Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Álafosskórinn úr Mosfellsbæ var að syngja á Laugaveginum
í annað sinn á þessari jólaföstu; í eitt skipti varð nefnilega
„messufall" vegna óveðurs, að sögn eins kórfélaganna.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Konurnar í Léttsveit Reykjavíkur voru í sannkölluðu jóla-
skapi þetta kvöld, og náðu að smita gleðinni út til gangandi
vegfarenda.
Góð stemmning
á Laugavegi
Miðborg
ÞAÐ myndaðist óvenju góð
stemmning á Laugaveginum
sl. miðvikukvöld þegar
félagar úr kvennakórnum
Léttsveit Reykjavíkur og
Álafosskórinn í Mosfelisbæ
tóku lagið saman, óæft og
við mikinn fögnuð gangandi
vegfarenda sem þyrptust að
til að hlýða á þessa óvenju-
legu uppákomu. Þetta bar
þannig til, að Léttsveitin
hafði lokið við jólasöng-
dagskrá sína ofarlega á
Laugaveginum og konurnar
voru á leið til síns heima en
námu staðar til að hlusta á
Álafosskórinn sem þar var
að flytja nokkur jólalög.
Skipti engum togum að eftir
að Álafosskórinn hafði lokið
við flutning eins Iagsins tóku
konurnar, sem allar voru
staddar handan götunnar, í
gleði sinni að syngja það
sama lag. Siðan stigmagn-
aðist þetta og lauk með sam-
söng kóranna en stöðugur
bilastraumurinn lá á milli
þeirra allan tímann. Að
þessu loknu hélt Álafosskór-
inn upp Laugaveginn en
konurnar niður, og eins og
fyrr staðnæmdust þær eftir
nokkra göngu og nú til að
hlýða á leik brassbandsins
úr Skólahljómsveit Vest-
urbæjar. Og fyrr en varði
gerðist það sama og áður, að
þær voru farnar að syngja
og nú við undirleik bandsins.
Vakti þessi spuni að von-
um mikla ánægju þeirra sem
á hlýddu.
Aldrei selst meira af skötu en núna
SKATA er aldrei vinsælli
matur en einmitt nokkrum
dögum fyrir jól og hámarki
ná þessar vinsældir hennar
á morgun, Þorláksmessu.
Morgunblaðið rak nefið inn
í Fiskbúðina Hafrúnu að
Skipholti 70 í gær, til að
forvitnast um gang mála.
Þar var mikil örtröð og
blaðamaður því með hálf-
gert samviskubit yfir að
vera að trufla önnum kafna
fisksalana, en lét sig hafa
það og náði um síðir að
króa einn þeirra af úti í
horni.
„Þetta gengur mjög vel.
Það er búið að vera snarvit-
laust að gera alveg síðan á
föstudag í hinni vikunni, og
hefur aldrei selst eins mikið
af skötu og núna,“ sagði
Magnús Sigurðsson fisksali,
móður eftir lætin við pökk-
unina. „Við erum með sex
tegundir, þ.e.a.s. mikið
kæsta, þurrkaða, ósaltaða,
saltaða og útvatnaða, næt-
ursaltaða og vestfirsku
skötuna eða tindabikkj-
una.“
Hver er vinsælust?
„Sú mikið kæsta.“
Er það ungt fólk eða
Morgunblaðið/Ásdís
Þau eru engin smásmíði börðin af gráskötunni sem Magnús Sigurðsson heldur á.
eldra sew kaupir?
„Þetta er yfírleitt full-
orðið fólk.“
Hvernig gengur ykkur að
útvega skötu íverslunina?
“Það gengur mjög vel;
þetta er allt úr Vest-
mannaeyjum," sagði Magn-
ús og var svo rokinn, enda
biðu óþreyjufullir kaup-
endur í tugavís við af-
greiðsluborðið.
