Morgunblaðið - 20.12.2000, Page 84
m
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA S6S1122, NETFANG: R77STJ@MBL.IS, AKUREYSI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Forstjóri TR um ddm Hæstaréttar um tengingu tekjutryggingar við tekjur maka
Hefur gríðarleg- áhrif
og snertir mjög marga
FORSTJÓRI Tryggingastofnunar
ríkisins (TR) segir að dómur
Hæstaréttar í gær í máli Öryrkja-
bandalagsins gegn TR muni hafa
gríðarleg áhrif. Hann fagnar því
hins vegar að með dómi sínum hafi
Hæstiréttur knúið fram úrslit í erf-
iðu deilumáli, en óvissa vegna þess
hafi verið mjög óþægileg.
Hæstiréttur segir að tenging
tekjutryggingar örorkuþega við
Jekjur maka hafi ekki haft nægj-
l&ilega lagastoð frá ársbyrjun 1994
til ársloka 1998. Lögunum var síðan
breytt frá og með 1. janúar 1999, en
Hæstiréttur segir skerðingar-
ákvæði þeirra ekki samræmast
stjómarskránni. Samkvæmt dómn-
um var tenging tekjutryggingar ör-
yrkja við tekjur maka því óheimil
allt frá ársbyrjun 1994 og fram á
þennan dag.
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
TR, segir að ákveðið verði í dag,
miðvikudag, hvemig staðið verði að
málum í kjölfar dómsins. „Þetta er
ekkert einfalt. Flestir hagnast á
þessum dómi og við þurfum að velta
upp hverjum einasta skjólstæðingi
stofnunarinnar síðustu sjö árin og
meta áhrif dómsins á stöðu hvers og
eins. Við munum að sjálfsögðu
greiða það sem á vantar, en þetta
verður mikil yfirferð," segir hann.
Að sögn Karls Steinars er það
pólitísk ákvörðun hvemig með þetta
mál verður farið. „Þetta er dómur
sem hefur gríðarleg áhrif og snertir
mjög marga,“ bætir hann við.
Garðar Sverrisson, formaður Ör-
yrkjabandalagsins, segir að dómur-
inn sé mikill sigur fyrir réttindabar-
áttu öryrkja. Staðfest sé með
honum að stjórnvöld hafi seilst ofan
í vasa öryrkja á undanfömum áram
og tekið þaðan ófrjálsri hendi fjár-
muni sem ætlaðir hafi verið til lág-
marksframfærslu öryrkja.
„Hæstiréttur kemst að þeirri nið-
urstöðu að Tryggingastofnun hafi í
hálfan áratug ekki haft nokkra ein-
ustu heimild til þess að skerða
tekjutrygginguna á þann hátt sem
gert hefur verið. Æðstu ráðamenn
þjóðarinnar hafa orðið berir að því
að seilast í vasa þeirra sem síst
skyldi og taka þaðan ófrjálsri hendi
upphæðir sem ekki nema undir
tveimur milljörðum."
Garðar telur augljóst að stjóm-
völd bregðist við dómi Hæstaréttar
með því að greiða tekjutryggingu í
samræmi við dóminn strax frá og
með 1. janúar nk. Auk þess telur
hann Ijóst að greiða verði öryrkjum
sti’ax það sem skert hafi verið.
„Hæstiréttur hefur talað. Ég
mun ekki deila við hann,“ sagði
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra í gær.
■ Óheimilt /13-15
Fékk stór-
vinning í
þriðja sinn
ÍSLENDINGURINN, sem var með-
al þeirra þriggja sem skiptu með
sér fyrsta vinningi í Víkingalottó-
inu í síðustu viku, hlaut á Iaug-
ardag þriðja stórvinninginn í lottói
á rúmu ári. í hlut hans nú komu
14.250.000 kr. en áður hafði hann
fengið eina milljón í jókervinning í
nóvember á síðasta ári og rúmar
þrjár milljónir í bónusvinning í
Víkingalottóinu í júní sl.
Vinningshafinn, sem er ein-
hleypur karlmaður búsettur í
Breiðholti, hefur spilað í lottói frá
upphafi og var þess fullviss að röð-
in ætti eftir að koma að sér. Hann
vill ekki koma fram undir nafni,
en er hann vitjaði vinningsins hjá
Islenskri getspá í gær kvaðst hann
að sjálfsögðu halda áfram að spila.
Fyrsti vinningur er fimmfaldur í
Lottóinu nk. laugardag og stefnir í
að verða 15.000.000 kr.
Morgunblaðið/Ásdís
Dansparið Karen Björk Björgvinsdóttir og Adam Reeve.
