Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNIl, 103 REYKJAVÍK, SÍMI5601100, SÍMBRÉF5691181,PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI:KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Samið við
VI í
FUNDUR samninganefndar fram-
haldsskólakennara og samninga-
nefndar ríkisins hjá ríkissáttasemj-
ara stóð fram yfír miðnætti í
gærkvöldi og hefur annar verið boð-
aður fyrir hádegi í dag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur þokast nokkuð í við-
ræðunum, enda er fundað frá
morgni til kvölds. Fréttabann er þó
enn á deiluaðilum að ósk Þóris Ein-
arssonar ríkissáttasemjara.
Á vefsíðu Kennarasambands ís-
lands var skýrt frá því í gærkvöld
dag?
að alvarleg tilraun sé nú gerð til
þess að leysa kjaradeiluna. Ekki sé
þó Ijóst á þessari stundu hvort sam-
komulag náist fyrir jól um meginlín-
ur nýs kjarasamnings. Á hinn bóg-
inn sé ekki talið útilokað að hægt
verði að ganga frá nýjum samningi
við Verslunarskóla Islands í dag,
föstudag.
Þórir sagðist í gærkvöld mundu
gefa samninganefndunum stutt frí
yfir jólin, en síðan yrði aftur tekið til
við viðræður á þriðja í jólum, hefði
ekki samist fyrir þann tíma.
Blés lífí í ársgamlan son sinn eftir bflveltu við Blöndu
„Þakka forsjóninni
giftusamlega björgun44
FÖÐUR tókst að blása lífi í árs-
gamlan son sinn eftir bílveltu við
Geitaskarð í Langadal í Austur-
Húnavatnssýslu skömmu eftir há-
degi í gær. Fimm voru í bflnum, þar
af hjón með tvö böm. Var hópurinn
fluttur á sjúkrahúsið á Blönduósi.
Þaðan var drengurinn sendur með
þyrlu Landhelgisgæslunnar ásamt
föður sínum til Reykjavíkur, enda
var hann kaldur eftir að hafa verið í
kafi í ánni nokkra stund.
Litli drengurinn mun úr bráðri
hættu og heilsast eftir atvikum vel,
að sögn sérfræðings á Landspítal-
anum. Bfllinn hafnaði á hvolfi úti í á,
en fólkinu tókst að komast út, m.a.
með aðstoð vegfarenda.
Bjami Á. Jóhannsson, kennari í
Víðilundi við Hofsós, er afi litla
drengsins sem bjargaðist og það
var sonur hans sem brá svo skjótt
við eftir slysið og blés lífi í dreng-
inn._
„Ég þakka forsjóninni fyrir
giftusamlega björgun," sagði hann í
gærkvöld, en hann hafði þá talað
við son sinn í síma að sunnan. „Litla
drengnum heilsast eftir atvikum
vel og fyrir það eram við svo sann-
arlega þakklát. Það hefði getað far-
ið miklu verr,“ sagði hann.
Bjarni sagði að nokkur hálka
hefði verið á þjóðveginum þegar
slysið varð og bfllinn hefði rannið
til, oltið og lent á hvolfi ofan í ánni.
Allir í bflnum hefðu verið með bfl-
belti og það hefði líklega skipt
miklu.
Fengu
þríbura
ijolagjof
FJÖLSKYLDAN á Langholtsvegi
169a stækkaði um helming 4. des-
ember síðastliðinn þegar hjónin
Benedikt Þórisson sjóntækjafræð-
ingur og Guðrún Guðjónsdóttir
gleraugnasmiður eignuðust þrí-
bura. Bömunum heilsast öllum vel.
„Við vorum stutt á fæðingardeild,
vorum útskrifuð eftír tíu daga.
Börnin voru frísk og enginn þurfti
að fara í hitakassa," segir Guðrún.
Bömin, sem tekin vom með keis-
araskurði, hafa þegar verið nefhd.
Drengimir tveir eru nefndir Magn-
ús, sem var 10 merkur við fæðingu,
og Óðinn, 9 merkur, og stúlkan
Áma, 9 merkur, í höfuðið á systur
Guðrúnar. Fæðingin gekk, að sögn
Guðrúnar, ákaflega vel, og gekk
hún með bömin í 36 vikur og 4 daga.
Guðrún, sem gekkst undir glasa-
fijóvgun, vissi mjög fljótlega að
bömin væm þijú. Guðjón Bene-
diktsson, bróðir nýburanna, er mjög
ánægður með gang mála og lítur á
systkinin sem bestu jólagjöf. Hann
fókk að ráða nafninu á Magnúsi og
Benedikt valdi Óðni nafn.
Banaslys á
Fljótsheiði
BANASLYS varð síðdegis í gær er
tveir bflar, jeppi og fólksbfll, lentu í
hörðum árekstri á vestanverðri
. Fljótsheiði í Reykjadalshreppi.
'*Kona á fimmtugsaldri lét lífið í
árekstrinum, en hún var ein í fólks-
bflnum.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
var hún látin þegar að var komið.
