Morgunblaðið - 20.12.2000, Qupperneq 72
jJ2 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
DAGBOK
MORGUNBLAÐIÐ
í dag er miðvikudagur 20. desem-
ber, 355. dagur ársins 2000. Imbru-
dagar. Orð dagsins; „Trúið á ljósið
meðan þér hafíð Ijósið, svo að þér
verðið börn ljóssins.“
(J6h. 12,36.)
kl. 13.30 bókband, kl.
14.10 verslunarferð.
Korpúlfamir, félag
eldri borgara í Graf-
arvogi, tekur sér jólafrí.
Hópurinn hittist næst
fimmtudaginn 11. janú-
ar 2001 kl. 10 að Korp-
úlfsstöðum.
Skipin
Reykjavfkurhöfn: Lag-
arfoss kemur og fer í
dag. Kilchem Baltic,
Goðafoss, Stapafell,
Askur ÁR, og Gissur
ÁR koma í dag. Ocean
Castle fer í dag.
' ‘Hafnarfjarðarhöfn:
Venus og Svanur komu í
gær. Hamrasvanur
kemur í dag, Lagarfoss
fer í dag.______________
Fréttir
Bókatíðindi 2000. Núm-
er miðvikudagsins 20.
desember er 75065.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í s. Krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800-4040, kl. 15-17.
Mæðrastyrksnefnd
Híeykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Flóamark-
aður og fataúthlutun.
Opið frá kl. 14-17.
Frímerki. Kristniboðs-
sambandið þiggur með
þökkum alls konar not-
uð frímerki, innlend og
útlend, ný og gömul,
klippt af með spássíu í
kring eða umslagið í
heilu lagi. Útlend smá-
mynt kemur einnig að
-Jiiotum. Móttaka í húsi
KFUM og K, Holtavegi
28. Reykjavík, og hjá
Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.___________
Mannamót
Aflagrandi 40. Versl-
unarferð í dag kl. 9.30
frá Grandavegi 47 með
viðkomu á Aflagranda,
kaffi og meðlæti í boði
Hagkaups. Skráning í
afgreiðslu og í síma 562-
2571.
Árskógar 4. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-16.30
klippimyndir, útsaumur
-'ofl., kl. 13 smíðastofan
opin og spilað í sal,
Söngvinir koma í heim-
sókn kl. 15, kl. 9 hár og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8-
13 hárgreiðsla, kl. 8-
12.30 böðun, kl. 9-12
vefnaður, kl. 9-16
handavinna og fótaað-
gerð, kl.10 banki, kl. 13
spiladagur og vefnaður.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
hárgreiðslustofan og
handavinnustofan opn-
ar, kl. 13 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15-
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30-18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting og
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 fóndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Asgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10-13. Matur í há-
deginu. Línudans-
kennsla Sigvalda kl.
19.15. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10-12
í síma 588-2111. Ath.
Skrifstofa FEB er opin
frá kl. 10-16. Upplýs-
ingar á skrifstofu FEB í
síma 588-2111 frá kl. 10-
16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi er
spilasalur opinn, kl. 13
boccia. Myndlistarsýn-
ing Hrefnu Sigurð-
ardóttur stendur yfir.
Veitingar í fallega
skreyttu kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10-17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb og tréskurð-
ur. Jólahlaðborð verður
í Gjábakka fimmtudag-
inn 21. des. kl. 12. Vin-
samlega skráið þátttöku
fyrir kl. 17 miðvikudag-
inn 20. des. Meðal ann-
ars á dagskrá jóla-
hugleiðing og kertadans.
A sólstöðumínútunni kl.
13.37 verður gengið frá
Gjábakka á móti hækk-
andi sól.
Hraunbær 105. Kl. 9-
16.30 bútasaumur, kl. 9-
12 útskurður, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 11 banki,
kl. 13 brids.
Hæðargarður 31. Kl. 9
opin vinnustofa, og fóta-
aðgerð, kl. 13 böðun.
Hvassaleiti 58-60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla, keramik,
tau- og silkimálun og
jóga, kl. 11 sund í
Grensáslaug, kl. 15
teiknun og málun.
Norðurbrún 1. Kl. 9-16
fótaaðgerðarstofan opin,
kl. 9-12.30 útskurður,
kl. 9-16.45 handa-
vinnustofumar opnar,
kl. 10 sögustund, kl. 13-
13.30 bankinn, kl. 14
félagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun, mynd-
listarkennsla og postu-
línsmálun, kl. 13-16
myndlistarkennsla, gler-
skurður og postulíns-
málun, kl. 13-14 spurt
og spjallað. Kveðjum sr.
