Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 37
Dansar
dýrðarinnar
Dansar dýrðarinnar heitir geislaplata,
þar sem Pétur Jónasson leikur verk,
sem samin hafa verið fyrir hann.
Caput-hópurinn leikur með Pétri verk
eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel
Sigurbjörnsson og Hafliða Hallgrímsson.
"V T'ERKIN á Dönsum dýrðar-
\/ innar eru Dansar dýrðar-
V innar eftir Atla Heimi
Sveinsson, Hverafuglar eftir Þorkel
Sigurbjörnsson og Tristía eftir Haf-
liða Hallgrímsson . Flytjendur með
Pétri er Caput-hópurinn skipaður
Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara,
Guðna Franzsyni klarinettuleikara,
Sigurði Halldórssyni sellóleikara og
Daníel Þorsteinssyni píanóleikara.
Pétur Jónasson segir að það
skipti sig sem tónlistarmann miklu
máli að leika inn á diska og gefa út.
„í fyrsta lagi fyrir sjálfan mig því
það er stórt verkefni og krefjandi
og líka staðfesting á því sem ég er
að gera. í öðru lagi er það svo líka
mjög mikilvægt fyrir mig sem
starfandi tónlistarmann hér á landi
og svo sendi ég líka diskana til út-
landa í kynningarskyni," segir Pét-
ur. Undanfarin ár hefur hann
stundað kennslu samhliða hljóð-
færaleik en hefur nú ákveðið að
hætta og láta reyna á að lifa af því
Morgunblaðið/Ásdís
Myndlistarmennirnir Sigurður Örlygsson, Marisa Arason, Sigurður
Magnússon, Vignir Jóhannesson og Sigurður Þórir Sigurðsson.
Vinnustofusýn-
ing við Vitatorg
MYNDLISTARMENNIRNIR Sig-
urður Örlygsson, Marisa Arason
og Sigurður Magnússon halda sýn-
ingu á vinnustofum si'num að
Skúlagötu 24 (gengið inn frá Vita-
stíg) um helgina. Gestir þeirra á
sýningunni verða Vignir Jóhann-
esson og Sigurður Þórir Sigurðs-
son. Sýnd verða um 30-40 verk,
flest nýleg.
Sýningin er opin í dag, laug-
ardag, kl. 14-22 og sunnudag kl.
13-16.
Tönleikar í
Kristskirkju
VEGNA mistaka var tveimur
kórum, Kór Menntaskólans í
Reykjavík og Hljómeyki, heim-
ilað að halda tónleika í Krists-
kirkju í kvöld, laugardags-
kvöid. Ákveðið hefur verið að
Hljómeyki hafi sína tónleika
þar í kvöld kl. 21 en kór
Menntaskólans í Reykjavík
færir sína tónleika fram á
sunnudagskvöld kl. 21.
m ASKO
Tandurhreinn þvottur,
þurr og þægilegur
Skínandi uppþvottur
Einnig
ASKO Professional
fyrir fjölbýlishús
/ponix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
að vera hljóðfæraleikari. „Ég er
með örfáa einkanemendur og er á
listamannalaunum í nokkra mánuði
og ætla svo að sjá til hvað verður.“
Pétur segir eftir stutta um-
hugsun að útgáfa sem þessi
skipti hann máli á.fleiri vegu
en hann hefur þegar greint og ekki
síst sé sjálft verkefnið ögrandi og
áhugavert. „Það krefst einbeitingar
í langan tíma meðan á æfingum
stendur og þó sjálf upptakan taki
kannski ekki langan tíma er hún af-
ar krefjandi og svo er eftirvinnslan
löng og mjög áhugaverð. Þetta er
með því mest ögrandi sem ég geri
og ætla að gera nokkra diska til við-
bótar að minnsta kosti á næstu ár-
um,“ segir Pétur ákveðinn en hann
er með í bígerð annan disk, strax á
næsta ári, þar sem hann flytur ein-
leiksverk sem íslensk tónskáld hafa
samið fyrir hann en af slíkum verk-
um á hann efni á að minnsta kosti
einn disk.
Verkin eru ekki alveg ný af
nálinni en Pétur segir að þó
að hann hafi leikið þau á
tónleikum öðlist þau nýtt líf við það
að vera tekin upp. Hann tekur að
nokkru undir það að það fylgi því
ábyrgð að flytja og taka upp verk
sem samin hafa verið sérstaklega
fyrir hann en bætir við að það fylgi
því líka mikið frelsi og kímir að
þeirri fullyrðingu að hann sé frum-
túlkandi og aðrir verði að miða við
hans túlkun.