* Evrópumeistur-
unum fagnað
ÖRN Arnarson, tvöfaldur Evr-
ópumeistari í sundi, kom heim í
gær eftir frækna för á Evrópu-
meistaramótið í Valencia um síð-
ustu helgi. Þar vann Örn gull-
verðlaun í 100 og 200 raetra
baksundi og silfurverðlaun í 50 m
baksundi. Þetta var þriðja árið í
röð sem Örn kemur heim með
gullverðlaun frá Evrópumeist-
aramóti og annað árið í röð sem
ÍRtnn vinnur til tvennra gull-
verðlauna. Auk þess varð hann
fyrstur íslenskra sundmanna til
þess að setja Evrópumet í sundi
en sigurtími hans í 100 m bak-
sundi var tæplega fjórðungi úr
sekúndu betri en gildandi Evr-
ópumet.
Annar íslenskur Evrópumeist-
ari, Karen Björk Björgvinsdóttir,
kom einnig heim um sama leyti
og Örn. Karen og Adam Reeve,
ástralskur dansherra hennar,
urðu á laugardaginn Evrópu-
meistarar f 10 dönsum f flokki at-
vinnumanna. Mótið fór fram í
Bonn en þau Karen og Adam
tóku þátt í mótinu fyrir fslands
hönd.
■ Getur náð onn lengra/B4
Kristín Jensdóttir og Öm Ólafsson, foreldrar Arnar Arnarsonar, taka á
móti syninum við komuna til landsins.
Hreyfing í
kjaradeilu
FUNDI í kjaradeilu fram-
haldsskólakennara og viðsemj-
enda hjá ríkissáttasemjara lauk
um kl. 19 í gærkvöldi. Ríkis-
sáttasemjari hefur boðað til nýs
fundar sem hefst kl. 9.30 í dag.
Þórir Einarsson ríkissátta-
semjari segir að hreyfing hafi
verið á fundinum í gær en hann
hefur sett fréttabann á við-
ræðuaðila.
Hann segir að nú sé gerð til-
raun til þess að koma af stað
nýrri viðræðulotu. Uppi séu
hugmyndir og hreyfíngar sem
gefi tilefni til þess að reyna að
koma af stað nýrri viðræðulotu
sem vonandi leiði til niðurstöðu.
Samstarfs- og þróunarverkefni íslenskrar erfða-
greiningar, FSA og Háskólans á Akureyri
Sérfræðistörf við nýja
hugbúnaðardeild
ÍSLENSK erfðagreining, Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri og Há-
skólinn á Aktu’eyri hyggjast taka upp
samstarfs- og þróunarverkefni sem
skapa munu forsendur fyrir tugum
nýrra sérfræðistarfa á Akureyri.
Hugbúnaðardeild ÍE verður stofnuð í
bænum, ÍE mun fjármagna fyrst í
stað framkvæmdir við nýbyggingu
FSA og styðja Háskólann á Akureyri
faglega og fjárhagslega í stofnun
upplýsingatæknibrautar.
Jafnframt skrifúðu fulltrúar Is-
lenskrar erfðagreiningar og níu heil-
brigðisstofnana undir fyrstu samn-
ingana um vinnslu á heilsufars-
upplýsingum til flutnings í gagna-
grann á heilbrigðissviði. Þrír ráð-
herrar, Davíð Oddsson forsætisráð-
herra, Halidór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra, vora viðstaddir
undirritun samninganna.
Forsendan fyrir samningi ÍE og
FSA er sú þekldng sem fyrir hendi er
innan sjúlö’ahússins en meðal verk-
efna er gerð rafrænnar sjúkraskrár,
þróun staðlaðra spumingalista og
sérstakra sjúkraskrárkerfa, rafrænn
flutningur upplýsinga milli sjúkra-
skrárkerfa og fleira. Talsvert hús-
rými þarf vegna nýju starfanna og er
stefnt að því að ljúka sem fyrst óinn-
réttuðu húsnæði í viðbyggingu FSA,
alls um 2.500 fermetrar. Mun ÍE
greiða fyrir fjármögnun verksins
sem ráðgert er að kosti um 250 millj-
ónir króna. Þá munu ÍE og FSA láta
reisa nýtt hús á lóð sjúkrahússins þar
sem verða höfuðstöðvar ÍE og stjóm-
sýsluhluti sjúkrahússins.
Samstarf ÍE og Háskólans á Ak-
ureyri snýst um stofnun upplýsinga-
tæknibrautar við skólann sem hefur
það hlutverk að kenna upplýsinga- og
tölvufræði til BS-prófs. IE lætur há-
skólanum í té faglega og fjárhagslega
aðstoð. Ráða á þrjá háskólakennara
og verður einn þeirra deildarforseti.
Þeir verða starfsmenn ÍE á Akur-
eyri.
Heilbrigðisstofnanirnar níu sem
samið var við um undirbúning gagna-
granns era FSA, St. Jósefsspítali í
Hafnarfirði og heilbrigðisstofnanim-
ar í Vestmannaeyjum, Hólmavík,
Siglufirði, Hvammstanga, Húsavík,
Keflavík og Akranesi.
■ Samid/42-43
BjúóNAKRÆKIk