Morgunblaðið - 20.12.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
293. TBL. 88. ARG.
MIÐVTKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
George W. Bush skýrir frá vali viðskiptaráðherra og húsnæðismálaráðherra í dag
Bush fundar
með Gore
og Clinton
Washington. AFP, AP.
KEPPINAUTARNIR um forseta-
embætti Bandaríkjanna, George W.
Bush og A1 Gore, hittust í fyrsta
skipti í gær augliti til auglitis eftir að
baráttunni um niðurstöðu kosning-
anna í Flórídaríki lauk í síðustu viku.
Þá játaði Gore sig sigraðan, 36 dög-
um eftir að Bandaríkjamenn gengu
til kosninga.
Gore tók á móti Bush fyrir utan
bústað varaforseta Bandaríkjanna
og tókust þeir í hendur og stilltu sér
upp fyrir ljósmyndara áður en þeir
héldu inn til að ræðast við.
„Við ætlum að ræðast einslega
[0nð,“ sagði Gore við blaðamenn.
Bandaríska fréttastofan CNN sagði
aðstoðarmenn varaforsetans hafa
sagt að fundurinn hefði staðið innan
við klukkustund og hefði Gore
ítrekað vilja sinn til að hjálpa til við
að koma á sáttum demókrata og
repúblikana eftir deilur um úrslit
kosninganna.
%•
Góður fundur með Clinton
George W. Bush hitti einnig Bill
Clinton Bandaríkjaforseta í gær.
Bush, sem gagnrýndi Clinton oft og
iðulega í ræðum sínum í kosninga-
baráttunni, heilsaði honum með
virktum. Clinton tók á móti Bush
fyrir utan Hvíta húsið. „Ég er þakk-
látur og ég hlakka til viðræðnanna.
Ég er hér til að hlusta, og ef forset-
inn verður svo vinsamlegur að gefa
mér einhver ráð þá mun ég hlusta á
þau,“ sagði Bush við fréttamenn fyr-
ir fundinn. Clinton sagði að sitt eina
ráð til verðandi forseta væri að
„setja saman gott lið og gera það
sem hann teldi vera rétt“.
Að sögn talsmanns Clintons, var
fundur þeirra Bush og Clintons, sem
stóð í einn og hálfan tíma, mjög góð-
ur. Hann sagði að þeir hefðu einkum
rætt utanríkismál. Clinton sagði
blaðamönnum áður en fundurinn
hófst að hann myndi koma inn á mál-
efni Norður-Kóreu en Clinton er
sagður hafa hug á að halda þangað í
opinbera heimsókn áður en hann
lætur af embætti. Talsmaður Clint-
ons vildi ekki tjá sig um hver nið-
urstaðan hefði orðið og sagði Bush
verða að taka sína eigin ákvörðun
um hugsanlega ferð þangað.
Evans og Martinez
meðalráðherra
Búist er við því að Bush tilkynni
val sitt á viðskiptaráðherra og hús-
Reuters
Jólagleði indverskra
skólabarna
INDVERSKUR drengur snurfusar
litla, jólasveina" eða öllu heldur
nemendur skdla í bænum Candig-
arh á Norður-Indlandi sem fögnuðu
í gær jólunum framundan.
Jóladagur er frídagur á Indlandi
og haldinn hátíðlegur af minni-
hlutahópi kristinna á Indlandi, sem
telur 23 miHjónir.
Flestir ibúar Indlands, sem alls
eru um 950 miHjónir talsins, eru
hindúar.
Reuters
A1 Gore og George W. Bush fyrir fund þeirra í gærkvöldi.
næðismálaráðherra í dag. Að sögn
embættismanna í röðum repúblik-
ana mun Don Evans, framkvæmda-
stjóri olíu- og gasfyrirtækis í Texas,
verða viðskiptaráðherra. Evans er
gamall vinur Bush og sá sem til-
kynnti stuðningsmönnum hans á
kosninganótt að Gore hefði hætt við
að játa sig sigraðan.
Væntanlegur húsnæðismálaráð-
herra er Mel Martinez. Martinez
flúði til Bandaríkjanna frá Kúbu
þegar hann var 15 ára. Hann er
frammámaður í röðum repúblikana í
Flórída, einn þeirra sem stýrðu
kosningabaráttu Bush þar og lék
stórt hlutverk í máli kúbanska
NY deila hefur blossað upp milli fær-
eysku landstjórnarinnar og Pouls
Nyrups Rasmussens, forsætisráð-
herra Danmerkur, um stefnu land-
stjórnarinnar í sjálfstæðismálinu.
