Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Er þetta lífíð?“
BÆKUR
S j á 11' s li j á I p a r b ó k
LÁTTU EKKI
SMÁMÁLIN ERGJA ÞIG
... því öll mál eru smámál.
Eftir Richard Carlson.
Þýðandi: Guðjón Ingi Guðjónsson.
títgefandi: Forlagið 2000.271 bls.
LITLA bókin hans Richards
Carlson hefiir í tvö ár samfleytt
verið á lista yfir vinsælustu og mest
lesnu bækur vestanhafs og nú þeg-
ar hún kemur út í íslenzkri þýðingu
hafa átta milljónir eintaka verið
seldar. Oft er það svo að þegar bók
hefur runnið út eins og heitar
lummur stendur bókagagnrýnandi
bæði vel og illa að vígi í því að vera
hlutlaus í sínum dómi. Vel að því
leyti að hann hefur agað sig í að lesa
texta, meta efni og framsetningu
þess út frá eigin sjónarhóli og vænt-
anlegra lesenda. Ula að því leyti í
þessu tilviki að 8 milljón lesendur
hið minnsta hafa talið bókina eiga
erindi við sig. Hvernig þeim hefur
líkað lesturinn er erfiðara að meta
en þegar gluggað er í athugasemdir
lesenda á amazon.eom-vefnum
kemur í Ijós að viðbrögð við bókinni
eru afar mismunandi, og henni eru
gefnar ýmist ein stjama eða fimm.
Bókin heitir á frummálinu Don’t
Sweat the Small Stuff... and It’s
all Small Stuff og kom fyrst út árið
1997. Höfundur heldur því fram að
fiest það sem ergt getur mann í líf-
inu sé ekki þess virði að æsa sig yfir
því, hvað þá að leyfa því að hafa
áhrif á líf sitt. Þess í stað sé hægt að
ieiða hjá sér vandamálin og þjálfa
sjálfan sig í jákvæðu viðhorfi til
annars fólks. Eg get mjög vel fallizt
á ýmis sjónarmið hans og margt
sem hann segir er skynsamlegt og
fallega sagt. Þetta eru þó ekki nýjar
hugmyndir. Hann hvetur fólk til
þess að vera hjálpsamt, gjaftnilt,
ástríkt og vingjarnlegt, sætta sig
við orðinn hlut og njóta tilverunnar
með jákvæðu hugarfari. í stað þess
að ímynda sér að maður verði ham-
ingjusamur ef maður nær ein-
hveiju fram, fær stöðuhækkun, ef
makinn sér að sér, bömin vaxa úr
grasi eða komast af gelgjuskeiðinu,
þá er engin stund heppilegri til að
finna hamingjuna en einmitt núna.
Ef ekki núna, hvenær þá? (bls. 189-
190). Vitnað er í Alfred D’Souza
sem sagði eitthvað á þá leið að lengi
vel hafi sér fundist að lífið væri rétt
í þann veginn að hefjast - alvöru líf.
En það var alltaf einhver hindrun í
veginum, eitthvað sem fyrst þurfti
að gera, eitthvert óafgreitt mál,
tími sem þurfti að líða, skuld sem
þurfti að greiða. Þá myndi lífið
byrja. Að endingu áttaði hann sig á
því að þessar hindranir voru lífið.
Ég hef heyrt þetta orðað öðruvísi:
„Allir þessir dagar sem komu og
fóru ... ekki vissi ég að það væri líf-
ið.“
Mér finnst um of alhæft í bókinni,
því að aðstæður fólks eru svo mis-
jafnar. Það eru heldur ekki satt að
öll mál geti verið -smámál (er ekki
Smámál nafn á afurð frá Mjólkur-
samsölunni? Láttu ekki smámuni
ergja þig hefði verið heppilegra
bókarheiti að mínu áliti). Mér þætti
til dæmis ekki farsælt ef stjórmála-
menn tækju hvaða vitleysu sem er
góða og gilda. Eiga þeir að anda
djúpt og gera jógaæfingar í stað
þess að taka á vandamálum?