Hlídar/Holt
Upp-
áhalds-
matur
„SKATA er minn upp-
áhaldsmatur, en ég borða
hana samt eingöngu á Þor-
láksmessu. Saltaða og
kæsta; það er best,“ sagði
Katrín Sverrisdóttir Thor-
oddsen, sem var stödd í
Fiskbúðinni Hafrúnu í þeim
erindagjörðum að kaupa
skötu.
Ertu kannski að vestan?
„Nei, ekki get ég nú sagt
það; ekki nema kannski að
langfeðgatali. Annars er ég
Reykvíkmgur og kynntist
skötunni heima.“
Borða allir tjölskyldu-
meðlimirnir skötu?
„Nei, ekki get ég nú sagt
það,“ sagði hún og brosti.
Morgunblaðið/Ásdís
Katrín Svcrrisdóttir Thoroddsen borðar uppáhaldsmatinn sinn eingöngu á Þorláks-
messu, saltaða og kæsta skötu.
2% bæjar-
búa Islands-
meistarar
Hafnarfjörður
417 Hafnfirðingar, eða rúm-
lega 2% íbúa bæjarins, hafa
orðið Islandsmeistarar í
íþróttum á árinu, sem er að
líða, að sögn Ingvars Jónsson-
ar, íþróttafulltrúa bæjarins.
Hafnarfjarðarbær heldur
hóf til að heiðra afreksmenn
sína milli jóla og nýárs.
Ingvar hafði ekki á taktein-
um tölur um hlutfall íslands-
meistara af íbúafjölda í öðrum
bæjarfélögum hér á landi en
taldi ólíklegt að víða væri hóp-
ur afreksfólks hlutfallslega
jafnpölmennur og í Firðinum.
„Eg held þetta hljóti að
vera sérstakt,“ sagði Ingvar,
„alla vega er þetta met hjá
okkur. Aður hefur þetta verið
mest 350 manns fyrir 2-3 ár-
um síðan. Við erum afskap-
lega stoltir af okkar íþrótta-
mönnum og af því að eiga 417
íslandsmeistara úr 14 grein-
um frá 11 íþróttafélögum."
Ingvar sagði að Hafnar-
fjörður hefði oft verið kallaður
handboltabær en það ætti
greinilega ekki við lengur því
þótt handboltinn drægi vagn-
inn væru meistararnir úr mun
fleiri greinum.
Flestir eru íslandsmeistar-
amir FH-ingar en alls bera
190 keppnismenn félagsins
það sæmdarheiti á þessu ári.
104 sundmenn í Sundfélagi
Hafnarfjarðar státa af sama
titli, 77 félagar í Haukum, 11
frá golfklúbbnum Keili, 7 sigl-
ingamenn og svo mætti lengi
telja.
FH-ingar státa m.a. af ís-
landsmeistaratitlum í knatt-
spymu í 1. deild karla og í
yngri flokkum karla og
kvenna, svo og í handknattleik
ýmissa aldursflokka, auk
frjálsíþrótta, þar sem félagið
vann ýmsa titla í keppni ein-
staklinga og flokka kvenna og
karla.
Sundfélagið vann frækinn
sigur á aldursflokkamóti
sundfólks og eignaðist þar
fjölda Islandsmeistara í yngri
aldursflokkum og einnig í
garpasundi en það kallast
keppni þeirra sem komnir eru
á efri ár á mælikvarða keppn-
isíþróttamanna. Loks átti SH
fjóra keppendur í ólympíu-
sveit Islands, þar á meðal Orn
Arnarson.
Golfklúbburinn Keilir átti
m.a. bæði íslandsmeistara
karla og kvenna í golfi. Þá er
ótalinn fjöldi sem hreppti ís-
landsmeistaratitla í lyftingum,
dansi, hestamennsku, skylm-
ingum og fleiru. „Þetta er afar
fjölbreytt og eftirtektarverð
heild,“ sagði Ingvar.
