Morgunblaðið - 20.12.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 39
Scrvalið og unnið Kálfakjöt,
Nautakjöt, Lambakjöt,
Svínakjöt og Villibráð
Sælkera sósur, krydd og olíu
Innfluttar sælkeramatvörur
SKARTGRIPAVERSLUN
FYRST OG FREMST
FUNAI myndbandstæki
Nicam stereo frá Þýskalandi
1 Barnalæsing
' 2 skarttengi
■ AV-tengi að framan
> Fjarstýring og fleira.
ON OFF
LISTIR
Hátíðarmatur
~ frá Gallerý Kjöt ^
Hvalreki á fjörur
Stuðmannaaðdáenda
Silfur-
skartgripir
Gullkúnst
Gullsmiðja Helgu
Sendum myndaiista Laugavegi 45 • Sími 561 6660
www.gullkunst.is
Tilsögn og uppskriftir eru ad sjálfsögðu á staðnum og á heimasíðunni okkar.
CRENSÁSVECUR48.
SÍMI 553 1600/553 1601 • www.kjot.is • FAX 568 1699.
BÆKUR
Tónlistarbðk
f BLÁUM SKUGGA-
STUÐMENN
Eftir Stuðmenn og Þórarin Óskar
Þórarinsson. Útgefandi, umbrot og
myndvinnsla: Mál og mynd 2000.
Prentun: Steindórsprent-Guten-
berg ehf. Bókband: Bókfell ehf. 256
blaðsíður.
STUÐMENN eru án efa lífseig-
asta unglingahljómsveit íslandssög-
unnar, og ekki bara unglingahljóm-
sveit, heldur einnig hljómsveit allra
landsmanna, til sjávar og sveita.
Aðdáendur sveitarinnar skipta þús-
undum og í þeim hópi er ekkert kyn-
slóðabil. Það hlýtur því að vera mikill
hvalreki á fjörur Stuðmannaaðdá-
enda að í'á í einum pakka texta við öll
lög sem hljómsveitin hefur gefið út,
með bókstafahljómum og að auki fjöl-
margar myndir af liðsmönnum sveit-
arinnar í leik og starfi.
Þáttur Stuðmanna sjálfra í þessari
bók er vitaskuld stór því þeir eru höf-
undar textanna, sem eru burðarefni
bókarinnar. Textar Stuðmanna hafa
löngum talist til „fagurbókmennta“ í
íslenskri dægurtónlist, svona þegar á
heildina er litið, þótt auðvitað megi
finna þar hnoð og leirburð inn á milli,
sem hejTÍr þó til undantekninga. Hér
verður ekki farið út í lærða úttekt á
kveðskap Stuðmanna, enda hefur
undirritaður hvorki þekkingu né
burði til að gera honum viðhlítandi
skil. Hann játar þó kinnroðalaust að
hann hefur alltaf haft gaman af kveð-
skap Stuðmanna og þeim sérstaka
„stuðmanna-húmor“ sem gjaman
endurspeglast í textunum.
Þórarinn Oskar Þórarinsson,
þekktur sem Aggi, hefur ráðist í það
stórvirki að myndskreyta þessa bók
og heíúr honum tekist það vel að mín-
um dómi. Myndimar em svart-hvítar,
hráar, stundum kaldar, óheflaðar og
hryssingslegar, en hafa þann eigin-
leika að þær fanga blákalt augnablik-
ið eins og það er hverju sinni. í því
felst listræna gildið í myndasmíð
Agga.
Arni Þórarinsson skrifar formála
um Agga undir jdirskriftinni „Beint
af skepnunni" og þar segir meðal ann-
ars:
„Hann er óskólagenginn í faginu,
lærði allt af sjálfum sér. Fyrstu film-
una framkallaði hann samkvæmt
þumalputtareglum sem hann fann í
gamalli ljósmyndabók frá því
skömmu eí'tir stríð, þýddri úr dönsku.
Hann hreifst af myndum Henris
Cai'tier-Bresson og Robei-ts Capa,
vildi tileinka sér einfaldleikann í
myndstíl þeirra. Hann forðast brellur
og brögð og tæknilegar kúnstir. Hann
sker ekki myndir sínar. Þær em beint
af skepnunni."
Um samstarf Agga og Stuðmanna
segir Arni Þórarinsson meðal annars:
,Aggi var nýfluttur heim úr seinni
útlegðinni árið 1998 þegar Egill
Ólafsson orðaði verkefnið við hann
snemmsumars. Hugmyndin var að
gefa út einfalda bók með öllum laga-
textum Stuðmanna, vel á annað
hundrað talsins, ásamt svart-hvítum
Ijósmyndum frá tveimur eða þremur
tónleikaferðum. Aggi komst þó fijótt
að raun um að það dygði ekki. Til þess
að skila verkinu eins vel og hann vildi
yrði hann að kynnast hljómsveitinni
Vestfírskir
sagnameistarar
BÆKUR
Þjnðlcgur tróðleikur
FRÁ BJARGTÖNGUM AÐ
DJÚPI. III. BINDI MANN-
LÍF OG SAGA FYRIR
VESTAN
Ritstjöri: Hallgrímur Sveinsson.
Útg.: Vestfirska forlagið, Hrafns-
eyri, 2000,208 bls.
HÉR ræðir um ritflokk sem nú
kemur út í þriðja sinn og flytur
margvíslegt efni vestan af fjörðum,
einkum úr fortíð en einnig úr nútíð-
inni. Eins og svo mörg héraðsrit á
þessu ári hefst ritið á frásögn frá
kristnitökuafmælinu og myndum
því tengdum. Þar er birt ræða
Ágústu Guðmundsdóttur prófess-
ors við hátíðahöld á Hrafnseyri og
margar myndir eru frá hátíðinni.
En síðan hefja hinir vestfirsku
sagnamenn upp raust sína.
Er farið eftir hreppum, byrjað á
Rauðasandshreppi og endað á
Þingeyrai-hreppi. Ari ívarsson frá
Melanesi ríður á vaðið með einkar
fróðlega og læsilega ritgerð um
kirkjur á Rauðasandi. Gunnar S.
Hvammdal, sem mikið efni hefur
lagt til í fyrri rit í safni þessu, birt-
ir myndaflokk um bændur, búalið
og húsakost í Örlygshöfn árið 1963.
Er það þriðji myndaflokkur hans.
Fleira efni á hann raunar í þessu
riti. Síðan taka „Hafliðarnir“ við og
er þeirra framlag ólítið. Hafliði
Magnússon er mikilvirkastur.
Hann á hér hvorki meira né minna
en fimm frásagnir og ritgerðir. Eru
margar þeirra bráðskemmtilegar
og allar fróðlegar. Hinn „Hafliðinn"
er Hafliði Jónsson, fyrrum garð-
yrkjustjóri Reykjavíkurborgar.
Hann segir hér frá fólki og atvik-
um úr bernsku sinni þar vestra af
mikilli ritleikni og einkar næmri at-
hugunargáfu. Er þar að finna
margar bráðsnjallar mannlýsingar.
Þá er hér sagt nokkuð frá Söngv-
aranum á Bíldudal, Jóni Kr. Ólafs-
syni, og smágreinar eru eftir hann.
Páll Kristjánsson birtir hér langan
þátt, Úr æviminningum Kristjáns
Kristjánssonar hreppstjóra í Stapa-
dal. Halldór G. Jónsson ritar um
sjógarpinn Símon á Dynjanda sem
uppi var á fyrri hluta 19. aldar. Rit-
stjórinn, Hallgrímur Sveinsson,
skrifar smágrein um náttúruperl-
una Dynjandisfoss, enn fremur
Þátt af Þórði G. Njálssyni og
Daðínu Jónasdóttur. Loks er að
nefna nokkra kafla úr Dagbókum
Aðalsteins á Laugabóli (nóv.-des.
1978). í 2. bindi þessa ritsafns
höfðu einnig birst dagbókarbrot frá
þessum sama manni. Þessar dag-
bókarfærslur þykja mér um margt
einstakar og veita sjaldgæfa inn-
sýn. Án þeirra hefði ég ekki viljað
vera.
Mikill fjöldi mynda er í þessu riti
eins og hinum fyrri. Virðist rit-
stjórinn leggja mikla áherslu á
söfnun og birtingu gamalla mynda.
Er það mjög lofsvert og gagnlegt
því að oft segja myndir meiri og
aðra sögu en ritmálið.
