Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 22
22 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Eimskip á alþjóðavettvangi
Fyrirtæki geta stutt
hvert annað erlendis
angri erlendis, hafa ver-
ið að gera. Þau hafa oft
farið inn á þetta svið,
sjávarútveginn. Þar
kemur betur og betur í
ljós að íslensk fyrirtæki
eru trúverðugir þátt-
takendur á alþjóða-
markaði á þessu sviði.“
Óbein alþjóðavæðing
gegnum fjárfestingar
Þorkell sagði að hinn
þátturinn í starfsemi
Eimskips, Burðarás,
fjárfestingahluti félags-
ins, sem var stofnaður á
árinu 1989, hefði komið
inn í starfsemi félagsins
á alþjóðavettvangi með
óbeinum hætti. Með
þátttöku í Marel, Flug-
leiðum, sjávarútvegs-
Morgunblaðió/Ámi Sæberg
Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þró-
unarsviðs Eimskips, segir að félagið hafí verið að
fjárfesta erlendis á undanförnum tíu til fímmtán
árum, aðallega í fyrirtækjum sem séu að þjónusta
hefðbundna starfsemi félagsins í siglingum á
N orður- Atlantsliafinu.
Hugsan-
legt sam-
starf Ford
og Toyota
FORSVARSMENN tveggja
stærstu bílaframleiðenda
heims, Ford og Toyota, eiga í
viðræðum um hugsanlegt sam-
starf til að minnka framleiðslu-
kostnað, að því er fram kemur
á fréttavef BBC.
Fyrirtækin hafa staðfest að
forstjórar þeirra hafi hist
nokkrum sinnum á þessu ári
en Toyota hefur neitað því að
samstarfsfélag verði stofnað.
Japönsk dagblöð flytja frétt-
ir af því að fyrirtækin hafi sett
á stofn nefndir til að meta
kosti nánara samstarfs. Meðal
möguleika sem eru nefndir er
samstarf um tækniþróun, t.d.
umhverfisvænar vélar. Einnig
er nefnt að Ford muni leita
samninga um að selja bíla í
Japan um sölunet Toyota.
Toyota er stærsti bílafram-
leiðandi í Japan og á þegar í
tæknisamstarfi við General
Motors. Mazda í Japan er dótt-
urfélag Ford.
Bílaframleiðendur um allan
heim eiga í verulegum rekstr-
arerfiðleikum og virðast leita
allra ráða til að lifa af á hörð-
um markaði. Bæði Ford og
GM hafa tilkynnt umfangs-
miklar áætlanir um endur-
skipulagningu og uppsagnir
starfsfólks.
Mitsubishi hefur gert samn-
ing við DaimlerChrysler og
Nissan við Renault og Nissan
hefur jafnframt tilkynnt að
samstarf við keppinautinn Suz-
uki sé hugsanlegt.
ÍSLENSK fyrirtæki erlendis geta
oft starfað saman og stutt þannig
útrás hvert annars, að sögn Þorkels
Sigurlaugssonar, framkvæmda-
stjóra þróunarsviðs Eimskips.
Þetta kom meðal annars fram í er-
indi sem hann flutti á aðalfundi
landsnefndar Alþjóðaverslunar-
ráðsins í gær undir yfirskriftinni
Eimskip á alþjóðavettvnngi. Hann
sagði að stjórnendur fyrirtækja hér
á landi gætu eflaust aukið slíkt
samstarf. Menn væru stundum að
tala við sömu fyrirtækin erlendis
án þess að vera í samkeppni. Til að
mynda væru hugbúnaðarsalar, vél-
búnaðarsalar og flutningafyrirtæki
ekki að keppa hvert við annað og
gætu því hæglega starfað saman.
Hins vegar væri slæmt þegar ein-
stök fyrirtæki væru að grafa undan
hvert öðru með undirboðum, sem
stundum hefði komið upp þegar
verið væri að bítast um markaðina.
