Morgunblaðið - 20.12.2000, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
:
Hvorki er piáss fyrir
norskan eldislax né
norskar kýr á Islandi
GrAuND'
Ekkert kossaflangs við mína búkollu Guðni minn.
60% landsmanna hlynnt
álveri á Austurlandi
SEXTÍU af hundraði landsmanna
eru hlynnt byggingu álvers á
Austurlandi. 30% eru andvíg, en
10% taka ekki afstöðu, að því er
fram kemur í skoðanakönnun
Gallup sem greint er frá í nýju
fréttabréfi iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins.
Spurt var í könnuninni: Ert þú
hlynnt(ur) eða andvíg(ur) bygg-
ingu álvers á Austurlandi? Svörin
skipust þannig að mjög hlynntir
voru 28,9%, frekar hlynntir voru
30,8% hvorki né voru 10,3%, frek-
ar andvígir 13,7% og mjög andvíg-
ir voru 16,3%.
Einnig var spurt um viðhorf al-
mennings til stóriðju almennt. Um
64% svarenda sögðust jákvæð, en
23% neikvæð.
Urtakið var 1.200 manns, valið
með slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Svarendur voru á aldrinum 16-75
ára af landinu öllu. Svarhlutfall
var 69,7%.
Könnunin var gerð dagana 31.
ágúst til 24. september sl.
Jólagjöfin hanáaþeim
sem þér þykir vcent um
Framleitt
ÍUSA
Gerir lífið notalegra
Margar tegundir.
Verð frá kr. 39.980,-.
Áklæói & leður
í miklu úrvali.
LA-Z-BOY stóllinn er vinsælasti heilsu- og hvíldarstóllinn í Ameriku.
LA-Z-B0Y stóllinn gefur frábæran stuðning við bak og hnakka og uppfyllir
kröfur nútímans um aukin þægindi. Innbyggt skammel lyftir fótum sem léttir
á btóðrás og hjarta og eykur vellíðan.
LA-Z-BOY er skrásett vörumerki og fæst aðeins í Húsgagnahötlinni.
Verið vandlát, tryggið gæði og betri endingu.
1
Oplð fr®
Id. 10'22
Bíldshöfða, 110 Reykjavík, sími 50 8000, www.husgagnaholtin.is
I lífvaróasveit Noregskonungs
Islendingar hafa
löngum sótt í
konungsgarð
Hér á landi er nú
staddur Pétur
Kristinn Guð-
marsson undirliðsforingi, í
jólaleyfi frá störfum sínum
í hinni konunglegu lífvarða-
sveit Noregskonungs.
Hann var spurður í hveiju
starf hans þar ytra fælist.
„Það felst í að gæta hinnar
konunglegu fjölskyldu í
Noregi í stríði og friði.“
- Er þetta mikið starf?
„Já, þetta er mjög mikið
starf. Við gætum ekki að-
eins fimm meðlima kon-
ungsfjölskyldunnar heldur
þjálfum við líka upp menn
til ýmisskonar hernaðar-
starfa á vetri sem sumri.“
- Hverjar eru skyldur
ykkar?
„Þær eru m.a. að meta líf
konungs meira en okkar eigið,
standa heiðursvörð, kenna nýlið-
um hermennsku og stjóma vakta-
skiptum.“
-Er konungurinn í einhverri
hættu staddur í heimalandi sínu?
„Nei, hann virðist ekki vera það,
en maður veit þó aldrei. Konungs-
fjölskyldan heftir fengið líflátshót-
anir og einnig gæti fjölskyldunni
hugsanlega stafað hætta af geð-
veiku fólki. Sumir sem eiga við
geðræn vandmál að stríða fá þá
hugmynd að leysa úr vandamálum
sínum með því að tala við konung-
inn. Flestir sætta sig vel við að fá
ekki að tala við hann, en þó ekki
allir, sumir verða mjög reiðir.“
- Hvað eru margir í hinni kon-
unglegu lífvarðasveit Noregskon-
ungs?
„Ætli það séu ekki um þúsund
manns.
Aðeins yfirmenn eru útskrifaðir
úr herskóla, þeir eru alls um 100
talsins."
-Búa yfirmenn við góð kjör í
hinni konunglegu lífvarðasveit?
„Við búum við góð kjör hvað
laun varðar og einnig aðstöðu. Við
búum í foringjaíbúðum rétt fyrir
utan herstöðina sem er í úthverfi
Oslóar.“
- Vinnið þið langar vaktir?
