Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 56
>6 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Hjálmar klórar
í hálan bakkann
HJÁLMARI Árna-
syni, alþingismanni,
hefur hlotnast það öf-
undsverða hlutskipti
eða hitt þó heldur að
vera málsvari Fram-
sóknarflokksins í fjar-
siuptamálum. I grein í
Morgunblaðinu föstu-
daginn 15. des. sl.
reynir Hjálmar að
klóra í bakkann fyrir
Framsóknarflokkinn.
Tilefnið er grein frá
mér sem birtist í
sama blaði nokkru áð-
ur þar sem ég varaði
mjög við fyrirhugaðri
einkavæðingu Lands-
símans. Tvennt blasir við; hið
fyrra að Framsóknarflokkurinn er
flatur eins og útbreidd laufa-
brauðskaka undir valtara frjáls-
hyggjuaflanna i Sjálfstæðisflokkn-
um. Hið síðara að í þeim fáu
X^vikum sem Framsóknarflokkur-
inn hefur haft uppi tilburði til and-
ófs lekur hann alltaf niður að lok-
um. Um það er Landssíminn eitt
besta dæmið. Ekki er langt síðan
að framsóknarmenn voru hinir
kokhraustustu og töluðu opinskátt
um að ekki kæmi til greina af
þeirra hálfu að einkavæða Lands-
símann öðru vísi en að undanskilja
grunnnetið til þess að tryggja
stöðu landsbyggðarinnar. Nú blas-
ir uppgjöfin við.
Steingrímur J.
Sigfússon
Mín fyrsta hugsun,
þegar ég sá grein
Hjálmars, var að
hann ætti hrós skilið
fyrir hetjuskapinn að
reyna að halda uppi
vörnum fyrir snaut-
legan málstað Fram-
sóknar. Það var ekki
fyrr en ég las grein-
ina aftur og betur að
ég fór að staldra við
nokkrar svo ótrúlegar
rangfærslur og vísvit-
andi afbakanir í um-
fjöllun þingmannsins
og fyrrverandi skóla-
meistara um grein
mína að það fóru að
renna á mig tvær grímur.
Hér á eftir verða tíunduð fjögur
dæmi um hreinar rangfærslur sem
Hjálmar hefur uppi í grein sinni.
Verður þar ekki byggt á huglægu
mati heldur bornir saman textar
með beinum tilvitnunum úr svar-
grein Hjálmars og úr upphaflegri
grein minni.
1. Hjálmar segir „hann (Stein-
grímur) sleppir því vísvitandi að
vitna til reynslunnar af einkavæð-
ingu símafyrirtækja í öllum ná-
grann$löndum okkar“. Þessi tilvís-
un í blaðagrein mína er röng. Ég
nefni einmitt að samanburður við
einkavæðingu í fjarskiptamálum
annars staðar sé ekki raunhæfur
vegna gjörólíkra aðstæðna hér og
Fjarskipti
I grein Hjálmars voru
rangfærslur og vísvit-
andi afbakanir, segir
Steingrímur J. Sigfús-
son og ber hér saman
textann með beinum til-
vitnunum úr grein
Hjálmars og úr upp-
haflegri grein sinni.
þar. Ég segi í minni grein: „Sam-
anburður við einkavæðingu í fjar-
skiptageiranum í erlendum stór-
borgum og hjá milljónaþjóðum í
þéttbýlli löndum á hér ekki við og
er óraunhæfur."
2. Um stöðu Framsóknar í mál-
inu segir Hjálmar eftirfarandi: „í
öðru lagi fullyrðir Steingrímur J.
að Framsókn hafí gefíð eftir.
Þarna fer hann einnig vísvitandi
með rangt mál enda markmið hans
með slíkum yrðingum augljóst."
Um andstöðu framsóknarmanna
við að selja Landssímann í heilu
lagi, þangað til þeir láku niður,
vitna fjölmargar fréttir og viðtöl
úr fjölmiðlum og oftar en ekki ein-
Hverniff verðleggur
þú frftíma þinn?
A RAÐSTEFNU
Atvinnumálanefndar
Akureyrar sem haldin
var þann 25. nóvember
sl. voru kjmntar nið-
urstöður lífskjararann-
sóknar sem Gallup og
Ráðgarður fram-
4<f.Tæmdu fyrr á árinu.
Rannsóknin hafði það
að meginmarkmiði að
finna og rannsaka þá
þætti sem taldir eru til
almennra lífsskilyrða
og bera þá þætti svo
saman á höfuðborgar-
svæðinu annars vegar KrisijánÞúr
og á Akureyri hins Júlíusson
vegar. Margt forvitni-
legt kemur fram í þessari rannsókn
en það sem hefur vakið mestan
áhuga eru niðurstöður launasam-
anburðar þessara tveggja svæða.