Hjalta Guðmundsson
dómkirkjuprest. Fyr-
irbænastund í aðalsal
fimmtudaginn 21. des kl.
10.30. Kór félags aldr-
aðra syngur undir stjórn
Sigurbjargar Hólm-
grímsdóttur. Kaffiveit-
ingar eftir messu. Fjöl-
mennum.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og
bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræfing,
Háteigskirkja. Opið hús
í dag fyrir 60 ára og
eldri í safnaðarheimili
Háteigskirkju frá kl. 10-
16. Ýmislegt á prjón-
unum. Súpa og brauð í
hádeginu, kaffi og með-
læti kl. 15. Ath. takið
með ykkur handavinnu
og inniskó. Vonumst til
að sjá sem flesta. Gengið
inn Esjumegin. A morg-
un kl. 10 „foreldramorg-
unn“, kl. 16-17.30 „bros
og bleiur" fyrir foreldra
um og undir tvítugu.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra. Miðvikudaga
kl. 13-16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi. Allir
velkomnir.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: I
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vestmanna-
braut 23, s. 481-1826. Á
Hellu: Mosfelli, Þrúð:
vangi 6, s. 487-5828. Á
Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni Ir-
isi, Austurvegi 4, s. 482-
1468 og á Sjúkrahúsi
Suðurlands og heilsu-
gæslustöð, Arvegi, s.
482- 1300. í Þorlákshöfn:
hjá Huldu I. Guðmunds-
dóttur, Oddabraut 20, s.
483- 3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúklinga
fást á eftirtöldum stöð-
um á Reykjanesi. I
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Víkurbraut
62, s. 426-8787. í Garði:
íslandspósti, Garða-
braut 69, s. 422-7000. í
Keflavík: í Bókabúð
Keflavíkur Pennanum,
Sólvallagötu 2, s. 421-
1102 og hjá íslandspósti,
Hafnargötu 89, s. 421-
5000. í Vogum: hjá ís-
landspósti b/t Ásu Árna-
dóttur, Tjamargötu 26,
s. 424-6500, í Hafn-
arfirði: í Bókabúð Böðv-
ars, Reykjavíkurvegi 64,
s. 565-1630, og hjá
Pennanum - Eymunds-
son, Strandgötu 31, s.
555-0045.
Minningarkort Rjarta-
verndar fást á eft-
irtöldum stöðum á
Norðurlandi: Ólafs-
fjörður: Blóm og gjafa-
vörur, Aðalgötu 7.
Hvammstangi: Versl-
unin Hlín. Hvamms-
tangabraut 28. Ak-
ureyri: Bókabúð
Jónasar, Hafnarstræti
108, Bókval, Furuvöllum
5, Möppudýrin, Sunnu-
hh'ð 12c. Bókval, Furu-
vöUum 5, Möppudýrin,
Sunnuhlíð 12c. Mývatns-
sveit: Pósthúsið í
Reykjahlíð. Húsavík:
Blómasetrið, Garð-
arsbraut 5, Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ösk Péturs-
dóttur, Ásgötu 5.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
Nérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 5691115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. 1 lausasölu 160 kr. eintakið.
VELVAKA3ÍDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Aðgát skal höfð
í nærveru sálar
ÞESSI orð hafa oft komið í
huga minn undanfarnar
vikur. Fjölmiðlafárið hefur
sjaldan verið meira og
smjattað á ófórum manna.
Þegar svona hörmulegir at-
burðir gerast gleymist að
hugsa um þá sem næstir
standa; foreldra, systkini,
maka og börn.
Það henti dóttur mína að
flokkur lögreglumanna
ruddist inn á heimili henn-
ar og krafðist þess að hún
væri viðstödd þegar farið
var í gegnum eigur hennar
og fjölskyldu hennar, dag-
bækur hennar lesnar, rótað
í fötum og ekkert undan-
skilið.
Fyrir þann sem er sak-
laus eru svona aðgerðir
ekkert nema ofbeldi. Sem
betur fer var barnið á
heimilinu ekki heima en
hvernig fer svona atburður
með sál barns þegar hann
virkar sem martröð hjá
fullorðnum?
Ástvinir standa ber-
skjaldaðir og eiga í erfið-
leikum með að skilja og
trúa. Það er mikið meira en
nóg, þó ekki bætist við að
þurfa að lesa og heyra
fréttir af atburðinum aukn-
ar og skreyttar.
