Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Tónlistarhús
í Reykjavík
Að vera eða ekki vera
fyrir Austfirðinga
FÉLAGAR í Karla-
kór Reykjavíkur
sýndu einstaka fram-
sýni er þeir tókust á
hendur það þrekvirki
að reisa fullbúið tón-
listarhús með tón-
leikasal og æfingaað-
stöðu. Húsið var vígt
fyrir tæpu ári og ber
heitið Tónlistarhúsið
Ymir.
Salurinn í Ými rúm-
ar 350 manns og er
glæsileg umgjörð fyr-
ir tónleika, fundi,
móttökur og veislur.
Þá hefur salurinn
einnig verið notaður
undir upptökur, bæði fyrir hljóm-
diska og útvarp. Er það mál þeirra
Ýmir
Er það mál þeirra
fagmanna, sem að
upptökum í Ymi hafa
komið, segir Sólborg
L. Steinþórsdóttir, að
jafngóður upptökusalur
sé vandfundinn á
höfuðborgarsvæðinu.
fagmanna, sem að upptökum hafa
komið, að jafngóður upptökusalur
> sé vandfundinn á höfuðborgar-
svæðinu.
Ýmir er ekki eingöngu vettvang-
ur tónleika og annars listflutnings
heldur er hann einnig
æfingaaðstaða fyrir
fjölda kóra, og starfs-
vettvangur söngskól-
ans „Hjartansmál".
Líf og fjör er því í
húsinu frá morgni til
kvölds og 'veitir oft
ekki af því mikla rými
sem húsið býður upp
á. Að öllu jöfnu leggja
hátt í þúsund manns
leið sína í Ými í viku
hverri til þess að
leggja stund á tónlist
og söng eða til þess að
sækja þangað viðburði
sem eru á dagskrá
hússins. Nefna má að
nú í annarri viku aðventu fóru
fram í húsinu tónleikar Léttsveitar
Reykjavíkur, sem er einn af nokkr-
um kvennakórum sem eiga heima í
húsinu, upptaka á geisladiski og
undirbúningur Karlakórs Reykja-
víkur undir aðventutónleikana sem
að þessu sinni fóru fram í Hall-
grímskirkju.
Margir Reykvíkingar hafa ef til
vill ekki gert sér grein fyrir því, að
fyrir hendi er í borginni fullkomið
sérhannað tónlistarhús. Tónlistar-
menn segja hljómburð í húsinu
einstæðan að gæðum og það skart-
ar auk þess Steinway-konsertflygli
af bestu gerð.
Ástæða er því til þess, að hvetja
allt áhugafólk um tónlist til þess að
kynna sér af eigin raun þá kosti
sem þetta fyrsta stóra tónlistarhús
Reykvíkinga býður upp á. Verið
velkomin í Ými.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Tónlistarhússins Ymis.
NÚ stendur mikill
styr um hvort leyfa
skyldi fiskeldi í sjó við
ísland og sýnist sitt
hverjum eins og ávallt
gerist um þjóðþrifa-
má).
Ég vil í grein þess-
ari bera niður á ýms-
um þáttum þessarar
umræðu og þá helst
hvað snýr að hinum
faglegu þáttum,
möguleikum, vanda-
málum og lausn
þeirra. Ekki verður
heldur litið hjá byggð-
armálum.
Ég vil byrja á því
sem eiginlega ætti að standa fyrst
og fremst í slíkri umræðu og það
er hagur fólks sem býr á svæðinu
sem kallast Austfirðir. Það þarf
vart að nefna að þetta eru byggð-
arlög sem lifa af fiski. Breytingar
þær sem hafa orðið á skipan mála
um kvóta, og lök staða margra
stofna, gera það að lífsgrunnlaginu
er að nokkru leyti svipt undan fólki
og verður þetta til að mikill fólks-
flótti hefst. Ef ekki er leitast við að
skapa atvinnutækifæri leggst
byggð af á flestum þessum stöðum
innan mannsaldurs og er það vart
landi og þjóð til hags eða sóma.
Sami vandi hefur þjakað frænd-
ur okkar Norðmenn og er nærtækt
að skoða hvernig þeir hafa reynt
að leysa þetta vandamál.