Hættulegt gæti verið fyrir almenn-
ing að bregðast ekki við ef stjóm
landsins færi úr böndunum eða ef
gallagripir kæmust til valda. Ekki
getum við öll orðið eins og mýs und-
ir fjalaketti.Við lestur bókarinnar
stóð ég mig því ítrekað að því að
gefa bókinni ýmist fimm stjörnur
eða eina í huganum. Ef öll mál eru
smámál, af hverju fer þá 271. blað-
síða í að segja manni frá fremur ein-
földum leiðum til að bæta sjálfan
sig? Mér dettur í hug að það sé
vegna þess að hugmyndum, sem
kæmust fyrir á nokkrum blaðsíð-
um, hafi verið ritstýrt í þennan far-
veg af klókum útgefanda, því að
örfáar blaðsíður nægja ekki í heila
bók. Þess vegna eru sömu hlutimir
sagðir margoft, settir í mismunandi
búning, en það fer samt ekki
framhjá manni að þeir era endur-
teknir. Hver kafli er örstuttur, ein
til þrjár blaðsíður, og kaflarnir era
100! Sennilega er betra að lesa einn
kafla í einu, einn á dag til dæmis, og
þegar grannt er skoðað kemur í ljós
að vestra hefur verið gefið út daga-
tal með texta úr bókinni á hverri
síðu fyrir utan það að höfundur hef-
ur lesið textann inn á band og einn-
ig gefið efnið út sem snældu...
Markaðssetningin er söm við sig.
Richard Carlson mun vera sál-
fræðingur að mennt og segir um
hann á baksíðu að hann hafi um
árabil starfað við streituráðgjöf í
heimalandi sínu, Bandaríkjunum.
Hann hefur gefið út aðrar bækur
um svipað efni og þær heita nöfnum
á borð við: Don’t Sweat the Small
Stuff at Work; Don’t Sweat the
Small Stuff for Teens; Don’t Sweat
the Small Stuff about Money; Don’t
Sweat the Small Stuff in Love;
Slowing Down to the Speed of Life;
You can be Happy No Matter
What. Alls munu bækur eftir hann
vera 15 talsins, þær hafa verið gefn-
ar út í yfir 100 löndum og lesnar af
yfir 40 milljónum manna.
Hugmyndir þær sem settar era
fram bókinni era ekki allar nýjar af
nálinni en margar þeirra era þess
virði að rifja upp og tileinka sér.
Heimspekingar fyrri tíma hafa fært
okkur sumar þeirra. Manst þú les-
andi góður eftir bók sem heitir
Hver er sinnar gæfu smiður, hand-
bók Epiktets, en hún var á sínum
tíma þýdd á íslenzku af dr. Brodda
Jóhannessyni? Mér finnst eins og
Carlson hljóti að hafa lesið hana í
æsku.
Katrín Fjeldsted
Vel mælt
BÆKUR
Spakmælasafn
ÞEGAR ORÐ FÁ VÆNGI
eftir Torfa Jónsson. 524 bls. títg.
Torfi Jónsson. Prentun: Oddi hf.
Reykjavík, 2000.
MARGT er vel mælt í bók þess-
ari. Átta þúsund spakmæli! Sá ætti
að komast árekstralaust í gegnum
lífið sem kynni þau öll og færi eftir
þeim. Og þó. Hægara er að kenna
heilræðin en halda þau, segir mál-
tækið.
Spekingar þeir, sem skrásetjari
hefur tekið upp í bókina, eru fleiri
en tölu verði á komið. Ekki voru
þeir undantekningarlaust fyrir-
myndarborgarar. En allir voru
þeir frægir, hver á sínum tíma.
Þarna er Sókrates, að sjálfsögðu.
Einkennileg þætti bók af þessu
tagi þar sem nafn hans kæmi ekki
fyrir.