Fleiri vinnustundir
að baki syðra
. Jilíkur samanburður er ætíð erf-
iður og á það vissulega við í þessu
tilfelli. Heildarlaun fyrir skatta eru
ágætlega samanburðarhæf stærð
en jafnframt ber að taka tillit til
annarra þátta þegar laun svæðanna
eru borin saman. I því efni er fjöldi
vinnustunda að baki launum mik-
ilvægt atriði. Þegar nánar er að gáð
kemur í ljós að fleiri vinnustundir
liggja að baki launatölum hjá ein-
staklingum á höfuðborgarsvæðinu
en á Akureyri.
I töflu 1 eru upplýs-
ingar könnunarinnar
um heildarlaun kvenna
á höfuðborgarsvæðinu
og á Akureyri fyrir
skatta og ennfremur
er borinn saman
vinnutími kvennanna á
þessum tveim svæðum
Tafla 1. Heildarlaun
og vinnutími kvenna.
Ef launum er síðan
deilt niður á vinnu-
stundir og gert ráð
fyrir 4,33 vikum í mán-
uði, líkt og launa-
útreikningar taka mið
af, fást aðrar niður-
stöður sem dregnar
eru saman í töflu 2.
Tafla 2. Tímalaun og hlutfalls-
legur mismunur á launum kvenna.
Ef bornar eru saman niðurstöður
á launum karla á Akureyri og höf-
uðborgarsvæðinu með sama hætti
og hjá konum, fást þær niðurstöður
sem tafla 3 dregur fram:
Tafla 3. Heildarlaun og vinnutími
karla.
Tafla 4. Tímalaun og hlutfalls-
legur mismunur á launum karla.
Niðurstöður rannsóknarinnar
draga fram að konur á höfuðborg-
arsvæðinu hafa u.þ.b. 24.000 kr.
hærri laun á mánuði en kynsystur
þeirra fyrir norðan en konur á Ak-
ureyri vinna að meðaltali um 14,5
klst. skemur á mánuði. Launamun-
ur karlanna er um 39.000 kr. á
Atvinnumál
Akureyri býður
fjölskylduvænt um-
hverfí, segir Kristján
Þór Júlíusson.
Vinnustundir og laun A Akureyri og höfuðborqarsvæðinu
Akureyri Höfuðb.sv. Mismunur
1. Heildarmánaðarlaun fyrir skatta Vinnustundir á viku (konur) 101.100 kr. 33,6 st. 125.100 kr. 37,2 st. 24.000 3,6
2. Tímalaun Hlutfallslegur mismunur (konur) 694 kr. 776 82 11,8%
3. Heildarmánaðarlaun fyrir skatta Vinnustundir á viku (karlar) 216.000 kr. 49,1 st. 254.000 kr. 51,5 st. 38.000 2,4
4. Tímalaun - Hlutfallslegur mismunur (karlar) 1.015 kr. 1.142 kr. 127 12,5%
mánuði, hærri laun á höfuðborg-
arsvæðinu en vinnutími norð-
lenskra kynbræðra er tæpum 10
klst skemmri á mánuði.
Fjölskyldu-
vænir þættir
Vissulega er launamunur milli
þessara svæða of mikill og ég álít
að vinna þurfi að því að draga svo
sem kostur er úr þessum mun. Ég
geri mér þó jafnframt Ijóst að þeim
veruleika verður ekki snúið við í
einu vetfangi. Ég er þess fullviss að
með aukinni samkeppni í verslun og
þjónustu hér í bæ ásamt stækkun
byggðarlags okkar, mun launamun-
ur þessara tveggja svæða dragast
saman. „Bónus“ Akureyringa mun
felast í þeirri staðreynd að „Nettó“
frítími einstaklinga verður alltaf
meiri hér en þar, vegna skemmri
vinnutíma, styttri vegalengda,
minni umferðar og annarra fjöl-
skylduvænna þátta.
Við umræðu um launamun á milli
svæða verður að hafa í huga að
framangreind atriði eru nú metin
meira virði en áður var og frítími
einstaklinga og fjölskylduvænt um-
hverfi eru ekki síður mikilvægir
þættir en launatalan ein og sér.
Hér er um að ræða afgerandi þátt
sem ungt fjölskyldufólk metur til
verðmæta í dag. Frístundir eru tak-
mörkuð auðlind sem fólk metur
ekki sem einskisverða „afgangs"
stærð.
Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri.
mitt við Hjálmar Árnason. Það er
þó nærtækast að vitna í það sem
hann sagði um nákvæmlega þetta
mál á Alþingi 27. apríl sl.: „Hcrra
forseti. Landssíminn er ráðandi á
íslenskum fjarskiptamarkaði og
drottnar yfír nýjum fyrirtækjum
sem reyna að hasla sér völl á
þessu sviði. Verði hann seldur í
einu lagi er einfaldlega verið að
reyna að koma á Microsoft-ástandi
á Islandi. Eg vara við því.
