Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 30

Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 30
30 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ - verslimarntiðstöð Laugardagur: HANDVERK frákl.ll Skemmti- dagskrá Kl. 12 Þverflautudúett spilar jólalögin BÓKAKYNNING Kl. 13 Jón Hjartarson áritar og les úr bók sinni „Ég stjórna ekki hópnum" KI. 14 Jólasveinar koma í heimsókn BÓKAKYNNING KL 14 Valgeir Magnússon, „Valli sport“ áritar og les úr bók sinni „seinna lúkkið“ Kl. 15 Tríó Set Jazzband spilar alla inn í jólastemmningu Þú þarft ekki lengra... Opiðtil •Iil ÚRVERINU Tillögur framkvæmdaráðs ESB Fiskimjöl verði ekki notað í jórturdýrafóður Díoxínmálið tekið NÚ LIGGJA fyrir hjá Evrópusam- bandinu drög að tilskipun frá fram- kvæmdaráði þess um að notkun fiski- mjöls í jórturdýrafóður verði bönnuð í sex mánuði til að byrja með. Fasta- neínd sambandsins um dýrafóður fjallaði um drögin á fundi sínum nú í lok vikunnar, en tillögumar fara síð- an til dýralæknanefhdar sam- bandsins, sem metur þær og sendir svo aftur til framkvæmdaráðsins í næstu viku. Á fundi nefndarinnar um dýrafóð- ur voru hugmyndir um takmörkun á díoxíni í fiskimjöli og lýsi kynntar. Engin drög að tilskipunum frá fram- kvæmdaráðinu liggja enn fyrir, en nefndin tekur málið fyrir að nýju á fundi sínum um miðjan janúar. Ólafur Guðmundsson, áheymar- fulltrúi Islands í nefndinni um dýra- fóður, segir að í tillögunum um bann við fiskimjöli í jórturdýrafóðri felist einnig að ekki megi framleiða svína- og alifuglafóður, sem inniheldur fiski- mjöl, í sömu verksmiðju og framleiðir jórturdýrafóður. Jafnframt megi bændur, sem em með kýr eða kindur, ekki vera með fóður sem inniheldur fiskimjöl á búum sínum, þótt þeir séu líka með svín og/eða aliiúgla. Fiski- mjöl verður áfram leyft í fiskeldi og í gæludýrafóður. Samkvæmt samn- fyrir eftir áramót ingnum um Evrópska efnahagssvæð- ið er EFTA-löndunum skylt að taka upp tilskipanir Evrópusambandsins, en mögulegt er að sækja um undan- þágur. Getur haft mikil áhrif „Þetta getur haft mikil áhrif á landbúnað okkar íslendinga því við notum gífurlega mikið fiskimjöl í okk- ar fóður, enda er það bezti prótein- gjafi, sem hægt er að fá. Það verður því aðeins leyfilegt að nota fiskimjöl í fóður fyrir svín og alifugla að því til- skyldu að jórturdýr séu ekki á sömu búum. Þá gildir einnig ákvæðið um fóðurframleiðsluna. Verði þetta sam- þykkt til frambúðar erum við í vond- um málum, bæði hvað varðar land- búnaðinn og fiskimjölsiðnaðinn. Mér virðist, eftir að hafa rætt við fulltrúa í nefndinni, að þetta verði ofan á. Síðan er líka til umræðu hjá fram- kvæmdastjóminni að banna notkun búfjárfitu í húsdýrafóður, en hún hef- ur mikið verið notuð í svínafóður. Frakkar og Þjóðverjar eru helztu hvatamenn þess vegna kúariðunnar í þeim löndum. Verði þetta bann að veruleika, verður líklega ekki hægt að framleiða fóður fyrir svínarækt okkar í nýrri fóðurverksmiðju á Suð- urlandi," segir Ólafur Guðmundsson. ILMIR UNGA FOLKSINS Benetton Sport Woman - dömuilmur Benetton Sport man - herrailmur Sölustaðir á Benetton ilmum: Arbæjar Apótek, Grafarvogs Apótek, Hagkaup Kringlunni, Lyfja Gorðabæ, Lyfjo Lógmúla, Lyfja Laugavegi, Verslunin Nana, Apótek Vestmannaeyja, Borgornes Apótek, Hafnar Apótek Höfn, Lyf og heilsa Akranesi, Lyfsola Vopnafjqroar, Nes Apótek, Neskaupstað, Siglufjarðar Apótek, Snyriihúsið Selfossi, Töff Húsavík, Verslunin Isold Sauðórkróki, Verslunin Perlan Akranesi. