Morgunblaðið - 20.12.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 1},
Hvert stefnir
Sj álfstæðisflokkurinn?
Frá Hilmarí Jónssyni:
VERKFALL framhaldsskólakenn-
ara hefur nú staðið í sex vikur. Eng-
inn vilji er hjá Geir Haarde fjár-
málaráðherra og
Davíð Oddssyni
forsætisráðherra
að semja enda
þótt kröfur kenn-
ara séu upp á
samsvarandi laun
og annað há-
skólamenntað
fólk hefur þegar
fengið. Á sama
tíma afhendir
mennntamálaráð-
herra manni móðurmálsverðlaun
sem mest hefur nítt ástmög þjóð-
arinnar, Jónas Hallgrímsson. Þetta
er ekki einn einstakur atburður
stjórnvalda, að koma höggi á menn-
ingararfleifð þjóðarinnar. í þessum
mánuði voru tilkynntir nýir heið-
ursverðlaunahafar listamannalauna.
Þar á meðal var maður sem í sinni
frægustu bók fer mjög niðrandi orð-
um um Hallgrím Pétursson.
Orðfimasti blaðamaður landsins,
Oddur Ólafsson, kallar núverandi
menntamálaráðherra, Björn
Bjarnason, höfuðtalsmann komm-
únista í ríkisstjórninni og Ríkisút-
varpið, sem menntamálaráðherra
ber ábyrgð á, segir Oddur að sé „of-
ursnyrt hóra“ (kjallaragrein í Degi,
13. okt. siðastliðinn). Af hálfu sjálf-
stæðismanna eru uppi samæfðar til-
raunir að eyðileggja skólakerfið og
innleiða síðan einkaskóla. Þar skulu
í hávegum hafðar kennslubækur í
íslenskum bókmenntum þar sem
meðal annarra Þorsteins Valdimars-
sonar, Jóns Dan, Arnar Arnarsonar
og Kristjáns frá Djúpalæk er hvergi
getið, eins og gert er í seinustu
fræðslubók Vöku Helgafells um
þetta efni. Jafnframt skal aukin og
endurbætt lofgerðarvella um Megas
og Guðberg. Mun Heimi Pálssyni
væntanlega falið það verk og líklegt
að hann fái fyrir það svipuð laun og
bankastjóri Framkvæmdabankans
skammtaði sjálfum sér.
Ekki fer á milli mála, að alþjóð
hefur tekið eftir aðför nokkurra
lækna að heilbrigðiskerfinu. En stór
einkaspítali, þar sem fom'kt fólk
nýtur forréttinda, hefur lengi verið
á dagskrá heilbrigðisnefndar Sjálf-
stæðisflokksins. Þetta er gert til að
auka þjónustu í heilbrigðisgeiranum
að sögn útsendara einkavæðingar-
sérfræðinga hjá fjölmiðlum. Er
öruggt að sá eða sú, sem best og
fjálglegast getur lýst þessari móð-
ursýki, fái næstu móðurmálsverð-
laun menntamálaráðherra.
Er nú komið að stóru bombunni:
Sölu á Ríkisútvarpinu eða hinni „of-
ursnyrtu hóru“. Líklegur sölustjóri
er frú Sólveig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra, sá ráðherra sem
staðið hefiu- sig best að fjölga
„gleðihúsum og -konum“ í landinu.
Þegai' þetta verður komið í kring
telja menn fullvíst að Gallup og
Hannes Hólmsteinn muni tilkynna,
að Davíð Oddsson og flokkur hans,
Sjálfstæðisflokkurinn - flokkur
allra stétta - flokkur einkavæðingar
og Guðs almáttugs á Islandi sé
kominn í 70% fylgi meðal þjóðarinn-
ar.
HILMAR JÓNSSON
rithöfundur.
Býr eitthvað sameiginlegt
að baki hinu sundurleita?
