Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 63

Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 63 SKOÐUN Hið undarlega er, að það var Steingrímur sjálfur sem reið á vaðið opinberlega með greinargerð í dag- blöðum 8. maí 1971 þar sem hann sagði frá athugasemdum sem Þor- steinn hefði gert við reikninga Rann- sóknarráðs. Þá fyrst skrifaði Þor- steinn um málið í Morgunblaðið, líklega vegna þess að hann hefur tal- ið sig þurfa að svara Steingrími. Tímasetningin virðist því hafa ráðist af viðbrögðum Steingríms sjálfs. Var bókarinn mistækur? Ég átti von á því að í nýútkomnu bindi ævisögunnar kæmu fram nýjar upplýsingar í málinu og þar myndi Steingrímur jafnvel ræða efnislega ásakanir dr. Þorsteins sem birtust í blöðum fyrir tæpum 30 árum. Þrátt fyrir að fjallað sé um málið í tveimur útkomnum bindum ævisögunnar víkur Steingrímur í engu frá fyrri málflutningi. Einu upplýsingarnar sem koma fram í ævisögunni eru þær að Steingrímur skellir skuldinni á Pálma Pétursson, bókara Rann- Mig langar til að beina þeirri spurningu til Steingríms, segir Haukur Orn Birgisson, hvort hann hafí nokkurn tímann, nema í þetta eina sinn, verið látinn endurgreiða reikninga sem tilheyrðu honum sjálfum. sóknarráðs, sem lést árið 1977. í grein Þórðar er bent á sjö dæmi um athugasemdir sem dr. Þorsteinn gerði við bókhald Rannsóknarráðs frá árinu 1969. í svargrein Stein- gríms fjallar hann um tvö þeirra og segir að um saklaus mistök hafi ver- ið að ræða. Væntanlega eiga lesend- ur að álykta að allar athugasemd- irnar megi skrifa á reikning bókarans sem Steingrímur kallar mistækan í ævisögunni. Eftir því sem kafað er dýpra ofan í málið kemur æ betur í ljós hversu veik sú afsökun Steingríms er að um mistök bókara hafi verið að ræða. I lögum um rannsóknii- í þágu at- vinnuveganna frá 1965 segir orðrétt um framkvæmdastjóra Rannsókn- arráðs: „Framkvæmdastjóri annast daglegar framkvæmdir Rannsókn- arráðs, fjárreiður þess og reiknings- skil.“ Það fer því ekki á milli mála hvar ábyrgðin lá. Pálmi Pétursson, sem í greininni er kallaður bókari Rannsóknarráðs, var meira en það því að hann var á þessum tíma skrif- stofustjóri Rannsóknastofnana at- vinnuveganna. Sú skrifstofa var á þessum tíma á öðrum stað í bænum en skrifstofa Steingríms sem mun hafa verið í húsi Atvinnudeildar Há- skólans. Steingrímur hafði ritara sér til aðstoðar en samt var eðlilegt og sjálfsagt að hann notfærði sér þá þjónustu sem skrifstofa Pálma bauð honum upp á. En til þess að Pálmi gæti fært reikninga til bókar þurfti Steingrímur að senda honum þá eða vísa þeim til hans. Það hlaut því að vera á ábyrgð Steingríms að hans persónulegu reikningar færu ekki þar með. Steingrímur endurgreiddi reikninga... Athyglisverð er sú fullyrðing Steingríms að ríkisendurskoðun hafi farið ítarlega yfir reikninga Rann- sóknarráðs á hverju ári meðan hann var framkvæmdastjóri og gert fjöl- margar leiðréttingar. Óhætt er að fullyrða að athugun á borð við þá sem dr. Þorsteinn gerði á fylgiskjöl- um reikninganna fyrir árið 1969 hafði aldrei verið framkvæmd áður, a.m.k. ekki af ríkisendurskoðun. Þá langar mig til að beina þeirri spurn- ingu til Steingríms hvort hann hafi nokkurn tímann, nema í þetta eina sinn, verið látinn endui-greiða reikn- inga sem tilheyrðu honum sjálfum. Var það tilviljun svo notað sé hans eigið orðalag? ... ogreif upp bókhaldið Þá má einnig benda á að Þorsteinn ætlaði einnig að líta á fylgiskjöl næsta árs á eftir. Þá kom í ljós að Steingrímur hafði hlaupið til og end- urgreitt fjölda reikninga sem hann hafði látið færa á Rannsóknarráð. Þetta gerði Steingrímur eftir að formlega var búið að loka reikning- um ársins. Var þetta líka tilviljun eða heldur hann því fram að þetta hafi verið föst venja? í svargrein Steingríms segir hann reyndar að hann hafi ekki haft áhyggjur af bók- haldsmistökum því að hann hafi vit- að að ríkisendurskoðun myndi leið- rétta þau. Af hverju stöfuðu þá áhyggjurnar í þetta sinn? Af þriðja bindi ævisögunnar verð- ur ekki ráðið að hinn „hlutlausi“ höf- undur hafi haft samband við Þor- stein Sæmundsson til að heyra álit hans á ummælum Steingríms. Hefði það ekki verið sjálfsagt í svo um- deildu máli? Er ekki hugsanlegt að Þorsteinn hefði undir höndum fleiri gögn en þau sem hann birti opinber- lega á sínum tíma? Ég hygg að það hefðu margir hlutlausir höfundar gert enda er það þekkt í sagnfræði að