Morgunblaðið - 20.12.2000, Síða 76
fiií MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Ragga Gísla gefur út plötuna Baby
„Þau eru það fallegasta sem til cr,“ segir Ragga um smábömin.
Smábörn
vilja vandaða
tónlist
Ragga setti sig í spor barns, var berskjölduð og
einlæg við gerð plötunnar, en hún sagði Hildi
Loftsdóttur að lögin væru róandi og kætandi.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
BABY heitir nýja platan hennar
Röggu Gísla. Á henni eru einföld,
björt og hljómfögur lög með
skemmtilegum hljóðum og mállýsku
sem á ekkert skilið við tungumál
einsog við þekkjum það. Platan er
mjög sérstök enda samin með sér-
stakt fólk í huga; smáböm.
x„Smábörn eru svo fyndin. Þegar
þáu sitja, kannski nývöknuð á
morgnana og hjala við sjálf sig eða
eitthvað í kringum sig, þá eru þau
frábær og svo spennandi. Hvað ætli
þau séu að hugsa?“ spyr tónlistar-
maðurinn sem er líklega fyrst hér á
landi til að gera sérstaka plötu fyrir
þennan áhugaverða aldursflokk.
Rými skapar rd
„Þetta er smábarnaplata og því
hugsuð út frá öðrum forsendum en
hefðbundin bamaplata líkt og maður
Ltífer öðravísi við smáböm en við
böm. Ég miða aldurinn við allt frá
meðgöngu og upp í eins árs. Það er
misjafnt hvemig tónlist hentar
barnshafandi konum, en yfírleitt
velja þær rólega tónlist og þessi gæti
passað þeim. Þær eru alltaf að hugsa
um börn, skoða leikföng, barnaföt og
þessi tónlist tengir mann beint við
böm.
Ég hef verið að hugsa um þetta í
mörg ár, og það sem virkar á smá-
börn er háir, bjartir og mjúkir tónar,
þá taka þau við sér. Eg setti líka inn
djúpa tóna einsog bassatrommu, en
þó mjög lítið, eitthvað sem þau meira
finna en heyra. Það er ekkert sem
traflar. Ég vildi hafa sem minnst af
- hjjóðfæram í lögunum, svo það væri
rými fyrir hugann, og það skapar
líka ró. Þó að lögin séu róandi þá
geta þau verið kætandi. Þannig
hugsaði ég þau.“
- Hvers vegna vildir þú semja
svona tónlist?
ROKKARINN síðhærði og síungi
Guðlaugur Falk, eða Gulli eins og
hánn er kallaður, hefur gefið út sína
aðra sólóplötu. Platan heitir Falk og
er kominn í plötubúðir.
„Þetta er svona amerískt þunga-
rokk af gamla skólanum," tilkynnir
Gulli Falk biaðamanni. En hver er
drifkraftur Gulla Falk?
„Ég á svo mikið af lögum, maður.
Búinn að vera semja síðan ég var 17
ára patti og á ennþá einhver 150 lög.
Ég held þessu áfram þangað til að ég
er orðinn gamall þannig að ég verði
ekki hundleiðinlegur kall sem vælir
bara yfir því að ég hefði getað gert
eitjthvað."
Plata Gulla er líklegast í hópi
þeirra síðustu til að koma út á þessu
ári, enda bara nokkrir dagar til jóla.
Yfirleitt er það áhersluatriði tónlist-
armanna að ná plötum sínum ofan í
jólapakkanna en það er ekkert endi-
lega málið hjá Gulla.
„Ég var á báðum áttum hvort ég
atti að fara inn í jólatömina. Ég
ákvað að kýla á það núna því þegar ég
„Mig hefur lengi langað til að gera
plötu fyrir smábörn, vegna þess að
það hefur ótrúlega lítið verið samið
fyrir þau, sem er í rauninni svolítið
skrýtið, því þau era það fallegasta
sem til er.
Það klikkar ekki að þau koma mér
alltaf í gott skap því þau kveikja á
einhverju inni í mér. Það er svipur-
inn á þeim og hvernig þau horfa inn í
mann. Það er einsog þau sjái eitt-
hvað sem aðrir sjá ekki, og maður
verður svo berskjaldaður gagnvart
þeim. Það er einsog þau komist beint
inn að manni.
