Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 64

Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 64
64 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Er Laugavegur- inn fyrir alla? JÓLIN nálgast og kaupmenn við Lauga- veginn auglýsa að hina sönnu jólastemmningu sé þar að finna. Og rétt er það, það er alltaf gaman að ganga Laugaveginn, helstu verslunargötu Reykja- víkur, skoða í verslan- ímar og fá sér veiting- ar á einhverju hinna fjölmörgu veitingahúsa sem þar er að finna. En það er stór hópur fólks sem getur ekki verslað eða rekið önnur erindi á Laugaveginum. Fólk sem er hreyfihamlað fer helst ekki í verslanir og fyrirtæki á Laugarvegi, að minnsta kosti ekki þeir sem nota hjólastól. Hver er ástæðan? Jú, fólkið kemst ekki inn fyrir dymar á verslunum eða veit- ingastöðum. Við Laugaveginn og í Bankastræti eru u.þ.b. 200 verslanir og þjónustu- fyrirtæki. Einstaklingur í hjólastól kemst með góðu móti inn í u.þ.b. 30 þeirra eða einungis 15% allra versl- ana og þjónustufyrirtækja í hjarta borgarinnar. í þessu sambandi erum við eingöngu að tala um að komast inn fyrir dyrnai' en ekki hvemig að- gengi er þegar inn er komið, eins og stigar og þrep. Það er misflókið mál að gera lag- færingar á gömlum húsum. Á sum- um stöðum þarf eingöngu að lækka þröskulda til að manneskja í hjóla- stól komist inn, annars staðar þarf ^ að búa til skábrautir og e.t.v. breikka dyr og enn annars staðar þarf að gera umtalsverðar breytingar. Fyrir rúmum tuttugu árum var fyrst gert ráð fyrir því í íslenskum byggingarlögum og reglugerð að taka skyldi tillit til fatlaðra og aldr- aðra við hönnun bygginga. Með til- komu þessara laga, sem sett vora ár- ið 1979, varð mikil breyting til batnaðar. Árið 1997 vom sett ný byggingarlög og í kjölfar þeirra kom byggingarreglugerð á miðju ári 1998. Á þessum tuttugu áram hefur hugarfar breyst mikið og al- mennt er viðurkennt að fatlað fólk þarf að kom- ast leiðar sinnar rétt eins og annað fólk. Gott aðgengi skiptir höfuðmáli til þess að fatlað fólk geti tekið þátt í samfélaginu. Árið 1999 kom út bókin Að- gengi fyrir alla, hand- bók um umhverfi og byggingar gefin út af Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. í þessari bók er búið að safna saman á einn stað upplýsingum og ábendingum um þætti sem snerta aðgengi. Bókina er hægt að nálgast hjá Rannsókna- Verslun Kaupmenn geri brag- arbót á húsnæði sínu við Laugaveg, segir Bára Aðalsteinsdóttir, með aðgengi fatlaðra í huga. stofnun byggingariðnaðarins. Sjálfsbjörg - landssamband fatl- aðra veitir ár hvert fyrirtækjum við- urkenningu fyrir gott aðgengi fyrir fatlaða. Afhending viðurkenning- anna fór fram á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember. Eftirfarandi áskorun er gerð: Kaupmenn og aðrir fyrirtækja- eigendur við Laugaveg. Hér með er skorað á ykkur að gera bragarbót á aðgengi að hús- næði ykkar með jafnrétti borgar- anna í huga. Það getur tæplega talist eðlilegt að miðbærinn sé ekki fyrir alla. Höfundur er félagsmálafulltrúi hjá Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra. Bára Aðalsteinsdóttir • / l Hjá úrsmiönum Gernétic S YNCHRO er háþróað hú&iaaingarkiem sem æynst hefúr vel gegnýmsum húðvandamálum t d. þuni húð, exemi, húðsliti á meðgöngu og brunasárum. SYNCHRO er gmnnnaaingarkrem fyrir Gemétic línuna, kremsemörvar starfsemi húðíhimanna eykur súrefiiisflutning og stuðlar að heilbrigðari húð Snyrtístofa Ásdísar - Hlíðarbyggð 3a - Garðabæ Snyrdstofan Eygló - Langhdtsvegi 17 - Reykjavík Snyrtistotá Hiidítr - GrintUvík • Snyrtistrfa Hdgu Maríu - Dalvik Katrín Björgvinsdóttir, snyrtifræðingur Snyrtistofan