Morgunblaðið - 20.12.2000, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Forsætisráðherrakosningarnar í fsrael
Netanyahu ekki í kjöri
Jerúsalem. AFP, AP.
BENJAMIN Netan-
yahu, fyrrverandi for-
sætisráðherra ísraels
og formaður Likud-
flokksins, verður ekki í
kjöri í forsætisráð-
herrakosningunum í
Israel í febrúar. Því er
ljóst að harðlínumaður-
inn Ariel Sharon, nú-
verandi leiðtogi Likud-
flokksins, verður helsti
keppinautur Ehuds
Baraks, leiðtoga
Verkamannaflokksins,
í kosningunum.
Netanyahu dró
framboð sitt til baka í
gær, nokkrum klukku-
stundum eftir að þingið felldi með 68
atkvæðum gegn 48 frumvarp um að
þing yrði leyst upp og að boðað yrði
til þingkosninga samtímis forsætis-
ráðherrakosningunum. Áður hafði
þingið samþykkt frumvarp um
breytingar á kosningalögum, sem
gerði Netanyahu kleift að bjóða sig
fram, en samkvæmt lögunum sem
áður voru í gildi gátu aðeins þing-
menn gefið kost á sér í embætti for-
sætisráðherra. Netanyahu sagði af
sér þingmennsku og leiðtogastöðu í
Likud-flokknum eftir að hann beið
ósigur í síðustu kosningum.
Netanyahu hafði lýst því yfir að
hann myndi draga
framboð sitt til baka ef
ekki yrði samþykkt að
leysa upp þingið og
boða til kosninga.
Stuðningsmenn hans
hvöttu hann í gær til að
skipta um skoðun en
hann neitaði því.
„Þar sem þingið
hafði ekki kjark til að
verða við kröfu þjóðar-
innar um að ganga til
kosninga ákvað ég að
standa við orð mín. Ég
mun íhuga framboð
þegar samþykkt hefur
verið að leysa þingið
upp,“ sagði Netanyahu.
Hann tók skýrt fram að hann hygðist
ekki hætta afskiptum af stjórnmál-
um. „Þetta þing verður á endanum
leyst upp. Það verður fyrr en síðar
og þá verð ég viðstaddur."
Netanyahu hefur möguleika á að
skipta um skoðun og lýsa yfir fram-
boði fyrir 25. desember en ísraelskir
fjölmiðlar sögðu afar ólíklegt að
hann gerði það.
Stjórnmálaskýrendur leiddu get-
um að því að Netanyahu treysti sér
einfaldlega ekki til að taka við for-
sætisráðherraembættinu við núver-
andi aðstæður í þinginu en þar berj-
ast 19 flokkar um völd og áhrif.
Dagblaðið Yediot Aharonot sagði að
hann hefði vanmetið andstæðinga
sína og flækt sig í eigin gildru.
Peres íhugar framboð
í kjölfar þess að Netanyahu dró
framboð sitt til baka var hætt við at-
kvæðagreiðslu innan Likud-flokks-
ins um hvor yrði í framboði, hann eða
Ariel Sharon en prófkjörið átti að
fara fram í gær.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefði Netanyahu unnið öruggan sig-
ur í kosningunum en Barak og Shar-
on mælast nú með svipað fylgi.
Þriðji þungavigtarmaðurinn íhug-
ar reyndar framboð, en það er Shim-
on Peres, fyrrverandi forsætisráð-
herra og friðarverðlaunahafi Nóbels.
Peres er eindreginn stuðningsmaður
friðarumleitana við Palestínumenn
og hann gæti sótt fylgi til stuðnings-
manna friðarferlisins sem ella hefðu
stutt Barak. Samkvæmt skoðana-
könnunum gæti hann átt möguleika
á að sigra bæði Barak og Sharon.
Peres beið ósigur fyrir Netanyahu í
kosningunum árið 1996.
Þar sem Barak hefur þegar verið
útnefndur frambjóðandi Verka-
mannaflokksins, yrði Peres að bjóða
sig fram í nafni annars flokks. Hefur
hann í þessum tilgangi átt viðræður
við fulltrúa Meretz-flokksins sem er
á vinstri vængnum.
Benjamin
Netanyahu
AP
Wahid, forseti Indónesíu, er hann kom til Baiturrahman-moskunnar í
Banda Aceh, höfuðstað Aceh-héraðs.
Wahid Indónesíuforseti heimsækir
hið róstusama Aceh-hérað
Játar mistök en
hafnar algeru
sjálfstæði Aceh
Banda Aceh. AP, AFP.
ABDURRAHMAN Wahid, forseti
Indónesíu, viðurkenndi í gær er
hann var í heimsókn í Aceh-héraði,
að indónesískum stjómvöldum
hefðu orðið á mikil mistök í baráttu
sinni gegn aðskilnaðarhreyfingunni
í héraðinu. Hann hafnaði hins vegar
nýju vopnahléi milli stjórnarhersins
og skæruliða en kvaðst styðja frek-
ari friðarviðræður.
Wahid, sem stansaði aðeins í
þrjár klukkustundir í Banda Aceh,
höfuðstað héraðsins, skipaði stjórn-
arhernum að hætta árásum á
óbreytta borgara og skoraði jafn-
framt á leiðtoga uppreisnarmanna
að setjast að samningaborði áður
en vopnahléið rennur út 15. janúar.
Harðlínumenn
og líflátshótanir
Wahid, sem á undir högg að
sækja fyrir hershöfðingjum og
harðlínumönnum í ríkisstjórninni,
sagði, að þótt vopnahléið rynni út
yrði að halda áfram viðræðum „þar
til öllum skilst, að Aceh getur verið
frjálst, frjálst innan Lýðveldisins
Indónesíu". „Okkur hafa öllum orð-
ið á mistök, líka mér,“ sagði Wahid
í ræðu í stærstu mosku borgarinn-
ar.
Wahid ákvað að fara til Aceh
þrátt fyrir vaxandi átök og hótanir
um, að hann yrði ráðinn af dögum.
Var hann í skotheldu vesti og meira
en 2.000 hermenn gættu hans.
Þrátt fyrir gæslu sprakk lítil
sprengja við götu, sem bílalest
Wahids fór síðar um.
Wahid hét Aceh-héraði, sem er
mjög olíuauðugt, aukinni sjálfstjórn
og sagði, að íbúarnir, sem eru mjög
strangtrúaðir múslimar, gætu tekið
upp íslömsk lög. Það gæti þó orðið
til að veikja indónesíska ríkið en öll
löggjöf þess hvílir á veraldlegum
grunni. Leiðtogar uppreisnar-
manna krefjast hins vegar algers
sjálfstæðis og höfnuðu boði um að
hitta Wahid að máli.
Viðræður í næstu viku
Tengu Hasan di Tiro, útlægur
leiðtogi aðskilnaðarhreyfingarinn-
ar, tilkynnti hins vegar í Stokk-
hólmi í gær, að viðræður við
Indónesíustjórn um framtíð héraðs-
ins myndu hefjast í Genf í næstu
viku.
Þrátt fyrir vopnahléið, sem
Indónesíustjórn og skæruliðar
sömdu um í júní sl., hafa meira en
840 manns fallið í valinn á þessu
ári. Hefur þeim, sem krefjast al-
gers sjálfstæðis, vaxið mjög ásmeg-
in eftir að Austur-Tímor fékk sjálf-
stæði á síðasta ári en indónesísk
stjómvöld þvertaka fyrir það. Talið
er, að um 6.000 manns hafi fallið í
átökum við stjórnarherinn síðasta
áratuginn.