Kosturinn við samruna fyrirtækja
og stækkun þeirra væri því meðal
annars sá að þá væru minni líkur á
óæskilegri samkeppni, heldur
stæðu menn þá meira saman sem
öflugir þátttakendur á erlendum
mörkuðum.
Áhersia lögð á heimamarkað
Þorkell sagði að Eimskip heíði
fjárfest erlendis á undanförnum tíu
til fimmtán árum, aðallega í fyr-
irtækjum sem þjónustuðu hefð-
bundna starfsemi félagsins í sigl-
ingum á Norður-Atlantshafinu.
Félagið hefði eignast sín eigin fyr-
irtæki og starfsstöðvar og af því
hefði verið góð reynsla. Fjárfest-
ingar félagsins í Maras Linije, sem
var fyrirtæki sem sigldi til Eystra-
saltslandanna, hefðu ekki gengið
sem skyldi og því hefði félagið
dregið sig út úr því fyrirtæki.
„Þetta segir okkur að eftir því sem
félagið fer fjær því svæði sem það
starfar á og jafnframt fjær grunn-
þjónustu félagsins sé áhættan
meiri,“ sagði Þorkell. „Þess vegna
hefur félagið lagt áherslu á að vera
á sínum heimamarkaði, þ.e. íslandi
og Norður-Atlantshafssvæðinu.
Við höfum einnig horft mikið á
flutningaþjónustu við sjávarútveg-
inn erlendis. Það er svið sem við
þekkjum mjög vel hér á landi. Það
er einnig svipað því sem íslensk
fyrirtæki, sem hafa náð góðum ár-
fyrirtækjum og hug-
búnaðarfyrirtækjum
hefði félagið með óbeinum hætti
tekið þátt í alþjóðavæðingu þessara
fyrirtækja. Eimskip hefði notið
góðs af þessari starfsemi í verð-
mætasköpun og jafnvel í sumum
tilvikum getað skapað tengsl milli
slíkra fyrirtækja á erlendum
mörkuðum. Hann sagði að mörg
þessara fyrirtækja væru með starf-
semi á sömu stöðum, eins og Marel,
TölvuMyndir, Flugleiðir og Eim-
skip sem væru öll með starfsstöðv-
ar í Halifax í Kanada. Þessi fyr-
irtæki byggðu oft á þekkingu hvers
annars og styddu þannig hvert við
annað þótt þau væru í ólíkum
greinum. Viðskiptavinurinn væri
aftur á móti oft og tíðum sá sami.
Delta kaupir NM Pharma
Styrkir stöð-
una á innan-
landsmarkaði
VIÐRÆÐUR eru á lokastigi milli
forráðamanna Delta hf. og NM
Pharma ehf. um kaup Delta á fyr-
irtækinu NM Pharma. Ársvelta NM
Pharma er um 70 milljónir króna en
fyrirtækið selur samheitalyf fyrir
Merck Generics, sem er eitt stærsta
samheitalyfjafyrirtæki í heiminum,
samkvæmt tilkynningu frá Delta.
Þar segir að með þessu sé Delta að
styrkja stöðu sína á innanlands-
markaði og auka vöruvalið auk þess
sem miklir samstarfsmöguleikar
opnist fyrir Delta og Merck Generics
varðandi þróun nýrra samheitalyfja.
í tilkynningunni segir að Delta
hafi á undanförnum misserum styrkt
þróunarstarf sitt og gert samstarfs-
samninga við erlend fyrirtæki á sviði
þróunar samheitalyfja. NM Pharma
hafi starfað á íslenska lyfjamarkaðn-
um undanfarin 10 ár og verið leið-
andi í að stuðla að lágu lyfjaverði.
FBA-Ráðgjöf annaðist milligöngu
um samninga Delta og NM Pharma.