málsaðilar eru fúsari til að leggja fram fleiri gögn eftir því sem lengri tími líður frá atburðum. Reikning-arnir umtöluðu Steingrímur fjallar aðeins um tvo lægstu reikningana en kýs að þegja um aðrar athugasemdir sem snerta ótrúlega háan bensín- og viðgerðar- kostnað bifreiðar Rannsóknarráðs, risnukostnað þess og símareikninga. Eftir að hafa lesið athugasemdir Þorsteins koma strax nokkrar spurningar upp í hugann sem allir gagnrýnir ævisöguritarar hefðu spurt Steingrím að, svo sem: • Hvernig stóð á því að Rann- sóknarráð borgaði Steingrími and- virði þriggja varahlutareikninga frá SÍS sem samkvæmt vörunúmerum voru varahlutir í Scout-bifreið? (Á þessum tíma hafði Steingrímur Chevrolet-fólksbifreið Rannsóknar- ráðs með skráningarnúmerið R-10816 til umráða en einkabifreið Steingríms var jeppi af Scout-gerð með númerið G-1149. Athygli vakti að Steingrímur fékk einnig greidda tvo varahlutareikninga frá Agli Vil- hjálmssyni þar sem búið var að skrifa G-... og G-1149 en síðan var strikað yfir það og R-10816 skrifað á reikningana í staðinn. Einnig var að finna reikninga frá Radíóþjónustu Bjarna og Stillingu þar sem númeri var breytt úr G-1149 í R-10816. Sé þarna um tilviljanir að ræða hljóta þær að vera svo einstakar að þær eigi fullt erindi í ævisöguna.) • Hvernig stóð á hinum háa rekstrarkostnaði Chevroletsins sem þó var ekki nema fjögurra ára gam- all? (Rekstrarkostnaðurinn nam rúmlega 1,3 milljónum króna á nú- virði. Skráðar vinnustundir á verk- stæðisreikningum voru 342 fyrir bíl- inn á umræddu ári eða nærri heil klukkustund hvem einasta dag árs- ins. Einhverjum myndi þykja það ótrúlega hár viðhaldskostnaður fyrir ekki eldri bíl.) • Hvernig stóð á hinum háa bens- ínkostnaði ríkisbifreiðarinnar en þetta ár voru keyptir 5.792 lítrar af bensíni á hana eða að meðaltali 16 lítrar á dag? (Sjö sinnum var bensín tekið tvívegis sama daginn (þar af fimm sinnum í Reykjavík) en bens- íngeymir ríkisbifreiðarinnar tók 63 lítra.) • Var það í samræmi við reglur ríkisins að Steingrímur skyldi auk þess leigja Rannsóknarráði og Surtseyjarfélaginu einkabíl sinn á bílaleigutaxta í þrjá mánuði sama ár? • Hvernig stóð á hinum mikla símakostnaði Rannsóknarráðs árið 1969? Ríkisendurskoðun gerði at- hugasemdir vegna fjölmargra sím- tala og símskeyta til Vestfjarða (kjördæmi Steingríms) og gerði hon- um að endurgreiða 103 símreikn- inga'.. • I ævisögunni rekur Steingrím- ur þessi „saklausu mistök“ til fyrr- verandi bókara Rannsóknarráðs sem nú er látinn. Gagnrýninn ævi- söguritari hlyti að hafa kannað málið frekar og spurt hvort Steingrímur sé í raun og veru að halda því fram að bókarinn hafi t.d. breytt númerum á bensín- og viðgerðamótum með þeim hætti sem fram kemur hér að ofan. Ævisöguritarinn hefði einnig átt að spyrja hvers vegna gagnrýni á bókarann kemur fyrst fram eftir að hann er fallinn frá. Ekki var staðið við stóru orðin Fróðlegt væri að vita hvort hinn „gagnrýni“ ævisöguritari hafi rætt við Þorstein sjálfan. Auðvitað hefði hann líka átt að ræða um þessar ásakanir við Steingrím lið fyrir lið og gefa honum kost á að svara fyrir sig í bókinni. Ég vonaðist til að skrásetjari ævi- sögu Steingríms yrði við þeirri ábendingu að bijóta „grænubauna- málið“ til mergjar og standa þannig við stóru orðin sem hann gaf okkur lesendum. Sú varð reyndin því miður ekki. Höfundur er laganemi. ©teðílcgt úroal íólagjafa FUNAI myndbandstæki Nicam stereo frá Þýskalandi • Barnalæsing • 2 skarttengi • AV-tengi að framan • Fjarstýring og flelra. Tiiboð 18.900 kr. • Long play • NTSC afspilun • 99 minni • Tær kyrrmynd • Hægmynd Mónó útfærsla á PÍJNAI 14.900 kr. stgr. • 6 hausa Nicam stereo ON OFF vöRumu X R K A Ð U R Smiðjuvegi 4 (græn gata), Köpavogi- simi 577 3377 Sigg,a &Tiwo G U L L S M í Ð I STRANDGATA 19 SiMI S65 4854 Umbotlsmenn um nlll Innd - Fást í helstu útivistarverslunum Nú er vetur gengin í garð og tími til komin að setja vetrardekkin undir bílinn. Hjá Bflkó færðu úrvals vetrardekk af öllum stærðum og gerðum. Spólaðu ekki í sama farinu! Pantaðu tíma í síma 5573110 eða komdu við á smiðjuvegi 34-36 og þú færð toppþjónustu á hreint ótrúlegu verði. BÍLKÓ EHF.- Bifreiðaþjónusta - Dekkjaverkstæði - Bílaþvottur Smiðjuvegur 34-36 ■ Kópavogi ■ Simi 557 9110 ■ Rauð gata OPIÐ 08-18 MÁN-FÖS. OPIÐ 10-16 LAU. NEYÐARÞJÓNUSTAN ALLTAF OPIN SÍMI800 4949.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.