Síðan 1985 hafa Norðmenn lagt
mikið í að byggja upp fiskeldi með-
fram ströndum landsins og nýta til
þess hina vogskornu strönd lands-
ins. í dag vinna um 12.000 manns
beint eða óbeint við fiskeldi í Nor-
egi og fjöldi byggðarlaga sem áttu
sér enga framtíð fyrir 10 árum
standa í blóma. I gegnum fyrir-
tækjaskatt, aðstöðugjöld og skatt-
ana sem verkafólk greiðir af
tekjum sínum, skilar fiskeldisiðn-
aðurinn miklum skattatekjum til
sveitarfélaganna og norska ríkis-
ins. Meira að segja íslensk fyr-
irtæki á borð við Marel og Vaka
DNG njóta góðs af norsku fiskeldi.
í dag telst manni til að fiskeldi hafi
unnið meira á móti
flótta frá byggðum
landsins en allir
byggðarstyrkir og
verkefni frá hinu op-
inbera samanlagt frá
1970. Ástandið í
norsku fiskeldi er
mjög gott, bæði um-
hverfislega og fjár-
hagslega og vöxturinn
er að jafnaði um 10%
árlega síðustu 5 ár.
Framleiðslan í ár
verður um 425.000
tonn upp úr sjó og
söluverðmætið nálgast
13 milljarða norskra
króna. Þessi athyglis-
verði vöxtur hefur ekki komið af
sjálfu sér og hjákátlegt er að að
hefja fiskeldi án þess að taka í
notkun alla þá tækni og þekkingu
sem Norðmenn hafa unnið sér inn
síðan 1972 með miklum tilkostnaði.
Hér ber að nefna sjúkdómavarnir
og lyfjanotkun, sníkjudýr (sem
Fiskeldi
Ég skora á landsmenn
að byggja umræðuna á
rökum, segir Björgdlfur
Hávarðsson, og líta
fram hjá orðgjálfri
manna sem vilja hafa
landsbyggðina
að leikvelli.
nánar verður fjallað um síðar),
flótta úr kvíum og eftirlit með eig-
in mengun (mengun af úrgangi frá
eldisstöð).
Sníkjudýr
Laxalús er og hefur alltaf verið
fylgifiskur laxeldis og smitast hún
af villtum laxi yfir á eldilaxinn þar
sem hún getur valdið miklu tjóni ef
hún er látin fjölga sér óáreitt.
Fram að 1997 vantaði samræmdar
aðgerðir af hálfu eldismanna og
norska löggjafarvaldsins. Um ára-
mót 1997 var ákveðið að samhæfa
aflúsun á eldisfiski og skyldi aflús-
að tvisvar fyrir 15. maí. Þessi
markvissa vinna er nú að byrja
skila árangri sem sést af aukningu
í laxveiði í ám í öllum Noregi og er
laxveiði í sjó 137 tonnum meiri en í
fyrra og er nú yfir 600 tonn. Atle
Kambestad (við umhverfisdeild
sýslumannsins í Hörðalandi) hrós-
ar eldismönnum fyrir að vinna öt-
ullega að útrýmingu laxalúsar þótt
nokkuð sé eftir til að losna alfarið
við vandamálið (Haustbók Stang-
veiðifélags Bergen).
Gyrodactylus er annar sníkill
sem oft hefur verið tengdur, rang-
lega, við fiskeldi. Sníkill þessi hefst
eingöngu við í fersku vatni og
berst því ekki áfram með laxeldi í
sjó. Smitið hefur nær eingöngu
orðið með þeim hætti að fiskur
sem alinn var til sleppinga var
sýktur.