Mörg er viskan höfð eftir La
Rochefocauld. Hann hefur nýst
Torfa betur en ekki. Sama máli
gegnir um Talleyrand. Honum
tókst að halda höfðinu gegnum
byltinguna og Napóleonstímann og
þótti með ólíkindum! Hann gat
verið tungumjúkur. En hann áttaði
sig líka mörgum betur á mótsögn-
unum í mannlegu samfélagi. Hvort
tveggja mun hafa komið honum vel
í ölduróti byltingarinnar. Það sem
eftir honum er haft lýsir vel manni
og tíðaranda. Benjamin Franklin
var óspar á heilræði sem margur
Bandaríkjamaður heldur enn í
heiðri. Hann var næsta jarðbund-
inn og beindi ráðum sínum til hins
venjulega meðalmanns, sem sagt
heimspekingur hversdagslífsins.
Oscar Wilde hneykslaði sómakæra
góðborgara á sínum tíma. En eng-
inn frýjaði honum vits. Enda hefur
hann orðið Torfa drjúg uppspretta
hnyttiyrða. Henry Ford var einn
þeirra sem gerðu ameríska draum-
Sögur af h v ersdagshetj um
inn að veruleika. Hann varð fyr-
irmynd allra bílasmiða fyrr og síð-
ar. Ekki fer á milli mála að hann
gat líka komist vel að orði. Torfi
vitnar þónokkuð í hann. Winston
Churchill var afreksmaður við
viskídrykkju. Tíminn og tækifærin
gerðu hann að stríðshetju. Hvað-
eina, sem fram gekk af munni
hans, var því samstundis hent á
lofti. Svo skrifaði hann líka ævi-
sögu sína og hlaut Nóbelsverðlaun
fyrir! Sumar staðhæfingar
Churchills hafa staðist tímans
tönn. Til dæmis þessi: »Arfur kap-
ítalismans er misjöfn skipting lífs-
gæðanna, arfur sósíalismans er
jöfn skipting eymdarinnar.«
Vonandi ber næsta öld gæfu til
að gleyma bæði kapítalisma og
kommúnisma. Saman fæddu þess-
ar stefnur af sér velferðarþjóð-
félagið sem nú er talið allra meina
bót. Ókunnur höfundur lýsir því
svo: »Gallinn við velferðarþjóð-
félagið er sá, að þegar maður hef-
ur náð það langt að maður geti lát-
ið aðra um verstu verkin, þá fæst
enginn til að vinna þau.«
Bókmenntir og listir fá líka sinn
skammt. Benjamin Disraeli var
meiri stjórnmálamaður en rithöf-
undur. Allt um það sendi hann
gagnrýnendum þessa sneið:
»Gagnrýnendur eru menn sem
mistekizt hefur bæði í bókmennt-
um og listum.«
Torfi flokkar spakmælin eftir
efni þannig að auðvelt er að nálg-
ast tilvitnanir sem maður þarf á að
halda í andartakinu. Flokkunin er
yfirleitt örugg og haldbær. Eigi að
síður er sumt svo almenns eðlis að
erfitt getur reynst að hafa uppi á
því nema með ærinni leit.
Nöfn og aldur þeirra, sem Torfi
vitnar til í bók sinni, minna á að
dagar heimspekinnar eru taldir.
Vesturlandabúar eru hættir að
hugsa. Jean-Paul Sartre var síð-
asti heimspekingurinn sem hafði
eitthvað frumlegt til málanna að
leggja. Eigi að síður reisti hann
kenningar sínar á nítjándu aldar
grunni. En það eru öðru fremur
átjándu og nítjándu aldar menn
sem Torfi vitnar til. »Örlögin
stokka spilin, við spilum úr þeim,«
sagði Schopenhauer. Hann sá fyrir
sér hnignun vestrænnar menning-
BÆKUR
Smásögur
PARADÍS AREPLIN
eftir Martin A. Hansen.
Jón Kalman Stefánsson þýddi
og ritaði eftirmála.
Bjartur árið 2000 - 137 bls.
