Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
KVÓTAR ESB í NORÐURSJÓ 2001
Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í gær
gríðarlegan niðurskurð á aflakvótum í Norðursjó
Tegund
Þorskur
Ufsi
Lysmgur
Mekrm
Sild
LEYFÐUR HEILDARAFLI
(tonn)
2000 2001
81.000 48.600
85.000 87.000
73.000 61.000
42,000 22.600 |j
30.000 29.700
97.000 78.000
69.725 71.425
265.000 265.000
REUTERS•
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÁKVÖRÐUN sjávarútvegsráðherra
Evrópusambandsins um niðurskurð
kvóta í Norðursjó hefur ekki verið
tekið fagnandi í Danmörku. Spáir
formaður dönsku sjávarútvegs-
samtakanna, Bent Rulle, því að um
2.000 sjómenn muni missa vinnuna
og pólitískir andstæðingar jaln-
aðarmanna hafa kallað niðurstöðu
ráðherranna „náðarhögg fyrir
danskan sjávarútveg". Þá hefur nið-
urskurðurinn valdið sjómönnum við
Eystrasalt áhyggjum þar sem þeir
óttast að veiðar þar muni aukast að
miklum mun.
Stóryrði og harðorðar viðvaranir
einkenndu talsmenn sjó- og útvegs-
manna fyrir fund sjávarútvegs-
ráðherranna en nú er uppgjafartónn
í mönnum. I kjölfar þess að nær
100% niðurskurður þorskveiða var
samþykktur, úr 15.000 niður í 8.000
tonn, telur Rulle óhjákvæmilegt að
tvö þúsund sjómenn missi vinnunna.
Býst hann við að það komi verst nið-
ur í Hvide Sande og Torsminde.
Áætlar hann, að tekjutapið sé um
tveir milljarðar ísl. króna. Hins veg-
ar bendir Rulle, sem var vígreifur
fyrir fund ráðherranna, nú á að nið-
urskurðurinn nemi um 20% þar sem
hann sé minni annars staðar þar sem
danskir sjómenn stundi veiðar.
Þakkar hann Ritt Bjerrcgaard, land-
búnaðar-, sjávarútvegs- og matvæla-
ráðherra, að takast skyldi að draga
úr skaðanum. Var það gert með því
að auka kvóta nokkmra tegunda
þar sem þorskur kemur í netin. Pótí-
tískir andstæðingar hennar á hægri
væng stjórnmálanna gagnrýna hana
hins vegar harðlega fyrir að gæta
ekki betur hagsmuna sjómanna.
Þorskur hefur borið uppi fisk-
veiðar í Norðursjó og kemur nið-
urskurðurinn einkum illa niður á
þorskveiðum. Hins vegar tókst að
draga úr niðurskurði á kolmunna,
rækju, humri og smálúðu í Norð-
ursjó, Kattegat og Skagerak. Þá
eykst kvóti í ufsa, ýsu og makríl lít-
illega auk þess sem Danir fá að veiða
25.000 tonn af loðnu við Vestur-
Grænland. Síðastnefndi hlutinn er
nýr samningur ESB og Grænlend-
inga sem samþykktur var á fundi
ráðherranna. I Svíþjóð gætir nið-
urskurðar einnig í þorsk- og sfld-
veiðum en kvótinn dregst saman um
nær helming. Samkomulag ráð-
herranna nær hins vegar ekki til
Eystrasalts þar sem sjávarútvegsráð
Eystrasaltsríkjanna hafði þegar
gengið frá þeim. Nú óttast sjómenn
við Eystrasalt hins vegar að fjöldi
sjómanna muni fara að sækja á ný
mið í Eystrasalti. Hefur formaður
sjómannafélags Bornholms hvatt til
þess að þegar í stað verði settar
reglur um hve margir bátar geti
verið að veiðum á svæðinu, en það
hefur farist fyrir.
