Morgunblaðið - 22.12.2000, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Félags-
heimilið
vakið til
lífsins
Flateyri - Sfðastliðin fimm ár hafa
ekki verið sérlega blómleg í sögu
félagsheimilisins á Flateyri. Húsið
hefur á þessum tíma að mestu leyti
staðið autt og ónotað var það farið
að bera þess merki.
Nú hafa ungir og framtakssamir
Flateyringar ákveðið að snúa þró-
uninni við og vilja þeir sjá húsið
standa undir nafiii sem fólagsheim-
ili á ný.
Um helgina var fyrsta samkoma
nýrra tíma haldin þar sem unga
fólkið mætti með uppbrettar ermar
til að flikka upp á húsnæðið,
skrúbba, skafa, spartla og mála.
Framtakið var löngu þarft og raun-
ar ekki seinna vænna ef viðhald
átti að eiga sér stað á annað borð.
Verkstjóri framkvæmdarinnar
er ívar Kristjánsson. Hann er upp-
alinn á Flateyri en flutti þaðan burt
fyrir nokkrum árum með for-
eldrum sínum. Nú hefur ívar snúið
til baka ásamt unnustu sinni með
það fyrir augum að setjast að á
Flateyri.
„Staðurinn togaði í okkur bæði
Félagsheimilið á Flateyri
öll þessi ár meðan við vorum í
burtu, svo loksins þegar tækifæri
gafst ákváðum við að snúa til
baka,“ segir ívar. Og það má til
sanns vegar færa að hér eru mörg
tækifæri fyrir framtakssamt og
dugmikið fólk eins og endurreisn
félagsheimilisins ber vitni.
En hvað er það nákvæmlega sem
vakir fyrir hópnum? Svarið við því
er einfalt: „Að gera húsnæðið
mönnum bjóðandi og koma því aft-
ur í gagnið," segir Ivar.
Fyrsta skrefið er að standsetja
félagsheimilið fyrir hressilegt jóla-
ball sem stefnt er á að halda eftir
miðnætti á jóladag. Þá mun Flat-
eyringum og nágrönnum gefast
kostur á að dansa af sér jólasteik-
ina og búa sig undir áramótagleð-
ina.
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
fvar Kristjánsson er verkstjóri yfir hópi ungra Flateyringa sem stefn-
ir að því að koma félagsheimili staðarins aftur í gagnið.
Ibúar Snæ-
fellsbæjar
sungu sig inn
í aðventuna
Ólafsvík - Sannkölluð aðventu-
stemning ríkti í Ólafsvíkurkirkju
þegar Samkór Snæfellsbæjar hélt
þar tónleika. Þetta voru fyrstu
tónleikar Samkórsins en hann var
stofnaður sl. haust og samanstend-
ur af söngfólki vítt og breitt úr
Snæfellsbæ.
Tónleikarnir hófust með því að
slökkt var á Ijósum í kirkjunni og
kórinn kom gangandi inn með
kertaljós, syngjandi sálminn Kom
þú kom, vor Immanúel.
Síðan fylgdu fleiri sálmar í anda
aðventunnar en einnig kom fram
blásarakvartett og kryddaði dag-
skrána. Þá söng Veronica Oster-
hammer söngkona sálminn fallega
Ó, helga nótt við góðar undirtekt-
ir. Tónleikagestir, sem fjölmenntu
í kirkjuna þetta kvöld, fengu svo
að taka undir með Samkórnum í
nokkrum sálmum og syngja sig
þannig inn í aðventuna.
Undir lok tónleikanna var
stjórnanda kórsins, Kay Wiggs,
færður myndarlegur blómvöndur
og að lokum sameinuðust allir í
kaffi og konfekti á eftir. Samkór
Snæfellsbæjar stefnir síðan á
áframhaldandi æfingar eftir ára-
mót og tónleika í Ingjaldshóls-
kirkju næsta vor.
Morgunblaðið/GPV
Þórdís Gunnlaugsdóttir, Anna Þórunn Guðmundsdóttir og Almu Rut
Garðarsdóttir spiluðu á trompet.
Jólatónfundur
tónlistarnema
Hannar tæki til að
merkja rúllubagga
Grindavík - Það er alltaf tilhlökkun-
arefni að hlýða á nemendur Tónlist-
arskóla Grindavíkur. Nú á dögunum
var haldinn svo kallaður jólatónfund-
ur en alls eru haldnir 10 tónfundir yf-
ir skólaárið. Þama spilaði valinn hóp-
ur bama á hin ýmsu hljóðfæri í
Grindavíkurkirkju og stóðu sig ein-
staklega vel.
