Morgunblaðið - 16.12.2000, Qupperneq 69
GflGAJH'/HJOHOM
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
Ásgrímssyni hafl brugðið þegar
hann fékk þær fréttir að Júlíus hygð-
ist fella kvótafrumvarpið ef fullgilt
umhverfisráðuneyti yrði ekki að
veruleika. í bókinni segir að Halldór
hafi „náfölnað" við þessar fréttir.
Júlíus var einn viðstaddur þennan
atburð ef Halldór sjálfur er frá talinn
og segir nú í grein sinni að frásögn
ævisögunnar sé „hreint rugl“. Hall-
dór hafi þvert á móti tekið tíðind-
unum „afar rólega“. Þetta þykir mér
alvarleg athugasemd vegna þess að
frásögnin af viðbrögðum Halldórs í
bókinni er höfð eftir Júlíusi. í viðtali
okkar Júlíusar sagði hann raunar
ekki að Halldór hafi náfölnað heldur
að hann hafi fengið „hland fyiir
hjartað". Okkur Steingrími þótti það
orðalag hins vegar of stórskorið til
að setja á prent. Til að draga heldur
úr völdum við að orða það svo að
Halldór hefði „náfölnað". Við þótt-
umst með þessu vera að sýna Júlíusi
tillitssemi.
Á sama stað í grein sinni mótmæl-
ir Júlíus raunar einnig að Halldór
eigi að hafa rokið „af stað til að tala
við einhverja sjálfstæðismenn sem
áttu að hafa bjargað málunum“. Því
er hins vegar hvergi haldið fram í
bókinni og eru svör við þeirri at-
hugasemd því augljóslega jafnóþörf
og sú „leiðrétting" Júlíusar.
Andmælir
eigin orðum
Tímabilið sem til umfjöllunar er í
ævisögu Steingríms Hermannssonar
stendur okkur nærri í tíma. Það er
vandi að skrifa samtímasögu. í eft-
innála er því skýrt tekið fram að
verkinu er ekki ætlað að vera stóri
dómur um þann tíma sem þar er til
umfjöllunar. Það á miklu frekar að
vera vitnisburður, gagnleg heimild
og framlag til þeirra rannsókna sem
fyrir höndum eru til að greina kjarn-
ann frá hisminu í stjórnmálasögu Is-
lands við lok tuttugustu aldar. Til að
verkið yrði eins traust heimild og
Þú ert á réttri leið
með þessari gjöf!
Kr. 17.500 sígr.
Umboðsmenn um allt land
- Fást í helstu útivistarverslunum
kostur væri var þó lagður metnaður í
að vanda öll vinnubrögð og leita stað-
festingar á því sem fram er sett.
Einn liður í því voru samtöl mín við á
sjötta tug samferðarmanna Stein-
gríms, samherja og andstæðinga og
aðra þá er við sögu komu. Enginn
þehTa hefur séð ástæðu til að gera
athugasemd við það sem eftir þeim
er haft í bókinni fyrr en Júlíus Sólnes
stígur fram á sviðið nú. Sá kafli
greinar hans sem sneri að stofnun
umhverfisráðuneytisins þótti mér
ágætur. Ég kýs því að líta á þau tvö
atriði sem hér eru rakin úr grein
Júlíusar sem frumhlaup af hans
hálfu og það standi sem okkur fór á
milli.
Höfundur skráði ævisögu Steingrfms
Hermannssonar.
húsgögn
Ármúla 44
^ sími 553 2035
hp OmniBook 6000
Ný hönnun. Fyrir þá sem þurfa
mikil afköst. Tilvalin fyrir
viðskiptaumhverfi&. Mikið úrval
fylgihluta.
hp OmniBook XE3
Hentug fartölva fyrir Internetið og
margmiðlun. Innbyggðir flýtihnappar
tryggja skjóta og einfalda leið að
aðgerðum. Kemur með þvi sem þarf
til viðskipta og skemmtunar.
penUum-..
Á •
h p B r i o
Intel Plll 800 MHz, Micro turn
256 Mb minni, 20 Gb diskur,
nVlDIA GeForce2 GTS 32 Mb, DVD
8x/40x og
Windows 98,Word 2000.
HP 17" skjár.
Ver& 199.000 kr.
Intel Plll 750 MHz, 128 Mb minni,
15 Gb diskur og DVD drif.
Windows 98, WordPerfect.
HP 17” skjár.
Verð 149.900 kr.
. , ' wj$i) ,V '
h P
e - P C
e-PC - forskot á framtíðina.
Hljóðlát og stöðug.
Minni kostnaður.
ir"iC»rnflhflDfr>li'.Vi»»iKf'> itii'—rriliiWTtlMrTrirtirurtrvrfr ■,
h p V e c t r a
Hágæða tölvur fyrir viðskipta-
umhverfið. Fáanleg í þremur
mismunandi útfærslum (MT,DT,SFF).
« n v e n t
c
Penninn Skrifstofutæki
Su&urlandsbraut 4, sími 540 2025
Penninn Bókval
Hafnarstræti 91-93, sími 461 5050