Morgunblaðið - 20.12.2000, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur mildar dóma yfír þremur
sakborningum í stóra e-töflumálinu
Hlutu allt að
7 ára fangelsi
Traktorsgrafan rann niður háan bakka og hafnaði loks á hvolfi í trjálundi.
Morgunblaðið/Júlíus
Traktorsgrafa valt
ofan í trjálund
HÆSTIRÉTTUR staðfesti 7 ára
fangelsisdóm Héraðsdóms Reykja-
víkur yíir Guðmundi Þóroddssyni í
stóra e-töflumálinu í gær. Þetta mun
vera þyngsti dómur í fíkniefnamáli
sem Hæstiréttur hefur kveðið upp.
Jafnframt mildaði rétturinn dóma
yfír þremur af sex sakborningum og
staðfesti dóm Héraðsdóms yfir
tveimur öðrum sakbomingum.
Ingi Þór Jónsson, sem í Héraðs-
dómi var dæmdur í 5 ára fangelsi,
hlaut 4 ára dóm fyrir Hæstarétti,
Jón Ágúst Garðarsson, sem í Hér-
aðsdómi var dæmdur í 4 ára fangelsi,
hlaut 3 ára dóm fyrir Hæstarétti og
Sveinn Ingi Bjamason, sem í Hér-
aðsdómi var dæmdur í 5 ára fangelsi,
hlaut 3V4 árs dóm fyrir Hæstarétti.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðs-
dóms yfir Þóri Jónssyni, sem hlaut
tveggja ára dóm og 10 mánaða skil-
orðsbundinn dóm yfir sjötta sak-
bomingnum. Til frádráttar refsing-
unum kemur gæsluvarðhald sak-
bominganna.
Gmnur vaknaði hjá tollgæslunni
14. desember 1999 þegar sótt hafði
verið sending frá Hollandi í hrað-
flutningafyrirtækið DHL, sem talið
var að gæti hafa verið fíkniefni.
Sendingin var stfluð á Svein Inga og
sagði hann lögreglu að hann hefði
sótt hana fyrir Guðmund Inga Þór-
oddsson. Sendinguna fór hann með í
jeppa sem stóð við Húsgagnahöllina
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Stálskip
ehf. í Hafnarfirði var í Héraðsdómi
Reykjaness í gær dæmt til að greiða
útgerðarfélaginu Otto Wathne ehf. á
Seyðisfirði ríflega 180 milijónir
króna sem bætur fyrir aflaheimildir
og réttindi sem féllu á skipið eftir að
seyðfirska félagið hafði selt það því
hafnfirska. Auk þess var Stálskipum
gert að greiða 5 milljónir króna í
málskostnað.
Stálskip ehf. í Hafnarfirði keypti
togarann Otto Wathne NS af sam-
nefndu útgerðarfélagi á Seyðisfirði
árið 1994. Skipið heitir nú Rán HF.
Við kaupin iá fyrir að skipið hafði
ekki veiðileyfi í íslenskri lögsögu en í
kaupsamningi var kveðið á um að
Stálskip legðu til nægilega rúmlesta-
tölu í skipum til úreldingar svo skipið
fengi leyfi til veiða innan lögsögunn-
ar. Ennfremur var kveðið á um það í
kaupsamningi að engar aflaheimildir
fylgdu í kaupunum.
Þegar kaupsamningurinn var
gerður voru veiðar bæði á Reykja:
neshrygg og í Barentshafi frjálsar. 1
febrúar 1997 var Stálskipum síðan
tilkynnt að Fiskistofa hygðist út-
hluta Rán HF aflahlutdeild í úthafs-
karfa á Reykjaneshrygg og var út-
hlutunin byggð á veiðireynslu á
árunum 1991-1996 og skyidu þrjú
bestu árin ráða. Að ósk Stálskipa
á Bíldshöfða. Um þetta leyti höfðu
lögreglu borist vísbendingar um að
Guðmundur Ingi væri staddur í Hol-
landi að kaupa mikið magn af fíkni-
efnum. Leiddi þetta til umfangsmik-
illar rannsóknar með símhlerunum,
handtökum, leit og varðhaldsúr-
skurðum. Var iagt haid á 401 e-töflu
hjá Þóri Jónssyni, sem raktar voru
til sendingarinnar.