Deilt er nú um hvernig túlka eigi
viðræður danska forsætisráðherrans
við Anfinn Kallsberg, lögmann Fær-
eyja, á óformlegum fundi þeirra í
Reykjavík í nóvember í tengslum við
þing Norðurlandaráðs.
Poul Nyrup Rasmussen túlkar
viðræðurnar þannig að Kallsberg
vilji nú samningaviðræður um aukna
sjálfstjóm Færeyja og að gengið
verði út frá því að eyjarnar haldi
sambandinu við Danmörku. Fær-
eyska landstjómin er alfarið ósam-
mála þessari túlkun og kveðst enn
stefna að fullu sjálfstæði Færeyja.
Nymp sendi lögmanni Færeyja
bréf á fimmtudag þar sem hann seg-
ir meðal annars að Kallsberg hafi
lagt til á fundinum í Reykjavík „að
hafnar yrðu samningaviðræður um
breytingar á heimastjórnarlögunum,
þannig að innan ramma ríkissam-
bandsins skapist aukinn grundvöllur
fyrir því að heimastjómin taki við
drengsins Elian Gonzales fyrr á
árinu.
Bush hitti í gærmorgun Tommy
Thompson, sem er talinn líklegur til
að verða næsti heilbrigðisráðherra.
Á mánudag hitti hann Paul Neill,
sem er talinn koma til greina sem
næsti fjármálaráðherra. Bush hitti
einnig Dan Coats, fyrrverandi öld-
ungadeildarþingmann, sem talinn er
líklegur í embætti vamarmálaráð-
herra. Að sögn Dick Cheneys, vara-
forsetaefnis Bush, er Tom Ridge,
ríkisstjóri Pennsylvaníu, ekki lengur
inni í myndinni sem varnarmálaráð-
herra. Hann gefur ekki kost á sér
vegna fjölskylduaðstæðna.
fleiri málaflokkum". Með þessu gaf
forsætisráðherrann til kynna að
þjóðréttarleg staða Færeyinga
myndi ekki breytast.
Markmiðið að valda
sundrungu?
Landstjórnin fyrtist við þetta bréf
og furðaði sig á túlkun forsætisráð-
herrans. Hpgni Hoydal, sem fer með
sjálfstæðismálin í landstjórninni,
sagði að með bréfinu vildi danski for-
sætisráðherrann efla stjórnarand-
stæðinga sem eru andvígir því að
Færeyingar lýsi yfir sjálfstæði.
Kallsberg lagði áherslu á að land-
stjómin stæði við þá stefnu sem hún
kynnti eftir að samningaviðræðurn-
ar við Dani fóru út um þúfur. Land-
stjórnin hyggst efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um sjálfstæði í apríl.
Hún stefnir einnig að því að taka við
þeim málaflokkum sem danska
stjómin fer með og hefja viðræður
um að dregið verði úr fjárhagsaðstoð
Dana við Færeyjar. Að lokum verði
efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um
stjórnarskrá og þegar hún taki gildi
verði Færeyjar sjálfstætt ríki.
Bastesen
of spurull
Kaupmannahöfn. Morgunblaðiö.
NORSKI hvalveiðimaðurinn og
þingmaður Strandflokksins,
Steinar Bastesen, hefur lagt
svo margar spurningar fram á
norska Stórþinginu að ákveðið
hefur verið að takmarka spm-n-
ingaflauminn.
Það sem af er hefur Bastesen
spurt 90 spuminga en hver
þingmaður má leggja fram
tvær spumingar á viku. Nú
hefur verið ákveðið að tak-
marka það við eina spurningu á
viku. Kennir forseti þingsins
Bastesen og nokkmm þing-
manna Framfaraflokksins um
þessa ákvörðun en orrahríð
fyrirspuma hefur tafið þing-
hald fram úr hófi.
Bastesen er að vonum ósátt-
ur við breytinguna sem hann
segir takmarka mjög starf sitt
þar sem hann sé eini þingmað-
ur flokks síns, Strandflokksins.
Aðrir þingmenn anda hins veg-
ar flestir léttar.
Bandaríkin
Vísbending um
vaxtalækkun
SEÐLABANKI Bandaríkjanna
sendi frá sér tilkynningu í gær að
loknum fundi nefndar um frjáls við-
skipti þar sem kynntar vom áherslu-
breytingar. Þær gefa vísbendingar
um að svo geti farið að vextir verði
lækkaðir næst þegar nefndin kemur
saman, í lok janúar. Er bandarísku
efnahagslífi ekki lengur talin stafa
mest ógn af verðbólgu heldur af
samdrætti í efnahagslífinu.
MORGUNBLAÐIÐ 20. DESEMBER 2000
Bréf frá Nyrup
veldur uppnámi
í Færeyjum
Þdrshöfn. Morgunblaðið.