Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 60

Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 60
60 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Síminn leggur RKI lið í söfnun gegn alnæmi í Afríku Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Símans, afhendir Sigrúnu Árnadóttur, framkvæmdastjóra RKÍ, rúmlega tvær milljónir króna, sem söfnuðust til styrktar baráttunni gegn alnæmi. SÍMINN afhenti á þriðjudag Rauða krossi íslands 2,1 milljón króna sem söfnuðust í tengslum við söfnunina „Göngum til góðs“ til styrktar baráttunni gegn alnæmi í Afríku. Styrkurinn frá Símanum fólst í því að leggja til símanúm- erið 907-2020 í landssöfnunina en í það númer gat almenningur hringt frá söfnunardeginum sem var 28. október síðastliðinn. Símasöfnunin stóð alls í þrjár vikur en 500 krón- ur voru gjaldfærðar af símareikn- ingum þeirra sem hringdu inn í söfnunina og rennur féð óskipt til söfnunarinnar, segir í fréttatil- kynningu. Yfir 4.000 viðskiptavinir Símans lögðu fé í söfnunina auk fjölda sjálfboðaliða sem gengu hús úr húsi á öllu landinu á söfnunardag- inn. Alls skilaði söfnunin 22,5 millj- ónum króna en Rauði kross ís- lands hefur sett sér það markmið að safna 50 milljónum í baráttuna gegn alnæmi í suðurhluta Afríku á næstu þremur árum. Auk „Göng- um til góðs“ söfnunarinnar rennur árlegt framlag styrktarmanna Rauða kross íslands í ár og næstu tvö árin til verkefnisins. Gert er ráð fyrir að stórum hluta fjárins verði varið til umönnunar barna í Malaví sem hafa misst foreldra sína í helgreipar alnæmis. 25 milljónir Afríkubúa sýktar Alnæmisvandinn er orðinn svo mikill að heilu þjóðfélögin riða til falls. Víða eru lífslíkur fólks orðnar þriðjungur af því sem þær voru fyrir nokkrum árum. Alls eru um 25 milljónir Afríkubúa sýktar af veirunni - og það er í raun dauða- dómur því fæstir hafa efni á lyfja- meðferð. Þegar hafa margir þjóð- þekktir íslendingar lagt Rauða krossinum lið við söfnunina, stjórnmálamenn, rithöfundar og fjármálamenn auk tryggra sjálf- boðaliða Rauða krossins. Ætlunin er að þjálfa 60 þúsund sjálfboða- liða í Afríku á næsta ári en þeir munu meðal annars hafa það hlut- verk að breiða út þekkingu um smitleiðir alnæmis. Þetta er liður í 10 ára áætlun Rauða krossins um baráttu gegn sjúkdómnum sem nú hrjáir rúmlega 25 milljónir Afr- íkubúa. Fulltrúi fslands hjá SÞ Tekur þátt í endurskoðun á öryggisráði SÞ ÞORSTEINN Ingólfsson, fasta- fulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóð- unum, hefur verið skipaður annai' tveggja varaformanna nefndar sem vinnur að endurskoðun á starfshátt- um öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna. Hann var útnefndur af Harri Holkeri, forseta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Endurskoðun á starfsháttum ör- yggisráðs SÞ hefur verið meðal stærri mála á dagskrá samtakanna undanfarin ár en hægt hefur gengið að sætta mismunandi sjónarmið og hagsmuni aðildarríkjanna, segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu. Al- mennt samkomulag er um nauðsyn þess að laga starfshætti öryggisráðs- ins að breyttum tímum og fjölga þeim ríkjum sem sæti eiga í ráðinu. Agreiningur er hins vegar um hve mikið fjölga eigi í ráðinu, um fjölda ríkja sem þar ættu að hafa fast sæti, hvort þau eigi að hafa neitunarvald og hvort breyta eigi heimildum um beitingu neitunai’valdsins. I GAR '4.- ATVINNU- AUGLÝSINGAR Umbrot og auglýsingagerð Skessuhorn, frétta- og útgáfuþjónusta, óskar aö ráða mann í fullt starf í umbrot og auglýs- ingagerö. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Viðkomandi þarf að hafa góða tölvukunnáttu, gott auga fyrir útliti prentverka og geta unnið sjálfstætt. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af notkun Quark Express, Freehand og Photoshop. Umsóknir beristtil Skessuhorns, Borgar- braut 49, 310 Borgarnesi, fyrir 23. desember. Allar nánari upplýsingar gefur Gísli í síma 430 2200 eða 892 4098. JMorgtmÞUMb Blaðbera vantar • í afleysingar Mosfellsbæ Upplýsingar fást í sfma 569 1122 Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á höfuðborgarsvseðinu FUIMDIR/ MAIMNFAGNAÐUR Aðalfundur Aðalfundur ísverksmiðju Sandgerðis hf. fyrir árið 2000 verður haldinn í veitingahúsinu Vitanum, Sandgerði, fimmtudaginn 28. desem- ber 2000 og hefst kl. 20.00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 16. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 8.000.000 með útgáfu nýrra hluta. Ársreikningar félagsins fyrir árið 1999 liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis. Stjórnin. Aðalfundur Aðalfundur Vímulausrar æsku verður haldinn í Vonarstræti 4b fimmtudaginn 28. desember nk. kl. 12.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. ATVIMIMUHÚSMÆOI Veitingastaður til leigu Atvinnutækifæri fyrir aðila sem vilja stunda veitingarekstur. Erum með fullbúinn veitinga- stað í Hlíðasmára í Kópavogi til leigu. Hús- næðið er um 200 fm og er full innréttað fyrir veitingarekstur, ásamt húsgögnum í veitinga- sal. Hentar vel sem pizzustaður, eða sem hvers konar skyndibitastaður. Skrifstofuhúsnæði til leigu Mjög gott skrifstofuhúsnæði við Suðurlands- braut í Reykjavíktil leigu. Húsnæðið er um 75 fm að stærð og er í mjög góðu ástandi með kerfisloftum og massífu merbau-parketi á gólf- um. Eldþolin skjalageymsla, sem er um 5 fm, er í húsnæðinu. Plássið er laust nú þegar. Hagstætt leiguverð. Sími 588 8787. TIL SÖLU Lagersala á leikföngum í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi Vönduð leikföng á heildsöluverði aðeins í einn dag, laugardaginn 16. desember, frá kl. 13.00 — 17.00. 50—80% afsláttur frá smásöluverði. Visa og Euro. H.S.S. heildverslun, sími 577 4440. Til sölu Ferðaþjónustubátur ■ Hrólfur EA (7438) Upplýsingar eru veittar í Byggðastofnun .................... ..... Síðasti dagur Lagersala Mikið úrval leikfanga, gjafavöru o.fl. Verð frá 100, 200 og 300 kr. Opið í dag, laugardag kl. 11.00 til 16.00. Heildverslunin Gjafir og leikföng, Gylfaflöt 3 (við hliðina á Videóheimum), Grafarvogi, sími 587 2323. Örbylgjuofnar Nú bjóðum við ykkur örbylgjuofna á mjög hag- stæðu verði. Þeir verða seldir í Vatnagörðum 26 frá kl. 12.00 til kl. 17.00 í dag, laugardag, og alla næstu viku verður opið frá kl. 13.00 til 17.00 nema föstudaga, þá er opið frá kl. 13.00 til 16.00. Hér er alveg kjörið tækifæri til þess að kaupa ódýrar jólagjafir. Viðtökum Euro og Visa kredit og debet kort. FÉLAGSLÍF □ MlMIR 6000121719 IJf. kl. 18.00. Áramótafarðin í Bása (Þórsmðrk) 30/12-2/1. Pað verður líf og fjör um ára- mótin i Básum að venju. Göngu- ferðir, kvöldvökur, flugeldasýn- ing, blysför og áramótabrenna. Góð gisting í hlýjum Útivistar- skálum. Fararstjórar: Vignir Jónsson og Ása Ögmundsdóttir. Básabandið mætir og er það skipað frábærum hljoöfæraleik- urum með gítara og harmóníku. Kvöldvökustjóri: Siggi Úlla. FÁ SÆTI LAUS svo tryggið ykk- ur miða strax eftir helgi. Farmiðar á skrifstofu á Hallveig- arstíg 1, sími 561 4330. Lokaganga ðrsins verður með Útivistarræktinni fimmtudaginn 28. desember kl. 18.00. Nánar kynnt síðar. Þrettándaferð Jeppadeíldar f Bása 6.-7. janúar. Skráning er þegar hafin í þrett- ándagleði Jeppadeildar. Léttar göngur, kvöldvaka, þlys- för. Sameiginleg máltíð. Heimasíða: utivist.is FERÐAFELAG ÍSLANDS MORKINNI 6 - SÍMI 568-2533 Esja um vetrarsólstSður. Gönguferð 17. des. kl. 10.30. Fararstjóri Sigrún Huld Por- grímsdóttir. Verð 500 kr. Brottför frá BSÍ og Mörkinni 6. Síðasta dagsganga F.l. fyrirjól. Munið blysförina 28. des. Áramótaferð ■ Þórsmörk 31. des. - 2. jan. Gönguferðir, leikir, varðeldur og flugeldar. Allir vel- komnir. Bókið tímanlega. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. Sími á skrifstofu 568 2533. Jólastyrkjum Hjálpræðis- hersins er úthlutað i dag, laug- ardag. Ath.: Aðeins fyrir þá sem hafa sótt um styrk. Fjölskyldur komi milli kl. 10 og 12, einstaklingar milli kl. 13 og 15. Úthlutun á fatnaði í Flóa- markaðsbúðinni milli kl. 10 og 15. Tilvísun fæst á Herkastalan- í síma 560 5400 Netfang: utivist@utivist.is um. Aðeins þennan eina dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.