Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
I nógu er að snúast íjólaönnum hjá póstmiðstöð Islandspósts
Morgunblaðið/Þorkell
Starfsemin í pdstmiðstöðinni var ekki komin í fullan gang í gærmorgun enda hafði Qöldi starfsmanna unnið fram yfir miðnætti við að flokka pdstinn.
3 milljónir
j ólakorta á
sex dögum
JÓLAKORTIN sem landsmenn
senda hver öðrum fara öll um pdst-
miðstöð Islandspósts á Stórhöfða
þar sem þau eru flokkuð og síðan
ekið á pósthús út um allt land. Allur
póstur og sendingar Islandspósts
frá útlöndum fara auk þess um mið-
stöðina.
Síðustu vikuna fyrir jól marg-
faldast það magn sem þangað kem-
ur. Á sex dögum fara þar um 3
milljónir jólakorta og um 60.000
bögglar. Óskar Örn Jónsson, fram-
leiðslusljóri hjá póstmiðstöðinni
segir þetta vera um fjórfóldun á því
sem venjulega fer þar í gegn. Til
þess að anna öllu þessu magni eru
ráðnir 100 starfsmenn til viðbótar,
aðallega menntaskdlanemendur
sem bætast við þá liðlega 300 sem
fyrir eru.
„Þeir hafa komið óvenju snemma
núna í verkfallinu," segir Óskar
sem er ánægður með starfskraft-
inn. Unnið er á vöktum allan sólar-
hringinn og oft er mikill handa-
gangur í öskjunni eins og gefur að
skilja.
íslandspóstur byrjaði nýlega að
keyra böggla og smápakka heim til
Morgunblaðið/Þorkell
Auk jólakorta og bréfa eru alls
kyns bögglar og kassar sendir
landshorna á milli.
fólks og til fyrirtækja. Á venjuleg-
um degi eru um 60 bifreiðar í notk-
un hjá fyrirtækinu og fer hver
þeirra þijár ferðir á dag. Fyrir jól
Morgunblaðið/þorkell
Ensku stúlkuna, sem skrifaði jdlasveininum þetta brdf, vantaði skart-
gripi, nýtt hjól, nýja tölvu, ilmvötn og sápur, nokkra geisladiska og bak-
poka. Þá var jólasveinninn vinsamlegast beðinn um að svara bréfinu.
er bætt við og nú eru 100 bflar á
þönum um höfuðborgarsvæðið.
Óskar segir að svo virðist sem
jólakortin verði a.m.k jafn mörg i
ár og í fyrra. Mikið hafi hinsvegar
bæst við í ýmis konar sendingum
frá netverslunum, allt frá geisla-
diskum og bókum, til sjónvarpa eða
þaðan af stærri hluta. „Allt verður
gert til þess að þeir bögglar og jóla-
kort sem póstlögð eru fyrir 16.30 á
fimmtudag komist til skila. Það
gæti falið í sér að það verði útburð-
ur og útkeyrsla á Þorláksmessu ef
fóstudagurinn dugir ekki til,“ segir
Óskar. Það séu þó alltaf sumir sem
póstleggi alltof seint. Þau kort
verða borin út milli jóla og nýárs.
Islandspósti berast á hverju ári
hundruð bréfa sem stfluð eru á jóla-
sveininn. Bréfin koma aðallega frá
börnum í Bandaríkjunum og Bret-
landi og eru gjarnan sett ófrímerkt
í póst en þetta munu vera einu bréf-
in sem fá þrátt fyrir það afgreiðslu.
Á sumum þeirra er reyndar at-
hugasemd frá póstþjónustu við-
komandi lands þar sem minnt er á
að nota þurfi póstnúmer þegar bréf
eru send! Heimilisfangið er þó iðu-
lega á hreinu: Jólasveinninn, Norð-
urpólnum.
I bréfunum eru gjarnan ítarlegir
og langir jólagjafalistar. Óskar seg-
ir jólasveininn þó ekki hafa látið sjá
sig þessi jól en útilokar ekki að
hann laumist inn um nætur til að
kíkja á póstinn sinn.
Lögregl-
an leitar
brennu-
vargs
LÖGREGLAN í Reykjavík leitar
nú brennuvargs en allt bendir til
þess að kveikt hafi verið í rusla-
geymslum tveggja fjölbýlishúsa í
vesturbæ Reykjavíkur í fyrrinótt.
Talsverður eldur varð í öðru
húsanna og var einn íbúi þess
fluttur á slysadeild Landspítala -
háskólasjúkrahúss vegna gruns
um reykeitrun.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
fékk tilkynningu um eld í fjölbýlis-
húsi við Reynimel skömmu fyrir
kl. 6 í gærmorgun. Skömmu síðar
var tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi
við Meistaravelli og fór þá hluti
liðsins þangað.