Við aðalmeðferð málsins fyrir
Héraðsdómi kom fram að Guðmund-
ur Ingi, Ingi Þór og Sveinn Ingi
hefðu gert með sér samkomulag um
að þeir tveir síðastnefndu legðu til
600 þúsund kr. og Guðmundur Ingi
færi út og keypti e-töflur fyrir pen-
ingana. Helmingurinn af peningun-
um átti að vera þóknun til Guðmund-
ar Inga. Hann kvaðst hafa keypt
4.000 e-töflur af sölumanni sem hann
hitti á götu í Amsterdam og sá mað-
urinn um að pakka fíkniefnunum inn
og láta senda þau með DHL til ís-
lands.
í dómi Hæstaréttar segir að Guð-
mundur Ingi hafi verið aðalmaður í
skipuiagningu og allri framkvæmd
innílutningsins og stjórnað síðan
dreifingu á nímum helmingi efn-
anna.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Hrafn Bragason, Árni Kol-
beinsson, Haraldur Henrysson,
Hjörtur Torfason og Pétur Kr. Haf-
stein.
byggði Fiskistofa úthlutun skipsins
m.a. á veiðireynslu þess árið 1993 en
þá var skipið í eigu Otto Wathne ehf.
Aflamark skipsins á árinu 1997 var
rúm 1.265 tonn af úthafskarfa. í kjöl-
farið krafðist Otto Wathne efh. þess
að úthlutun á úthafskarfa yrði skipt
milli aðila eftir veiðireynslu og það
sem kæmi í hlut útgerðarinnar yrði
flutt á skip sem hún tilnefndi. Þessu
hafnaði Fiskistofa með þeirri skýr-
ingu að aflaúthlutun skyldi undan-
tekningarlaust vera til skipa en ekki
útgerða og því væri ekki lagaheimild
fyrir kröfu útgerðarinnar. Taldi Otto
Wathne ehf. að útgerðinni bæru
43,82% af úthlutuninni eða rúm 554
tonn og fór fram á það við Stálskip
efh. að kvótinn yrði færður á nafn út-
gerðarinnar. Þessu höfnuðu Stál-
ÖKUMAÐUR traktorsgröfu slapp
betur en á horfðist þegar grafan
valt út af gangstíg við Digranesveg
íKópavogi ígærmorgun. Ökumað-
ur var að dreifa sandi á gangstíginn
vegna hálku. Grafan rann á sveli-
bunka og féll niður brattan bakka
og lenti á hvoifi í trjálundi. Öku-
maður gröfunnar var fluttur á
slysadeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss en meiðsl hans voru
ekki talin alvarleg.
Karl Árnason, forstöðumaður
raðuneytið úrskurðaði að ákvörðun
Fiskistofu skyldi vera óbreytt.
Otto Wathne ehf. telur einnig að
þorskaflahlutdeild skipsins í Bar-
entshafi, sem byggð var á veiði-
reynslu áranna 1993-1995, sé í eigu
útgerðarinnar, enda hafi 41,48%
heildarinnar eða tæp 1.537 tonn ver-
ið veidd árið 1993 en skipið var þá í
eigu Otto Wathne ehf.
I mati sem gert var á markaðs-
verði þess kvóta sem um ræðir er
áætlað að verðmæti kvótans, sem
Otto Wathne ehf. telur sig hafa orðið
af, sé tæplega 192 milljónir króna.
I málflutningi Stálskipa er byggt á
því að útgerðin hafi á engan hátt orð-
ið völd að því tjóni sem Otto Wathne
ehf. telur sig hafa orðið fyrir. Stjórn-
véladeildar áhaldahúss Kópavogs,
segir að betur hafi farið en á horfð-
ist. Þegar traktorsgrafan valt ofan í
trjálundinn stakkst tijábolur í
gegnum rúðu gröfunnar. Tijábol-
urinn lenti á ökumanninum og
héldu menn fyrst að hann hefði
gengið af afli í ökumanninn. Svo
reyndist þó ekki vera.
