Skírnir - 01.01.1868, Blaðsíða 8
8
INNGANGUB.
álfum. Hinn skálinn var matsöluhús, og má nærri fara um,
hversu mjög hafi veriS vandaS til um allan sala- og borSbúnað,
er hann einn kostabi */* milljón franka. Frakkar kunna bezt til
matgerSar allra Í>jó5a, og eptir þeim taka næstum allir tilbúning
og nöfn rjetta, enda J>óttu veitingar þeirra bera af öllum öSrum,
utan hvaS Englendingar þóttu í sínum skála, sem heima, bera
fram kostmesta fæSu. — Til sýningarkallarinnar hafSi forstöSu-
nefndin variS 10 milljónum og 350,000 franka, en til hinna hús-
anna og alls umbúningsins á vellinum reikna menn, aS hafi gengiS
aS minnsta lagi 45 miiljónir. — Af þessu litla yfirliti má skynja,
aS Frakkar gátu meS rjettu kallaS þaS heimskönnun, aS ferSast
um á Marsvellinum og sjá alla J>á margbreytni og öll þau kynjaauSæfi,
er J>ar gaf aS Hta. VallarsvæSiS fjekk forstöSunefndin til umráSa
í lok septembermánaSar 1865, og frá þeim tíma hafSi henni
tekizt, aS húa til ena miklu og fögru tjaldbúS friSarins, kjör-
gripahlöSu allra veraldar, prófskóla framfaranna og samkundustaS
allra þjóSa.
Ásamt gripasýningunni var haldin landyrkju- og landbtinaSar-
sýning á eyju í Signufljótinu skammt frá Parísarhorg, er Villan-
court heitir. þar var sýnd jarSyrkja og iandbúnaSar aSferS ýmissa
þjóSa, engjarækt, garSyrkja, kornyrkja, uppskeru aSferS, hirSing
korns og heys, meSferS málnytu, tilbúningur vína og olíu, vaxgerS
og liunangs, allskonar vjelar er heyra til sláttar, uppskeru og
kornhirSingar, og hvernig þeim er beitt í hverri grein. — Enn
fremur gengu menn frá ýmsum löndum til prófs í söng, hljóSfæra-
list og IjóSlagagerS, og var þetta þreytt og prófaS til verSlauna
sem í öSrum greinum. AS endingu má geta þess, aS verSlaun
voru sett til handa fjelögum eSa stofnunum, er höfSu eflt samtök
meSal verkmanna í nytsamlegum tilgangi, eSa hætt efnahag þeirra,
siSi cSa kunnáttu.
MeS því aS hvert ríki þykist vinna sjer hæSi til gagns og
frama meS því aS gangast fyrir slíkum fyrirtækjum, láta höfSingjar
þeirra sín jafnan viS þau getiS. þcir fá jafnan nánustu ættingjum
sínum forstöSuna fyrir þeim í hendur og koma sjálfir fram fyrir
þegnum sínum og gestum á vígsluhátíSunum. Napóleon keisari
hafSi í þetta skipti sæmt son sinr. meS formannsnafninu, en til