Tilgangurinn með grein
þessari er að benda á að
svona meðferð á saklausu
fólki er ófyrirgefanleg.
Virðingarleysið er algjört.
Hvernig væri að hafa ör-
Htinn mannlegan skilning
með í för?
Kolbrún L.
Hálfdánardóttir.
Varið ykkur
á slöngunum!
MIG langar að koma á
framfæri viðvörun til fólks
sem er að litast um eftir
útiseríum við hús sín. Ekki
kaupa jólaslöngur!
Á Þorláksmessu ’98 var
ég orðin langþreytt á þess-
um svokölluðu „einnota"
útiseríum sem bila bara við
það að horft sé á þær. Fór
ég í Raftækjaverslun Is-
lands og bað um útiljós sem
entust. Sölumennirnir
sögðust einmitt eiga réttu
vöruna handa mér - jóla-
slöngu með mislitum ljós-
um. Þessi ljós entust í 5-10
ár - jafnvel lengur, og þar
að auki væri ekki mikið mál
að gera við þær, bilaði bút-
urinn skorinn burt og rest-
inni skeytt saman.
Ég þóttist hafa himin
höndum tekið og reiddi
fram rúmlega 7 þúsund
krónur til að eignast þessa
dásemd. Og hvflíkur mun-
ur! Ekkert vesen á þeim
jólum, né á jólunum í fyrra.
Svo sl. sunnudag þegar
slangan var sett út á svalir í
þriðja skiptið, logaði ekki
nema þriðjungurinn - bút-
ur í miðjunni! Hún dugði þá
ekki meira en í 5 vikur alls!
Ég fór strax til þessara
elskulegu manna í Raf-
tækjaverslun Islands og
bað um að gert yrði við
slönguna í snatri. En nei,
því miður var mér tjáð að
slangan væri ónýt, og það
eina sem þeir gætu gert,
væri að skera fyrir mig
slönguna í sundur, þannig
að ég héldi heila bútnum!
Það þýddi væntanlega að
ég þyrfti annaðhvort að
borga fleiri þúsund krónur
fyrir nýja slöngu til að fylla
út í svalirnar, eða kaupa
íbúð með minni svölum!
Ég fór líka með slönguna
á verkstæði þar sem svona
slöngur eru seldar og mað-
urinn þar fullyrti að þetta
hlyti að vera galli, og var al-
veg viss um að verslunin
myndi bæta mér skaðann.
Ég hafði samband við
framkvæmdastjórann og
spurði hann hvort þau
gætu gert eitthvað fyrir
mig. En nei, þar sem meira
en eitt ár er liðið frá kaup-
unum, bera þeir enga
ábyrgð. Slangan hlyti að
hafa orðið fyrir hnjaski hjá
mér, sem ekki er rétt, ekki
nema ef hún þolir ekki að
vera vafin upp þannig að
hún passi í kassa á milli ára.
Það eina sem þeim datt í
hug var að bjóða mér aðra
slöngu með afslætti, en því
miður eiga þeir ekki slöngu
með misíitum Ijósum,
þannig að það kemur mér
ekki að neinum notum.
Ekki vildu þeir gefa mér
inneignarnótu, og ekki datt
þeim í hug að reyna að út-
vega mér slöngu með mis-
litum ljósum, því þær fást
víða.
Þannig að ef þið hafið
ekkert við aurana að gera,
þá er um að gera að kaupa
sér slöngu, og það margar.
Því þarna er undantekn-
ingin á reglunni - því dýr-
ari sem hluturinn er, því
skemur endist hann!
Héðan í frá kem ég Hk-
lega til með að kaupa ein-
nota útiljós - þau duga ekki
lengi - en hvað með það -
maður bara kaupir nýja
seríu á hverju ári!
Eykur það ekki hagvöxt-
inn?
Huida K. Guðjónsdóttir,
kt. 220952-2319.
Tapad/fundið
Svartur leðurjakki
týndist
SVARTUR leðurjakki var
tekinn í misgripum á Café
Viktor um síðustu helgi. í
jakkanum var GSM-sími og
bíllyklar sem eiganda bráð-
vantar. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 568-3836.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 spýtubakka, 8 lófinn, 9
seinka, 10 veiðarfæri, 11
kremja, 13 sælu, 15 káta,
18 lftið, 21 setti, 22 háski,
23 erfðafé, 24 pretta.
LÓÐRÉTT:
2 fjáður, 3 þekkja, 4 féllu,
5 hefja, 6 draug, 7 aftur-
endi, 12 fóstur, 14 læri,
15 not, 16 stétt, 17 gömul,
18 vinna, 19 huldumaður,
20 lifa.