Frá Atla Hraunfjörð:
í BÓKINNI Markmið og leiðir eftir
Aldous Huxley, útgefin af Menning-
arsjóði 1940, segir í kaflanum
Trúarsiðh' á bls. 186. „Saga hug-
myndanna er að miklu leyti sagan
um ranga skýringu á þeim. Frábær
maður segir frá lífi sínu eða setur
fram í ljósi reynslu sinnar, kenningu
um eðli heimsins. Aðrir menn sem
ekki eru sömu gáfum gæddir og
hann, lesa það, sem hann hefir skrif-
að, og af því að þeir eru andlega
öðruvísi gerðir en höfundurinn,
skilja þeir ekki hvað hann á við.“ Og
á bls. 206. „Oss hungrar og þyrstir
eftir skýringu, og fyrir mannsand-
ann er skýring í því fólgin, að finna
eitthvað sameiginlegt bak við fjöl-
breytnina. Hver sú kenning, er
heldur því fram, að eitthvað sameig-
inslegt búi að baki hins sundurleita,
virðist í eðli sínu sennileg. Náttúran
virðist fullnægja kröfum mannsand-
ans, því að rannsókn leiðir í ljós, að
undirstaða þess, sem virðist sund-
urleitt, er eitthvað, sem er samt við
sig.“ Á hugann leitar dr. Helgi Pjet-
urss og ýmislegt úr kenningum
hans, um að eitthvað sameiginlegt
búi að baki hinu sundurleita. Hvað
er t.d. sameiginlegt með miðilstali,
draumi, hugboðum, dáleiðslu, ýms-
um skynjunum, eins og t.d. skyggni.
Án dýpri þekkingar á eðli málsins
er algengt að fólk segi þetta vera
sitt úr hverri áttinni, sem er rangt.
Þetta er allt saman hugsanaflutn-
ingur. Hvað er t.d. sameiginlegt
með dánum manni og lifandi? Hið
sundurleita er ekki svo sundurleitt
sem halda mætti, því hinn látni er
sprelllifandi og oftast betur lifandi
en þegar hann var meðal okkar.
Þegar litið er til eftirfarandi texta
úr bókinni Undramiðillinn Daniel
Home, eftir Jean Burton, útgefin
hér í landi 1950, er í kaflanum Upp-
runi galdramannsins á bls. 30.
„Hann lýsti framtíðarheimi, þar
sem hver fann sinn líka, þeir sem
voru andlega skyldir héldu þar hóp-
inn, heimi, er að öllu ytra útliti líkt-
ist þeim núverandi, með höfum,
fjöllum, skógum og eyðimörkum,
heimi, þar sem menn og konur
gengu að vinnu sinni eða skemmt-
unum í borgum og sveitum, bjuggu í
húsum er í voru húsgögn, bækur og
búsáhöld, gluggatjöld, gluggar og
gólfteppi á gólfum." Þarna er verið
að lýsa staðháttum sem við könn-
umst við úr okkar umhverfi og
bendir til efnislegra þátta framlífs-
ins (dvalarstaður hinna dánu), það
er, efnislegt líf að loknu þessu. Og
strax í kjölfarið kemur svo þessi
stórkostlega setning sem segir okk-
ur hve frábær að viti frú Elizabet
Barrett Browning er. „Líkt og frú
Browning sagði með svo miklum
ákafa: „Eg trúi á starfandi mann-
legt líf eftir dauðann eins og áður,
ótruflað mannlegt líf. Ég trúi ekki á
neina bið í gröfinni og heldur ekki á
óákveðið útstreymi anda í form-
lausri gufu!““ Hún var með sann-
leikann í höndunum og er full
ástæða að þakka höfundi bókarinn-
ar fyrir að geta þessara orða frú
Browning. Gera má ráð fyrir að
þetta, er hér var á undan sagt, sé
um eitt hundrað og fimmtíu ára
gamalt, skv. bókinni. Hér sjáum við
að sannleikurinn um framlífið kom
fram í upphafi þeirrar bylgju er reis
upp í Bandaríkjunum um þetta leyti
og lagði hinn vestræna heim að fót-
um sér og hlaut bylgjan nafnið spír-
itismi, eða andatrú hér á landi. Það
er ekki fyrr en að dr. Helgi Pjeturss
kemur til sögunnar og fer að kynna
sér þessi efni í upphafi tuttugustu
aldarinnar, að hann áttar sig til fulls
á, hvaða skilaboð eða sannleik hinir
framliðnu (dánu) eru að reyna að
koma áleiðis til okkar, hinum eft-
irlifandi. Textinn hér að ofan þar
sem vitnað er í hr. Home, er einmitt
mergur málsins. Hinn framliðni
(dáni) byggir sér nýjan líkama á
nýrri jörð, þar sem líferni hans og
hugsun finna samlíkingu við aðra
einstaklinga og við honum blasa ein-
mitt þessir jarðnesku hlutir sem
getið er um í frásögninni. Og þessi
orð frú Browning,
„ótruflað mannlegt líf “, er ein-
mitt hinn rétti lífsskilningur. Jarð-
neskur líkami á jarðneskri jörð, sem
staðsett er einhversstaðar úti í hin-
um víða geimi, við einhverja sól, í
einhverri vetrarbraut. Þaðan eru
sendir huggeislar til eftirlifenda
sem aftur senda huggeisla til baka,
um óra leiðir og óra víddir. I stuttu
máli, einstaklingar skiptast á hugs-
unum, hugsanaflutningur á sér stað.