Fyrst ætlaði ég að hafa bara
stemmningar á plötunni, en hún þró-
aðist út í annað og meira. Það er alls
ekki auðveldara að semja fyrir böm
og það þýðir ekki heldur að maður
geti kastað til höndunum. Einmitt þá
á maður að vanda sig. Ekki bara af
því að við viljum allt það besta fyrir
þau, heldur vilja smábörn vandaða
tónlist, mörg þeirra hafa t.d. smekk
fyrir strengjakvartettum Mozarts.
byrja tónleikahald í janúar er ágætt
að hún sé komin í búðir. Þannig að
fólk viti a.m.k. af henni. Þetta er
þannig tónlist að það skiptir í raun-
inni engu máli hvenær maður gefur
hana út.“
Gulli sækir innblástur hingað og
þangað og hikar ekki við að segja
skoðun sínum á ýmsum veraldlegum
málefnum.
„Ég sem um allan fjandann. „Drif-
ter“ fjallar t.d. um heimilislaust fólk.
Þegar ég var út í Ameríku sá maður
svo mikið af þeim. Lagið er bara pæl-
ing um af hverju menn verða svoleið-
is. Þetta er alveg skelfilegt ástand
þama. Ég er alltaf í Flórída á vet-
urna og þessir heimilislausu flytjast
búrferlum. Allt í einu birtist helling-
ur af svona gauram út um allt, mað-
ur. Sofa bara á ströndinni, þetta er
eins í bíómynd, maður. Þeir era
komnir í vandræði með þetta lið.“
Ekki má gleyma tannhjólum ís-
lenska efnahagsins. Já, sjómennskan
er ekkert grín.
„Lagið „Sailor for Iife“ fjallar bara
Lögin mín era hins vegar popplög,
og það er bara einn af ótal mögu-
leikum til að gera tónlist fyrir smá-
böm.“
Hjal og tjáning
„Ég nota enga texta, það sem ég
syng era hljóðmyndir. Eg byrjaði á
þessu íyrst í Grýlunum og hefur allt-
af fundist þetta mál áhugavert, en
það getur verið erfitt að gera það svo
það hljómi rétt. í upptökunum fann
ég stundum að það sem ég söng var
ekki að virka, án þess að vita hvað
það var, því maður hefur ekki orðin
til að styðja sig við, en þá vantaði
eitthvað upp á tilfinninguna hjá mér.
En ég ímyndaði mér alltaf í upp-
tökunum og öllum stundum sem ég
vann að plötunni að ég væri með
barn með mér og væri að tala við
það. í laginu Lark. jr. ímynda ég mér
að ég sé móðirin sem er að hlusta á
litla barnið sitt sem er í sífellu að
segja henni fá nýju uppgötvunum
sínum um lífið.“
um sjóara, þeir era alltaf í h'fsháska.
Ég var svolítið spældur þegar mynd-
in Perfect Storm kom út. Þetta lag
hefði passað svo vel inn í hana. Svo er
ég með eitt instramental lag, „East
meets west“, það er arabískt þunga-
rokk. Ég samdi mitt eigið arabískt
stef og svo bætti ég við það smámet-
al.“
Platan hefur verið í vinnslu í tvö ár,
tekin upp í tömum þegar tekist hefur
að smala öllum hljóðfæraleikuranum
saman. Með Gulla á plötunni era þeir
Jóhannes Eiðsson söngvari, Guð-
Eitt lagið á diskinum heitir í höf-
uðið á Matthildi sem hjalar með
Röggu í tilteknu lagi.
„Hún er dóttir Evu Maríu og Ósk-
ars Jónassonar. Það er svo fyndið
með böm að þau era með svo ólíkar
raddir, þó þær séu allar fallegar.
Þær era misháar, hvernig þau hjala,
eins þegar þau gráta. Sum er ynd-
islegt að hlusta á, en annarra grátur
sker sig inn í mann. Matthildur hefur
einstaklega fallegt hjal, röddin
hljómar svo yndislega að þótt hún
væri að rella þá væri það fallegt.“
Að gleyma ekki
barninu í sjálfum sér
„Þegar maður nær sambandi við
smábarn þá fer maður annað stig,
annan samskipta- og hegðnagrand-
völl en maður er venjulega á, verður
berskjaldaður og það er svolítið
merkilegt að leyfa sér það. Sumir
þora það ekki, því þeim finnt þeir
geta virkað asnalegir... En maður
þarf ekki að kafa langt eftir barninu í
sjálfu sér. Það er bara erfítt að muna
að gera það. Ef ég myndi oftar eftir
litlu MER þá væri allt sjálfsagt
miklu fallegra."
- Var þá ekki æðislegt að vinna að
plötunni?
