Morgunblaðið - 16.12.2000, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ
S LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
SKARTGRIPA VERSLUN
FYRST OG FREMST
kæli- og frystiskápar
Dönsk gæðavara
— einstök innrétting,
níðsterk og rúmgóð
— glerhillur í kæliskápum
— fást í hvítu, úr stáli
eða stálklæddir
Gerið verðsamanburð!
/FOnix
HÁTÚN16A REYKJAVÍK SÍMI 652 4420
Vínartónleikar
Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands
„...greinilegt að allir
skemmta sér konunglega,
bæði áheyrendur og
flytjendur".
(Úr Mbl. 12/12 2000,
Oddur Björnsson)
Daydreams
„Af miklu örlæti hjartans
og með stórum
músíkölskum tilþrifum".
(ÚrMbl. 21/7 2000,
Oddur Björnsson)
Poiarfonia Cbssics ehf
Fást í öllum hljómplötuverslunum
og hjá útgefanda.
polarfonia@itn.is
UMRÆÐAN
„Hland fyrir hjartað“
JÚLÍUS Sólnes,
fyrrverandi umhverfis-
ráðherra, kvaddi sér
hljóðs á heilsíðu í
Morgunblaðinu á laug-
ardaginn í tilefni af
lokabindi ævisögu
Steingríms Her-
mannssonar. Þótt bók-
in hafi víða hlotið hrós í
ritdómum og raunar
stundum svo að mér
sem höfundi hennar
hefur þótt nóg um bæt-
ir Júlíus um betur og
segir hana örugglega
muni verða „eitt helzta
uppflettirit fyrir sam-
tímasögu tveggja síð-
ustu áratuga". Hann spáir því að
ævisagan muni áreiðanlega festast í
sessi sem eins konar Islandssaga og
það verður honum tilefni til „leiðrétt-
inga“ á því sem honum þykir af óná-
kvæmni sagt. Meginefni greinar
Júlíusar varðar stofnun umhverfis-
ráðuneytisins. Ég get tekið heils
hugar undir það með honum að um
þá atburðarrás hefði mátt skrifa
lengra mál en færi var á í ævisög-
unni, raunar heila bók. Og víst er að
margt í frásögn Júlíusar ætti tví-
mælalaust heima í bók um stofnun
umhverfisráðuneytisins. Hvort hún
á erindi í sögu Steingríms skal hins
vegar ósagt látið.
Samtöl á segulbandi
Við undirbúning Ævisögu Stein-
gríms Hermannssonar ræddi ég við
fjölda manna sem við sögu koma í
bókinni og aðra þá er gátu veitt upp-
lýsingar um ýmis atriði. Meðal
þeirra sem ég ræddi við var Júlíus
Sólnes. Einsog flestöll viðtöl sem
tekin voru vegna ævisögunnar á ég
samtal okkar Júlíusar á
segulbandi. Þau bönd
reyndust mér nota-
drjúg til að tryggja að
rétt væri eftir haft þeg-
ar vísað er til þessara
viðtala í bókartextan-
um. Ég hafði aldrei í
hyggju að birta þessi
samtöl opinberlega
þótt mér væri talsvert
traust í því að eiga þau
frá orði til orðs ef hitna
myndi í kolunum eftir
útgáfu bókarinnar. Ég
bjóst þó ekki við því að
eftir að bókin væri
komin út bæri einhver
viðmælenda minna
brigður á það sem hann sagði við mig
meðan verkið var í vinnslu. Það hef-
ur nú engu að síður gerst og ég sé
mig því nauðbeygðan til að grípa til
segulbandanna.
Tvísaga
í grein sinni virðist Júlíus ve-
fengja tvennt sem fram kemur í ævi-
sögunni. Hið fyrra snýr að stjórn
fiskveiða. I grein sinni segir Júlíus
frásögn Steingríms um setningu
kvótalaganna 1990 „furðulega" og
virðist ekki kannast við að Stein-
grímur og Halldór Asgrímsson hafi
deilt um það mál. Orðrétt ritar Júlíus
í greininni: „Það er reyndar sér-
kennilegt, að Steingrímur segir í
ævisögu sinni, að hann hafi verið
ósáttur við kvótalögin, en hann
stjórnaði þó bæði flokknum og var
forsætisráðherra á þeim árum, sem
kvótalögin voru sett.“
Voru Halldór og Steingrímur
ósammála? I viðtali mínu við Júlíus,
14. desember 1998, fórum við yfir
þessa atburðarás. Orðrétt urðu þá
Ævisaga
í viðtali okkar Júlíusar
sagði hann raunar ekki,
segir Dagur B.
