Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 73
DAGBOK
BRIDS
límxjrtn Guðmundnr l’rtll
Arnarsun.
Við grípum niður í bik-
arleik frá því í sumar,
þar sem við áttust sveitir
Flugleiða - frakt og Jóns
Erlingssonar. í NS voru
Páll Bergsson og Björn
Theódórsson, en AV Vil-
hjálmur Sigurðsson,
stundum nefndur júníor,
og Gunnar Valur Gunn-
arsson:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Nofður
* A10
¥ 10
* 9862
* KD10863
Vestur Austur
*8 *KG97542
¥G732 ¥954
♦ KG105 »74
+G754 +2
Suður
+D63
¥ÁKD86
♦ÁD3
+Á9
Vestur Norður Austur Suður
2 lauf
Pass 3 lauf 3 spaðar 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass 5 tíglar
Pass 6 lauf Allir pass
Páll og Björn spila stand-
ard og Páll í suður ákvað
að vekja á alkröfu. Svar
Björns á þremur laufum
lofaði góðum lit og já-
kvæðum spilum og síðan
lá leiðin upp í sex lauf.
Vestur kom út með
spaðaáttuna í lit mak-
kers. Páll drap með ás og
lét sér detta í hug að
taka laufás og svína strax
fyrir gosann fjórða í vest-
ur, því einhverja ástæðu
hlaut austur að hafa fyrir
innákomunni. En það
væri að setja öll eggin í
sömu körfuna og Páll tók
laufið ofanfrá. Þar með
var ljóst að vestur átti
slag á laufgosa.
Páll sneri sér nú að
hjartanu; tók þrjá efstu
(henti spaða) og stakk
hjarta. Nú var hjartað
frítt og það eina sem átti
eftir að gera var að svína
tígli-
En bíðum við? Þrátt
fyrir innákomuna var
ekki endilega víst að
austur ætti tígulkónginn.
Það gat ekki skaðað að
fresta svíningunni, því ef
spaðinn var 7-1 myndi
vestur ekki komast út
nema á tígli. Páll spilaði
því trompi á gosa vesturs
og fékk sendingu upp í
tígulgaffalinn. Tólf slagir.
Slemman var líka sögð
á hinu borðinu, en tap-
aðist þar.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsima
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Arnað heilla
Q fj ÁRA afmæli. Á
»/U morgun, laugardag-
inn 23. desember, verður ní-
ræð Geirlaug Guðmunds-
dóttir. Hún mun taka á móti
gestum þann sama dag milli
kl. 16 og 20 á heimili frænku
sinnar, Sigurborgar Valdi-
marsdóttur, og eiginmanns
hennar, Jóns Ólafssonar,
Rauðagerði 49, Reykjavík.
Vonast hún til að sem flestir
vinir og ættingjar sjái sér
fært að gleðjast með henni á
þessum merku tímamótum.
Í7Q ÁRA afmæli. í dag,
I vr föstudaginn 22. des-
ember, verður sjötug Ingi-
björg Hermannsdóttir. Hún
heldur upp á afmælið sitt í
New York með fjölskyldu
sinni.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 17. júní sl. í Bessa-
staðakirkju af sr. Sigurði
Arnarsyni Dýrleif Olafs-
dóttir og Gunnar Ingi Guð-
mundsson. Heimili þeirra er
í Hafnarfírði.
Með morgunkaffinu
SK\K
IJmsjön llelgi Áss
Grrttarsson
Viswanathan Anand
(2.774) hefur staðið undir
væntingum sem stiga-
hæsti skákmaður heims-
meistaramóts FIDE.
Hann hefur sýnt mikið ör-
yggi og etur nú kappi við
Alexei Shirov um heims-
meistaratitilinn. Staðan
kom upp fyrr í keppninni á
milli hans, hvítt, og
pólska stórmeistar-
ans Bartlomiej Ma-
cieja (2.536) 25.
Bxe6! fxe6 26.
Dxe6+ Kh8 26.
...Kg7 væri vel svar-
að með 27. Hd7+
Kg6 28. Df7+ Kf5
29. g4+ og hvítur
hefur stórsókn fyrir
manninn. 27.
Dxf6+ Kg8 28.
De6+ Kh8 29.
Dxh6+ Kg8 30.
De6+ Kh8 31. h3
Hf8 32. Dh6+ Kg8 33.
Dg6+ Kh8 34. Dg3 Dc2 35.
Hd4 og svartur gafst upp
enda fátt um fína drætti.
Skákin í heild tefldist
svona: 1. e4 c6 2. d4 d5 3.
Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5.
Bc4 Rgf6 6. Rg5 e6 7. De2
Rb6 8. Bb3 h6 9. R5f3 a5
10. a4 c5 11. Bf4 Bd6 12.
Re5 0-0 13. Rgf3 Rbd5 14.
Bg3 Dc7 15. dxc5 Dxc5 16.