Tækni á fjarskiptamarkaði
fíeygir mjög hratt fram. Þess
vegna spretta upp ný fyrirtæki,
því má segja að að sumu leyti sé
rökrétt að ríkið dragi sig út úr al-
mennum rekstri fjarskipta. Hins
vegar fer sá rekstur fram að
mestu um grunnnet Landssímans
þ.e. dreifíkerfíð. Ég hef enn ekki
séð rök fyrir öðru en því að ríkið
eigi áfram netið og leyfí fyrirtækj-
um að keppa þar og veita lands-
mönnum öllum sem besta þjónustu
rétt eins á þjóðvegum landsmanna.
Þannig tryggjum við jafnan að-
gang landsmanna að fjarskiptum,
þannig tryggjum við áframhald-
andi eðlilega þróun á sviði fjar-
skipta og þannig komum við í veg
fyrir að hér á landi skapist Micro-
soft-ástand í fjarskiptum." Þarf
frekari vitna við um hver hefur
lekið niður í málinu?
3. Hjálmar telur málflutning
minn dapurlegastan og öfgakennd-
an og ómálefnalegan þegar kemur
að því að ræða stöðu landsbyggð-
arinnar. Hann endursegir um-
fjöllun mína um það atriði m.a. á
eftirfarandi hátt: „Hann (Stein-
grímur) segir m.a. að Landssíminn
sé eina fyrirtækið sem hafí burði
til að halda uppi dreifíkerfí til allr-
ar Iandsbyggðarinnar“. Þarna er í
besta falli um ónákvæma endur-
sögn á mínu máli að ræða. Það
sem ég segi um þetta atriði í
blaðagreininni er eftirfarandi
„Landssíminn er eini aðilinn sem
hefur tæknilega möguleika á að
veita þjónustu út um allt land og
mætti hún þó svo sannarlega vera
betri. Ekki er fyrirsjáanlegt að á
næstu árum komi nokkur annar
aðili til sögunnar sem hafí yfir að
ráða dreifíkerfi eða grunnneti sem
í aðalatriðum taki til landsins alls.“
Síðan bætir Hjálmar við og spyr:
„En hver er staðan í dag?“ Og
virðist svo í textanum ganga út frá
því að ég telji ástandið gott. Sú
ályktun er sömuleiðis röng sbr. áð-
urnefnda tilvitnun í mína grein þar
sem ég segi: „og mætti hún (stað-
an) þó svo sannarlega vera betri.“
4. Loks leggur Hjálmar út af
gjaldskrármálunum. Um það segir
hann eftirfarandi: „Steingrímur
a.m.k. lætur sem hann viti ekki af
því að landið er nú orðið eitt
gjaldsvæði í símtölum og gagna-
flutningur hefur lækkað á milli
landshluta um tugi prósenta og fer
enn lækkandi." Hér er enn einn
umsnúningurinn á ferðinni. Um
einmitt þetta atriði segi ég og er
þá að ræða það sem gera eigi í
þessum efnum, þ.e. að beita afli
Landssímans til að ljúka fullnægj-
andi uppbyggingu dreifikerfis um
allt land. Síðan segir: „í öðru lagi
á að tryggja í lögum og fram-
kvæmd að landið allt verði eitt
gjaldsvæði í öllum fjarskiptum
eins og það er orðið í almennri
símaþjónustu" (skáletrun mín).
Lesendur góðir, ég þarf tæpast
að tíunda fleiri dæmi. Við menn,
sem meðhöndla staðreyndir með
þessum hætti, er að sjálfsögðu til-
gangslítið að rökræða enda er
þessi svargrein mín ekki til slíks
ætluð. Megi það vera öðrum til
viðvörunar að benda á hvernig
Hjálmar undirbyggir sinn mál-
flutning er hins vegar til nokkurs
unnið.
Ágætur frændi minn fyrir norð-
an sagði einu sinni að það væri
vont ef hroðvirkir menn væru
mjög duglegir því þá gerðu þeir
svo mikið - illa. Það má svo sann-
arlega þakka fyrir að Hjálmar
Árnason er ekki afkastamikill við
skriftir.
Höfundur er formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs.
Ætlar þu að sauma jólafötin?^
Komdu og skoðaðu úrvalið af fataefnum hjá okkur.
VIRKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477
www.virka.is
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18.
Lau. 23/12 tii kl. 20.
, Brúðhjón
Allin I)oióblinaöur - GIæsi 1 e(j gjaIavaia - Briiöhjónalislar
JyC-M :/)X\\^. VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.