MARTIN A. Hansen segir trega-
fullar og heillandi sögur af hvers-
dagshetjum. Sagnaheimur hans lýsir
fátæku fólki til sveita sem býr við
takmörkuð efnisleg gæði í gjöfulu
mannlífi. Aðferð hans er fólgin í því
að skera sneið af veraleikanum og
varpa ljósi á einstök atvik og persón-
ur í heimi sem er í senn kaldur og
hlýr, saklaus og spilltur. Persónur
hans era ósköp venjulegt fólk, stund-
um fólk sem farið hefur halloka eða
sker sig úr að einhverju leyti. Það
gengur um í tréskóm á vegum og víð-
feðmum ökrum, innan um hnetutré
og ranna, myllur og myllusíki,
skurði, ár og hættulegar tjarnir og
víða finnst sérkennileg lykt. Sjónar-
homið í sögum hans er bemskt og
saklaust þar sem heimurinn er séður
með augum þess sem er að uppgötva
og finna til í mannlegum samskipt-
um. Martin A. Hansen (1909-1955)
var einn virtasti og vinsælasti rithöf-
undur Dana um miðja þessa öld. Eft-
ir hann liggja fimm skáldsögur, þrjú
smásagnasöfn, jafnmörg greinasöfn,
tvær ferðabækur og mikið rit um
fornnorræna menningarsögu. Á síð-
asta ári gaf svo bókaforlagið Gyld-
endal út dagbækur hans (1931-1955)
í þremur bindum, samtals um fimm-
tán hundruð síður að lengd. Uppeldi
hans mótaðist mjög af kristilegum
hugmyndum og grónum gildum. I
eftirmála Jóns Kalmans Stefánsson-
ar kemur fram að Hansen var „hér-
aðshöfundur í þeim skilningi að yrk-
isefni og umhverfi sótti hann
ósjaldan til Stevns á suðaustur Sjá-
landi en þar ólst hann upp til sautján
ára aldurs. Hansen var kennari að
mennt og afar vinsæll fyrirlesari og
hafði „yfir sér slíka óbifanlega ró að
ófáir litu á hann sem tákn staðfest-
unnar og um leið einskonar vörn
gegn svíðandi óróa nútímans".
Fyrstu skáldverk Hansens voru í
anda félagslegs raunsæis. Hann varð
þekktur og viðurkenndur fyrir æv-
intýrasögu sína Jonatans rejse
(1941) sem er skrifuð í afar persónu-
legum og fáguðum stíl. Ein merkasta
skáldsaga danskra bókmennta á
þessari öld er talin vera saga hans
Lykkelige Kristoffer (1945) en sú
víðlesnasta, Lpgneren (1950), birtist
í íslenskri þýðingu árið 1966. Ferða-
bók hans Rejse pá Island (1954) hef-
ur einnig verið þýdd á íslensku, af
Hirti Pálsyni árið 1984.
Paradísareplin er safn níu smá-
sagna sem flestar era sagðar í fyrstu
persónu. Um er að ræða val úr fjór-
um bókum Hansens sem komu út á
árabilinu 1947-1959. Fyrsta sagan í
safninu, Strúturinn, er grípandi frá-
sögn, hröð og ævintýraleg. Þar er
lesandanum íylgt af ungum sögu-
manni og systur hans í veröld sem
barnsleg ímyndunin nær að stækka
og gera hættulega. Uglan er saga
forvitins drengs og gamals einstæð-
ings og uppfinningamanns, sem aðr-
ir virðast forðast. Þögult samband
þeirra vitnar um gagnkvæman skiln-
ing þar sem sá ungi sækir í bækur
þess gamla, sérstaklega Börn
Grants skipstjóra eftir Julius Veme.
Hér eins og víða í sögum sínum beit-
ir Hansen bemsku sjónarhorni með
áhrifaríkum hætti og stöðugar skipt-
ingar eiga sér stað milli hugsana
drengsins og athafna hans.