0-0 b6 17. Hfdl Ba6 18. c4
Had8 19. Rd4 Bxe5 20.
Bxe5 Rb4 21. Rb5 Bxb5 22.
cxb5 Hxdl + 23. Hxdl Hc8
24. Bxf6gxf6.
Hvítur á leik.
LJOÐABROT
ÞULA
Kvölda tekur, setzt er sól,
sveimar þoka um dalinn,
komið er heim á kvíaból
kýrnar, féð og smalinn.
Dagurinn líður, dimma fer,
dregst að nóttin svala;
myrkrið gerir mér og þér
marga byltu fala.
Kvöldúlfur er kominn hér
kunnugur innan gátta;
sólin rennur, sýnist mér,
senn er mái að hátta.
STJÖRJYIJSPA
eftir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert tilfinninganæmur og
feiminn, en fastheldni
þín á skoðanir á mönnum
og málefnum fer í
taugarnar á sumum.
Hrútur
(21. mars -19. apríi)
Reyndu að ti-yggja það að
óprúttnir aðilar misnoti ekki
árangur erfiðis þíns í sína
þágu og málstaðar, sem þér
er hreint ekki að skapi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Afbrýðisemi er andstyggileg
og eyðandi; ekki láta hana ná
tökum á þér. Reyndu að ein-
beita þér að þeim verkefnum,
sem þú þarft að leysa.
Tvtburar
(21. maí - 20. júní) Afl
Það þarf lag til að stefna öll-
um þáttum þannig að þeir
beri að þeim brunni, sem þú
vilt. En þú getur þetta ef þú
lætur aðra ekki ráða ferðinni.
Krabbi
(21. júnf-22. júlí)
Það er ekki um annað að
ræða en setja undir sig haus-
inn og berjast gegn óveðrinu.
Misstu ekki móðinn, brátt
styttir upp og þá ert þú í góð-
um málum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Það er affarasælast að taka
bara eitt skref í einu, þegar
um viðkvæm persónuleg mál
er að ræða.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) wmL
Það er um að gera að hafa
gaman af hlutunum. Það er
ekkert rangt við það að sjá
broslegar hliðar á mönnum
og málefnum, þegar svo ber
undir.
Vog m
(23.sept.-22.okt.)
Það er eitthvert slen í þér og
þú ættir að geyma erfíðustu
verkefnin tU betri tíma. Láttu
það vera að fara á rand með-
an þú ert ekki hressari.
Sþorðdreki ^
(23. okt. - 21. nóv.)
Það gengur ekki alltaf upp að
halda öllu íyrir sig. Stundum
er nauðsynlegt að deila hlut-
um með öðrum svo hjólin snú-
ist og mál komist í höfn.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) AÍ-y
Það er engin ástæða til þess
að láta smáatriði standa í veg-
inum fyrir því að tilskilinn ár-
angur náist. Reyndu að yfír-
vinna óttann í sjálfum þér.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) éSlf
Þeir eru margir sem hafa
þörf fyrir hjálparhönd þína.
En mundu að þú þarft líka að
hugsa um sjálfan þig; annars
hefur þú ekkert að gefa öðr-
um.
Vatnsberi
(20.jan.-18. febr.)
Ekki bregðast harkalega við,
þótt þér þyki tilboð vinnu-
félaga þíns út í hött. Reyndu
að fínna flöt á samkomulags-
leið og fá hann til að ganga
hana.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það gæti verið rétt í stöðunni
að leyfa hlutunum að þróast
af sjálfu sér. Of mikil stýring
getur leitt til þess að æskileg-
ur árangur náist ekki.
Stjörnuspána á að iesa sem
dægradvöi. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Jólanáttfatnaður
Velour- og flíssloppar, náttkjólar, náttföt
Mikið úrval af fallegum dömufatnaði
^/jSey/aiYiary « á/N/z/roe/Y,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
schIess'ér' ’
Nærbolir 09 buxur fyrir börn 09 fullorðna
Náffföt 09 fatnaður í úrvali til jólagjafa
♦c BÚÐIN |
Garðatorgi, sími 565 6550
J ólastemmning
í Míru
20% afsláttur af öllum
borðstofusettum og sófaborðum til jóla.
30% afsláttur afpostulíni
og glösum
Opið til kl. 22 til jóla
mlö
- Bæjarlind 6,
" sími 554 6300
www.mira.is
Fyrir konur, karla, börn og kornabörn
Ull - angóra - silki
100 gerðir af nærbuxum
200 gerðir af nærbolum
Opið 10-22
* silkinærföt * úlniiðshlífar
* merinóullarnærföt * tískunærföt svört
* sokkar
* ökklahlífar
* hnjáhlífar
* mittishlffar
* axlahiífar
og hvít
* silkihúfur
* lambhúshettur ull
eða silki
* vettlingar
* inniskór
Allt til að halda hita frá toppi til táar
Náttúrulækningabúðin
Hlíðasmára 14, Kópavogi, s. 544 4344.