I gegnum árin hefur Pétur leikið
talsvert af nútímatónlist í bland við
þekkt gítarverk fyrri tíma. Hann
segir það mjög skapandi vinnu að
fást við nýja tónlist og bætir við að í
eldri tónlist, eins og spænskri tón-
list, þurfi vitanlega að vera skap-
andi líka en þar styðjist flytjandinn
samt við hefð að mestu leyti. „Nú-
tímatónlist höfðar á margan hátt
beinna til mín en önnur tónlist, er
músík sem ég skil mjög vel. Það er
mér auðvitað mjög eiginlegt að
spila gamla spænska tónlist en nú-
tímatónlist liggur beinna fyrir mér
og sérstaklega er áhugavert að tak-
ast á við verk sem eru beinlínis
skrifuð fyrir mig,“ segir Pétur og
bætir við að eitt af því sem heilli
hann mest við verkin sé að í þeim
verði til nýr hljóðaheimur fyrir gít-
arinn. „Gítarinn fær annað andlit
með áhrifsbjögun og litbrigðum
sem heyrast ekki í venjulegii gít-
artónlist og svo nota ég hann allt
öðruvísi; þótt tónmálið sé stundum
hefðbundið þá er leikaðferðin
óhefðbundin.
Tónlist er að breytast mikið
um þessar mundir og ungt
fólk hefur kynnst og þekkir
miklu breiðari hljóðaheim en fyrir
nokkrum árum eða áratugum. Fyr-
ir aldarfjórðungi hefðu verk eftir
Atla Heimi og Þorkel verið í óra-
fjarlægð frá því sem almennir tón-
listarunnendur þekktu en fyrir
ungu fólki sem er að spá í raftónlist
og framsæknari dægurtónlist í dag
er hljóðaheimurinn aftur á móti
ekki framandi, hann er nútímaleg-
ur. Mér finnst þetta ánægjuleg þró-
un og ef ungt fólk sest niður með
diskinn í dag mun það ekki hlaupa
öskrandi út.“
Eins og fram kemur í upphafi
leikur Caput-hljóðfærahópurinn
með Pétri á diskinum en að hans
sögn eru liðsmenn hans félagar
hans frá fornu fari. „Ég hef oft spil-
að með þeim í gegnum tíðina og
eins og alltaf var frábært að vinna
að þessum diski með þeim, það eru
mikil forréttindi að fá að vinna með
svo færum músíköntum.“
Hann segir að æfingamar
hafi ekki tekið svo ýkja
langan tíma enda kunnu
menn verkin eftir að hafa leikið þau
á tónleikum áður. „Svo æfðum við
hnitmiðað og ákveðið en reyndar
gerist margt í upptökum, eftir því
sem við vinnum verkin og ræðum;
það er margt sem þarf að ákveða og
þarf að skoða hvern einasta frasa,“
segir hann og bætir við að í eft-
irvinnslunni séu einnig mörg úr-
lausnarefni þegar velja þarf frasa
og tökur.
Tónskáldin sjálf tóku engan þátt í
undirbúningi upptökunnar þótt Atli
Heimir hafi hlýtt á hópinn spila
verkið skömmu áður en það var
tekið upp. Hin verkin var búið að
vinna með tónskáldunum á sínum
tíma þegar þau voru frumflutt að
sögn Péturs. „Það ríkir gagnkvæmt
traust á milli manna en svo held ég
að menn séu sammála um að tón-
listarmaðurinn verði að hafa sitt
frelsi. Annars eru þessi verk mjög
skýr frá höfundanna hendi. Verkið
hans Atla Heimis er til að mynda
dansverk og því verður að halda sig
innan ákveðins ramma með sína
hrynskipan, Hafliði er líka mjög ná-
kvæmur með leiðbeiningar sínar til
flytjenda og Þorkell reyndar líka
þótt mikið velti á því hvaða tökum
flytjandinn tekur verkin."
KULDASKOR
Herra
Teg: 973000
Stærðir: 40-46
Litur: Svartur
Verð kr. 4.995
Dömu
Teg: 4998
Stærðir: 36-42
Litur: Svartur
Verð áður 7.995,-
Verð nú kr.
4.995
oppskórinn
- SUÐURLANDSBRAUT 54
(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY)
SlMI 533 3109
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG
SÍMI 552 1212
opið laugardag 10-22 sunnudag 13-22
J