Nýja NILFISK KING er j
heimilisryksuga í sérflokki
næstu mánuðum myndi mörgum
sjómönnum verða sagt upp en fyrir
hvert eitt starf til sjós væru átta í
landi. Um 6.600 manns starfa í
fiskiðnaðinum í Grimsby.
Sé ástandið slæmt á Englandi,
er það enn verra í Skotlandi og
Norður-írlandi. Richard Lockhead,
talsmaður Skoska þjóðarflokksins í
sjávarútvegsmálum, sagði í gær, að
um væri að ræða svartan dag í
sögu Skotlands og kenndi ESB um.
Var hann eins og sjómenn á N-
írlandi mjög óánægður með, að
rækjukvótinn skyldi skertur um
20% en það var gert vegna þess, að
mikið af smáþorski kemur jafnan í
rækjutrollið. Sagði Lockhead, að
ríkisstjórnin í London yrði að
koma skoskum sjómönnum til
hjálpar með einhverjum hætti.
Ráðherrar átaldir
fyrir kjarkleysi
Á fundi sjávarútvegsráðherranna
var einnig kynnt fimm ára áætlun
um aðgerðir til að bjarga fiskstofn-
unum en í henni verður líklega
kveðið á um meiri möskvastærð og
stórhert eftirlit með veiðarfærum.
Talsmenn ýmissa umhverfis-
verndarsamtaka lýstu í gær mikilli
óánægju með ákvörðun sjávarút-
vegsráðherranna, sem þeir sögðu
allsendis ónóga. Ráðherramir
hefðu ekki kjark til að gera það,
sem gera þyrfti til að bjarga fisk-
stofnunum, en það væri að banna
alla veiði um tíma.
Er þjóðarrétturinn, „fiskur og
franskar“, í hættu?
Einn af þjóðarréttum Breta er
„fiskur og franskar" og fiskur og
þorskur eru næstum eitt og hið
sama í hugum margra. Nú óttast
margir, að þessi iðnaður sé dauða-
dæmdur, ekki bara vegna þorsk-
skorts, heldur fyrst og fremst
vegna þess, að þorskurinn verði
svo dýr, að almenningur kaupi
hann ekki.
Það voru gyðingakaupmenn, sem
kynntu „fisk og franskar" fyrst í
East End í London um miðja 19.
öld, og alla tíð síðan hefur þessi
réttur verið vinsælasti skyndibitinn
í Bretlandi. Þar eru nú um 8.500
veitingastaðir, sem hafa hann núm-
er eitt á matseðlinum, og ársneysl-
an er 49.200 tonn, aðallega af
þorski.
Nú er það raunar svo, að mest af
þeim fiski, sem Bretar neyta, er
innflutt, um 60 til 80% í þorskinum,
en fólk í veitingastarfsemi segir, að
verði verðhækkun á Norðursjáv-
arþorski, megi gera ráð fyrir, að
verð á öðrum þorski hækki líka.
Aðrir benda á, að þorskverðið sé
nú þegar mjög hátt og ekki líklegt,
að unnt sé að hækka það meira. Þá
er líka bent á það, að sums staðar
sé þorskurinn að láta undan síga
fyrir ýsunni í „fiski og frönskum“
og gera megi ráð fyrir, að sú þróun
haldi áfram.
Uppgjafartónn
í dönskum siómönnum
NILFISK
5 ára mótorábyrgð
Einstök ryksiun
Hreint loft fyrir alla
Fyrsta flokks frá
irO nix
HÁTÚNI6A REYKJAVlK SÍMI 552 4420
Þorskkvótinn í Norðursjó
skorinn niður um 40%
Krafíst opin-
berrar aðstoðar
vegna hruns
í útgerð og
fiskvinnslu
Brusscl, London. AFP, AP, Reuters.
