Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 24

Morgunblaðið - 22.12.2000, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Kaupþing ger- ir sparisjóð- um tilboð • HREYFING er á hlutum sparisjóð- anna í Kaupþingi hf., að sögn Guð- mundar Haukssonar, stjórnarfor- mannsfélagsins. Hann segiraö sumirsparisjóðirvilji minnka eign- arhlutdeild sína í Kaupþingi, innleysa hagnaö, en aörir sparisjóöir vilji kaupa. Kaupþing hafi milligöngu um að miðia milli þessara sparisjóöa og hafi gert átta sparisjóðum sem eigi lítinn hlut í Kaupþingi hver, eöa sam- tals um 5-6%, tilboö um kaup á þeirra hlutum. Aðspuröur um gengiö á hlutabréfunum sem Kaupþing hafi gert sparisjóðunum tilboö um kaup á sagöist Guðmundurekki hafa upp- lýsingarum þaö. Pernod kaupir drykkjafram- leiðslu Seagram • SAMSTARFSFÉLAG breska fyr- irtækisins Diageo ogfranska Pernod Ricard keypti drykkjaframleiðslu kanadíska félagsins Seagram fyrir tæpa 700 milljarða íslenskra króna, aö þvíertilkynntvarívikunni. Sænska fyrirtækið Vin & Spirit, sem m.a. framleiðirAbsolut Vodka, lagöi ekki inn tilboð. Aó því erfram kemurí Financial Times mun Pernod Ricard selja eignirfyrir a.m.k. 80 mílljaröa króna til aö fjármagna kaupin á fram- leiðslu Seagram. Þ.á m. verðurgos- drykkjaframleiösla fyrirtækisins og síöar meir 1,3% eignarhlutur Pernod Ricard í franska bankanum Societe Generale sem talinn er um 20 millj- aröa króna viröi. ESA gerir athugasemdir við norsk lög um fjármálastofnanir Takmarkanir óheimilar EFTIRLITSSTOFNUN EFTA, ESA, hefur sent norskum stjórnvöldum formlega tilkynningu varð- andi hömlur í norskum lögum um eignarhald í fjármálastofnunum, samkvæmt fréttatilkynningu frá ESA í fyrradag. ESA segir að misbrestur sé á því í Noregi að framfylgt sé ákvæðum 11. greinar tilskipunar EES-samningsins um bankastarfsemi og að lög í Noregi stangist á við ákvæði EES- samningsins um frjálst fjármagnsflæði, þ.e. 40. grein samningsins og tilskipun um fjármagns- flæði. Enginn má eiga meira en 10% í fjármáiastofnun í Noregi í 11. grein tilskipunarinnar segir að EES-ríkin skuli gera kröfu um að aðili sem vilji eignast til- tekinn eignarhlut í lánastofnun þurfí að tilkynna þar til bærum yfirvöldum um það. Akvæðið kveður einnig á um að í því tilviki er áhrif við- komandi aðila séu líkleg til að skaða góðan og skynsamlegan rekstur skuli þar til bær yfirvöld grípa til viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir slíkt. Bann víð eignarhaldi umfram 10% andstætt EES-samningnum I fréttatilkynningu ESA segir að í norskum lögum um fjármálastarfsemi og fjármálastofn- anir frá 1988 komi fram sú meginregla að enginn megi eiga meira en 10% hlut í norskri fjár- málastofnun. Norsk stjórnvöld segi að vegna þessarar reglu sé ekki þörf á að taka upp ákvæði 11. greinar tilskipunar um bankastarfsemi í norsk lög. ESA telur að ákvæðið um bann við meira en 10% eignarhaldi í fjármálastofnun sé andstætt frjálsu flæði fjármagns og að norsk stjómvöld geti ekki réttlætt að ekki sé þörf á afdrátt- arlausri innleiðingu 11. greinar tilskipunarinnar um bankastarfsemi með því að vísa til slíkrar reglu. Þess vegna telur Eftirlitsstofnunin að þessar norsku reglur um frjálst flæði fjármagns séu ósamræmanlegar við reglur EES og að Nor- egur hafi því ekki tekið upp 11. grein tilskipunar um bankastarfsemi. í fréttatilkynningu ESA segir að norskum stjómvöldum gefist kostur á að leggja fram at- hugasemdir sínar við tilkynningu Eftirlitsstofn- unarinnar innan þriggja mánaða. Eftirlitsstofn- unin muni taka afstöðu til áframhalds þessa máls í ljósi þeirra athugasemda. í Morgunkomi FBA í gær segir að viðskipti Samherja með eigin bréf komi ekki á óvart í ljósi fyrri yf- irlýsinga félagsins, en í fyrradag voru tilkynnt til Verðbréfaþings Is- lands 103ja milljóna króna kaup Samherja í félaginu að nafnvirði á genginu 9,3. Hlutur Samherja í félaginu fór við þessi kaup úr engu í 6,2%. I Morgunkorni FBA segir að það sé umhugsunarefni fyrir hluthafa Samherja og aðila á markaði hvern- ig framkvæmd viðskiptanna var. Félagið hafi farið þá leið að kaupa mikið magn af bréfum af einum hluthafa á verði sem var 8,5% yfir markaðsverði í fyrradag. Gengi bréfanna sem