ATLI HRAUNFJÖRÐ.
Marargrund 5, Garðabæ.
X T I V
Vandaður
fatnaður til
jólagjafa
Sparidragtir
og toppar
Fallegar vetrarúlpur
Tískuversiun • Kringiunni 8-12 • Sími 553 3300
Þakkir til Einars
Farestveit hf.
Frá Ólöfu Magnúsdóttur:
í NÓVEMBERMÁNUÐI sl. var ég
undirrituð lögð inn á lyflækninga-
deild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði,
til rannsóknar. Fljótlega eftir komu
mína þangað varð ég þess áskynja,
að í setustofu deildarinnar var gam-
alt og lúið litasjónvarpstæki, sem
sökum elli var ekki lengur fært um
að flytja áhorfendum sínum sjón-
varpsefnið í eðlilegum litum, heldur
aðeins í svarthvítu og þegai' best lét
í brúnum lit. Það var því misjafn-
lega veikum sjúklingum deildarinn-
ar, vægast sagt, léleg dægrastytt-
ing, að góna á þennan hroða og
þeim alls ekki til uppörvunar. Fjár-
veitingar hins opinbera, í einu rík-
asta landi veraldar, að eigin sögn, til
þessarai' sjúkrastofnunar virðast
vera svo við nögl skomar, að end-
urnýjun á einu sjónvarpstæki var
borin von.
Hvað var þá til ráða? Eftir um-
ræður okkar sjúklinganna um málið
var það ákveðið, að leita til hins
frjálsa framtaks um lausn. Haft var
samband við Arthúr K. Farestveit,
forstjóra fyrirtækisins Einar Far-
estveit & Co. hf„ og hann beðinn
ásjár. Hann tók málinu mjög ljúf-
mannlega, eins og hans var von og
vísa. Sagðist hann mundu ræða mál-
ið við sína menn í fyrirtækinu og at-
huga hvort ekki fyndist einhver
lausn á því. Fáum dögum síðar kom
fulltrúi frá fyrirtækinu og kynnti
sér málið. Er skemmst frá því að
segja, að næsta dag var komið nýtt
sjónvarpstæki í setustofu deildar-
innar, gjöf frá Einari Farestveit &
Co. hf. Við sjúklingarnir gátum nú
með ánægju horft á sjónvarpsefnið'
óbrenglað.
Sjúklingar og starfsmenn lyf-
lækningadeildar St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði senda hjartanlegt þakk-
læti til fyrirtækisins Einar Farest-
veit & Co. hf„ fyrir skjót viðbrögð
og höfðinglega gjöf, sem á eftir að
veita gleði og stytta stundir þeirra
sem eiga eftir að dvelja á deildinni í
framtíðinni.
Arthúri K. Farestveit forstjóra og
öllu hans starfsfólki sendum við
hugheilar óskir um gleðileg jól og
farsæld um ókomin ár.
ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR,
Löngumýri 20, Garðabæ.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
511 fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema
ÚTSALA - ÚTSALA
40-60% afsláttur
Gerið góð kaup fyrir jólin
Dæmi um verð Áður Nú
Bodybolur 2.200 1.100
Bómullarpeysa 5.800 2.900
Peysa m/turtleneck 3.500 1.700
Organzaskyrta 4.500 1.900
Frakki 7.500 3.000
Síð úlpa m./hettu 7.600 3.500
Sett, tunika og peysa 4.500 1.900
Sett, toppur og jakkap. 4.200 1.900
Sítt pils 3.800 1.800
Dömubuxur 4.700 1.900
Einnig úrval af dömufatnaöi i stærðum 44-52
á 40-50% afslætti.
Opið frá kl. 10.00 til 18.00
frfencfex
Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjovik.
FYRIR AFA OG ÖMMU
Teg. Shirley
Stæröir: 36-41
Litir: Rauður, blár
Verð kr. 1.990
Teg. Claymore
Stærið: 40-45
Litur: Brúnn
Verð kr. 2.400
Teg. Juiie
Stærðir: 36-41
Litir: Svartur, rauður
Verð kr. 1.990
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 • SÍMI 5541754
Þjónusta í 35 ár