Sjálfsmengun/umhverfismat
Þetta er vandamál sem hrjáði
iðnaðinn hér um slóðir og kom það
oft til af því að notaðar voru víkur
og firðir sem ekki voru til þess
fallin að stunda eldi í. Norska Haf-
rannsóknastofnunin hefur unnið að
kerfi til að meta áhrif eldis á um-
hverfið. Matið fer fram á 6 mánaða
fresti og flokkar stöðvarnar niður í
A, B og C flokka. Matið fer þannig
fram að sjávarlíffræðingar fara á
staðinn og taka vatns- og botnsýni
á fjölda svokallaðra stöðva sem
merktar eru sem staðsetning á
GPS-kerfi. Áður en eldi hefst er
tekin nákvæm úttekt á stöðu líf-
ríkis á svæðinu, með botnsýnum og
fleiru. Þegar eldi hefur verið rekið
í 6 mánuði eru tekin ný sýni og
niðurstöður birtar eldismanni og
ráðuneyti. Ef allt er innan gefinna
marka (A flokkur) fær eldisfyr-
irtækið að halda áfram óbreytt í 6
mánuði fram að næsta mati. Ef
matið fellur í B flokk ráðleggur
matsmaður/stofnun um breytingar
á rekstri. Ef matið fellur í C flokk
er hægt að minnka það magn sem
leyfilegt er að ala fram á staðnum
eða fyrirtækinu gert skylt að færa
sig á annan stað þegar seiði eru
sett á ný. Þetta er hið einasta
raunhæfa umhverfismat sem hægt
er að framkvæma varðandi fisk-
eldi.
Flótti úr kvíum
Mikið er rætt um aðgerðir til
varnar flótta úr kvíum eldisfyr-
irtækja. Ástæður flótta eru margar
en þó eru nokkrar sem bera af.
Skemmdir á nót vegna meðhöndl-
unar, skemmdir á nót eftir að nót
flækist í skrúfu og skemmdir á nót
eftir óveður.
Heimsins stærsta eldisfyrirtæki,
Hydro Seafood, hefur í samstarfi
við norska framleiðendur nótanna
hannað og tekið í notkun nýja teg-
und nötar sem er að öllu leyti
sterkari en þær nætur er áður
voru notaðar. Næturnar eru
nokkru dýrari og þyngri í vöfum
en á móti kemur aukin ending og
aukinn slitstyrkur. Samkvæmt Ei-
vind Osnes, framleiðslustjóra í
Norður-Þrændalögum, og Ola Ug-
set stöðvarstjóra hefur ekki orðið
eitt einasta óhapp þar sem fiskur
hefur sloppið síðan Hydro byrjaði
að nota þessar nætur. Hydro hefur
um 90 rekstrarleyfi og ætla má að
hverju rekstrarleyfi fylgi þetta 6-8
kvíar. Samkvæmt Atle Kambestad
(við umhverfisdeild sýslumannsins
í Hörðalandi) hefur eldismönnum
tekist svo vel að komast fyrir flótta
úr kvíum að „.. margir stangveiði-
menn gagnrýna okkur fyrir að
stöðva ekki netaveiði á eldislaxi"
(Haustbók 2000 - Stangveiðifélags
Bergen).
Að þessum orðum sögðum vil ég
skora á landsmenn að byggja um-
ræðuna á rökum og líta fram hjá
orðagjálfri manna sem vilja hafa
landsbyggðina að leikvelli. Ég
skora á Austfirðinga og landsmenn
alla að velja þann kostinn sem gef-
ur landsbyggðinni þann lífskraft
sem einkennt hefur íslendinga í
1100 ár og ekki breyta Austfjörð-
um í friðaðar veiðilendur þar sem
prinsar og poppsöngvarar einir
hafa eitthvað að sækja.
Austfirðingar, vaknið og grípið
gæsina áður en hún verður skotin.
Höfundur er með Meistaragráðu
í fiskeldi frá Bergen,
er Stöðfirðingur og varamaður
istjóm Stangveiðifélags Bergen.
Enskar jólakökur
Enskur jólabúðingur
Klapparstíg 44, sími 562 3614
TM
PlayStation.E
Gjafakortin eru komin
í verslanir Skífunnar.
SKIFAN
Laugavegi 26 sfmi 525 5042 Krínglunni sími 525 5030
Gœðavara
Gjafdvara — matdr- og kaífistell. He
Allii verðflokkar. ^ m.i
VERSLUNIN
Laugnvegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
Sólborg
L. Steinþórsdóttir
Björgólfur
Hávarðsson