Eggertsson, að Halldór
hefði náfölnað heldur að
hann hefði fengið hland
fyrir hjartað.
eftirfarandi orðaskipti um deilurnar
við setningu kvótalaganna vorið
1990:
„Júhus: En ég man að við náðum
samkomulagi við Halldór þess efnis
að þessi Þróunarsjóður sjávarút-
vegsins sem átti að hafa kvóta sem
mátti selja á uppboði sem Þorsteinn
tók svo og eyðilagði þegar hann tók
við.“
Dagur: „Steingrímur segist hafa
stutt þennan þróunarsjóð..."
Júlíus: „Já.“
Dagur: „...á móti Halldóri."
Júlíus: „Já, égveit að Halldór varð
að kyngja þessu. Víð þröngvuðum
þessu upp á hann.“
Samtal okkar Júlíusar um þennan
þátt var vitanlega mikið lengra. Lái
mér hins vegar hver sem vill þótt ég
hafi af þessum orðum þóst mega
telja Júlíus í hópi þeirra fjölmörgu
sem staðfestu við mig að áherslur
þeirra Steingríms og Halldórs í
kvótamálinu hefðu verið ólíkar þetta
vor.
Fölnaði Halldór?
I grein sinni virðist Júlíus jafn-
framt ekkert kannast við að Halldóri
Dagur B.
Eggertsson
RÓMANTÍK er eitt-
hvað sem flestir þrá.
Rómantíkin felur í sér
eitthvað gott, ein-
hverja sælu, einhveija
hamingju sem gefur
lífinu gildi. En því mið-
ur leyfum við róman-
tíkinni allt of sjaldan
að blómstra í lífi okk-
ar. Og þess vegna för-
um við of oft á mis við
hamingjuna og sæluna
sem rómantíkin gefur
okkur. Það er stað-
reynd að mörg hjón
hér á landi lenda í erf-
iðleikum í sambúð
sinni á lífsleiðinni.
Sumum pörum tekst að vinna sig út
úr þessum erfiðleikum og nota
reynsluna til að styrkja sambúðina.
Önnur draga vandamálin til sam-
búðarslita. Erfiðleikarnir geta verið
margvíslegir. Oft er það svo að of
margar stundir hverfa í annríki
daganna. Til að bæta upp hamingju-
leysi, þreytu og stress grípa margir
til flöskunnar. Áfengið kemur í stað
rómantíkurinnar hjá pörum sem
aldrei hafa gefið sér
tíma til að rækta ást-
ina. Áfengisneyslan
bætist þá ofan á önnur
vandamál sem íþyngja
fjölskyldunni og eykur
þreytuna og lífsleið-
ann. Þetta þekki ég vel
úr starfi mínu eftir
óteljandi samtöl við
hjón í margvíslegum
vanda.
Að þessu sinni er
bindindisdagur fjöl-
skyldunnar 16. des-
ember. Mottó hans í ár
er ,jól án áfengis“.
Hvernig væri að nota
nú tækifærið og gera
jólin rómantísk fyrir alla fjölskyld-
una með því að sleppa áfenginu úr
hátíðahaldinu? Einhverjum þykir
e.t.v. ómögulegt að koma rómantík-
inni að á hátíðunum þegar stressið
er allt að færa í kaf. Sérstaklega ef
lítið hefur farið íyrir henni að und-
anförnu. En það er ekki eins erfitt
og margir halda.
Fyrsta skrefið er að taka ákvörð-
un um að forgangsraða á nýjan hátt.
Bindindi
*
A mörgum heimilum
ógnar áfengisneysla
jólafriðnum, segir sr.
Þórhallur Heimisson.
Jólin búa yfir öllu því sem þarf til að
styrkja og efla sambandið; friði,
kertaljósum, góðum mat og ást. Það
er að segja, ef við látum ekki allan
æsinginn í kringum okkur spilla fyr-
ir okkur jólafriðnum og ræna frá
okkur tímanum. Og ef við látum
ekki áfengið taka völdin á hátíðinni.
Sumir telja sér reyndar trú um að
þeir geti ekki gefið rómantíkinni
lausan tauminn nema áfengi sé not-
að til þess að brjóta niður einhverja
múra. En áfengi er mesti óvinur
ástarinnar. Og ef ástin er í molum
er heimilislífið í molum.
Á mörgum heimilum ógnar áfeng-
isneysla jólafriðnum. Er ekki betra
að láta drykkina eiga sig og gefa
rómantíkinni tækifæri? Þið eigið
það skilið, öll fjölskyldan. Og hver
veit? Ef vel tekst til, þá geta einmitt
þessi jól orðið upphafið að nýju og
farsælu ástarævintýri í sambandi
ykkar.
Gleðileg, rómantísk og áfengis-
laus jól.
Hötundur er prestur.
Rómantísk og
áfengislaus jól
Þórhallur
Heimisson
0,07 W/Sl
18.500
I4k gullskartgripir
Fallegir demantshringar ó fróbæru verði
Sendum myndalista
Mikið úrval af
demantsskartgripum
á frábæru verði
Laugavegi 49 ♦ Símar 551 7742, 561 7740 ♦ Fax 561 7742