Þegar Guðmundur Emilsson,
skólastjóri Tónlistarskólans, var
spurður um hvað væri næst á döfinni
sagði hann: „Það er aðfarasöngur á
miðnæturmessu 24. desember kl. 23,
en þá syngur skólakór sem í eru alls
50 böm á aldrinum 6-14 ára. Mikill
tími hefur farið í æfingar en þama
verða flutt bæði íslensk og erlend
jólalög. Þessi kór var stofnaður í
haust og á annað hundrað bama sóttu
um en einungis 50 fengu að vera með
að þessu sinni,“ sagði Guðmundur.
Morgunblaðið/GPV
Helga Dís Jakobsdóttur spilaði á pianó.
Stykkishólmi - Áhugasamur bóndi
í Hraunhálsi, Jóhannes Eyberg
Ragnarsson, hefur tvö undanfarin
ár þróað hugmynd sína um að
merkja rúllubagga.
Heyskapur hjá bændum hefur
breyst mikið síðustu ár. Langflest-
ir bændur pakka heyinu inn í rúll-
ur til geymslu fyrir veturinn. Allar
líta rúllurnar eins út og því erfitt
að sjá hverskonar hey rúllan hefur
að geyma. Því hafa bændur stund-
um merkt rúllurnar með túss-
penna eftir að búið er að rúlla. Jó-
hannes Eyberg hefur verið að
hugsa upp ráð til að merkja rúll-
urnar jafnóðum og þeim er pakkað
og spara þannig vinnu og fyrir-
höfn. Hann telur sig hafa fundið
lausn á þessum viðfangsefni og
hefur smíðað tæki sem merkir
heyrúllurnar um leið og þær eru
plastaðar.
Með tækinu er hægt að prenta
þær upplýsingar á rúllurnar sem
bóndinn óskar. Þar getur komið
fram dagsetning, bæjarnafn, túnið
sem heyið er af o.s.frv. Jóhannes
Eyberg hefur notað merkitækið í
tvö sumur og telur að sér hafi tek-
ist að sníða af alla vankanta sem
upp hafa komið.
Jóhannes Eyberg hefur kynnt
uppfinningu sína fyrir Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins á Hvann-
eyri og fengið þaðan hvatningu til
að koma tækinu í framleiðslu.
Hann sótti um styrk til Iðntækni-
stofnunar í sumar. Þar var honum
vel tekið og boðin aðstoð til að
koma hugmynd sinni á framfæri.
Hann hefur áhuga á að komast í
samband við fyrirtæki sem fram-
leiða rúllubaggavélar og fá þau í
lið með sér.
Fyrir nokkru fóru Jóhannes Ey-
berg og Hörður Baldvinsson frá
Iðntæknistofnun á stóra landbún-
aðarsýningu í London. Þar komust
þeir í samband við fyrirtæki sem
framleiða rúllubaggavélar og
kynntu þar hugmyndina um merk-
ingu rúllubagga. Jóhannes Eyberg
var mjög ánægður meðviðtökurnar
sem þeir fengu og vonar að upp-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Jóhannes Eyberg Ragnarsson, bóndi í Hraunhálsi, hefur hannað tæki
sem prentar upplýsingar á rúllubagga. Hann vinnur nú að því að koma
hugmynd sinni á framfæri. Jóhannes hefur sjálfur notað tækið í tvö
sumur og þar sem hann bindur inn um 800 rúllur hvert sumar hefur
hann sparað sér mikla vinnu með nýju tækninni.
finning sín verði viðurkennd og að
samningar náist um framleiðslu.
Markviss fóðrun nauðsynleg
Að sögn Jóhannesar Eybergs er
mikilvægt að vita hvernig hey er
verið að gefa skepnunum. Nú-
tímabúskapur krefst þess að hafa
markvissa fóðrun til að fá há-
marksarðsemi úr búpeningum.
Bóndinn verður að vita hvers kon-
ar hey er verið að gefa. Því skiptir
miklu máli að skrá sem bestar
upplýsingar um heyið á rúllubagg-
ana.
Þeir sem stunda heysölu hafa
mikil not af nýja tækinu, því þá
geta þeir á auðveldan hátt merkt
framleiðslu sína. Jóhannes Eyberg
er viss um að ef honum tekst að
koma merkingarvélinni í fram-
leiðslu muni hún auðvelda bænd-
um störfin með þessari nýju tækni
og þá sé tilganginum náð.