LAUSN Sl'ÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bugur, 4 skjár, 7 lasin, 8 orkan, 9 náð, 11 reit,
13 eira, 14 útför, 15 flón, 17 rúmt, 20 haf, 22 kræfa, 23
lyfið, 24 neita, 25 taðan.
Lóðrétt: 1 bolur, 2 gesti, 3 rann, 4 stoð, 5 jakki, 6 renna,
10 álfta, 12 tún, 13 err, 15 fíkin, 16 ótæti, 18 úlfúð, 19 tíð-
in, 20 hala, 21 flot.
Víkverji skrifar...
FURÐULEGT má teljast hversu
mikið er um að ökumenn virði
ekki rautt ljós umferðarljósa. Ekki
gerir Víkverji sér grein fyrir hvort
þetta er orðið algengara en áður eða
hvort hann hefur sjálfur meira vak-
andi auga íyrir þessum ósið. Rautt
ljós þýðir að menn eiga að bíða og
það vita allir ökumenn. Gult þýðir að
brátt skipti um ljós og því skuli
menn hafa andvara á sér ef þeir eru
að nálgast gatnamót þegar skipt
hefur á gult og ákveða hvort stöðva
skal eða halda áfram.
Þetta er hins vegar ekki vandinn.
Hann er miklu fremur sá að menn
fara mjög ákveðið yfir á rauðu og
vita fullvel af því. Menn skáka í því
skjólinu að grænt kviknar ekki um
leið hjá hinum, það eru gefnar
kannski tvær sekúndur á milli skipt-
inga og þess vegna halda menn
áfram á rauðu af því þeir vita að hin-
ir æða ekki af stað strax. Þessar
tvær sekúndur eru hins vegar til
þess ætlaðar að unnt sé að hreinsa
gatnamótin og þeir komist áfram
sem hafa beðið færis í vinstri
beygju. Gangi þetta svona eiga
gatnamótin að hreinsast á þessum
tveimur sekúndum og þá geta hinir
ekið ótruflaðir áfram þegar grænt
kviknar hjá þeim.
Þarna mætti lögreglan taka
skorpu í eftirliti. Vera sýnileg á
nokkrum gatnamótum á helstu
álagstímum og kenna þessum bí-
ræfnu ökumönnum lexíu. Víkverji
telur að rétt eins og með hraðann
muni ökumenn smám saman láta sér
segjast og bæta hegðan sína á þessu
sviði verði þeir varir við aukið að-
hald lögreglu. Væri ekki klókt af
lögreglu að setja svona eftirlit fram-
arlega á verkefnalistann?
XXX
IDAG byrjar mörsugur en upplýs-
ingar um þessi gömlu mánaða-
heiti eru yfirleitt í dagbókum. Vík-
verji saknar þeirra hins vegar í
dagbók næsta árs sem er frá öðrum
útgefanda en dagbók þessa árs.
Ekki svo að skilja að hann fylgist
ekki með tímanum nema með gömlu
heitunum, janúar, febrúar og svo
framvegis eru vissulega tamari. En
það er hins vegar ómögulegt að týna
niður þorra, góu, hörpu og ýli og
hvað þeir nú heita. Þess vegna bend-
ir Víkverji útgefendum dagbóka á að
viðhalda þessari þekkingu með því
að láta þeirra getið í nútímadagbók-
unum. Er ekki bara rétt að skella
þessu líka á Netið og segja á frétta-
vefnum 20. desember - mörsugur
byrjar og minna á mörsug uppá
hvern dag þar til næsti mánuður
rennur upp, líklega þorrinn? Hvem-
ig eigum við annars að vita hvenær
má borða súran og sterklyktandi
þorramatinn? Það kemur í það
minnsta ekki til greina að sleppa
honum.
XXX
*
AMORGUN eru vetrarsólstöður.
Fer þá dag að lengja á ný og
áður en varir verða dagur og nótt
orðin jafnlöng og er þá stutt í vorið.
Ekki þarf mikið að kvarta yfir hörð-
um vetri hérlendis ennþá og þótt
nokkrir mánuðir séu eftir verðum
við bara að vona að spár Veður-
klúbbsins á Dalvík um mildan vetur
rætist. En áður en að því kemur
hlýtur aðalspurningin að vera hvort
jólin verða rauð eða hvít. Ætli það
skipti ekki sköpum fyrir framgang
jólanna í okkur?