Samherji keypti var 9,5 en lokaverð í Samheija var 8,75 í lok viðskipta í fyrradag. Upplýsingagjöf þarf að vera gagnsæ Höfundur Morgunkoms FBA segir að spyrja megi hvort ekki hefði verið eðlilegra að Samherji hefði efnt til öfugs útboðs, þ.e. aug- lýst eftir sölutilboðum frá þeim hluthöfum sem kynnu að hafa áhuga á að selja bréf. Þessi aðferð hafi ekki endilega leitt til þess að félagið fengi bréfin á betra verði, en hún hafi verið gagnsærri á markaðnum og tryggt meira jafn- ræði meðal hluthafa. Mikilvægt sé fyrir skráð félög á markaði að markaðsaðgerðir þeirra og upplýs- ingagjöf séu gagnsæjar. Vodafone kaup- ir farsímahluta Eircom TILKYNNT hefur verið um kaup Vodafone á Eircell, farsímahluta írska fjarskiptafyrirtækisins Eir- com. Kaupverðið er tæpir 400 millj- arðar íslenskra króna í hlutabréfum. Viðræður hafa átt sér stað á milli forsvarsmanna fyrirtækjanna und- anfarna tvo mánuði. Þetta er önnur tilkynningin í þessari viku um stórar fjárfestingar Vodafone sem á mið- vikudag tilkynnti um kaup á 15% hlut í Japan Telecom fyrir um 200 milljarða króna í reiðufé. Samkvæmt samningi Vodafone og Eircom, mun Eircell verða skilið frá móðurfélaginu í síðasta lagi í mars á næsta ári, að fengnu samþykki hlut- hafanna. Viðskiptavinir Eircell eru um ein milljón og er salan á fyrir- tækinu talin marka upphafið að frek- ari skiptingu Eircom. Að því er fram kemur í Finandai Times eru ýmsir sem hafa áhuga á að kaupa fasth'nu- hluta Eircom, þ.á m. Denis O’Brien, fyrrum stjórnarformaður Esat sem er helsti keppinautur Eircom. Annað fyrirtæki hefur gert tilboð í fastlínu- hlutann en því var hafnað af Eircom. 6% verðbólga á Irlandi SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 107,5 stig í nóv- ember sl. og hækkaði um 0,3% frá október. Á sama tíma hækkaði sam- ræmda vísitalan fyrir Island um 0,2%. Frá nóvember 1999 til jafn- lengdar á þessu ári var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,6% að meðaltali í ríkjum _EES, 2,9% í evruríkjum og 4,1% á Islandi. í frétt frá Hagstofu íslands var mesta verðbólga í Evr- ópu á þessu tólf mánaða tímabili á Irlandi 6,0% og í Lúxemborg 4,5%. Verðbólgan var minnst, 1,0%, í Bretlandi, og 1,8% í Svíþjóð. Afkomuviðvörun frá ÚA Útlit fyrir 560 milljóna gengistap AFKOMA Útgerðarfélags Akur- eyringa er lakari á síðari hluta árs- ins en var gert ráð fyrir í áætlunum félagsins. Munar þar mest um gengistap vegna veikingar íslensku krónunnar. Samkvæmt óendurskoðuðu upp- gjöri fyrir fyrstu 11 mánuði ársins er gengistap ársins orðið 560 millj- ónir króna, en var 124 milljónir króna eftir fyrstu sex mánuði árs- ins. Til lengri tíma litið hefur veik- ing íslensku krónunnar jákvæð áhrif á rekstur félagsins þar sem nær allar tekjur þess eru í erlend- um gjaldmiðlum. Aðrir þættir sem hafa neikvæð áhrif á rekstur félags- ins síðari hluta ársins eru lélegri aflabrögð á bolfiski, hátt olíuverð og slæm afkoma rækjuveiða og -vinnslu. Tapið liðlega 200 milljónir í sex mánaða uppgjöri félagsins nam tap félagsins 203 milljónum króna og veltufé frá rekstri 353 milljónum. Þá er ljóst að að veltufé frá rekstri á síðari hluta ársins verður lakara en það var á fyrri hluta ársins. Hjálparstarf kirkjunnar beinir söfnunarfé • til bágstaddra íslendinga • til fólks sem býr við örbirgð í þriðja heiminum • á átaka- og hamfarasvæði um allan heim v3fý HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR Gíróseðtar tiggja frammi í öttum bönkum, sparisjóðum og á pósthúsum. Þú getur þakkað Verðbólga í ^ nokkrum ríkjum Breyting samræmdrar neysluverðs- vísitölu frá nóv. 1999 til nóv. 2000 írland 6,0% Lúxemborg 4,5% Spánn 4,1% ÍUSl ísland 4,1% Grikkland 4,0% Belgía 3,7% Portúgal 3,6% Bandaríkin 3,4% Finnland 3,3% Noregur 3,1% Holland* 2,9% Ítalía 2,9% Danmörk 2,7% Þýskaland 2,6% Austurríki* 2,3% Frakkland* 2,2% Sviss 1,9% Svíþjóð 1,8% Bretland 1,0% Japan** -0,9% Meðalt. EMU* 2,9% Viðsk.lönd** 2,5% Meðalt. ESB* 2,6% Meðalt. EES* 2,6% * Bráðabirgðatölur ** Okt. 1999 til okt. 2000 i EES n'kjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðs- vísitölu en í Bandar., Japan og Sviss við neysluverðsvísitölur. I k -
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.