Þetta ritsafn er að mínu viti
einkar verðmætt framlag til vest-
firskrar sögu og hlýtur að vera öll-
um kærkomið sem þeim fræðum
unna. Hinir vestfirsku sagnamenn
eru vissulega vel ritfærir og kunna
að segja frá.
Hvað frágang eða umbúnað varð-
ar finn. ég það helst að, að mér
finnst letrið ekki nógu þægilegt og
leturflötur of breiður. Myndlausu
blaðsíðurnar verða æði þungar. Þá
vantar vissulega skerpu í margar
myndanna. Veit ég þó að ekki er
þar alltaf gott til gerðar um gamlar
myndir.
náið. Hann yrði hreinlega að ganga í
Stuðmenn. Óg það varð úr. Stuðmenn
kynntu hann einatt sem áttunda liðs-
manninn. Útgáfunni var frestað og
frá árinu 1999 hefur Aggi verið á ferð
og flugi með Stuðmönnum á vel á ann-
an tug dansleikja og tónleika um land
allt og filmað það sem fyrir augu hans
bar.
Eftir að þeim áfanga samstarfsins
lauk sem birtist í þessari bók sagði
Egill Ólafsson í sjónvarpsviðtali, að
munurinn á Agga og öðrum ijós-
myndurum sem hann hefði unnið með
væri sá að menn vissu ekki af honum,
tækju ekki eftir því að hann væri til
staðar, hann notaði ekki flass og stillti
fólki aldi’ei upp. Samstarfinu er ekki
lokið þótt áfanga sé náð. Stuðmenn
eru eilífir og Jakob Frímann Magn-
ússon hefur útnefnt Agga sem ævi-
ráðinn hirðljósmyndara þeirra.“
Kristján Eldjárn skiifar hugleið-
ingu um „Stuðmenn við lok aldarinn-
ar“ og segir meðai annars: ,ÁHa vega
er ijóst að fræðimönnum framtíðar-
innar ætti að verða mikill fengui- í
þessu veglega riti. Auk frábærra ljós-
mynda Þórarins Óskars er hér loks-
ins búið að koma á prent öllum text-
um Stuðmanna. Ekki nóg með það
heldur eru þeir studdir gítarhljómum
sem eykur óneitanlega á gildi þessa
rits í menntunarlegu tilliti. Þessi bók
verður eflaust notuð í Stuðmanna-
deild Listaháskóla íslands í framtíð-
inni.“
Undir þessi orð er hægt að taka að
því viðbættu, að bókstafahljómamir
við textana nýtast ekki aðeins gítar-
leikurum heldur einnig hljómborðs-
leikurum og nú geta þeir Stuðmanna-
aðdáendur, sem kunna að glamra á
gítar eða hljómborð, en hafa það ekld
í sér að „pikka út“ hljómana sjálfir,
sest niður, glaðst og spilað og sungið
öll Stuðmannalögin af hjartans lyst.
Rétt er að geta þess að með bókinni
fylgir geisladiskur með sjö Stuð-
mannalögum í eins konar „lyftutón-
listar“-útsetningum og er það vel til
fundið.
Sveinn Guðjónsson
Kofareyktur Hamborgarahryggur
Sænsk Julskinka
Svinalundir fylltar med villisveppum
Svínabógur, reyktur og nýr
Svínalæri, reykt og nýtt
Svinaflæskesteg
/ fM M s>
V /?!%***'J
Hreindýramedalíur
Villigæsir
Aligæsir
Aliendur
Andabringur
Rjúpur
Graflamb
Grafin gæs
Reykt gæs
Súiuungar
Heimalagað rauðkál
Sælkera gjafakörfur
Tilboð
• 6 hausa Nicam stereo
IÚrbeinað sauðahangikjöt
Kofareykt hangilæri
Tvireykt sauðafillet
Nýslátraö lambakjöt
Lambageirar fylltir með
koníakssoðnum sveskjum
Magáll
Heitar sósur
Bláberjasósa
Raudvinssósa
Villisveppasósa
• Long play
• NTSC afspllun
• 99 mlnnl
• Tær kyrrmynd
• Hægmynd
Mónó útfærsla á FÍJNAl
14.900 kr. stgr.
Sigurjón Björnsson