Ökumaður jeppans slasaðist ekki.
Morgunblaðið/Arni bæberg
Guðrún, Guðjón og Benedikt með þríburana á heimili sínu á Langholtsvegi.
Byggðastofnun tekur þátt í hlutafjársöfnun Smyril Line
Kaupir hlutafé
fyrir 50 milljónir
STJÓRN Byggðastofnunar hefur
ákveðið að taka þátt í hlutafjáraukn-
ingu færeyska félagsins Smyril Line
sem á og rekur ferjuna Norrænu.
Leggur stofnunin fram um 50 millj-
óna kr. hlutafé og lánar Austfari ehf.,
umboðsaðila Norrænu, jafnháa fjár-
hæð til hlutafjárkaupa. Samtals er
MITSUBISHI
MITSUBISHI
- dcmantar t umferö
HEKLA
-ÍJórystuá nýrri öld !
fyrirgreiðsla Byggðastofnunar því
um 100 milljónir kr.
Smyril Line hefur samið við skipa-
smíðastöð í Flensborg í Þýskalandi
um smíði nýrrar bfla- og farþega-
ferju sem á að leysa Norrænu af
hólmi. Upphaflega var gert ráð íyrir
að nýja feijan yrði tekin í notkun vor-
ið 2002 en nú hefur skipasmíðastöðin
tilkynnt að það verði ekki fyrr en vor-
ið 2003 þar sem Smyril Line hafi ekki
tekist að greiða útborgun vegna
samningsins. Heildarverð skipsins er
88 milljónir evra, eða sem svarar 6,8
milljörðum íslenskra króna. Fram
kom í stjóm Byggðastofnunar í gær
að þýskir og hollenskir bankar lána
80% smíðaverðsins og 20% eiga að
koma frá Smyril Line. Unnið hefur
verið að söfnun hlutafjár, bæði í Fær-
eyjum og erlendis. Komið hefur fram
að færeyska landstjómin hafnaði því
nýlega að veita ábyrgð vegna skipa-
kaupanna en fyrirtækið hefur að
nýju óskað eftir fyrirgreiðslu land-
stjómarinnar, nú fyrir framlagi sem
svarar til 250 milljóna kr.
Mun vera miðað við að hlutur ís-
lendinga í hlutafjáraukningunni
verði um 150 milljónir kr. Austfar
ehf. á Seyðisfirði, umboðsaðili Smyril
Line hér á landi, óskaði eftir fyrir-
greiðslu Byggðastofnunar. Sam-
þykkti stjómin á fundi sínum í fyrra-
dag að leggja fram 5 milljóna
danskra króna hlutafé í Smyril Line
og lána Austfari ehf. 5 milljónir dkr.
til viðbótar til að taka þátt í hlutafjár-
aukningunni. Fyrirgreiðsla stofnun-
arinnar nemur því samtals um 100
milljónum króna. Samþykktin er háð
því skilyrði að áætlun um fjármögn-
un skipakaupanna gangi að öllu leyti
eftir. Er þetta í fyrsta skipti sem
Byggðastofnun leggur fé í erlent fyr-
irtæki.
Að sögn Guðmundar Malmquist,
forstjóra Byggðastofnunar, skipta
ferjusiglingamar til landsins miklu
máli fyrir landsbyggðina. Hann segir
að stofnunin hafi einnig hagsmuni að
verja því hún hafi lánað 2 milljarða til
ferðaþjónustufyrirtækja á lands-
byggðinni.
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur
verið tilnefnd til tvennra Goiden
Globe-verðlauna, sem besta aðal-
leikkonan í flokki drama-kvik-
mynda fyrir leik sinn í Myrkra-
dansaraaum og fyrir besta
frumsamda lag úr kvikmynd, „I’ve
Seen It All“, úr sömu mynd, lag
sem hún samdi við texta Sjón og
Lars von Trier.
Þær leikkonur sem tilnefndar
eru í sama flokki eru Julia Roberts
fyrir hlutverk sitt í Erin Brockov-
icli, Joan Allen fyrir The Contend-
er, Laura Linney fyrir You Can’t
Count On Me og Ellen Burstin fyr-
ir Requiem For A Dream.
Meðal þeirra tónlistarmanna
sem keppa við Björk og Sjón um
verðlaunin fyrir besta lagið eru
Bob Dylan, Sting og Garth Brooks.
■ Björk tilnefnd/79
-------MH----------
Harður árekst-
ur við Þjórsá
MJÖG harður árekstur varð á þjóð-
veginum rétt austan Þjórsár um kl. 22
í gærkvöld. Bfll hafði bilað í vegkant-
inum og stóram jeppa verið lagt fyrir
framan hann til að lýsa upp svæðið.
Ökumaður bfls á leið í vestur sá ekki
bilaða bflinn, sem var ljóslaus, og
hafnaði á honum. Þtjú ungmenni og
maður, sem varð á milli bflanna, vora
flutt á sjúkrahús til Reykjavíkur en
allir reyndust vera með meðvitund.
GÁíTAlíFUR