Ljkami og Sál - Mosfeösbæ Snyrtistofan L.ipurtá - Haihnrfirði Snyrtistofa Sólvcigar - Hálsasdi 56 - Reykjavík Fanney Svdnbjömsdóttir, snyrtifræNngur Erla Þorstdnsdóttir, snvrtifræðingur - Laugarvatni ihúðlœkninqarvöruri Um heilbrigðismál - sjálfstæðan rekstur ÞAÐ er, ef til vill, að bera í bakkafullan lækinn, að rita og ræða um rekstur heil- brigðisþjónustu í landi okkar eftir allar þær sjónhverfingar, sem við höfum orðið vitni að, er varðar þennan mikilvæga og dýra þjónustuþátt í þjóð- félaginu. Það er goðgá að minnast á allt það hringsól, allar þær skýrslugerðhr, heima- gerðar sem aðkeyptar eða þau fundarhöld og nefndarskipanir, sem skattþyngd þjóðin hefur orðið að greiða. Minnisstæð eru þau áform fyrir u.þ.b. sjö áram, að breyta átti stjórnun heilbrigðisstofnana ríkis- ins í dreifbýlisstjórnun. Kjördæmin áttu að fá fjárveitingar til sinna stofnana og stýra þeim. Flytja átti vald og ábyrgð til fólksins, eins og það heitir en er gömul kosninga- beita. Ekkert varð úr þessu. Ég rakst á nefndina að störfum á gangi Sjúkrahúss Suðurlands og hvíslaði að einum ágætum Norðlendingi spurningunni: Hvernig ætlið þið að skipta fjármagninu á milli héraða og stóra spítalanna? Það verður hægt, var svarið. Fyrirfram hlaut hver maður að sjá það, að slíkt var ómögulegt, því að skýrslur segja einfaldlega ákaflega lítið um þörf á þjónustu og enn minna um nýtingu fjármuna í heilbrigðis- þjónustu. Þetta þarf vart að segja fjárlaga- nefnd Alþingis, sem réttir upp hendurnar og veit í rauninni ekki hvað til bragðs skuli taka. Þeim er vorkunn þessum gagnfrómu mönnum. Einhver í nefndinni sá boðann, eða ráðherra, og því var nú siglt hart í bak. Miðstýring skyldi það verða og aldrei meir en nú. Framkvæmda- stjórar skipaðir af ráð- herra og eins formað- ur rekstrarstjórnar, sem ráðuneytisstjóri hafði að vísu tilkynnt að væru óþarfir eftir laga- breytinguna en rekstrarstjórnir mættu svo sem sitja. Það var lag á Læk! Síðan sitja rekstrarstjórnimar sem dúkkur, án erindisbréfs, án reglugerðar. En dúkkur era þægar eins og dúkkum ber að vera. Það er varla hægt annað en brosa að þess- um stjórnarháttum og væri í raun- inni rétt að skellihlæja, ef þetta væri ekki dýrt spaug. Hið kald- hæðna í þessari sögu er að þegar stefnunni var breytt, „ hart í bak“, þá var verið að hverfa til miðstýr- ingar, sem er það eina sanna íhald, sem eftir er í þjóðfélaginu. Hvert hefur okkur borið? Það vitum við flest. Sameinaðir hafa verið þrír stærstu spítalar Heilbrigðisþjónusta Rekstur sjúkrahúss, segir Brynleifur H. Steingrímsson, er ann- að og meira en leikur með tölur eða bókhald. Reykjavíkur með ærnum kostnaði og ótrúlegri sóun. Mér ofbauð, þeg- ar ég gekk um Landakotsspítalann sáluga og sá hvernig brotnar vora niður skurðstofur og vinnuaðstaða, sem kostað höfðu a.m.k. hundrað milljónir. Fjárlaganefnd Alþingis hefði þurft að verða vitni að þeim aðförum. Það er mun skárra að sóa fjármunum ríkisins við uppbygg- ingu, samanber Menningarhús og Alþingi, en spilla eigum þess eins og þarna var gert. Sjálfstæður rekstur Sagan endurtekur sig. Brynleifur Tobíasson nafni minn og kennari bætti við, en aldrei eins. Nú þegar allir spítalar höfuð- borgarinnar era á valdi miðstýring- ar þ.e. heilbrigðisráðuneytisins, er sjálfstæður rekstur sjúkrahúss auðsæ nauðsyn. Því að, sá er eld- urinn heitastur, sem á sjálfum brennur. Læknar og hjúkrunar- fræðingar eiga að sjálfsögðu erfitt með að hlíta boðvaldi þess, sem minna veit um starfsemina. Þetta Brynleifur H. Steingrímsson Mjólkurafurðir skipta litlu um sykurneyslu ÁHUGAVERÐ um- ræða hefur að undan- förnu farið fram á op- inberam vettvangi