„Jú, og ég gat ekki unnið hana
með hverjum sem er, því ég opna
fyrir eitthvað mjög einlægt og er
svona á jaðrinum. Ég verð að gert
treyst þeim algjörlega sem ég vinn
með svo náið og upptökumaðurinn
Addi 800 er ofsalega mikið krútt inni
í sér. Hann á sjálfur barn og skilur
þetta alveg. Svo er hann svo fljótur
að vinna að ég gat látið hugmynd-
irnar vaða og hann var alltaf tilbúinn
að taka á móti þeirri næstu. Það var
svo gaman að ég hlakkaði til á hverj-
um degi að fara í stúdíó og ég hefði
getað haldið áfram endalaust."
mundur Gunnlaugsson trommari og
Jón „Richter“ Guðjónsson bassaleik-
ari. Eitt er deginum ljósai-a, Gulli
Falk hefur ekki leikið sitt síðasta.
„Það þurfa allir að þróast," segir
Gulli og á þar að það að vera opinn
fyrir nýstraumum þungarokksins.
„Það sem vantar aðallega á íslandi er
það að menn haldi hópinn nægUega
lengi. Uti era bönd kannski búin að
vera til í 10-15 ár þegar þú heyrir í
þeim, þá era þau búin að þróa „sánd-
ið“ sitt. Þess vegna segi ég við alla
unga, ekki gefast upp!“
Óskarinn
Enginn
Billy bara
Steve
ÞAÐ er mál manna að Billy Crystal
sé sá sem best hefur staðið sig und-
anfarin ár sem kynnir á Óskarsverð-
launahátiðinni vinsælu. Þrátt fyrir
velgengnina hefur Billy ekkert ver-
ið neitt sérstaklega hrifinn og hefur
margsinnis hótað að hætta. Nú hef-
ur hann loksins látið verða af því og
ætlar að vera í fríi á næstu hátíð.
Vissulega var þetta nokkurt áfall
fyrir aðstandendur hátíðarinnar því
það hefur sýnt sig að stjórnandi
hennar ræður heilmiklu um áhuga
sjónvarpsáhorfenda. Nú telja þeir
sig þó hafa fundið rétta arftakann,
engan annan en Steve Martin.
„Hann hefur allttil að bera,“ sagði
framleiðandinn Gil Cates. „Hann er
kvikmyndastjarna, hann er fyndinn,
hann er sjarmerandi og hann er vel
mælskur.“ Spennandi verður að sjá
hvernig hann leysir hið vandasama
verk af hendi hinn 25. mars næst-
komandi og eitt er víst að dellan
verður lítið minni en hjá Crystal því
Martin hefur löngum talist með
villtari sviðsgrínistum þótt hann
hafi róast meira en góðu hófi gegnir
sem kvikmyndaleikari.
-----4-4-4---
MYNPBÖNP
Dapur
Dangerfield
Konurnar mínar fimm
(MyðWives)
Gamanmýnd
★
Leiksljóri: Sidney J. Furie. Handrit:
Roger Dangerfield og Harry Basil.
Aðalhlutverk: Rodney Dangerfield,
Andrew Dice Clay, John Byner,
Molly Shannon, Jerry Stiller. (101
mín.) Bandaríkin. Bergvík, 2000.
Myndin er öllum leyfð.
Roger Dangerfield sló í gegn með
myndinni „Back to School" en eftir
hana hefur hann lítið merkilegt sent
frá sér sem kemur
manni til að brosa.
Það eina sem
stendur upp úr er
leikur hans í mynd
Oliver Stones,
„Natural Born
Killers", en þar var
hann í hlutverki
fóður Juliette Lew-
is. Á hulstrinu
stendur að þessi mynd heiti Konum-
ar mínar níu en hvergi er þess getið
annars staðar enda heitir myndin á
frammálinu „My Five Wives“, en
einhvern veginn hefur talnafræðin
brenglast í þýðingunni. Það er ósköp
lítið hægt að segja gott um þessa
mynd en þeir sem hafa gaman af
grettum Dangerfields eða sjá hversu
djúpt ofan í svaðinu ferill Andrew
Dice Clays er ættu að hætta á hana.
Hún er hvorki fyndin né frumleg og
eini brandari myndarinnar (þessi
með konurnar 5) kemur í ljós á 10.
mínútu og síðan er reynt að kreista
úr honum hvem einasta brosdropa
sem var enginn fyrir.
Ottó Geir Borg
Gulli Falk gefur út geisladiskinn Falk
Ekki gefast upp!
Morgunblaðið/Þorkell
Gulli Falk ætlar að rokka fram í rauðan dauðann.