Möguleikar á sölu iyfjahugvits
fyrir erlenda markaði
Róbert Wessmann, framkvæmda-
stjóri Delta, segir að með kaupunum
á NM Pharma sé Delta að styrkja
stöðu sína á innanlandsmarkaði í
þeim tilgangi að geta boðið upp á
fleiri lyf og þar með bætt þjónustuna
enn frekar. Delta sé stærsta lyfjafyr-
irtæki á íslandi og markmiðið sé að
vera það áfram. Kaupin á NM
Pharma séu liður í því. Hann segir að
með því að taka yfir hlutabréfin í
NM Pharma sé Delta að skapa
ákveðin tengsl út. Með því skapist
fletir á því að hefja samstarf við
Merck Generics erlendis í framtíð-
inni í því formi að selja lyfjahugvit
Delta fyrir erlenda markaði.
LIFSBARATTA AMBATTAR
Sagan um ambáttina kom út í fyrra,
en seldist upp á örskömmum tíma.
Hún hefur nú verið endurútgefin og
upplagið senn á þrotum.
Heillandi saga frá Singapore um
fátæka stúlku sem kornung er seld
í ánauð til ríkrar fjölskyldu. Þar
skyldi hún sýna undirgefni og
auðmýkt og vera hvers manns leik-
fang. En ambáttin Han er greind og
viljasterk og rís upp gegn örlögum
sínum, neitar að láta kúga sig og
lætur hjartað ráða för.
Hrífandi frásögn um óbilandi
kjark og heitar tilfinningar.
Njörvasundi 15 A, 104 Rvk.
Sími 568 8433, Fax 5688142
Vefverslun: www.fjolvi.is
FJOLVI
Samruni banka og
tryggingafélaga
óhagkvæmur
Ósld. Morgunblaðið
ÞAÐ er ekki hagkvæmt að sam-
eina banka og tryggingafélag, að
því er fram kemur í samtali Dag-
ens Næringsliv við Olav Hytta, nú-
verandi forstjóra sameinaðs félags
Sparebanken Nor og trygginga-
félagsins Gjensidige í Noregi.
Gjensidige Nor var stofnað fyrir
um einu og hálfu ári eftir samruna
áðurnefndra fyrirtækja en á nú í
erfiðleikum vegna þess hve starf-
semi upprunalegu fyrirtækjanna
er ólík. Hytta segir að bankar og
tryggingafélög eigi hvor um sig að
starfa sjálfstætt. Hann hefur
starfað hjá Sparebanken Nor frá
1968 en verið forstjóri sl. sjö
mánuði eftir að hann tók við af
Sverre Heegh Krohn sem kom frá
Gjensidige.
Þessar fréttir þykja ekki góðar
fyrir þá sem hafa hvatt til þess að
Den norske Bank og trygginga-
félagið Storebrand verði sameinuð.
Forstjóri DnB hefur lýst því yfir
að um þessar mundir komi ekki til
greina að sameina DnB og Store-
brand og fáir fjármálasérfræðing-
ar mæla með sameiningunni.
Hytta vill ekki að Sparebanken
og Gjensidige verði slitin í sundur
aftur en stjórn Gjensidige Nor hef-
ur lagt til að bankastarfsemi og
tryggingastarfsemi verði skilin í
sundur og hafi hvort sína fram-
kvæmdastjórn. Þegar Sparebank-
en og Gjensidige voru sameinuð,
líktu forsvarsmenn fyrirtækjanna
samrunanum við kaþólskt hjóna-
band og lögðu áherslu á að fyr-
irtækið fengi sameiginlega fram-
kvæmdastjórn og einn forstjóra
sem bæri ábyrgð á allri starfsemi.
Þú þarft á henni að halda
Lítil en risavoxin!
Margverðlaunaðar handtölvur, tilbúnar til
nokunar beint úr kassanum. (slenskt
lyklaborð, breiður og góður skjár. Frábær
samskipta- og úrvinnslutölva fyrir
nemendur, skrifstofufólk og alla sem eru á
ferðinni.
Þesslr aðllar selja
Psion handtölvur:
ACO
Árvirklnn, Selfossl
Fríhöfnin
Gagnabanki Islands
Hátækni
Hugver
Kaliber, Kringlunni
Penninn-Skrifstofuvönjr
Smith & Noríand
Tal
Tæknival
KLI
www.klikk.ls
Simi: 57 57 404
I
I