Undanfarinn áratug fór
bærinn að veita viðurkenning-
ar öllum Islandsmeistumm
sem keppa á vegum félaga í
bænum og hafa nokkur sveit-
arfélög fetað í fótsporið síðan,
að sögn Ingvars. Þegar Hafn-
firðingar áttu um tíma 355 fyr-
ir nokkrum árum sagði Ingvar
að nafni hans Viktorsson, þá-
verandi bæjarsjóri, hefði
hvatt íþróttamenn bæjarins til
að herða aðeins róðurinn svo
bærinn fengi einn Islands-
meistara á dag. Nú væru
menn búnir að ná því marki og
gott betur því á þessu ári hafa
1,14 bæjarbúar orðið Islands-
meistarar á degi hveijum,
miðað við að ekki fjölgi í hópn-
um fram að áramótum.
Auk allra þessara íslands-
meistara eru um 200 bæjarbú-
ar bikarmeistarar en 12 hópar
hafnfirskra íþróttamanna
hafa hreppt slíkan titil á árinu.
„Auðvitað eru einhverjir í bik-
armeistarahópnum líka ís-
landsmeistarar," sagði Ingvar
en hvor tveggja hópurinn fær
viðurkenningu í hófi þann 27.
des|mber þar sem jafnframt
verður valinn íþróttamaður
Hafnarfjarðar.
Stúdentspróf
í íþróttum?
Hafnarfjörður
BÆJARRÁÐ Hafnarjarðar
hefur til umfjöllunar tillögu
um að íþróttafólk geti fengið
grein sína metna í einingum til
lokaprófs í framhaldsskóla á
svipaðan hátt og tónlistamem-
ar. Á þennan hátt verði komið
til móts við afreksfólk í íþrótt-
um.
Steinunn Guðnadóttir, bæj-
arfulltrúi og formaður skóla-
nefndar bæjarins, lagði fram
tillögu um samvinnu og sam-
ræmi milli skólastiga í Hafn-
arfirði með tilliti til mats á ein-
ingum og felur tillagan þetta í
sér. Ennfremur segir: „Nem-
endur geti útskrifast af bók-
námsbrautum, -lista og starfs-
menntabrautum með ákveðna
íþróttagrein sem val, sbr.
marga erlenda menntaskóla
sem bjóða nemendum uppá
stúdentspróf í golfi, skíðum,
brettum o.s.frv. Ákveðin stig
þjálfararéttinda í viðkomandi
íþróttagrein verði jafnframt
metin til lokaprófs. Afreks-
menn í íþróttum geta á þennan
hátt stundað sínar íþróttir
jafnhliða námi í öðrum fögum,
með því að fá ákveðið marga
þjálfunartíma skilgreinda sem
einingar, í stað þess, eins og
staðan er í dag, að með auknu
þjálfunai-álagi þurfi nemendur
að hverfa frá námi,“ Þá segir
að Hafnarfjörður búi brátt yfir
þeirri sérstöðu, að íþróttafólk í
nánast hvaða íþróttagrein sem
er hafi fyrirmyndar-aðstöðu í
bænum. „Með því að bjóða af-
reksíþróttafólki á framhalds-
skólastigi áðumefnda mögu-
leika til að stunda íþróttagrein
sína tæki Hafnarfjörður for-
ystu á sviði framhaldsnáms
fyrir afreksíþróttafólk," segir
ennfremur.
Flensborg og Iðnskóli
vinni saman að listnámi
Tillaga Steinunnar gerir
jafnframt ráð fyrir að fram-
haldsskólai- Hafnarfjarðar
standi sameiginlega að mótun
listnámsbrauta á framhalds-
skólastigi sem undirbúning
fyrir nám í Listaháskóla Is-
lands. „Möguleiki verði fyrir
nemendur Flensborgarskóla
og Iðnskóla Hafnarfjarðar að
sækja nám í ákveðnum grein-
um á milli skóla og einingar
verði metnar jafnt í báðum
framhaldsskólunum. Jafn-
framt verði valáfangar grunn-
skólanna eins metnir til ein-
inga í báðum framhaldsskól-
unum,“ segir þar.