Þegar slökkviliðið kom að hús-
inu við Reynimel var þar talsverð-
ur eldur í ruslageymslu. Lok fyrir
ruslarennu höfðu bráðnað og var
talsverður reykur í stigagangi
hússins og íbúð á efstu hæð þess
var hálffull af reyk. Eldtungur
stóðu upp úr ruslageymslunni í
þekju hússins en svo virðist sem
loftræstirör hafi farið í sundur.
Vegna hættu á að eldurinn læsti
sig í þakið var tekin ákvörðun um
að rýma íbúðir á efstu hæð húss-
ins. Slökkviliðinu tókst þó að
slökkva eldinn áður en hann
breiddist út. Miklar skemmdir
urðu í ruslageymslu auk reyk-
skemmda í húsinu.
Eldurinn sem kveiktur var í
ruslageymslu hússins við Meist-
aravelli var talsvert minni.
---------------
Ráðist á
lögreglu-
mann
GESTUR í unglingasamkvæmi
réðst að lögreglumanni í fyrrinótt
og sló hann í andlitið svo áverkar
hlutust af.
Lögreglunni í Reykjavík barst
kvörtun vegna hávaða í heimahúsi
í austurbænum klukkan rúmlega
eitt í fyrrinótt. Þegar lögreglu-
menn komu á staðinn reyndist
húsráðandi ekki vera heima en 15-
20 unglingar voru þar með sam-
kvæmi. Þegar lögregla hugðist
vísa gestunum út réðst einn gest-
anna að lögreglumanni og sló hann
í andlitið.
Árásarmaðurinn var handtekinn
og færður á lögreglustöð. Hann er
innan við tvítugt en þó á sakhæf-
isaldri.
Útsölustaðir:
Andorra
Bylgjan Kópavogi,
Hjá Maríu Amaró,
Hygea Laugavcgi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ.
BIOThERM
D-STRESS NÆTURKREM
Sléttari húð, aukinn Ijómi og
fullkomin ró. Róandi næturkrem
sem færir húöinni vítamín. %
Þensla í efnahags-
lífínu í rénun
Á FYRSTU ellefu mánuðum árs-
ins nam rekstrarafgangur ríkis-
sjóðs um 9 milljörðum króna.
Þetta er rúmlega 5 milljörðum
króna hagstæðari niðurstaða en
áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Á
sama tíma í fyrra nam rekstraraf-
gangurinn hins vegar rúmlega 16
milljörðum króna.
Skýringin á minni rekstraraf-
gangi nú felst annars vegar í 5
milljarða króna hækkun vaxtaút-
gjalda ríkisins milli ára, fyrst og
fremst vegna sérstakrar forinn-
lausnar spariskírteina fyrr á þessu
ári. Hins vegar eru tekjur af
eignasölu 6 milljörðum króna
minni í ár en á sama tíma í fyrra,
að því er segir í tilkynningu fjár-
málaráðuneytisins.
Fjármálaráðuneytið segir að
þessi tvö atriði skýri einnig að
mestu leyti minni lánsfjárafgang í
ár en í fyrra. Á fyrstu ellefu mán-
uðum ársins námu afborganir eldri
lána 34,4 milljörðum króna en nýj-
ar lántökur 27,8 milljörðum.
Greiðsluafkoma ríkissjóðs var því
neikvæð um þrjá milljarða króna,
sem er einum milljarði króna hag-
stæðari niðurstaða en í fyrra.
Fjármálaráðuneytið segir að
þessi þróun sé skýr vísbending um
að þenslan í efnahagslífinu sé í
rénun og endurspegli meðal ann-
ars minni innlenda eftirspurn en í
fyrra. Þessi þróun komi glöggt
fram í innflutningstölum. Síðasta
ár hafi einkennst af mikilli inn-
lendri eftirspurn. Áhrifa þessa
gætti í auknum innflutningi sem
alfarið mátti rekja til innflutnings
neysluvöru.
Nú segir ráðuneytið að þessi
staða hafi gjörbreyst. Fyrstu tíu
mánuði þessa árs hafi innflutning-
ur aukist um 15 milljarða króna.
Þar af skýri innflutningur neyslu-
vöru einungis hálfan milljarð
króna, eða um 5%. Það sem eftir
standi stafi af innflutningi rekstr-
ar- og fjárfestingarvöru, ekki síst
olíuvörum. Þetta séu mikilvæg um-
skipti.