Morgunblaðið - 16.12.2000, Síða 90
90 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Rímnaspegill
TOJYLIST
Geisladiskur
MAKIN MOVES
Makin Moves, geisladiskur rfmna-
sveitarinnar Poetíc Reflections sem
skipuð er þeim Fingaprint og Beat-
iflc. Einnig koma við sögu þeir Ein-
ar Vilberg (bassalína), Mystic og
Orion. Allar rímur samdi Beatific
en þeir Mystic og Orion komu að
rímnagerð í þremur lögum. Upp-
tökustjóm og hljóðblöndun var í
höndum þeirra Fingaprint og
Beatific. 36,18 mín. Aquarium
records gefa út.
RAPPSVEITIN 110 Rottweiler
hundar (nú XXX Rottweiler hundar)
sigraði síðustu Músíktilraunir með
bráðskemmtilegu hip-hoppi og alis-
lensku rímnaflæði. Attu sumir von á
því að rappsveitir myndu spretta
upp eins og gorkúlur í kjölfarið en
svo varð raunin nú ekki. Það hefur
virst sem íslenska rappmenningin sé
í einhverri lægð um þessar mundir,
a.m.k. í útgáfulegu tilliti, og því var
það óvænt en gleðilegt er þessi
óháða útgáfa rak á fjörur mínar.
Á Makin Moves eru engar tilraun-
ir gerðar til að finna upp hjólið held-
ur er leitað fanga til rappsmiðju
austurstrandar Bandaríkjanna.
Neðanjarðarrapp frá New York
virðist þeim félögum nokkuð hug-
leikið, og kemur Vogatangaklíkan
(Wu Tang Clan) helst upp í hugann.
Sýrustigið hér er þó heldur lægra en
hjá því alræmda gengi.
Diskurinn fer frábærlega af stað
með sálarskotnu inngangs-
stefi og mjatlar svo
hægt en örugg-
lega áfram og
nær svo fínu
rennsh í endann.
Tónlistin er af-
slöppuð og mjúk,
oft undirstrikuð
með svölum og leti-
legum píanóleik. Þó
frumlegheitin séu síst
í forgrunni ná þeir
félagar að búa til sann- fær-
andi og ofurrólegt sveimrapp sem
Morgunblaðið/Knstinn
„Makin Moves er hinn boðlegasti frumburður og framtakið er Iofsvert,“ segir Arnar Eggert Thor-
oddsen m.a. um hijómdisk tveggja manna, rímnasveitarinnar Poetic Reflections.
flóir áreynslulaust áfram.
Rímnaflæðið er og í svip-
uðum gír og tónlistin - lát-
laust og stimamjúkt. Sér-
staklega eru tveggja
manna rímnafléttur
skemmtilegar og fag-
mannlega af hendi
leystar. Rímumar eru
á ensku en þó heyrist
greinilega að hér eru íslendingar á
ferð og flæðið því stundum í hastara
lagi ef svo mætti að orði komast.
Sjálfir textamir em líklega veik-
asti punkturinn. Margtuggðar klisj-
ur um að Poetic Reflections séu nú
bestir, þeirra rapp sé einstakt í sinni
röð og aðrir rapparar era stöðugt
minntir á hvað þeir skuli hafa í huga
æth þeir að standa sig í stykkinu.
Upptalningin á rímnaboðorðunum
tíu í laginu „Never Fake The Funk“
er þó alveg svöl þrátt fyrir umlykj-
andi hjákátleikann.
Makin Moves er hinn boðlegasti
framburður og framtakið er lofsvert.
Þrátt fyrir að vera heldur mikið í
skugga áhrifavaldanna er stíllinn
heilsteyptur, tæknivinnsla góð og
það er oft ótrúlega þægilegur höfgi
yfir allri framvindunni. Ef meira yrði
unnið úr áhrifunum fremur en að
spegla þau, eins og titill disksins gef-
ur til kynna, myndi sveitin styrkjast
til muna. Hér era efni á ferð og það
verður athyglisvert að sjá hver þró-
unin verður í framtíðinni.
Arnar Eggert Thoroddsen
Glæsileg taska
full af snyrtivörum
Verð aðeins kr. 4.200
Snyrtivöruverslun
Áslaugar Borg, Laugavegi
póstkröfu
Sími 511 6717
Kvikmyndaskóli íslands útskrifar
Gamanmyndir og dulúð
í DAG verða nemendur Kvik-
myndaskóla íslands útskrifaðir
og af því tilefni haldin útskrift-
arfrumsýning á fjórum stutt-
myndum þeirra í Háskólabíói og
hefst athöfnin kl. 15. Á morgun
verður haldin aukasýning á
myndunum kl. 14 og er aðgangur
ókeypis.
Nemendur hafa nú lagt nótt við
dag, mikla vinnu, ótrúlega orku
og takmarkalausan tíma í að
ljúka við verkin sín; fjórar 15
minútna kvikmyndir sem bera
titlana; Svæsnar vonir, Stand-
pina, Vladibær og Amma ruglaða.
