Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 22.12.2000, Blaðsíða 62
'^52 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SIEMENS sem eiga heima hjá þér! Umboðsmenn um land allt. SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is - : -''W- »il -■m 49.900 kr. stgr.) Uppþvottavél SE 34230 Ný uppþvottavél. Einstaklega hljóðlát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi, tvö hitastig. (59.900 kr. stgr. Kæli- og frystiskápur KG 31V20 198 I kælir, 105 I frystir. Hxbxd = 170 x 60x64 sm. 55.900 kr. stgr.) Bakstursofn HB 28054 Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi. Sannkallaður gæðaofn frá Siemens. (59.900 kr. stgr. Þvottavél WM 54060 6 kg þvottavél sem hefur slegið í gegn hérlendis sem annars staðar. 1000 sn./mín 55.900 kr. stgr) Helluborð ET 72554 Keramíkhelluborð með snertihnöppum. Flott helluborð á fínu verði. 69.900 kr. stgr. Eldavél HL 54023 Keramíkhelluborð, fjórar hellur, fjölvirkur ofn, létthreinsun. 12.900 kr. stgrj) Þráðlaus sími —^ Gigaset 3010 Classic DECT/GAP-staða11. Einstök talgæði. Treystu Siemens til að færa þér draumasímann. (8.900 kr. stgr. Ryksuga VS51A22 Kraftmikil 1400 W ryksuga, létt og lipur, stiglaus sogkraftsstilling. FYRIRSPURNIR VEGNA ÆVISÖGU STEINGRÍMS HER- MANNSSONAR SÍÐASTLIÐIÐ haust birtist grein eftir Þórð Þórarinsson stjóm- málafræðing um fyrra bindi ævisögu Steingríms Hermannssonar, fyrr- verandi forsætisráðherra og seðla- bankastjóra. Þórður fjallaði þar m.a. um gamlar ásakanir á hendur Stein- grími um misferli í opinbem starfi. Benti Þórður jafn- framt á að ekki væri hægt að afgreiða þess- ar ásakanir með svo einföldum hætti sem Steingrímur sjálfur og ævisöguritari hans kusu að gera. Þórður féllst á að Steingrímur fengi að svara grein hans í sama blaði. Steingrím- ur kaus að notfæra sér það og fékk þannig tækifæri til að koma með raunverulegar skýringar á því mis- ferli sem hann var sak- aður um fyrir 30 ámm. í svari sínu forðast Steingrímur hins vegar eins og heit- an eldinn að ræða kjarna málsins en reynir að drepa málinu á dreif og þrefar um aukaatriði sem litlu eða engu máli skipta. Þau gögn sem dr. Þorsteinn Sæ- mundsson, prófessor og stjómar- maður í Rannsóknarráði, lagði fram á sínum tíma í kjölfar rannsóknar sinnar á fjárreiðum ráðsins fyrir árið 1969 fólu í sér mjög alvarlegar ásak- anir á hendur Steingrími. Þessum ásökunum hefur Steingrímur aldrei svarað efnislega en ætíð sagt að um pólitískar árásir hafi verið að ræða án þess að rökstyðja það frekar. Má einungis skoða málið frá sjón- arhóli Steingríms? Við lestur greinar Þórðar fer ekki á milli mála að hann nálgast mál- efnið frá fræðilegu sjónarhorni og án allra stóryrða. í svargrein Stein- gríms kveður við annan tón og Þórði em ætlaðar annarlegar hvatir fyrir það eitt að benda á að ásakanir dr. Þorsteins vom alvarlegri og marg- slungnari en svo að hægt sé að af- greiða þær jafn auðveldlega og Steingrímur og skrásetjarinn gera í ævisögunni. Þrátt fyrir að skrásetj- ari ævisögu Steingríms segi í for- mála fyrsta bindis að um gagnrýna ævisögu sé að ræða er frásögnin mjög einhliða og reynt er að afgreiða málið með því að slá fram gömlu skýringunni um pólitískar ofsóknir. Hvort sem Steingrími líkar það betur eða vem opnaði hann sjálfur fyrir umræðu um þessi mál í viðtali í Morgunblaðinu 21. júní 1998 og síð- ar í ævisögu sinni. Það er hann sjálf- ur sem hóf umræðuna að nýju eftir 30 ára þögn og því ætti hann varla að vera mótfallinn því að rætt sé um málið út frá fleiri sjónarhornum en honum sjálfum hentar. Það ætti því ekki að koma Steingrími á óvart að fræðimenn og áhugamenn um stjóm- mál og sögu láti sér ekki einungis nægja þær „skýringar“ sem honum sjálfum hentar að halda fram heldur skoða önnur tiltæk gögn um málið. Að þeim lestri loknum var ég a.m.k. þeirrar skoð- unar að endurteknar upphrópanir Stein- gríms um pólitískar of- sóknir hrektu engan veginn rökstuddar at- hugasemdir dr. Þor- steins um bókhald Rannsóknarráðs. Ásakanir Þorsteins standast því í öll- um aðalatriðum þrátt fyrir að langt sé um liðið frá því þær komu fyrst fram. Var tímasetningin tilviljun? Steingrímur gefur sterklega í skyn í grein sinni að skrif dr. Þor- steins Sæmundssonar á sínum tíma hafi verið pólitísks eðlis og spyr hvort það geti verið tilviljun að greinar hans birtust í aðdraganda kosninga. Við lestur greina Þorsteins kemur einmitt fram að tilviljun réð því ekki hvenær gréinar Þorsteins birtust heldur Steingrímur sjálfur! Þar kemur fram að afskipti Þorsteins af fjármálaóreiðu Rannsóknarráðs hóf- ust einum 15 mánuðum áður en nokkuð birtist eftir hann á prenti um það. Málið hófst með því að Þor- steinn gekk á fund Steingríms vegna ábendinga um að eitthvað kynni að vera bogið við reikninga Rannsókn- arráðs. Allan þennan tíma vann Þor- steinn síðan að málinu, fyrst til að fá staðreyndir upplýstar en síðan til að koma böndum á þá óreiðu sem aug- ljóslega var á fjárreiðum Rannsókn- arráðs. Þorsteini gekk afar illa að fá umræddar upplýsingar en lengi vel birtist ekkert um málið opinberlega því Þorsteinn leitaði ekki til fjöl- miðla og þeir ekki til hans. Haukur Örn Birgisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.