Morgunblaðið - 20.12.2000, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 37
LISTIR
Vinnusvæði norrænu myndhöggvaranna í Tisvilde.
„Sambland af vinnubúð-
um og mánaðargjörningi“
Myndhöggvararnir Ein-
ar Már Guðvarðarson
og Bubbi - Guðbjörn
Gunnarsson - tóku þátt
í norrænu myndhöggv-
araþingi undir berum
himni síðsumars í
Tisvilde í Danmörku,
Margrét Sveinbjörns-
ddttir hlýddi á ferða-
sögu þeirra félaga og
heyrði líka af hug-
myndum hópsins um
færanlegan gám fullan
af verkfærum.
ALLS tóku tíu myndhöggvarar þátt
í verkefninu, sem stóð yfir frá 5.
ágúst til 5. september; tveir frá Nor-
egi, tveir frá Svíþjóð, tveir frá Finn-
landi, tveir frá Danmörku, auk
þeirra Bubba og Einars Más frá ís-
landi. Val á þátttakendum var í sam-
vinnu við félög myndhöggvara í við-
komandi löndum. Það var sveitar-
félagið Helsinge á Norður-Sjálandi
sem stóð fyrir myndhöggvara-
þinginu með stuðningi Norræna
menningarsjóðsins en það var liður í
dagskrá menningarárs sem sveitar-
félagið hélt hátíðlegt í tilefni árþús-
undaskipta.
„Hönd, andi, steinn, loft, vatn“ var
yfirskrift verkefnisins. Myndhöggv-
ararnir fengu til umráða hver sinn
granítsteininn frá Borgundarhólmi
og stað fyrir verkin, sem voru unnin
út frá og inn í umhverfið og munu
standa þar áfram. Að heiman höfðu
þeir með sér sín eigin steinverkfæri,
en einungis þau minni og persónu-
legri, því stærri tæki og tól á borð við
loftpressu og borvélar voru til reiðu
fyrir hópinn í stórum bláum gámi á
miðju afgirtu vinnusvæðinu í
Tisvilde.
Hafði yfír sér
ákveðinn sirkusblæ
„Við vorum að vinna þarna í heilan
mánuð og hörkustemmning í gangi.
Þetta var svona sambland af vinnu-
búðum og gjömingi og hafði yfir sér
ákveðinn sirkusblæ. Þarna komu
fleiri þúsund manns til að skoða og
fjöldinn allur sem kom á hverjum
degi og fylgdist með tilurð verkanna.
Fólk spjallaði, kom með athuga-
semdfr og spurði spurninga," segir
Einar Már.
Fantasía í landslagi er heitið á
verki Bubba, sem var valinn staður í
göngugötu Helsinge. „Ég vinn mikið
út frá landfræðilegum táknum og
Fantasía í landslagi, verk Bubba í göngugötunni í Helsinge.
ingarheimum og er tímalaus, en býr
hvorki né flýgur nema innra með
okkur sjálfum,“ segir Einar Már.
Hann segir verk þeirra beggja
eiga það sameiginlegt að þau verði
mikið til í ferlinu. „Ég er á því að
nálgun okkar hafi verið dálítið önnur
en hinna, og ég held að það skýrist að
einhverju leyti af þessum nánu
tengslum sem við höfum hér við
veðrabrigðin og að síbreytileiki ís-
lenskrar náttúru skili sér í okkar
vinnu,“ segir Einar Már.
Grunnur lagður að samtökum
norrænna myndhöggvara
Þó að myndhöggvararnir tíu hafi
unnið verk sín hver í sínu lagi var
samveran góð og gott samstarf milli
þeirra og segir Bubbi að samveran
þennan mánuð hafi verið mjög lær-
dómsrík, auk þess sem dýrmæt
tengsl hafi skapast, sem allir eigi
þeir eftir að hafa gagn og gleði af í
framtíðinni. Þá lagði hópurinn gninn
að stofnun samtaka norrænna
myndhöggvara og setti saman
„manifest" eða stefnuskrá samtak-
anna. Þar er m.a. lagt til að fenginn
verði gámur á borð við þann sem
myndhöggvararnir höfðu aðgang að
í Tisvilde og hann útbúinn með verk-
færum fyrir tíu myndhöggvara. Þeir
sem vilji halda myndhöggvaraþing
eigi svo að geta leigt gáminn gegn
vægri þóknun. „Tækja- og verkfæra-
þátturinn hefur hingað til verið fyr-
irstaða, því hann er mjög kostnaðar-
samur,“ segir Einar Már. Þeir segja
að hugmyndin sé að fá Norræna
menningarsjóðinn o.fi. inn í dæmið
sem styrktaraðila. Með gámnum
góða verði litlum samfélögum, bæði
á Norðurlöndunum og utan þeirra,
gert kleift að halda myndhöggvara-
þing sem þau hefðu annars ekki haft
bolmagn til. Þeir félagar Bubbi og
Einar Már vonast til þess að hægt
verði að halda slíkt þing hér á landi
áður en langt um líður og einnig hef-
ur verið rætt um að halda mynd-
höggvaraþing í Himalajafjöllunum í
náinni framtíð.
Paradísarfuglinn, verk Einars
Más Guðvarðarsonar í Ramlose.
einkennum hér á íslandi og vegna
þess hvað Danmörk er mikil flat-
neskja langaði mig að gefa Dönum
færi á að kynnast fjöllum og um-
hverfi öðruvísi en þeir eru vanir að
upplifa það. Þarna í göngugötunni
situr fólk mikið á bekkjum og spáir
og spekúlerar og þess vegna tók ég
inn í verkið þessi þrjú element; jörð-
ina og ofan á henni er ég með fjall og
hús úr sandsteini,“ segu- Bubbi og
bætir við að rónar bæjarins hafi tek-
ið verkinu fagnandi og haft á orði að
nú væru þeir loksins búnir að „eign-
ast hús“.
Síbreytileiki íslenskrar náttúru
Verk Einars Más heitir Paradís-
arfugl og stendur á grasflöt inni á
milli trjáa við bæjartjörnina í hjarta
bæjarins Ramlose. „Þegar ég sá
steininn, sem var einstaklega falleg-
ur, var þetta í fyrstu spuming um að
komast í samband við hann og gefa
mig að honum - einskonar ástarsam-
band myndaðist - og þá fór ég að sjá
ýmislegt í honum. Þetta varð mjög
náið samtal á milli okkar. Ég gaf mér
góðan tíma í það í byrjun og nálg-
aðist hann mjög varlega í vinnuferl-
inu. í þessu tilviki var þetta því ekki
spurning um að umbreyta steininum
í eitthvert form, heldur að ná því
fram sem ég skynjaði í steininum og
tilfinningasambandi okkar. Það er
þessi paradísarfugl, sem er einskon-
ar arfmynd sem er til í öllum menn-
Tilvalin
jolagjof
7.995 kr.
Gönguskór Grisport
Leöur, brúnir
m/ steyptum sóla
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
mai«<antz
Hljómtæki nýrrar aldar
Heimabíokerfi
Hátalarar
Magnarar
DVD
Marantz DV3100 DVD spilari
AC3/dts. Kynningarverð
Verð kr. 36.600.-
HUÓMStN
H L J Ó M T Æ K I VHEIMABIÓ*BlLTÆKI
Ármúla 38 - Sími 588-5010
MENNINGARMM
Hntaf fyrlr staf.
ÁL
taf.
Stor humar
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070