„Ein vakt er 24 tímar og svo er-
um við í svokölluðu vakttímabili.
Við heíjum störf klukkan sex á
morgnana með því að athuga hvort
hermennimir séu búnir að skúra
og þrífa. Síðan notum við tímann
frá 8 til 13 til venjubundinna æf-
inga, m.a. þjálfunar í skotfimi og
marseringum, svo göngum við úr
skugga um að fatnaður okkar og
skór séu í lagi og tökum svo við
vaktinni klukkan 14. Henni lýkur
svo klukkan 14 næsta dag. Daginn
eftir hefst svo þessi hringur aftur.“
- Hvað gerið þið á sjálfri vakt-
inni?
„Við gætum konungsfjölskyld-
unnar í höllinni, í einkahúsnæði
konungs, í Akershusfestening og
gætum svo herstöðvarinnar sjálfr-
ar.“
- Hvað með þegarkonungureða
fjölskylda hans fer í ___________
ferðalög?
„Þá fylgjum við ekki
með nema um sé að
ræða sérstök stór til-
efni, annars er fjöl-
skyldunnar gætt af lög-
reglunni."
Pétur Kristinn Guðmarsson
► Pétur Kristinn Guðmarsson
fæddist í Reykjavík árið 1978.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Islands árið 1998
og fór svo til Noregs í herfor-
ingjaskóla í Þrándheimi, þaðan
sem hann lauk prófi eftir tveggja
ára nám. Hann starfar nú í líf-
varðasveit Noregskonungs.
Hefur verið
boðið að ger-
ast liðsforingi
yfir 50 manna
eigin sveit
• Hefur þú kynnst norsku kon-
ungsfjölskyldunni persónulega?
„Ég hef heilsað upp á Harald og
spjallað við Hákon. Haraldur kon-
ungur kemur einu sinni á ári í liðs-
könnun í herdeild okkar. Við slíkt
tækifæri hitti ég hann og Hákon
krónprins."
- Var þetta herskólanám sem þú
laukst í Þrándheimi skemmtilegt?
„Já, þetta er mjög skemmtilegt
nám. Maður er að vinna með fólki
og í eigin málum, kynna sér mann-
leg viðbrögð við ýmsar aðstæður.
Námið felst m.a. í stjómunarfræði,
kennslu- og uppeldisfræði, sið-
fræði, íþróttafræði og svo almennt
um hertækni og vopn.“
- Hvað varð til þess að þú fórst í
þetta nám?
„Síðan ég var lítill hafði ég haft
mikinn áhuga á hermennsku. Ég
sagði foreldrum mínum snemma
að ég ætlaði að verða tindáti þegar
ég yrði stór. A skólaárunum lá
þetta niðri þar til í lok framhalds-
skólanámsins, þá stakk bróðir
minn upp á að ég sækti um inn-
göngu í herforingjaskóla. Ég sótti
fyrst um pláss í West Point í
Bandaríkjunum og Sandhurst í
Bretlandi en fékk ekki inngöngu
þar sem ég var ekki ríkisborgari í
viðkomandi landi. Þá frétti ég af
Befalsskolen for Infantriet í
Þrándheimi og sótti um inngöngu í
hann með fyrmefndum afleiðing-
um. Einn íslendingur hefur stund-
að nám við skólann áður en það
nokkuð langt síðan. Margir sækja
jafnan um, 500 þegar ég sótti um.
Um 270 vom valdir úr þeim hópi
og sendir í inntökupróf sem varaði
í viku. Þá var enn síað úr hópnum
og þeir valdir sem fóm í reynslu-
tíma, þar sem þeim var beinlínis
þrælað út. Sjötíu vom svo valdir
inn í skólann. Sumir þoldu ekki
álagið við námið og duttu út. Þeir
sem útskrifuðust um leið og ég úr
þessum hópi vom 64. Allir urðu
þeir yfirmenn í hemum.“
- Hvers vegna valdir þú hina
konunglegu lífvarða-
sveit?
„íslendingar hafa
löngum sótt í konungs-
garð, ég tók fommenn
mér til fyrirmyndar í
þessu tilliti.“
- Hvað hyggst þú
starfa þama lengi?
„Mér hefur verið boðið að gerast
liðsforingi yfir eigin 50 manna
sveit næsta sumar í lífvarðasveit-
inni, en ég er samt að íhuga að
koma hingað heim og fara í frekara
nám. Þetta átti að vera eins árs
ævintýri en hefur undið svona upp
á sig.“