Þórunn María Bjarkadóttir,
Theodór Kristjánsson og Hrann-
ar Hilmarsson eru öll nemendur skólans. „Þetta eru
gamanmyndir sem við ætlum að sýna, nema kannski
Svæsnar vonir sem er dularfull og listræn mynd,“
segir Hrannar ekki síður dularfullur á svip.
Theodór: Amma ruglaða fjallar um þroskaheftan
strák, en amma hans passar hann
og hún þolir hann ekki. Hún deyr
siðan heima hjá honum og hann
reynir að lífga hana við með ýms-
um aðferðum.
Þórunn: Standpi'na er um mann
sem á afmæli og fjölskyldan þyk-
ist gleyma því. Þegar ritarinn fer
að reyna við hann, misskilur hann
það allt og það endar með ósköp-
um.
Hrannar: Svæsnar vonir fjalla
um konu sem er alltaf heima og
þennan dag kemur grandalaus
sjónvarpsviðgerðarmaður til að
laga sjónvarpið svo hún geti horft
á Glæstar vonir skýrar og betur.
Þórunn: Vladibær er um tvo
stráka sem vinna á verkstæði hjá Júgóslava og
dóttir hans kemur til Iandsins að keppa í' karaoke.
Mjög sprelluð og fyndin mynd.
Hrannar, Þórunn og Theodór bjóða alla vel-
komna i' Háskólabi'ó að kíkja á myndinar þeirra.
Morgunblaðið/RAX
Þórunn, Hrannar og Theodór frum-
sýna stuttmyndir sínar i' dag.
Tilkynning um almennt útboð og
skráningu á Verðbréfaþingi íslands
' ' $v-ív '
Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf.
Hlutafjárútboð
Fjárhæð útboðsins er að hámarki 1.000.000.000
króna að nafnvirði og er um að ræða nýtt hlutafé.
Heildarnafnverð hlutabréfa félagsins verður allt að
3.128.790.593 króna að loknu útboði.
Sölugengi endurspeglar verðmæti eigna félagsins
á hverjum tíma og getur breyst á sölutímabilinu í
takt við breyttar markaðsaðstæður.
Tilgangur hlutafjárútboðsins er að afla félaginu
hlutafjár til fjárfestinga f hlutabréfum og öðrum
framseljanlegum verðbréfum samkvæmt
fjárfestingastefnu félagsins (samræmi við samþykktir
og tilgang félagsins.
Sölutímabil er frá 20. desember 2000 til 20. maí
2001. Sölutímabili getur lokið fyrr ef hlutafé selst
upp fyrir þann tíma.
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
Söluaðilar eru Búnaðarbankinn Verðbréf og útibú
Búnaðarbanka fslands hf.
Umsjón með útboðinu hefur Búnaðarbankinn
Verðbréf, Hafnarstræti 5,3. hæð, 155 Reykjavík.
Áður útgefið hlutafé að nafnvirði 2.128.790.593 kr.
er þegar skráð á Aðallista VÞl.
Verðbréfaþing fslands hefur samþykkt að skrá nýtt
hiutafé Hlutabréfasjóös Búnaðarbankans hf. að
nafnvirði allt að 1.000.000.000 kr. á
Aðallista að loknu útboði, enda verði þá öll
skilyrði skráningar uppfyllt.
Skráningar er vænst í maí 2001.
Útboðs- og skráningarlýsing Hlutabréfasjóðs
Búnaðarbankans hf. liggur frammi hjá
Búnaðarbankanum Verðbréfum,
Hafnarstræti 5, Reykjavik.
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
byggir á tnund
BORGARLEIKHÚSIÐ OPNAR HJARTA SITT
l m
..g'-'l g Þérerboðið
x*ÆL i JÓLABOÐ í Borgarleikhúsinu!
*,Laugardaginn 16. desember kl. 14 -17
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
SS Slóra svið
Atriði úr MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
í leikgerð llluga Jökulssonar
kl. 14.20,14.50,15.20 og15.50
ls Litla svið
Atriði úr ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
kl. 14.00,14.30,15.00 og 15.30
SKOÐUNARFERÐIR UM BORGARLEIKHÚSIÐ
og leiklestrar úr verkum
sem koma á svið eítir áramót.
I %-an^r
ókeypi^
rsteZoi* j
Miðasala: 568 8000
Mióasalan er opin kl. 13-18 og
íram að sýningu sýningardaga.
Sírni miðasölu opnar kl. 10
virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
Anddyri
ILMUR AFJÓLUM
Hera Björk Þórhallsdóttir syngur lög
af nýútkomnum geisladisk.
SKÁLDANÓTT e. Hallgrim Helgason
Leikarar syngja lög ór verkinu.
JÓLASVEINAR sprella með börnunum
og syngja og dansa í kringum iólatréð.
Balú björn syngur lagur MÓGLÍ
ÓVÆNTAR UPPÁKOMUR - ÓKEYPIS VEITINGAR!
BORGARLEIKHÚSIÐ