Sagan um Paradísareplin minnir á
ævintýrið um Rauðhettu. Drengur
heimsækir ömmu sína í fjarlægu
húsi og færir henni pakka af slátri en
fær í staðinn gljáandi rauðgul epli að
taka með sér heim. Myndin af gam-
alli skyttu sem býr í hinum enda
hússins er skopleg og nöturleg í sam-
anburði við hlýja og notalega ömm-
una. Heimferðin verður drengnum
torsótt og lífshættuleg þegar hann
fer út af veginum til að stytta sér leið
yfir ísilagða ána.
I sögunum Tvöfalt portrett í ská-
skomum ramma og Jarðarför Stínu
dregur Hansen upp lifandi myndir af
margbrotnum persónum. I fyrri sög-
unni kynnumst við innilegu sam-
bandi frænku sögumanns og Jens
frá Jaðri. Þau era býsna ólík í fram-
komu og háttum en hafa hvort um
sig mikilvægu hlutverki að gegna í
samfélaginu. í síðari sögunni fylgj-
um við utangarðsfólkinu Sören og
Stínu á einmanalegu flakki uns dauð-
inn skilur þau að. Lokasaga bókar-
innar Morgunstundin lýsir einkenni-
legri næturvinnu þriggja manna sem
skera jurtir af ái-botni. Allt í senn
býr þessi saga yfir frábærri frásagn-
artækni, sérkennilegri dulúð og endi
sem skilur sögumanninn og lesand-
ann eftir með hugann fullan af undr-
un og söknuði. Smásögur Martins A.
Hansens fara í úrvalsílokk. Þær
komast prýðilega til skila í íslenskri
þýðingu Jóns Kalmans Stefánsson-
ar. Hann hefur góð tök á stíl Han-
sens, þekkir viðfangsefni sitt vel og
nær að gefa frásögninni mál við hæfi.
Tónn þessara sagna er afar notaleg-
ur og hlýr þótt umfjöllunarefnið geti
verið nístandi og kalt.
Jón Ozur Snorrason
ar.
Þetta er að minnsta kosti þriðja
bókin sem komið hefur út svipaðs
efnis á síðustu árum. Fleiri kunna
þær að vera þó undirritaður muni
ekki eftir því í svipinn. Nokkuð
eru þær mismunandi þannig að
ekki verður sagt að ein komi í stað
annarrar. En hvað er það sem
kallar á þessar bækur? Ekki hafa
lesendur beðið um þær. Hitt
mundi sönnu nær að söfnun heil-
ræða og spakmæla sé einhver auð-
veldasta tómstundaiðja sem unnt
er að taka sér fyrir hendur. Og
hvað er þá nærtækara en gefa öðr-
um hlutdeild í áhugamáli sínu og
reisa sér um leið dálítinn minn-
isvarða?
Hitt er svo annað mál að erfitt
mun að fá aðra til að lesa öll þessi
heilræði að ekki sé talað um að
hlíta þeim. Spakmælin og máltæk-
in voru nokkurs konar umferðar-
reglur fyrir lífsleiðina á tímum
hugspekinnar. Nútímamaðurinn
trúir ekki á þess konar óskráðar
lífsreglur. Stjórnmál tuttugustu
aldar með tilheyrandi lýðskrumi
voru sjaldnast byggð á lífsspeki og
þaðan af síður á heilræðum. Fólk
er því tekið að gjalda varhuga við
hinu talaða orði.
Ekki er þetta sagt til að draga
úr vægi þessarar miklu bókar
Torfa Jónssonar, síður en svo,
enda er hún áminnstra bóka vönd-
uðust og aðgengilegust.
Erlendur Jónsson
Islensk list
Fálkagötu 30b
Gleðilegir jólaglerfuglar
Opið frá kl. 14-18, sírnar 552 8141 og 861 5693
Er til ánægjulegri fjárfesting en myndlist?
3 Hg Rauðarárstíg 14-16
«=C mw simi 551 0400
s || og Kringlunni
[i][i sími 5468 0400 www.myndlist.is
»RT 1 5ALLIRT