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Gunnar Levi Haraldsson við nýja bátinn í Stykkishólmshöfn Nýr bátur í Hólminn Stykkishólmi. Morgunblaðið. GUNNAR Levi Haraldsson kom með nýjan smábát til Stykkishólms fyrir stuttu sem smíðaður var hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnar- firði. Báturinn heitir Rán SH 500 og er af gerðinni Sómi 870. Hann er með 420 hestafla Yanmar-vél og er ganghraðinn yfir 30 mílur og með þriggja tonna farm getur hann geng- ið á milli 20-25 mílur á klukkustund. Gunnar hefur stundað sjómennsku í mörg ár og átti fyrir bát með sama nafni sem nú er til sölu. Hann á þennan bát með bróður sínum og föður. Hann er mjög ánægður með nýja bátinn sem er stærri og aflmeiri en sá gamli. Gunnar hefur þegar hafið veiðar og má hann veiða 65 tonn af þorski þetta fiskveiðiárið. Hann byrjaði á handfærum, en er að skipta yfir á línu, sem hann mun stunda næstu mánuði. Mikil fiskigengd var í Breiðafirði í fyrra og var stór og góð- ur þorskur inn um allan fjörð. Að sögn Gunnars hefur verið heldur tregara í haust. Á Breiðafirði fæst nær eingöngu þorskur á línu, leitað hefur verið eftir ýsu, en hana er ekki að finna. LIU krefur fiskmarkaði landsins um lögbundnar greiðslur Samkomulag í burðarliðnum LANDSSAMBAND íslenskra út- vegsmanna hefur krafist þess af fisk- mörkuðum að þeir geri skil á lög- bundnum greiðslum til LÍÚ vegna gjalda sem markaðimir hafa inn- heimt vegna sölu á fiski, sbr. lög um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins og lög um uppboðsmarkað fyrir sjávarafla og starfsleyfa fiskmarkaða. Þegar fiskur er seldur á fiskmark- aði kveða lögin á um að markaðnum beri að halda eftir hluta söluandvirð- isins, um 6%, og skila því til LÍÚ sem síðan ráðstafar fjármununum til greiðslu á vátryggingum viðkomandi fiskiskipa. Um nokkrar vanefndir á þessum greiðslum hefur verið að ræða og því hefur skapast skuld sem nú er verið að innheimta. Viðræður hafa átt sér stað á milli LÍÚ og fulltrúa fisk- markaðanna um þetta mál og er í burðarliðnum samkomulag um upp- gjör skuldanna. Vanefndir misjafnar eftir mörkuðum Friðrik J. Amgrímsson, fram- kvæmdastjóri, segir ekki ljóst hvaða upphæðir er um að ræða, enda eigi eftir að semja um og reikna drátt- arvexti á greiðslumar. Misjafnt sé eftir mörkuðum hveijar vanefndirn- ar séu, sumir markaðir greiði gjöldin samkvæmt lögum en greiðsla frá öðrum hafi dregist. Stjóm Samtaka uppboðsmarkaða hefur þegar kynnt umbjóðendum sínum stöðu mála í samskiptum sam- takanna við LÍÚ. Meðal félags- manna SUM ríkir vilji til að ganga frá samkomulagi við LÍÚ á granni þeirra hugmynda sem liggja fyrir. Egill Jón Kristjánsson, formaður SUM, Samtaka uppboðsmarkaða, segir að reglur varðandi umræddar greiðslur hafi ekki verið nægilega skýrar en það sé vilji beggja aðila að leysa málið í bróðerni. augavegmum Verslum þar sem stemmningin er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.