Karl segir að óvenjumikil hálka
hafi verið í bænum í gærmorgun.
Grafan skemmdist, tiltölulega lítið
við óhappið.
Beið bana
íbflslysi
í Öxnadal
BANASLYS varð á hringveginum
utarlega í Öxnadal snemma í gær-
morgun er bíil fór út af veginum og
valt. Einn maður var í bílnum og
fannst hann látinn utan við bflinn
þegar að var komið.
Lögreglan á Akureyri fékk til-
kynningu um slysið kl. 6:39 í gær-
morgun. Bíll á leið niður Öxnadal
hafði lent út af veginum nokkru
norðan við Bægisá, ekki langt norð-
an afleggjarans að Meium í Hörg-
árdal. Að sögn lögreglunnar var mik-
il hálka á veginum þegar slysið varð.
Unnið er að rannsókn slyssins og er
ekki unnt að greina frá orsökum
þess. Bíilinn var jeppi af stærri gerð-
inni og dró hann kerru.
Ökumaður bflsins var á fimmtugs-
aldri. Ekki er unnt að skýra frá nafni
mannsins að svo stöddu.
■---------------
Stúdentaráð
Látið reyna
á tekjut^ng-
ingu LIN
STJÓRN Stúdentaráðs samþykkti í
gær að fela Réttindaskrifstofu stúd-
enta að láta reyna á hvort dómur
Hæstaréttar frá í gær um tengingu
tekjutryggingar við tekjur maka hafi
fordæmisgildi gagnvart námslánurn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Stjórnin segir að Stúdentaráð hafi
lengi gagnrýnt tekjutengingu við
maka og því hafi hún nú falið Rétt-
indaskrifstofu stúdenta að láta reyna
á málið hjá stjórn LÍN. Reynist úr-
skurður hennar neikvæður verður
málið kært til málskotsnefndar LÍN,
segir í yfiriýsingu stjórnarinnar.
Stálskip ehf. dæmt í héraðsdómi til bótagreiðslu fyrir aflaheimildir og réttindi
Dæmt til að
greiða 180
milljónir kr.
skip, auk þess sem sjávarútvegs-
völd hafi verið að hverfa frá frjálsum
veiðum.
Kaupsamningur ekki efndur
í niðurstöðu dómsins segir að í
kaupsamningi kveði á um að engar
aflaheimildir fylgi með í kaupunum á
Otto Wathne NS. Því verði að líta
svo á að umræddar aflaheimildir,
sem byggðar eru á veiðireynslu á
meðan skipið var í eigu Otto Wathne
ehf., hafi með réttu átt að koma í hlut
útgerðarinnar. Stálskip hafi ekki léð
máls á því að veita Otto Wathne ehf.
atbeina sinn til þess að hann fengi út-
hlutað þessum aflaheimildum og hafi
því ekki efnt kaupsamninginn að
þessu leyti.
Samkvæmt því og með vísan til
dóms Hæstaréttar frá 26. febrúar
1998 í máli nr. 305/1997, sbr. einnig
dóm 7. maí sama ár í máli nr. 346/
1997, yrði að líta svo á að umræddar
aflaheimildh’, byggðar á veiðireynslu
Otto Wathne, hafi með réttu átt að
koma í hlut þess félags. Samkvæmt
dómi Hæstaréttar 28. janúar 1999 í
máli nr. 241/1998 skipti ekki máli þó
að Otto Wathne hafi ekki átt fiski-
skip á þessum tíma. Útgerðin hafi
orðið fyiir tjóni sem svarar til gang-
verðs hinna umdeildu aflaheimilda í
viðskiptum. Gunnar Aðalsteinsson
héraðsdómari l:vað upp dóminn.
Sérblöð í dag
www.mbi.is
Haukar ánægðir með
að mæta Sporting/ B2
»•••••••••••••••••••••••••••••••••
Hermann og félagar einu
skrefi frá úrslitaleik / B3s
rm
MIÐVIKUDOGUI
► Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir