Morgunblaðið - 20.12.2000, Qupperneq 54
54 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Kristileg i ólagj öf?
NYLEGA birtist hér í blaðinu
grípandi frásögn ungrar konu sem
átti leið til Indlands og tók með sér
sendingu til barns á E1 Shaddai-
barnaheimilinu við Madras. Það er
fósturheimili þar sem munaðarlaus
og yfirgefin böm fá umönnun og
uppeldi.
Þetta líknarstarf er fjármagnað af
íslenskum samtökum, ABC-hjálpar-
starfí. Heimili litlu ljósanna er sömu-
leiðis rekið fyrir fjárframlög frá
ABC. Þar fá fátæk böm að alast upp
i öryggi og eiga þess kost að njóta
' menntunar sem tryggir þeim bjart-
ari framtíð en annars biði þeirra.
Fjölmargir íslendingar eiga þar
fósturböm sem studd eru með reglu-
bundnum framlögum til framfærslu.
Fyrir ótrúlega lága upphæð er séð
fyrir öllum þörfum viðkomandi
barns. Fæði, klæði og menntun er
innifalið í framlaginu og aðeins einn
stuðningsaðili styrkir hvert bam.
Þörfin fyrir slíka hjálp er gríðar-
leg á Indlandi. Jafnvel á heimili litlu
ljósanna bíða enn um 300 böm eftir
því að einhver taki þau að sér gegn-
ABC-hjálparstarf
Hvert barn sem fær von
og framtíðarsýn, segir
Olafur Jóhannsson, er
liður í því að breyta
veröldinni, styrkja
kærleikann og opna
vilja Guðs víðar leið.
um ABC-hjálparstarf.
Við eram að undirbúa jól. Boð-
skapur kristinnar trúar er rétt-
nefndur fagnaðarerindi. Það þýðir
góðar fréttir, gleðitíðindi. Kristin jól
era sannkölluð gleðihátíð því að son-
ur Guðs kom í heiminn til að vera
frelsari mannanna.
Látum kjarna jólanna aldrei týn-
ast með þvi að leggja ofuráherslu á
ytra umstang, skraut og hreingern-
ingu, gjafir og mat. Aðalatriðið er
Bindindi er
hamingjuleið
Á SAMA tíma og
hundraðum milljóna
króna er varið til bar-
áttunnar gegn tiltekn-
um fíkniefnum, er eit-
urlyfið áfengi, sem
mestum skaða og böli
-veldur, látið óáreitt og
markvisst af stjóm-
völdum ÁTVR, sumum
fjölmiðlum og fleiram
unnið að kynningu þess
og útbreiðslu. Árang-
urinn kemur svo fram í
stóraukinni áfengis-
drykkju og um leið
aukningu á þeim marg-
víslega ófamaði, sem
áfenginu fylgir.
Er engu líkara en ráðamenn láti
sér í léttu rúmi liggja þær fórnir,
sem færðar era á altari Bakkusar.
Virðist hann vera Guð margra
þeirra, sem ber að tigna, enda óspart
hampað í opinberam samkvæmum
ogvíðar.
Til marks um þann lúmska áróður,
sem rekinn er fyrir neyslu áfengra
drykkja má t.d. benda á eftirfarandi:
Oft um helgar eru langar og mynd-
skreyttar greinar í Morgunblaðinu
um hinar ýmsu áfengistegundir og
dásamað „sakleysi" hinna léttu vína,
sem hafa þó orðið mörgum að falli,
enda oft upphaf ógæfuferilsins á
svelli Bakkusar. Þá var nýlega löng
grein í sama blaði um starfsemi
ÁTVR. Þar kom m.a. fram, að kynn-
ingar yrðu fyrir jólin í verslunum
fyrirtækisins á ýmsum vmtegundum
og miklast yfir því, að ÁTVR væri
það eina af ríkiseinkasölum áfengis á
Norðurlöndum, sem tekið hefði upp
netverslun með áfengi.
Áfengið er rót
fíkniefnavandans
Þetta fyrirbæri, áfengiskaup
gegnum Netið, þótti svo miklum tíð-
indum sæta hjá ríkissjónvarpinu og
fjármálaráðherranum, að hann lét
birta mynd af sér með viðtali í aðal-
fréttatíma sjónvarpsins, er hann tók
á móti fyrstu áfengisflöskunni, sem
hann mun hafa pantað í gegnum
Netið. Það er táknrænt um frétta-
mat sjónvarpsins og undirlægjuhátt-
inn við Bakkus, að sama dag og þessi
frétt birtist á skjánum, hafði farið
ýfam látlaus og virðuleg athöfn í
Reykjavík til að minnast nær 100 ára
ómetanlegs líknar- og mannúðar-
starfs hér á landi að viðstöddum for-
seta íslands. Um þá athöfn var þag-
að í ríkissjónvarpinu, meðan
fjármálaráðherrann fékk að gleðjast
yfír sendingu flöskunnar sinnar.
Áfengið er eldsneyti fikniefna-
vandans og helsti hvatinn að neyslu
Árni
Gunnlaugsson
„ólöglegra fíkniefna".
Að vegsama og út-
breiða vínneyslu, en
vilja um leið í orði út-
rýma öðram eiturlyfj-
um er líkast því að
reyna að slökkva eld
með olíu, sem engum
hefur tekist. Það verð-
ur því að ráðast gegn
rótum vandans, ef ná
skal takmarkinu um
„ísland án eiturlyfja".
Gott fordæmi er
mikilvægast
Ef að líkum lætur, á
áfengið eftir að spilla
helgi og friði komandi
jóla á mörgum heimilum. Fólk ætti
því að varast að lát ginnast af áróðri
áfengispostulanna. Og vart gefa
menn sjálfum sér og öðram betri og
kristilegri jólagjöf og það án fjárút-
láta en að velja sér bindindi til halds
og trausts á lífsleiðinni. Það er
happasælast og hið hollasta vega-
nesti. Bindindi er eftirsóknarverð
hamingjuleið.
Ef takast á að draga úr áfengis-
drykkju og því mikla böli, sem henni
Áfengi
Afengið, segir Arni
Gunnlaugsson, er elds-
neyti fíkniefnavandans.
er samfara, er mikilvægast að sýna
gott fordæmi í eigin lífi og hefja her-
ferð gegn drykkjutískunni. Því ættu
ráðamenn, foreldrar, þjónar kirkj-
unnar og aðrir uppalendur að minn-
ast eftirfarandi sannleiksorða, sem
Karl Marthinussen, biskup Norð-
manna, beindi í ávarpi til norskrar
æsku: „Ég fullyrði, að meðal okkar
mannanna er enginn lævísari óvinur,
enginn hættulegri gleði- og gæfu-
spillir en sá, sem fylgir hinni út-
breiddu áfengistísku."
Það stoðar lítt að hneykslast á
framferði unglinga, meðan hinir full-
orðnu gleyma gömlum og sígildum
uppeldisaðferðum eins og kemur
fram í eftirfarandi orðum gríska
heimspekingsins Plato: ,Áminning-
ar koma að litlu haldi, heldur hitt, að
þeir sjái, að vér gerum það, sem vér
vildum áminna þá um að gera.“
Að sýna gott fordæmi er lítil fórn
og kostar ekkert nema einlægan
vilja. Megi sem flestum takast það
og njóta gleðilegra jóla.
Hötundur er lögmaður (Hafnarfirði.
auðvitað að taka á móti honum sem
er konungur jólanna, frelsaranum,
Jesú Kristi.
Aðventa þýðii’ einmitt koma og
minnir á að hann, sem kom í heiminn
sem fátækt og óvel-
komið bam fyrir 2000
árum, kemur sannar-
lega aftur til okkar.
Á fyrstu síðum
Biblíunnar er borin
fram spurningin
fræga: Á ég að gæta
bróður míns? Það sem
eftir er Biblíunnar er
þeirri spurningu svar-
að afdráttarlaust ját-
andi. Það gerir Jesús
t.d. í verki með fram-
komu sinni við þá sem
halloka höfðu farið í
því þjóðfélagi. Það
kemur líka skýrt fram
í boðskap frelsarans,
svo sem í gullnu regl-
unni og dæmisögunum um miskunn-
sama Samverjann og um sauðina og
hafrana. Og hann segir: Það, sem þú
hefur gert einum þessara minna
minnstu bræðra, það hefur þú gert
mér. En líka: Það, sem þú hefur ekki
gert einum þessara minna minnstu
bræðra, það hefur þú ekki gert mér.
Það minnir okkur á að aðgerða-
leysi, vanræksla og eigingimi, er al-
varlegur hlutur í augum Guðs.
Á aðfangadagskvöld getum við
vonandi glaðst með fjölskyldum og
vinum. Með þeim viljum við deila
gleði okkar.
Sumir era ekki svo lánsamir að
eiga ástvini til að gleðjast með.
Margir um víða veröld hafa engin
tök á að gera sér dagamun þótt jólin
sjálf séu gengin í garð. Þá era ótalin
þau öll sem halda ekki
kristin jól af því að þau
þekkja ekki Guð, vita
ekki að frelsari er fædd-
ur, hafa aldrei kynnst
gleðiboðskap kristinnar
trúar.
Gæðum heimsins er
hróplega misskipt, bæði
efnislegum gæðum og
andlegum. Meðan við
njótum og fögnum á jól-
um heyja systkini okkar
um víða veröld baráttu
fyrir lífi sínu, baráttu
upp á líf og dauða.
Verst era blessuð
Ólafur bömin sett. Meðan við
Jóhannsson höldum aðfangadags-
kvöld munu deyja í
heiminum jafnmörg böm og sem
nemur íbúum eins af stærri kaup-
stöðunum á Islandi. Þau deyja úr ör-
birgð og sjúkdómum sem stafa
vissulega af fáfræði, en þó aðallega
af mannlegri grimmd og eigingirni.
Þessu breytum við auðvitað ekki í
einu vetfangi. En það er engin afsök-
un fyrir því að láta sem ekkert sé.
Sem kristið fólk eram við kölluð til
að bera ábyrgð á náunga okkar, hver
sem hann er og hvar sem hann er.
Við getum því miður ekki hjálpað
öllum sem líða skort en við leggjum
okkar lóð á vogarskálarnar til þess
að vilji Guðs verði, ríki hans komi og
nafn hans helgist.
Um það snýst ABC-hjálparstarf.
Hvert barn sem fær von og framtíð-
arsýn er liður í því að breyta veröld-
inni, styrkja kærleikann og opna
vilja Guðs víðar leið.
Væri það ekki besta og sannasta
jólagjöfin í allsnægtasamfélagi okk-
ar, þar sem flestir eiga allt og erfitt
er að koma öðram á óvart með gjöf-
um í formi ytri hluta, að gefa vin-
unum aðild að viðleitni okkar til að
bæta hag þeirra sem ver eru sett?
Ég gæti t.d. skráð vininn fyrir
einu barni, borgað fyrstu þrjá mán-
uðina og beðið hann um að taka við
eftir það? Hann þyrfti þá hvorki að
skipta bók né eiga geisladisk sem
honum líkar ekki né finna stað undir
listaverk sem fellur ekki í kramið,
heldur yrði gjöfin sú blessun sem
fylgir því að miðla til annarra í kær-
leika.
Því þangað til Jesús kemur aftur
mætir hann okkur ekki hvað síst í fá-
tækum, jafnvel óvelkomnum börnum
og með því að taka á móti einu slíku
barni, tökum við á móti honum sjálf-
um.
Guð gefi okkur öllum fagnaðarríka
jólahátíð og varanlega jólagleði!
Höfundur er sóknarprestur í
Grensásprestakalli.
*
Island hagnast
á aðild að ESB
reynslu.
veitt svo
landhelgi
MEÐ inngöngu ís-
lands í ESB yrði ís-
land hluti af stærsta
viðskiptaveldi í heimi.
ísland fengi aðgang að
fleiri viðskiptasaming-
um en það gæti
dreymt um að ná. Allir
tollar og höft féllu nið-
ur og viðskipti milli
ESB-ríkja og íslands
myndu stóraukast. Er-
lend fyrirtæki yrðu
fúsari til að fjárfesta
hér á landi. Verð til
neytenda myndi stór-
lega lækka og almenn- _ Ágúst
ingur yrði fljótt var við Ágústsson
lægra verð á matar-
körfunni þar sem verð á nauðsynja-
vöram er um 40% hærra hér en er í
nágrannaríkjum okkar í ESB.
Gríðarlegur vaxtamunur
og fyrirtækjaflótti
í síðasta ársfjórðungsriti Seðla-
banka íslands kemur fram að ís-
lensk fyrirtæki skulda í bankakerf-
inu um 730 milljarða og íslensk
heimili skulda um 560 milljarða.
Vextir hér á landi era rúmlega 10%
en innan ESB era þeir meira en
þriðjungi lægri. Miðað við 10% vexti
era vaxtagjöldin um 130 milljarðar á
ári. Þriðjungi lægri vextir þýða að
vaxtagjöldin yrðu um 40 milljörðum
króna lægri. Þar sem hluti af þess-
um skuldum er hjá erlendum aðilum
og vaxtaprósentan ónákvæm má
varlega áætla að fjárhagslegur
ávinningur við inngöngu í ESB sem
einungis varðar vextina sé á bilinu
25-30 milljarðar fyrir íslensk fyrir-
tæki og heimili. Það er hærri fjár-
hæð en sem íslenska ríkið ver í allt
menntakerfið og í utanríkisþjón-
ustuna samanlagt.
Tækju Islendingar síðan þátt í
myntbandalagi ESB myndi það
stuðla að enn lægri vöxtum og aukn-
um stöðugleika. Sameiginlegur
gjaldmiðill stuðlar að meiri fjárfest-
ingum og dregur úr verðbólgu. ís-
lensk fyrirtæki búa nú við sveiflur í
afkomu vegna gengissveiflna ís-
lensku krónunnar og kostar það
milljarða á hverju ári. Einnig kostar
marga milljarða að halda úti eigin
gjaldmiðli sem margir telja vera
handónýta mynt sem hvergi er gild-
ur gjaldmiðill nema á íslandi.
Fyrirtæki innan evr-
usvæðisins kjósa að
eiga viðskipti sín á milli
fremur en að versla við
fyrirtæki utan svæðis-
ins og era nú þegar til
dæmi um að fyrirtæki
flytji sig frá íslandi yf-
ir á evrasvæðið.
Sj ávarútvegsstefna
ESB er Islendingum
hliðholl
Það er mikill mis-
skilningur meðal þjóð-
arinnar um sjávarút-
vegsstefnu ESB.
Sjávarútvegsstefna
ESB er byggð á veiði-
Ekkert ríkja ESB hefur
neinu munar í íslenskri
undanfarna tvo áratugi og
ESB-aóild
Ávinningur við inn-
göngu í ESB, segir
* *
Agúst Agiístsson, er
á bilinu 25-30 milljarðar.
því hafa önnur ríki enga veiði-
reynslu í íslenskri lögsögu. Þetta
þýðir að við inngöngu okkar inn í
ESB munu íslendingar áfram sitja
einir að öllum veiðum í íslenskri lög-
sögu.
