Antik er líjsstíll
Opið mán.-fös. 12-18
lau.l 1-16 og sun. 13-16
Verslunin hefur
opnað á ný.
Nú í
Síðumúla 34
Verið velkomin
Opnunartilboð
pessa helgi
Borghildur Maack
Viktoria Antik • Síðumúla 34 • Sími 568 6076
Nemendum í Dalabyggð sem
lengst áttu að sækja skólann í
Búðardal var boðin heimavist á
Laugum en um miðjan ágúst var
ljóst að Saurbæjarhreppur stefndi
á eigið skólahald og bauð jafn-
framt nemendum af Skarðströnd
aðgang að þeim skóla.
Vel búið
að nemendum
Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum var síðan stofnaður grann-
skóli í Saurbæjarhreppi og sækja
nemendur af Skarðströnd þann
skóla. Skólamál eru ætíð viðkvæm
mál og oft eiga íbúar hinna dreifðu
byggða erfitt með að sætta sig við
breytingar sem fylgja í kjölfar
fækkandi íbúa á landsbyggðinni og
þeim auknu kröfum sem skólum er
gert að mæta í dag. Sveitarstjórn
Dalabyggðar vill með ákvörðun
sinni stuðla að góðri menntun
barna og unglinga og bjóða nem-
endum góðan aðbúnað og tækifæri
til menntunar undir handleiðslu
vel menntaðs starfsfólks.
í Búðardal er mjög gott skóla-
húsnæði, heilsdagsskóli, einsetinn
og öllum nemendum stendur til
boða morgunverður og heitur mat-
ur í hádegi. Þeir nemendur sem
voru í Laugaskóla og sækja nú
skóla í Búðardal hafa aðlagast vel
félagslega og sýna góða framför í
námi. I Grunnskólanum í Búðardal
er reglulega unnið að einhverjum
þróunarverkefnum og hefur skól-
inn hlotið styrk til nýbreytni í
stærðfræðikennslu.
Nú í vetur er fyrirhugað þróun-
arverkefni um sögur og sagnahefð
undir handleiðslu írsku sagnakon-
unnar Claire Mullholland, sem er
mjög þekkt á sínu sviði. Dans-
kennsla er fastur liður í skólastarf-
inu og hefst á næstu dögum.
Jólatréð á Stokkseyri.
Bæjartré Stokkseyrar
gefið af einstaklingi
Stokkseyri - Annan í aðventu
var kveikt á jólatrénu á Stokks-
eyri og væri það í sjálfu sér ekki
í frásögu færandi nema fyrir
þær sakir að það var gefið af
einstaklingi en ekki keypt af
sveitarfélaginu eins og venja er
til.
Sá sem gaf jólatréð heitir Leif
Österby, rakari á Selfossi, og
sagði hann við athöfn sem hald-
in var þegar kveikt var á jóla-
trénu að þegar ákveðið hefði
verið að fella tréð í garðinum
hjá honum, hefði hann viljað að
Stokkseyringar fengu tréð
vegna nýrra og gamalla tengsla
hans við Stokkseyri en barna-
börn hans búa hér og hann var
hér í sveit fyrir 50 árum.
Barnabörn Leifs Österbys og
kona hans tendruðu ljósin á
jólatrénu eftir að Torfi Áskels-
son Stokkseyringur og bæjar-
stjórnarmaður í Árborg, hafði
veitt trénu móttöku. Áð því
loknu söng kór nokkur jólalög,
jólasveinar komu og færðu
börnunum góðgæti og gengu í
kringum jólatréð með þeim. Var
það mál manna sem á samkom-
unni voru að sjaldan eða aldrei
hefði verið jafn stórt og glæsi-
legt jólatré á Stokkseyri.
Fleira var um að vera á
Stokkseyri þennan dag því hald-
inn var handverksmarkaður í
íþróttahúsinu þar sem fjölmarg-
ir einstaklingar sýndu handverk
sitt og buðu það til kaups.