ÁKVEÐIÐ var í gær á fundi sjáv-
arútvegsráðherra Evrópusam-
bandsins að skera veiðikvóta mjög
verulega niður eða um 40% eða
meira. Var mikil samstaða um nið-
urskurðinn þar sem óttast er, að
sumir fiskstofnanna séu að hruni
komnir, en sjómenn hafa víða rekið
upp ramakvein. Segja þeir, að
grundvellinum hafi verið kippt
undan útgerð og allri afkomu
þeirra og krefjast bóta.
Niðurskurðurinn er að vísu
minni en fiskveiðinefnd ESB hafði
lagt til en samt sem áður sá mesti,
sem nokkru sinni hefur verið
ákveðinn síðan kvóti var settur á
veiðarnar innan lögsögu ESB-
ríkjanna. Voru Grikkir einir á móti
en ítalir sátu hjá.
Franz Fischler, sem fer með
landbúnaðar- og sjávarútvegsmál í
framkvæmdastjóm ESB, kvaðst
ánægður með niðurstöðuna en
ákveðið var að skera niður lýsings-
aflann um 40 til 50% en fiskveiði-
nefndin hafði lagt til, að hann yrði
skorinn niður um 74%. Lýsingur-
inn er veiddur í Biskajaflóa og
norður í Skagerak og var kvótinn á
síðasta fiskveiðiári 42.000 tonn. Á
næsta ári verður hann 22.600 tonn.
Þorskurinn við
það að hrynja
Þorskaflinn í Norðursjó og fyrir
vestan Skotland verður skorinn
niður um 40% og verður kvótinn á
næsta ári 48.600 tonn. Af honum
fara 17% til Norðmanna sam-
kvæmt samningum þeirra og ESB.
Á þessu ári var kvótinn 81.000 tonn
en raunar hefur ekki tekist að fiska
upp í hann. Sem dæmi má nefna,
að skosku togararnir hafa aðeins
náð 60% af því, sem þeir máttu
veiða.
Fiskifræðingar segja, að þorsk-
stofninn í Norðursjó sé við það að
hrynja enda er hrygningarstofninn
ekki talinn meiri en 70.000 tonn.
Hann þarf hins vegar að vera
150.000 tonn til að tryggja viðgang
tegundarinnar.
Niðurskurður í öðrum helstu
tegundum bol- og flatfisks verður
um 10% en lagt hafði verið til, að
hann yrði 20%. Heildarýsukvótinn
fer úr 73.000 tonnum í 61.000 tonn
Reuters
Sjómenn í Boulogne sur Mer í Norður-Frakklandi lokuðu höfninni með bátum sínum í fyrradag til að þrýsta á
sjávarútvegsráðherrana. Þegar í Ijós kom að kvótamir höfðu ekki verið skornir niður „nema um 10 til 40%“
eftir tegundum opnuðu þeir höfnina að bragði.
og skarkolakvótinn úr 97.000 tonn-
um í 78.000 tonn. Úr þessum kvót-
um veiða Norðmenn líka.
Sjómenn óánægðir
Fisehler sagði fyrir skömmu, að
ekki yrði komist hjá því að skera
verulega niður enda yrði ekki um
að ræða neina útgerð eða fiskiðnað
án fisksins. Talsmenn sjómanna og
hagsmunaaðila í fiskvinnslunni eru
hins vegar mjög óánægðir þótt þeir
viðurkenni líka, að ástand fisk-
stofnanna sé mjög alvarlegt.
Barry Deas, talsmaður sjó-
mannasamtakanna á Englandi,
sagði í gær, að niðurskurðurinn
væri „skelfilegur, hreinn dauða-
dómur yfir þeim skipum, sem ættu
nú þegar í miklum erfiðleikum".
Hamish Morrison hjá samtökum
sjómanna í Skotlandi sagði, að
leggja yrði fjölda skipa og hundruð
manna myndu missa vinnuna.
Hann sagði þó, að útkoman væri
ögn skárri en útlit hefði verið fyrir.
Martin Boyers, talsmaður fisk-
kaupmanna í Grimsby, sagði, að á