Ráðherraráð allra sjávarútvegs-
ráðherra ESB tekur endanlega
ákvörðun um heildarafla innan
ESB. Það gerir ráðherraráðið eftir
að hafa fengið tillögur frá þeim vís-
indamönnum sem hafa þekkingu á
viðkomandi fiskistofnum. Tillögur
varðandi íslensku fiskistofnana
verða því í höndum íslenskra vís-
indamanna.
Núna er ákvörðun um leyfilegan
heildarafla tekin hér á landi með
svipuðum hætti, þ.e. sjávarútvegs-
ráðherra fær tillögur vísindamanna
Hafrannsóknarstofnunarinnar. Eini
munurinn eftir inngöngu okkar inn í
ESB er að hin „formlega" ákvörðun
verður tekin í Brassel en ekki í
Reykjavík. Ráðgjöfin verður áfram í
höndum Hafrannsóknarstofnunar-
innar á íslandi.
Tillögur íslenska sjávarútvegs-
ráðherrans yrðu samþykktar í ráð-
herraráðinu án nokkurra athuga-
semda þar sem engin önnur þjóð en
íslendingar eiga hagsmuna að gæta
við þessa ákvörðun vegna reglunnar
um veiðireynslu.
Eftir að ríkjum hefur verið út-
hlutað veiðiheimildum ræður sér-
hvert þeirra hvernig það ráðstafar
sínum veiðiheimildum. Ríkin sjálf
annast eftirlit samkvæmt nálægðar-
reglu ESB og geta þau sett strang-
ari reglur um veiðar og verndarað-
gerðir en ESB mælir fyrir um.
fslenskur sjávarútvegur
hagnast á ESB-aðild
Varðandi fjárfestingar útlendinga
í íslenskum sjávarútvegi má velta
því fyrir sér hvort það sé svo slæmt
að fá erlent fjármagn inn í íslenskan
sjávarútveg. Margir telja það betra
að fá erlent fjármagn í formi hluta-
fjár í íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
heldur en erlent lánsfé. Bann við
fjárfestingu útlendinga í íslenskum
sjávarútvegi skaðar samkeppnis-
stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrir-
tækja og rýrir þau sem álitlegan
fjárfestingarkost.
í ESB geta aðildarn'ki gert kröfu
um að sjávarútvegsfyrirtæki hafi
raunveraleg og sterk tengsl við
efnahag þess ríkis sem það fær
kvóta frá. Þannig er komið í veg fyr-
ir að kvóti og störf færist frá svæð-
um sem reiða sig á fiskveiðar og
liggja dómar í þeim efnum fyrir.
Bretar og fleiri þjóðir hafa gripið til
þessara leiða til að koma í veg fyrir
kvótahopp.
Auk þess er tekið sérstakt tillit í
ESB til svæða sem era mjög háð
fiskveiðum. Öllum er ljóst að þar
njóta íslendingar algjörrar sérstöðu
en sjávarútvegur er innan við 1% af
landsframleiðslu ríkja ESB.
Með þátttöku í sjávarútvegs-
stefnu ESB opnast gríðarleg tæki-
færi fyrir íslensk sjávarútvegsfyr-
irtæki. Það verður greiðari
aðgangur að erlendum sjávajút-
vegsfyrirtækjum þar sem íslensk
þekking á sjávarútvegi nýtur sín og
aukið fjármagn til nýsköpunarverk-
efna. Énnfremur verða veiðimögu-
leikar víða um heim þar sem ESB
hefur samið um veiðiheimildir við
strendur 27 ríkja.
Nýgert samkomulag í Nice rýi-ir í
engu möguleika íslands við inn-
göngu í ESB að móta hina sameig-
inlegu sjávarútvegsstefnu og
tryggja þannig hagsmuni íslenskra
sjávarútvegsíýrirtækja sem selja
stærstan hluta framleiðslu sinnar á
Evrópumarkaði.
Höfundur er laganemi og varafor-
maður Ungrajafnaðarmanna.