um sykurneyslu. Umræða af þessu tagi er þörf enda mikilvægt að þjóðin sé vel upplýst um gæði og hollustu matvæla. Síðastliðinn miðviku- dag rituðu þau Anna Pálsdóttir og Ingi Þór Jónsson hjá Náttúra- lækningafélagi íslands grein í Morgunblaðið. Þar benda þau rétti- lega á að sykumeysla Islendinga sé of mikil og undirstrika ábyrgð foreldra í því sambandi. Aukreitis minntu þau á tilmæli nýafstaðins málþings NLFÍ til Mjólkursamsölunnar um að fram- leiddar yrðu sykurlitlar vörar og pakkað í umbúðir sem höfða til barna. Þá skora þau á kaupmenn að sjá til þess að sælgæti og gosdrykkj- um sé ekki stillt upp á of áberandi stöðum. Breytingar á mataræði era einn fylgifiska samfélagsbreytinga lið- inna ára og áratuga. Sumpart hefur þróunin orðið til góðs hvað þetta varðar því samfara auknum hraða í ©læsílEgt úroal jólagjafa w demanTáhúsið J Kringlan 4-12, simi 588 9944 samfélaginu hafa nejd- endur krafist aukins vöraframboðs og jafn- framt orðið meðvitaðri um hollustu matvæl- anna. Mjólkursamsal- an hefur ætíð lagt á það áherslu að framleiðslu- vörarnar standist ströngustu kröfur um ferskleika og hollustu. Um leið hefur hún mætt óskum neytenda með auknu vörufram- boði, meðal annars með bragðbættum mjólkur- afurðum. Að sönnu veldur of mikil sykurneysla áhyggjum. í því sambandi er þó rétt að horfa til þess að einungis um 2,5% af heildarneyslu viðbætts sykurs hjá landsmönnum má rekja til mjólkur- Næring Rétt að horfa til þess, segir Einar Matthías- son, að einungis um 2,5% af heildarneyslu viðbætts sykurs hjá landsmönnum má rekja til mjólkurvöru. afurða. Það er því ljóst að sykur- magn í mjólkurafurðum skiptir afar litlu um heildarsykurneysluna. Á það má jafnframt benda að viðbætt- ur sykur í mjólkurvöram hér á landi er nokkum veginn sá sami og gerist á Norðurlöndum og í öðram löndum Evrópu. Þrátt fyrir að þjóðin neyti bragð- bættra mjólkurafurða er auðvelt að halda sig langt innan þeirra marka sem manneldisráð telur hóflega syk- umeyslu. Þar á bæ er miðað við að hæfilegt sé að allt að 10% orkunnar í fæðunni komi úr viðbættum sykri. Ein jógúrtdós inniheldur um einn fimmta af því magni en gefur þar á móti um fjórðung til þriðjung af dag- legri þörf af mörgum vítamínum, kalki og öðram steinefnum. Stefna Mjólkursamsölunnai' er skýr. Til að mæta óskum neytenda er reynt að hafa vöraúrvalið fjöl- breytt. Það felur meðal annars í sér að bjóða að minnsta kosti eina ósykr- aða eða lítt sykraða tegund í flestum vöralínum. Viðskiptavinir Mjólkur- samsölunnar eiga nú þegar nokkurt val hvað þetta varðar og mun það val aukast í framtíðinni. Þau Anna Pálsdóttir og Ingi Þór Jónsson mega treysta því að foreldr- ar eigi val og geti haldið sykurlaus- um mjólkurafurðum að börnum sín- um. I því sambandi má einnig benda á D-vítamínbættu drykkjarmjólkina Dreitil sem sett var á markað í haust. Fullyrða má að sú vara hefur höfðað til barna og um leið auðveldað foreldrum að fá þau til að neyta mjólkur. Meginástæða þess að heilbrigðis- yfirvöld vilja draga úr sykurneyslu er sú að sykur er næringarsnauður kostur. Ef hans er neytt í of miklum mæli eykst hætta á að hann verði of fyrirferðarmikill í fæðunni og valdi skorti á næringarefnum. Hættan eykst ef sykurríkar og jafnframt næringarsnauðar vörar eins og gos- drykkir, sælgæti og aðrar sykurvör- ur verða of stór hluti af neyslunni. Slík hætta er ekki fyrir hendi þegar neytt er mjög næringarríkra mat- væla eins og mjólkurafurða. Óhófleg sykurneysla landsmanna ræðst því ekki af sykri í mjólkurvörum. Höfundur ermarkaðs- og þróun- arstjóri MS. Einar Matthíasson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.